Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Side 26
26
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
Helgarblað
............—__________— , Mk
Elizabet Hurley
Hún hefur fengið gestahlutverk í
sápuóperu.
Elizabet Hurley:
Leikur í
sápuóperu
Elizabet Hurley, leikkona og ofur-
fyrirsæta, hefur veriö talsvert í
fréttum aö undanfbrnu eftir að hún
skildi við eiginmann sinn til
margra ára, Hugh Grant leikara.
Sérstaklega þóttu umsagnir hennar
um bólfarir þeirra hjóna áhugaverö-
ar en Hurley sagöi að Grant væri
slakur í rúminu, lítt vaxinn niður
og áhugalaus. Þetta mun eitthvað
hafa skolast til í meðförum fjöl-
miðla en var góð skemmtun.
Hurley hefur að undanförnu sést
iðulega í fylgd með leikaranum Den-
is Leary sem leikur aðalhlutverkið i
sápuóperu sem heitir The Job.
Orðrómur hefur heyrst um að þau
væru meira en vinir en Leary er
giftur maður. Þessi orðrómur fékk
byr undir báða vængi þegar Hurley
ákvað að koma fram i einum þætti
téðrar sápuóperu. í þættinum sem
Hurley leikur í kemur Donald
Trump einnig fram. Hann leikur
sjálfan sig og veður inn á veitinga-
stað þar sem Hurley og Leary sitja
og spyr hann Leary hvort þau séu
aö sofa saman.
Gárungar segja að þetta sé gott
dæmi um að listin líki eftir lifmu
því það sé einmitt það sem Hurley
og Leary geri utan sviðs.
Baksviðs með börnunum
- Borgarleikhúsið elur upp áhorfendur framtíðarinnar
Gamalí íslenskt máltœki
segir: Það man sauöur hvar
lamb gengur og vísar til
horfinna búskaparhátta. Því
óeigingjarna uppeldisstarfi
sem Borgarleikhúsið vinnur
með grunnskólabörnum í
Reykjavík má að vissu leyti
líkja við þessa hugsun Jjár-
bóndans þó eflaust finnist
einhverjum það vera á mörk-
um þess sæmilega að líkja
áhorfendum við fé.
Borgarleikhúsiö hefur árum sam-
an boðið 9 og 10 ára börnum úr
grunnskólum Reykjavíkur í heim-
sókn í leikhúsið til þess að kynna
leiklistina og starfsemi leikhússins
fyrir þeim. Þarna er á ferðinni sama
hugsunin og í máltækinu. Hrífist
böm af leikhúsinu á unga aldri
verða þau líklega dyggir leikhús-
gestir þegar þau vaxa úr grasi.
Þetta þýöir að einn mánuð á ári
koma í kringum 150-200 börn í
heimsókn i leikhúsið á degi hverj-
um. Þessar heimsóknir standa nú
Prinsinn er ekki sáttur viö sokkabuxurnar, getur ekki lært textann og.vill
helst syngja sjóræningjalög.
Prúð og frjálsleg í fasi
Börnin úr Melaskóla voru ótrúlega stillt meöan pau voru leidd um
töfraheima leikhússins í Borgarleikhúsinu.
yfir og blaðamaður og ljósmyndari
DV fetuðu sporaslóð eins hópsins
gegnum innviði leikhússins. Þessi
kynning er í ár með nýju sniði og
nokkuð veglegri en verið hefur því
Vigdís Gunnarsdóttir leikkona hef-
ur skrifað sérstakt leikrit í kringum
þetta verkefni sem Gunnar Gunn-
steinsson hefur leikstýrt.
Meö í leikritinu
Leikritið nær utan um alla heim-
sóknina því bömin eru sett inn i
verkið strax í andyrinu þar sem
dyravörður tekur á móti þeim og
stjórnar förinni. Það em þau Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Halldór
Gylfason og Soffia Jakobsdóttir sem
leika hvert um sig nokkur hlutverk
í leikritinu.
Það er ekki heiglum hent að
hemja stóran hóp 9 og 10 ára barna
sem að þessu sinni koma úr Mela-
skóla í fylgd tveggja kennara sinna.
Katla dyravörður tekur þau strax
traustataki og svo hefst vegferðin
gegnum húsið. Á vegi þeirra verða
leikstjóri sem leitar að leikara,
týndur leikari, fröken Sminkólína,
Hanni hönnuður að ógleymdri
fröken Fýlu sem er svo óskaplega
neikvæð.
Heimamyndbönd
Ragnheiður
Eiríksdóttir
skrifar
um kynlíf
ur hennar myndu engan árangur
bera svo að hún hætti öllu nöldri og
huggaði sig við pamelumyndbandið
sem hún skellti í tækið eina ferðina
enn.
Málamiðlun?
Heföi Ex átt að láta undan og
leyfa Zetu að ýta á upptökutakkann?
Hefði Zeta átt að halda kjafti eftir
fyrsta svarið frá ástkærum eigin-
manni sinum? Hefðu þau ef til vill
getað komist að málamiölun sem
bæði hefðu sætt sig viö? Kannski
hefði þetta gengið upp ef Zeta heföi
sett dæmið upp aðeins öðruvísi í
upphafi. Kannski hefði hún átt að
byrja á að mynda smákelerí eða
karlinn sinn í baði. Kannski hefði
hann smám saman vanist því að sjá
kroppinn sinn í mynd og að lokum
fimdið hjá sér öryggi til að ganga
alla leiö. Auðvitað varð hún samt að
virða hans skoðun og rétt til að
neita þátttöku í framleiðslu blaut-
legra heimamyndbanda.
Innan skamms mun ég fjalla itar-
lega um gerð svefnherbergismynd-
banda í pistilkominu.
Ragnheiöur Eiríksdóttir er hjúkr-
unarfræðingur og kynlífsráðgjafí á
www.persona.is
þykkti nánast allt sem stúlkan
stakk upp á.
VHS
Einn fagran sunnudag eftir Þing-
vallaferð var Zeta sérstaklega
kynæst og stakk upp á því að þau
stilltu nýju vídeóvélinni upp í svefn-
herberginu og tækju heitan ástar-
leik upp á myndband. Hún var búin
að ganga með þessa hugmynd í mag-
anum alveg síðan hún sá heima-
myndband Pamelu og Tómasar sem
löngu er orðið frægt. Þetta þótti
eymingja Ex algjörlega afleit hug-
detta því hann var frekar feiminn
að eðlisfari og þótti margt skemmti-
legra en að horfa á rassinn á sjálf-
um sér hristast til og frá. Reyndar
hafði hann aldrei prófað það en lík-
amskomplexamir sem hann gekk
með í höfði sér ollu því að hann
mótmælti hugmyndinni af ákafa.
Zeta reyndi og reyndi að beita hann
alls kyns tálbrögðum og þvingun-
um, lofaði að baka handa honum
skúffuköku og gefa honum heOnudd
fjórum sinnum að launum. Reyndar
fannst honum hugmyndin dálítiö
æsandi, einhvers staðar djúpt inni í
æsingarstöð heOans, en hann hafði
líka mjög ríka þörf fyrir að upplifa
sjálfan sig grandvaran og óperver-
tískan. Hann haföi tekið þátt í
bindileikjum, náttúrukynlifi, bOa-
kynlífi, bláalónskynlifi og leik-
fangaprufukeyrslum með Zetu sinni
en nú var kynlífsmælirinn fullur og
honum varð ekki haggað frá
ákvörðun sinni. Dónaleg svefnher-
bergismyndbönd voru einum of stór
biti að kyngja. Zeta sá loks að fortöl-
Ex og Zeta eru hjón, barnlaus og
gengur ansi vel í lífsgæðakapp-
hlaupinu. Hann ekur um á Mússó
og hún á Rómeó, DVD í stofunni og
krómuð Kitchen aid í kirsuberjavið-
arklæddu eldhúsinu. Þegar þau
kynntust fyrir sex árum
var Ex nýskOinn eftir
10 ára hjónaband en
Zeta hafði verið laus
og liðug síðan um tví-
tugt. Hann hafði
kynnst konuefninu
sautján ára á réttar-
baUi og gengið í
hnapphelduna ári síð-
ar og lifað viðburða-
litlu en þokkalega full-
nægjandi hjónakynlífi
næsta áratuginn. Zeta
hafði hins vegar misst
meydóminn með ung-
dóms-kærastanum
fimmtán ára gömul og
stigið sín fyrstu kynlífs-
spor með honum næstu
fjögur árin. Eftir það gaf
hún sig nautnunum á
vald og notaði timann til
að bragða á aUs kyns
boðnum og forboðnum
ávöxtum holdlegra
lystisemda.
Einu sinni átti hún
kærasta sem var með bíladeUu
á háu stigi og þau gerðu það aldrei
nema í pontíaknum hans eða inni í
stofu með formúlu eitt í sjónvarp-
inu. Annar kærasti var næturvörð-
ur i banka og þau bönkuðu hvort
annað í bankanum hverja nótt í
stöðugum ótta og æsingi yfir því að
nást á öryggismyndband og missa
æruna. Kærastinn sem var og hét á
tuttugasta og fimmta aldursári Zetu
var óskaplega hrifinn af því að láta
niðurlægja sig á ýmsa lund og hin
drottnandi Zeta blómstraði sem
aldrei fyrr.
Einu sinni svaf hún hjá pari sumar-
langt.
Hún hafði upplifað kynlíf á alla
kanta og haft gaman af: fiengt og
verið flengd, notið þermileikja og
þrykkinga til hægri, vinstri, á hlið,
hvolfi og hangandi í rólu.
Fjöltækni og ást
Því fór samt fjarri að hún hefði
bragðað á öllu sem hugurinn stóð til
þegar hún kynntist Ex. Hún hafði
helling af hugmyndum i sínum frjóa
kolli sem hún átti eftir að koma i
fram-
kvæmd. Ex tók uppá-
tækjum Zetu með stóískri ró og lét
ýmislegt eftir henni, án þess að vera
neitt voðalega æstur í allar athafn-
irnar. í raun kunni hann betur við
reglubundið rólyndiskynlíf, trú-
boða, tunguleiki og þess háttar. Ást-
in á Zetu gerði hann samt mjúkan
og meðfærilegan svo að hann sam-