Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Side 35
34
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
47
Helgarblað
DV DV
Helgarblað
Hilmir Snær Guðnason er sa sem allir vildu raöa.
Hilmir kaus að vera um kyrrt í Þjóðleikhúsinu og veturinn í vetur hefur verið honum gjöfull því frammistaða hans í Horfðu reiður um öxl gleymist engum sem sá og Með fulla vasa afgrjótl nýtur gríðar-
legra vinsælda. Þetta varö til þess að önnur leikhús urðu að fresta eða s/eppa boðuðum verkefnum sem Hilmir átti að taka þátt í. Hann er gulldrengur íslensks leikhúss þessi misseri.
- þrjú leikhús bítast um hylli áhorfenda og slást um stjörnurnar sem skína
eða slokkna. Hvað gekk vel og hvað gekk illa? Hverju var sleppt og hverju
frestað og hvers vegna? DV gerir úttekt á íslenskum leikhúsvetri.
Þegar Leikfélag íslands var
sameinað flugfélaginu Lofti
og fyrirtœkinu Hljóðsetn-
ingu í lok maí vorið 2000
var sagt á forsíðu Helgar-
blaðs DV að risi væri fœdd-
ur í Iðnó. Magnús Geir
Þórðarson leikhússtjóri
sagði í samtali við blaðið að
nú vœri þriðja atvinnuleik-
húsið á íslandi orðið að
veruleika en fyrírtœkið
hugðist fastráða sex leikara
til starfa og veita hinum
tveimur leikhúsunum,
Borgarleikhúsi og Þjóðleik-
húsi, samkeppni á einhvers
konar jafnréttisgrundvelli.
Borgarleikhúsið stóð einnig á tíma-
mótum á síðasta ári því nýr leikhús-
stjóri, Guðjón Pedersen, tók við stjórn-
taumunum og sá vetur sem nú er senn
liðinn er fyrsti vetur hans við völd í
Kringlumýrinni.
Þjóðleikhúsið er sem fyrr undir
styrkri stjóm Stefáns Baldurssonar
sem hefur ásamt Sveini Einarssyni og
Guðlaugi Rósinkrans lengsta starfs-
reynslu sem leikhússtjóri á íslandi.
Viltu vinnu, væni?
Þegar verið var að ganga frá ráðn-
ingarsamningum leikara hjá Leikfé-
lagi íslands síðastliðið haust og sumar
er óhætt að segja að nokkurt rót hafi
komist á leikarastéttina en vegna þess-
ara umskipta hurfu Sigurður Sigur-
jónsson, Öm Ámason og Jóhann Sig-
urðarson frá Þjóðleikhúsinu en þeir
em allir hluthafar í Leikfélagi Islands
gegnum Hljóösetningu ehf. Öm og Sig-
urður starfa í Iðnó en Jóhann er í
söngnámi á Ítalíu. Einhver umskipti
urðu í Borgarleikhúsi í kjölfar leikhús-
stjóraskipta og Ingvar E. Sigurðsson
sagði lausum samningi sínum við
Þjóðleikhúsið.
Þetta leit opinberlega út eins og dá-
lítið stjörnustríð og sérstaklega var
fylgst með því hvemig Hiimir Snær
Guðnason myndi haga ráðningarmál-
um sínum en hann hefur lengi verið
fastráðinn í Þjóðleikhúsi. Þrálátur
orðrómur heyrðist um að hann vOdi
breyta því en af því varð ekki. DV hef-
ur heimildir fyrir því að hann hafi ver-
ið kominn mjög nálægt samningi við
Leikfélag Islands. Leikfélag íslands
lýsti því reyndar yflr að Hilmir gengi
til liðs við það haustið 2001 en af því
verður ekki.
Hvar er Oliver?
Einnig mætti rifja upp væringar
sem urðu milli Þjóðleikhússins og
Leikfélags íslands vegna sýningarrétt-
ar á söngleiknum Oliver Twist sem
Leikfélag íslands ætlaði aö sýna og var
undirbúningur kominn í gang þegar
Stefán Baldursson flaug til London og
tryggði sér sýningarréttinn sem Leik-
félagsmönnum hafði láðst að gera.
Leikfélagsmenn reiddust nokkuð en
fengu ekki að gert. Þjóðleikhúsið sýnir
ekki Oliver Twist á þessu leikári held-
ur geymir til næsta árs.
Síðan má bæta í þennan suðupott
ails kyns greinarskrifum og umræðum
sem aðallega snerust um kosti og galla
markaðsleikhúss og hvað markaðsleik-
hús eiginlega væri. Þeir Baltasar Kor-
mákur og Hávar Sigurjónsson tókust á
um það svo gneistaði af sverðum á síð-
um dagblaðanna.
Allt var þetta indælt stríð en beindi
eðlilega mikilli athygli að starfi leik-
húsanna þótt ekki væru allir sáttir við
þá athygli. Nú er þessi fyrsti vetur
senn á enda og því ekki úr vegi að líta
yflr sviöið og reyna að átta sig á því
hvemig leikhúsunum hefur famast.
Hilmir Snær brillerar
Þjóðleikhúsið fór af stað í þennan
mikla samkeppnisvetur með Horfðu
reiður um öxl eftir John Osbome. Þar
var Hilmir Snær Guðnason í aðalhlut-
verki og fékk gríðarlega góða dóma
fyrir. Þrátt fyrir nokkurt nöldur um að
verkið ætti lítið erindi við okkar sam-
tíma sló sýningin rækilega í gegn og
var fljótlega flutt af litlu sviði á stórt og
hefúr gengið þar fyrir fullu húsi áhorf-
enda. Verið er að hætta sýningum á
því um þessar mundir þrátt fyrir
stöðuga eftirspum eftir miðum.
Hilmir Snær er einnig í öðm af
tveimur hlutverkum í írsku leikriti
sem heitir Með fulla vasa af grjóti og
hefur notið mikiila vinsælda á Bret-
landseyjum og írlandi undanfarin
misseri. Stefán Karl Stefánsson, undra-
bam og upprennandi stjama, leikur á
móti honum og hafa færri komist að
en vilja síðan sýningar hófúst. Það er
því óhætt að segja aö þessar tvær sýn-
ingar hafl verið „hit“ i Þjóðleikhúsinu
í vetur og það svo að mikil vandræði
hafa skapast því erfitt er að koma
mörgum vinsælum sýningum fyrir í
einu.
Nýlega var leikritið Laufin I
Toscana eftir Lars Norén frumsýnt og
hefur fengið frábæra dóma og góðar
undirtektir. Það var frumsýnt fyrr en
sumir aðstandendur sýningarinnar
hefðu viljað gagngert til þess að ná 12
sýningum eða svo á því inn á dagskrá
leikhússins því næsta fóstudag verður
söngleikurinn Singin in the Rain frum-
sýndur og má búast við verulegum
vinsældum. Blái hnötturinn, nýtt
bamaleikrit eftir Andra Snæ Magna-
son, hefur einnig gengið mjög vel.
Ánægjulegur vandi
Sýningar á Ástkonum Picassos urðu
fáar i Þjóðleikhúsi og nýju íslensku
leikriti eftir Kristján Þórð Hrafnsson,
Já hamingjan, var frekar fálega tekið
en það er þó enn sýnt. Tveimur frum-
sýningum, Vilja Emmu eftir David
Hare og Birdie, verður frestað til
hausts en verkin æfð í vor. Það er gert
vegna velgengni annarra verka sem
gerir það ókleift að koma þeim á svið.
„Þetta er ánægjulegur vandi og á
heildina litið er ég mjög ánægður með
veturinn í vetur,“ sagði Stefán Bald-
ursson í samtali við DV.
„Það er aldrei hægt að vita fyrir
fram hvað gengur og hvað ekki. Vin-
sældir Horfðu reiður um öxl komu
okkur ekki á óvart en ég hefði gjaman
viijað sjá Ástkonur Picassos ganga bet-
ur en þetta er aidrei hægt að reikna
út.“
Konungur er fallinn
Borgarleikhúsið viidi fá Hilmi Snæ
til sín og fékk hann með því að bjóða
honum aöalhlutverk í því fræga verki,
Beðið eftir Godot, og leikstjóm á
Abigail heldur partí, sem var önnur
tilraun hans á því sviði. Borgarleik-
húsið hóf vertíðina með uppfærslu á
Lé konungi eftir Shakespeare í leik-
stjóm Guðjóns Pedersens, nýbakaðs
leikhússtjóra sem, líkt og Stefán Bald-
ursson, hóf veturinn með eigin leik-
stjóm. Lér konungur féli. Dómar gagn-
rýnenda vom almennt neikvæðir og
undirtektir áhorfenda slæmar.
Sýning Viöars Eggertssonar, fyrr-
verandi leikhússtjóra í Borgarleikhúsi,
á öndvegiskonum eftir Wemer
Schwab fékk góðar undirtektir og gott
orðspor hefur tryggt sæmilega aðsókn.
Nýtt leikrit eftir Hailgrím Helgason,
Skáldanótt, fékk slæma dóma en hefúr
fengið rífandi góða aðsókn og fékk
Menningarverðlaun DV.
sýnt. Framsýningu hafði verið frestað
um eina viku þegar Ingvar flaug burt
og traustar heimildir DV herma að
sýningin hafl verið í mestu ógöngum
og átt langt í land með að vera sýning-
arhæf og er skuldinni einkum skellt á
leikstjóm Maríu Kristjánsdóttur.
í kjölfar þessara hremminga var
hálfrar aldar gamail farsi, Blúndur og
blásýra, driflnn á svið en dómar hafa
verið afleitir og sýningin virðist ekki
ætla að ná flugi þótt of snemmt sé að
afráða það. Bamaleikritið um skógar-
drenginn Móglí hefúr gengið prýði-
lega. Kontrabassinn eftir Patrick
Súskind var framsýndur í gær og of
snemmt að spá um afdrif hans.
Ein frumsýning er eftir í Borgarleik-
húsi. Það er leikrit sem heitir á ís-
lensku Píkupískur, eða Vagina
Monologues, sem hefur notið mikilla
vinsælda í Ameríku.
Beöiö eftir Hilmi
Hið fræga leikrit, Beðið eftir Godot,
eftir Samuel Beckett, var nær fullæft í
Borgarleikhúsi undir stjórn Peters
Enguist, sænsks leikstjóra, og forsýnt
tvisvar sinnum án leikmyndar og síð-
an frestað til hausts, að sögn vegna
þess að beðið er eftir innréttingu nýs
sviðs í tengibyggingu.
Hilmir Snær Guðnason leikur eitt
aðalhlutverkið í þessu rómaða verki
og mörgum finnst sennilegri skýring á
frestun verksins að með hann fastan í
tveimur mjög vinsæluin sýningum í
Þjóðleikhúsi, þ.e. Horfðu reiður um öxl
og Með fulla vasa af grjóti, hafi Borgar-
leikhúsið staðið frammi fyrir því að
geta ekki sýnt Godot nema í mesta lagi
á þriðjudögum og miðvikudögum og
þess vegna ákveðið að fresta.
Þegar horft er til falls Lés konungs,
mikils kostnaðar við uppsetningu á
Þjóðníðingi og frestun Godots verður
að telja að Guðjón Pedersen hafi farið
slysalega af stað sem leikhússtjóri
þennan fyrsta vetur og verður að vona
að þama sé fall fararheill.
Ekki náðist í Guðjón Pedersen leik-
hússtjóra vegna þessarar greinar.
Meö lúöraþyt og söng
Leikfélag ísiands fór af stað með
talsverðum lúðraþyt og söng í haust.
Gefinn var út veglegur bæklingur þar
sem verkefni vetrarins vora boðuð.
Vinsælasta verkefni vetrarins virðist
hafa verið Á sama tíma síðar, sem er
Sigurður Eyberg ekki meö
Leikfélag islands boðaði sýningu
söngleiks sem heitir Hedwig og átti að
fara á fjalimar í Loftkastalanum eftir
áramótin. Þetta er nýr söngleikur sem
hefur fengið fina dóma erlendis og sýn-
ingar gengið vel. Sýningum á söng-
leiknum hefur verið frestað fram í
júní, að sögn Leikfélagsmanna, vegna
plássleysis í Loftkastalanum. Önnur
ástæða mun vera sú að aðalleikarinn
og söngvarinn, Sigurður Eyberg að
nafni, sem ráðinn hafði verið þrátt fyr-
ir litla reynslu, var þegar á hólminn
var komið ekki nógu góður og verður
ný stjama ráðin í fyllingu tímans.
Samningar munu standa yfir við Borg-
arleikhúsið um sýningar á Hedwig.
Það fyrirkomulag ætti að henta báðum
aðilum vel þar sem LR vantar sýning-
ar í húsið.
Kvartett eftir Ronald Harwood, i
leikstjóm Gísla Rúnars Jónssonar, var
ekki sýnt eins og boðað var og ekki
heldur Saga um pandabirni sem Magn-
ús Geir Þórðarson ætlaði sjálfur að
leikstýra. Það verður fært upp í sam-
vinnu við Leikfélag Akureyrar og
frumsýnt þar í haust.
Sérstök jólasýning, Hvaða jól?, sem
Öm Ámason, Sigurður Siguijónsson
og Karl Ágúst Úlfsson áttu að leika í,
sást aldrei á sviði og Feðgum á ferð,
kabarettsýningu með Erni og Áma
Tryggvasyni, var frestað til vors. Sam-
Stefán Baldursson þjóöleikhússtjóri.
Segja má að eftir þennan fyrsta vetur sem þrjú atvinnuleikhús keþþa á mark-
aðnum um hylli áhorfenda standi Stefán uþþi sem sigurvegari. Þjóðleikhúsið
hefur hitt í mark með flestu sem sett hefur verið uþþ, sýningum er hætt fyrir
fullu húsi til að koma öðrum að og meira að segja grískir harmleikir
draga að sér fjölda manns.
Ingvar er farinn
Næsta áfall sem LR varð fyrir á eft-
ir Lé konungi var þegar Ingvar E. Sig-
urðsson, sem leika átti aðalhlutverkið
í Þjóðníðingi Ibsens, fékk hlutverk í
amerískri bíómynd fáum dögum fyrir
frumsýningu og hvarf af landi brott.
Þetta var allt með nokkrum ævintýra-
blæ og sýningu á Þjóðníðingi hefur
verið frestað til hausts og er reyndar
haft fyrir satt að verkið verði alls ekki
framhald af vinsælu verki, Á sama
tíma að ári, sem gengið hefur áram
saman. Sömu leikarar fara með aðal-
hlutverk. Sniglaveislan eftir Ólaf Jó-
hann Ólafsson, sem frumsýnd var á
Akureyri, með Gunnar Eyjólfsson 75
ára í aðalhlutverki, er komin til
Reykjavikur og virðist ætla að ganga
mjög vel. Shakespeare eins og hann
leggm- sig var tekinn upp frá fyrra ári
og hefur gengið í allan vetur en sýn-
Hilmir ekkí heldur í lönó
Þegar bæklingurinn með verkefna-
lista vetrarins er skoðaður kemur í
ljós að nokkram sýningum hefúr verið
frestað misjafnlega lengi eða þær
slegnar alveg af. Ástæður era af ýmsu
tagi en plássleysi í Loftkastalanum sú
helsta. Það mun einnig hafa sett strik í
reikninginn að þegar til kom gekk
ekki eins vel að fá leikara lánaða hjá
Þjóðleikhúsi og ætlað var. Ailt er
Ingvar E. Sigurösson.
Ingvar hvarf afyfírborði íslensks leikhússlífs til að leika í
kafbátamynd. Sýningu LR á Þjóðníðingi var fyrir vikið af-
lýst en sagt er að það hafi í raun verið hapþ fyrir leikhús-
ið því sýningin hafi verið í miklum vandræðum.
Guöjón Pedersen stýröi Borgarieikhúsinu í fyrsta sinn þennan vetur.
Lér konungur féll, Þjóðníöingur Ibsens reyndist andvana fæddur og leikhúsið
neyddist til að fresta Beðið eftir Godot til hausts því stjarnan Hilmir Snær var
teþþtur í Þjóðleikhúsinu. Auk þess seldi Leikfélagið ofan afsér húsið. Fall er
vonandi fararheill.
Magnus Geir Þorðarson leikhusstjori Leikfélags Islands í lönó.
Mörgum þótti Magnús og félagar hans bífræfnir þegar þeir
settu fram dagskrá sína í haust. Enda fór svo að lokum að
sex leiksýningum var annaðhvort frestað eða sleppt alveg.
Bjarta hliðin á því er að í flestum tilvikum mátti kenna um
skorti á sviösrými vegna vinsælda annarra sýninga.
ingum lýkur í byijun apríl.
Sýnd veiði með þremur vinsælum
gamanleikkonum gekk ágætlega en
fáar sýningar vora á Trúðleik eftir
Hallgrím H. Helgason.
breytingum undirorpið í leikhúsi og
leikarar lentu í fleiri og vinsælli verk-
um þar en áður var vitað um.
Eldað með Elvis eftir Lee Hall átti
að vera á dagskrá í Iðnó í vetur en
þetta er eitt vinsælasta gamanleikritið
í London um þessar mundir og er eftir
sama höfund og skrifaði handritið að
hinni margverðlaunuðu kvikmynd um
Billy Elliott. Aðalstjama verksins átti
að vera Hilmir Snær Guðnason og var
vandlega auglýst að hann gengi til liðs
við félagið í haust og Stefán Jónsson
átti að leikstýra. Þeir eru báðir á
samningi hjá Þjóðleikhúsi og sýning-
um hefur verið frestað til hausts og sú
breyting verður gerð að Hilmir verður
ekki með. Ástæður frestunar era aug-
ljósar. Hilmir kemst ekki.
tals er því hægt að finna i bæklingnum
góða sex leiksýningar sem annaðhvort
hefur verið aflýst eða þeim frestað,
misjafnlega lengi.
Kom þægilega á óvart
„Góðar viðtökur og frábær aðsókn
komu okkur þægilega á óvart. Þessi
góða aðsókn hefur leitt til þess að
nokkrum frumsýningum hefur seink-
að. Leikfélag íslands nýtur lítiila opin-
berra styrkja og því tökum við ekki
sýningar af fjölunum sem ganga fyrir
fullu húsi. Við eram hins vegar með
tvær mjög
spennandi sýningar í startholunum
sem fara á svið þegar hægist á þeim
sýningum sem þegar era á fjölunum.
Þetta hefur verið ánægjulegur og lær-
dómsríkur vetur en ég hefði viljað sjá
meiri stuðning frá hinu opinbera til
sjálfstæðra leikhúsa," sagði Magnús
Geir Þórðarson í samtali við DV.
í áður áminnstu viðtali sem birtist í
DV í vor segja bæði Magnús Geir Þórð-
arson og Hallur Helgason, forsvars-
menn Leikfélags íslands, að nýtt hluta-
fé verði boðið út og telja líklegt að það
nemi nokkrum tugum milljóna. Af
þessu hlutafiárútboði hefur ekki orðið
og mun formsatriði, tengt skráningum
hlutafélaganna sem standa saman að
félaginu, hafa tafið það verulega. Haft
er fyrir satt að tíðinda sé að vænta af
nýjum hluthöfum í byrjun mai.
Niöurgreitt húsnæöi
Við þetta má bæta að Leikfélag ís-
lands var aðili að erindi til Samkeppn-
isstofnunar þar sem Bandalag sjálf-
stæðra leikhúsa kvartaði sáran undan
yfirgangi stóra leikhúsanna sem það
taldi misbeita opinberum styrkjum til
þess að gefa leikhúsmiða eða greiða
verö þeirra niður, og sérstaklega var
athæfi íslensku óperunnar, að undir-
bjóða leigu á sýningarhúsnæði, talið
aivarlegt.
Samkeppnisstofnun sá ekki ástæðu
til aðgerða, umfram það að hvetja
menntamálaráðherra til endm'mats á
opinberum styrkjum til leiklistar.
Um þessar mundir er fyrirtæki
Baltasars Kormáks og Lilju Pálmadótt-
ur, konu hans, Sögn ehf., að hefia sýn-
ingar á vinsælu frönsku gamanleikriti
sem heitir Fifl í hófi. Baltasar er sem
5% hluthafi í Leikfélagi íslands aðili
að umræddu erindi til Samkeppnis-
stofnunar en í þessu tilviki nýtur fyr-
irtæki hans góðs af umræddri meintri
niðurgreiðslu á húsaleigu Óperannar,
en Sögn ehf. leigði húsnæði Gamla
bíós undir sýningarnar.
Allir vildu eiga Hilmi
Ef hægt er að draga atburði vetrar-
ins í leikhúsunum saman þá er ljóst að
stjaman sem allir vildu að skini á sig,
Hilmir Snær Guðnason, skín aðeins í
Þjóðleikhúsinu í vetur. í tveimur til-
vikum, Beðið eftir Godot í Borgarleik-
húsi og Eldað með Elvis í Iðnó, veldur
fiarvera hans vegna anna við Hverfis-
götuna vandræðum. í báðum tilvikum
var um að ræða verk sem leikhúsin
bundu talsverðar vonir við. Þau vildu
að stjaman skini á þau líka en þegar
dagur er kominn að kvöldi skín hún
aðeins á gesti Þjóðleikhússins þennan
vetur.
í kjölfar breyttra laimasamninga í
Þjóðleikhúsi, sem tóku gildi um miðj-
an vetur og veita þjóðleikhússtjóra
aukið svigrúm til þess að umbuna leik-
urum umfram það sem áður var, mun
staða Hilmis hafa styrkst og verður að
teljast frekar óliklegt að hann hugsi
sér til hreyfings.
Önnur stjama sem ákaft var tekist á
um var Ingvar E. Sigurðsson, sem var
með lausa samninga, en hann hvarf
snögglega af vettvangi um miðjan vet-
ur og skín stjama hans nú á amerísk-
um himni þar sem hann leikur í hasar-
mynd um kafbáta með Harrison Ford
og Liam Neeson.
Af þessu má einnig ljóst vera að
frammistaða leikhússtjóra skal mæld
eftir tvennu, annars vegar hve vel verk
í leikhúsi hans falla áhorfendum í geð
og hins vegar hversu vel áætlanir hans
standast. Þeir þrir risar sem hófu slag-
inn í haust standa allir enn. Einn
stendur á brauðfótum niðri við T)örn,
annar haltrar sár uppi í Kringlumýri
en Stefán Baldursson stendur niðri við
Hverfisgötu með pálmann í höndun-
um. PÁÁ