Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Side 59
I
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
I>V
71
Tilvera
Sextug________________________
Erna Ragnarsdóttir
85 ára__________________________
Daníel G. Sigmundsson,
Torfnesi, Hlíf 2, Isafirði.
Guðni Ólafsson,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfiröi.
Tómas Jónsson,
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
75 ára__________________________
Lárus Örn Jörundsson,
Dvergabakka 30, Reykjavík.
70 ára__________________________
Hulda Björnsdóttir,
Víkurbraut 30, Grindavík.
Inga Helgadóttir,
Vallholti 15, Akranesi.
60 ára__________________________
Daníel Sigurðsson,
Háteigsvegi 13, Reykjavík.
Einar Júlíusson,
Melseli 5, Reykjavík.
50 ára__________________________
Anna María Ólafsdóttir,
Mariubakka, Kirkjubæjarklaustri.
Gunnar Gíslason,
Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði.
Helga Sigurðardóttir,
Eystri-Torfastöðum 1, Hvolsvelli.
Hrönn Ágústsdóttir,
Mánagötu 7, Grindavík.
Margrét Þormar,
Lokastíg 22, Reykjavík.
Skarphéðinn Pétursson,
Hrísum, Dalvík.
Sævar Benedikt Hafsteinsson,
Engihjalla 25, Kópavogi.
40 ára__________________________
Árni Valur Árnason,
Baughúsum 8, Reykjavík.
Friðrik Ragnar Eggertsson,
Tjaldanesi 1, Garðabæ.
Janette Lynne Haraldsson,
Lyngholti 13, Keflavlk.
Sigurlaug Erla Hauksdóttir,
Langholtsvegi 99, Reykjavik.
Sólveig Baldursdóttir,
Norðurvangi 16, Hafnarfirði.
Valdimar Ómar Ingólfsson,
Starmóa 8, Njarðvík.
Zeljko Popovic,
Ásbraut 11, Kópavogi.
/
IJrval
góður ferðafélagi
- til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa
innanhúsarkitekt
Erna María Ragnarsdóttir innan-
hússarkitekt, búsett í Lapinlahti,
Finnlandi, verður sextug á mánudag-
inn.
Starfsferill
Erna fæddist og ólst að mestu upp á
Melunum í Reykjavík. Að loknu stúd-
entsprófi frá MR fór hún til náms í
innanhússarkitektúr i Leicester í
Englandi, tók þaðan próf 1966, flutti
síðan til Liverpool, þar sem hún lagði
stund á typografiu. Leiðin lá aftur til
Islands 1968 þar sem hún fór að vinna
sjálfstætt að ýmsum hönnunarverk-
efnum á Teiknistofunni Garðastræti
17 í Reykjavík, sem hún stofnaði
ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum,
Gesti Ólafssyni, arkitekt og skipulags-
fræðingi. Vann hún við innanhúss-
hönnun fyrir heimili og fyrirtæki,
auk bóka- og graflskrar hönnunar. Á
þessum árum vann hún m.a. sam-
keppni um skjaldarmerki Seltjarnar-
ness sem síðan var tekið sem merki
sveitarfélagsins.
Árið 1982 fór Erna til Parísar til
frekara náms í innanhússarkitektúr
og iðnhönnun, bætti síðan við námi í
listasögu áður en hún kom aftur til
Reykjavíkur 1991. Þar tók hún m.a.
þátt í samsýningu húsgagna og innan-
hússarkitekta í Perlunni i Reykjavík
og í Bella Center í Kaupmannahöfn.
Ema fór til náms á Arken Bibel
Center í Stokkhólmi 1993 þar sem hún
nam biblíu- og kristniboðsfræði ásamt
sálusorgun, meö áherslu á meðferð
fyrir börn og unglinga, og listrænt
skapandi starf til lækninga og trúar-
iðkunnar. Hún flutti síðan til Finn-
lands þar sem hún býr nú og vinnur
þar að sálusorgun og hönnun.
Erna hefur gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum, á sviðum málefna kvenna,
menningarmála og fjölmiðla. Hún átti
m.a. sæti í útvarpsráði og í Fram-
kvæmdanefnd um kvennafrí 24. okt.
1975. Hún var í nokkur ár ritstjóri 19.
júní, tímarits Kvenréttindafélags ís-
lands. Erna var um tíma varaborgar-
fulltrúi Sjáifstæðisflokksins í borgar-
stjóm Reykjavíkur. Hún var formað-
ur Félags húsgagna- og innanhúss-
arkitekta um nokkurra ára skeið.
Fjölskylda
Erna giftist 1963 Gesti Ólafssyni, f.
8.12 1941, arkitekt og skipulagsfræð-
ingi. Þau skildu 1984. Hann er sonur
Ólafs Hjálmarssonar, f. 26.8. 1903, d.
1986, efnisvarðar hjá Olíufélagi Is-
lands í Reykjavík, og Ragnheiðar Guð-
mundsdóttur, f. 25.10 1902, d. 1991,
húsmóður.
Börn Ernu og Gests eru Ragnar
Kristján Gestsson, f 4.8. 1964, mynd-
listarnemi, kvæntur Hildi Jónsdóttur,
f. 7.6. 1970, myndlistarkonu, og eiga
þau Hrefnu Björgu, f. 15.6. 1995; Ólaf-
ur Hrólfur Gestsson, f. 4.12.1969, kerf-
isfræðingur, en sambýliskona hans er
María Björnsdóttir, f. 13.6. 1970, leik-
skólakennari, og eiga þau Ernu Krist-
ínu Hrólfsdóttur, f. 6.5. 1990, og Evu
Maríu Hrólfsdóttur, f. 8.7. 1999.
Systkini Ernu eru Auður Guðrún
Ragnarsdóttir, f. 28.7. 1942, meina-
tæknir og nemi í næringarfræði i Los
Angeles, gift Davíð Helgasyni véla-
tæknifræðingi og dreifingaraðilla í
Los Angeles; dr. Jón Óttar Ragnars-
son, f. 10.8. 1945, næringarfræðingur,
kvæntur Margréti Hrafnsdóttur, bæði
dreifingaraðillar í Los Angeles. Hálf-
systkin Ernu, samfeðra, em Edda
Ragnarsdóttir, f. 17.3. 1931, húsmóðir,
gift Árna Guðjónssyni lögfræðingi í
Reykjavík; Valva Ragnarsdóttir, f. 8.6.
1935, verslunarstjóri, gift Tomas Full-
er véltækni en þau búa í Jacksonville
í Flórída.
Foreldrar Ernu voru Einar Ragnar
Jónsson, f. 7.2. 1904, d. 11.7. 1984, for-
stjóri bókaforlagsins Helgafells, og
Björg Ellingsen, f. 10.12. 1916, d. 12.5.
1997, húsmóðir og snyrtifræðingur.
Ætt
Ragnar var sonur Jóns, hreppstjóra
í Mundakoti, Einarssonar, b. á Heiði á
Síðu, Bjarnasonar. Móðir Einars á
Heiði var Rannveig, systir Gísla í
Gröf, föður Þórunnar grasalæknis,
móður Erlings, búfræðings og grasa-
læknis, föður Ástu Kristínar grasa-
læknis. Annar bróðir Rannyeigar var
Eiríkur, faðir Sveins, pr. í Ásum, foð-
ur Gísla alþingisforseta. Móðir Jóns í
Mundakoti var Ragnhildur, systir
Jóns, langafa Jóns Helgasonar, fyrrv.
ráðherra, en systir Ragnhildar var
Guðlaug, amma Ástu, ömmu Davíðs
Oddssonar. Ragnhildur var dóttir
Jóns, b. í Heiðarseli, bróður Rann-
veigar.
Móðir Ragnars í Smára var Guðrún
Jóhannsdóttir, formanns og verslun-
armanns í Mundakoti, bróður Guð-
mundar, afa Guðna Jónssonar pró-
fessors, fóður prófessoranna Bjarna
og Jóns. Jóhann var sonur Þorkels, b.
í Mundakoti, bróður Hannesar,
langafa Sigurjóns Óiafssonar mynd-
Einn af dýrustu listamönnum heims:
José Carreras kemur í haust
Spánski söngfuglinn José
Carreras er væntanlegur til
íslands á þessu ári og mun
halda tónleika í Laugardals-
höllinni 17. september. Okk-
ar virta söngkona, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, mun syngja
nokkur lög með Carreras,
auk þess að syngja tvö lög
ein og kór íslensku óperunn-
ar kemur einnig fram á tón-
leikunum. Sinfóníuhljóm-
sveit Islands mun leika und-
ir og stjórnandinn verður
einn þekktasti hljómsveitar-
stjóri heims, David
Gimenez, sem er systurson-
ur Carreras. „Við munum
leggja áherslu á að hafa
þetta eins glæsilegt og kost-
ur er,“ segir Þorsteinn
Kragh, einn forráðamanna
fyrirtækisins Lotion Pro-
motion sem skipuleggur
þennan menningarviðburð.
Að hans sögn hóf fyrirtækið
að bera víurnar í Carreras
fyrir rúmum tveimur árum
og samningur um komu
hans var undirritaður í
október sl. Þetta verður
fyrsta heimsókn söngvarans
til íslands og markar hún
upphaf tónleikaferðar um
Norðurlöndin. Að sögn tónleika-
haldaranna átti hann margra kosta
völ á þessum tíma og valdi ísland.
ásamt hljómsveitarstjór-
anum Gimenz.
Enn er á huldu hvaða
lög verða flutt og biða
Diddú og kór íslensku óp-
erunnar eftir fyrirmæl-
um frá söngvaranum.
„Hver sem lögin verða er
það mikill heiður fyrir
Óperukórinn að fá að
koma fram við þetta
tækifæri," segir Garðar
Cortes stjórnandi. Söng-
konan Diddú gat ekki
verið á kynningu á ævin-
týrinu í gær, þar sem
flensan illræmda hafði
heimsótt hana.
Miðasala á tónleikana
hefst 17. april og sér ís-
lenska miðasalan hf. um
hana. Aðallega mun hún
fara fram á Netinu á ný-
stofnuðum vef,
www.midasala.is. Auk
þess verður hægt að
panta miða gegnum síma,
greiða fyrir með korti og
miðarnir verða sendir
heim. José Carreras er
einn af dýrustu lista-
mönnum heims og nokk-
ur íslensk stórfyrirtæki
taka þátt í að greiða fyr-
ir komu hans til landsins. -Gun.
DV-MYND ÞÖK.
Skipuleggja komu stórsöngvarans til íslands
Þröstur Emilsson ritstjóri, Garöar Cortes, söngvari og kórstjórn-
andi, Kristinn Aðalsteinsson, Alfreö Alfreðsson og Þorsteinn
Kragh, forráöamenn fyrirtækisins Lotion Promotion.
Hann mun dvelja hér á landi í þrjá
daga, kemur daginn fyrir tónleikana
og æfir með íslenska listafólkinu,
höggvara. Þorkell var sonur Einars,
spítalahaldara í Kaldaðarnesi, bróður
Bjarna, afa Bjarna Sæmundssonar
fiskifræðings. Systir Bjarna fiskifræð-
ings var Margrét, amma Guðlaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara.
Annar bróðir Einars var Jóhann,
langafi Helga Péturssonar borgarfull-
trúa. Einar var sonur Hannesar, ætt-
föður Kaldaðarnesættar. Móðir Jó-
hanns í Mundakoti var Guðrún Magn-
úsdóttir, formanns í Mundakoti, Ara-
sonar, í Neistakoti, Jónssonar, á
Grjótlæk, Bergssonar, ættfóður Bergs-
ættar, Sturlaugssonar. Móðir Guðrún-
ar í Mundakoti var Eiín Símonardótt-
ir, smiðs og formanns á Gamla-
Hrauni, Þorkelssonar.
Af móðursystkinum Ernu má nefna
Othar Edvin EUingsen, forstjóra O.
EUingssen hf., Erling EUingsen, fram-
kvæmdastjóra og fyrsta flugmálstjóra
íslands, og Liv, móður Óttars Péturs
HaUdórssonar verkfræðiprófessors.
Björg var dóttir Othars Peters Jæ-
gers Ellingsens, slippstjóra og kaup-
manns í Reykjavík, og Marie Johanne
EUingsen, dóttur Anders Bergs, verk-
fræðings og verksmiðjueiganda í
Kristiansand í Noregi.
Erna tekur á móti gestum sunnud.
1.4. á heimUi frænku sinnar, Dagnýjar
Davíðsdóttur, að Grenibyggð 21, 270
MosfeUsbæ, kl. 14.00-18.00.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Kynningardagur Stýrimannaskólans
er í dag, laugardaginn 31. mars 2001,
frákl. 13.00-16.30
“Siglingar og sjósókn eru nauðsyn og
undirstaða þjóðarbúsins.44
Dagskrá
Kl. 13.00 Starfsemi skólans, ásamt tækjum og
kennslugögnum, kynnt. Fyrirtæki og stofnanir
í þágu sjávarútvegsins kynna starfsemi sína og
þjónustu.
Kl. 14.00 TF SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, kemur á
svæðið ef veður leyfir. Framlag úr Björgunarsjóði
Stýrimannaskolans í Reykjavík afhent
Slysavamaskóla sjómanna í Hátíðarsal
Sjómannaskólans.
Kl. 15.00 Splæsingakeppni. Nemendur reyna með sér í
„vírasplæsingum“. Sýnd verður verkleg sjóvinna.
Kl. 15.30 Fyrirlestur um loðnuna, göngur hennar og hegðun.
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur.
Kvenfélögin Hrönn og Keöjan verða allan daginn með
kaffiveitingar í matsal Sjómannaskólans.
Allir velkomnir.
STÝRIMANNASKÓLINN í REYKJAVÍK