Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 7
Fyrir fjórum árum innriíuðu
átta ungmenni sig í Leiklist-
arskóla ríkisins. Nú, fjórum
árum síðar, eftir að hafa verið
geymd í skugga leiksviðsins niðri á
Sölvhólsgötu, verður sömu ung-
mennum hleypt út í vorbliðuna
sem fullmenntuðum leikurum. Þau
koma ekki út úr sama skóla og þau
innrituðu sig í heldur útskrifast
þau af leiklistardeiid Listaháskóla
íslands með BFA-próf; þau koma
heldur ekki út í Reykjavikurvorið
heldur er það allt annað vor, Hafn-
arfjarðarvorið, því lokaverkefni
þeirra er Platonov eftir meistara
Tsjekhov sem verður frumsýnt
annað kvöld í Hafnarfjarðarleik-
húsinu.
Elma Lísa Gunnarsdóttir er ein
þeirra sem útskrifast nú í vor. Hún
fer með hlutverk Soffiu sem er ný-
gift og hamingjusöm en lífið tekur
óvæntan kipp þegar hún hittir fyrr-
verandi kærasta sinn, Platonov, í
veislu. Það gerist ýmislegt þegar
hún hittir gamla kærastann enda
ekki beinlínis draumaaðstaðan.
Varð að fara í prófin
Eflaust rekur marga minni til
þess að hafa séð Elmu Lísu á skján-
um þegar hún stjórnaði íslenska
listanum á Stöð 2 en það var
einmitt fyrir fjórum árum. Sam-
kvæmt reglum skólans hætti Elma
Lísa i sjónvarpinu en leiklistar-
nemar eru í framkomubanni á
meðan á skólatíma stendur.
Er leiklistargen í œttinni?
„Ég myndi ekki segja að það
væri neitt leiklistargen í ættinni.
Þessi leiklistaráhugi hefur eflaust
alltaf blundað í mér. Ég þorði þó
aldrei í leiklist þegar ég var í skóla
en langaði rosalega til þess. Ég var
23 ára þegar ég sótti um skólann.
Það var eitthvað sem ég þurfti að
gera; ég hefði verið ósátt við sjálfa
mig hefði ég ekki farið í inntöku-
prófin."
Má skilja þetta sem svo aö þú sért
feimin aö eðlisfari?
„Nei, ég myndi ekki segja að ég
væri feimin. Þetta var einhver
hræðsla. Kannski var ég búin að
ákveða að þetta væri ekki neitt fyr-
ir mig. En svo kom annað i ljós.“
Þaö heföi samt veriö afskaplega
auövelt að sleppa prófunum?
„Ég fékk einhvern kraft í mig. Ég
var samt vön því að koma fram,
var mikið í dansi, sjónvarpi og í
myndatökum. Það hefur aldrei ver-
ið neitt feimnismál. Leiklistin er
allt annað og var algjörlega ný fyr-
ir mér. Ég vissi ekki einu sinni
hvað væri kennt í þessum skóla.
Það kom mér margt á óvart.“
Og þú sérð ekki eftir neinu?
„Nei. Þetta nám nýtist í allt þó
svo að ég vilji auðvitað fá tækifæri
eins og allir sem útskrifast úr þess-
um skóla.“
Aðeins hærri laun
Elma Lísa hefur ekki eingöngu
fengist við að leika því að síðasta
árið sjá útskriftarnemar algjörlega
um Nemendaleikhúsið. Til dæmis
vekur þaö athygli þegar komið er
inn í Hafnarfjarðarleikhúsið að á
Elma Lísa Ounnarsdóttir hefur síðustu fjögur árin veríð í hálf-
gerðri kommúnu leiklistarnema. Á morgun leikur hún sitt síð-
asta hlutverk hjá Nemendaleikhúsinu áður en hún stekkur inn í
leikhúsfrumskóginn. Sigtryggur Magnason ræddi við Elmu Lísu
um árin í myrkrinu og bjarta framtíð.
Sjö makar í
fjögur ár
hurðina inn í salinn er festur
miði þar sem segir að allir verði
að mæta í vinnufötum til að rifa
leikmyndina úr Vitleysingunum
niður svo hægt verði að setja upp
nýja leikmynd Finns Arnars Arn-
arssonar. Það er engin stéttbund-
inn verkalýðsbragur yfir leiklist-
arnemum.
„Mér þykir mun vænna um
sýninguna eftir að hafa unnið að
öllum stigum hennar."
Og talandi um verkalýðinn.
Árlega fáum við fréttir af því hve
margir komast eða komast ekki
inn í skóla vegna fjöldatakmark-
ana. Læknisfræði og lögfræði eru
flestum ofarlega í huga hvað
þetta varðar og svo auðvitað leik-
listin. Launin eru hins vegar
ekki sambærileg í þessum fjór-
um fögum.
„Nei, en þau hækkuðu samt
aðeins um daginn," segir Elma
Lísa. „Það er alveg ljóst að mað-
ur er ekki að þessu fyrir pening-
ana. Þá væri maður einhvers
staðar allt annars staðar. Þetta
snýst um að svala einhverri þörf
og gera það sem mann langar til
að gera.“
Og dugir þaö þér?
„Það verður að koma í ljós.“
Stundum leið
Síðustu fjögur ár hafa bæði
verið erfið og skemmtileg. „Aðal-
lega skemmtileg," segir Elma
Lísa. „Það er oft mikið álag. Mað-
ur þarf að vera sterkur og í góðu
jafnvægi. Það er mikil vinna og
alltaf með sama fólkinu, þótt
bekkurinn sé alveg frábær. Þetta
er bara eins og hjónaband. Mað-
ur verður stundum leiður.“
Hefur þetta veriö eins og fjög-
urra ára tónleikaferöalag?
„Ég hef aldrei farið í tónleika-
ferðalag þannig að ég veit ekki
hvernig það er. Við fórum saman
í þriggja vikna útskriftarferð og
það var mjög gaman. Við höfum
upplifað margt saman. Það er
mjög sérstakt að hafa verið með
sjö manns í fjögur ár og upplifa
allt náið með þeim.“
Hefuröu semsagt verið gift sjö
manns?
„Já.“
Leikhússtjórarnir
mæta
Síðustu fjögur ár hafa útskrift-
arnemarnir búið við það ástand
að fá alltaf hlutverk. Að skóla
loknum tekur frumskógurinn
við; engin hlutverk verða örugg.
Hvernig leggst þetta í þig?
„Það er margt spennandi að
gerast og mun meiri gróska í
leikhúsinu en hefur verið. Mað-
ur verður að vera jákvæður og
bjartsýnn. Þetta er auðvitað
spennandi; ég er alveg tilbúin til
að útskrifast eftir þetta fjögurra
ára nám.“
Ertu búin aö ráða þig?
„Nei, ég bara að skoða málin.“
Leikhússtjórarnir verða vœnt-
anlega í salnum annaö kvöld?
„Já, þeir koma örugglega í
leikhúsið."
27. aprfl 2001 f Ó k U S