Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 15
4 Gúmmískórnir í Ellingsen, hárið klippt knallstutt, feitt faðmlag og svo var það bara sveitin og nú skaltu læra að vinna og þetta er sæðarinn og þarna eru ábrystir og broddur og slátur og hrífa og rakaðu túnið og þetta fer í súrhey og þarna er Hermóður, hann á barn með systur sinni og djísuss kræst hvar er vasa- r diskóið mitt, ég vil fara heim í Kópavoginn!!! Einu sinni voru börn send í sveit, annaðhvort til ættingja eða fólks sem tók að sér krakka og fékk pening fyrir. Sumir elskuðu að veltast um í hænsnaskít og heybögg- um, öðrum fannst það verra en helvíti. Margrét Hugrún kom að máli við unga íslendinga sem upplifðu þessa eldskírn - sem er víst að lognast út af. Send í Pantaði leigubíl í bæinn Bjargey Ólafsdóttir, myndlistar- og kvikmyndagerdarkona. „Ég var i sveit á hverju sumri frá því að ég var fimm ára og þang- að til ég varð fimmtán. Hjá móður- systur minni á Fljótsdalshéraði. Fyrst var ég ekki látin gera mikið, kannski bara gefa einhverjum litl- um kálfum, en svo seinna urðu verkin umfangsmeiri. Ég held að ég hafi verið ellefu ára þegar ég keyrði fyrst traktor. Eitt af þvi sem mér fannst svo gaman við að vera í sveitinni var að maður fékk að vera meiri jafningi fullorðna fólksins. Maður tók þátt í störfun- um á bænum, þetta var ekki bara: svona - farðu nú og leiktu þér, krakki! Svo var líka eins og það væri meiri tími tU alls. Fólk var kannski að spila saman og drekka kakó langt fram á kvöld. Þarna voru líka Ueiri krakkar sem ég gat leikið mér við og alltaf eitthvað að gerast. Einu sinni var ég send í sveit á annan bæ undir Eyjafjöll- um. Þar voru engin börn tU að leika við og eftir nokkra daga pakkaði ég snyrtilega niður í ferðatöskuna mína og bað um að það yrði hringt á leigubíl fyrir mig svo ég kæmist heim til Reykjavíkur. Ég var níu ára,“ segir Bjargey og fær sér sopa af kakóinu sínu. „1 sveitinni byrjaði ég að taka ljósmyndir. Ég myndaði dýrin í gríð og erg og fólkið líka. Svo var ég alltaf að passa þrjú börn þegar ég var ekki aö sinna öðrum verk- um. Foreldrarnir voru að reka veitingastað í Fellabæ á meðan ég rak heimUið með aðferðum Línu langsokks. „Jæja, börn, hvað eig- um við að gera i dag!?“ Og svo steikti ég kjötbollur átta ára gömul með þrjú böm í minni umsjá. Við gerðum ýmislegt, könnuðum með- al annars stíílaðan brunn og fórum i skógarferðir og svona,“ segir hún og hlær. „Annars voru hestarnir það besta við að vera þarna. Mað- ur reið út á hverju kvöldi og fór í kúrekaleik. Alveg frábært. Ég held að ef krakkar lenda á góðum sveitabæjum þá sé þetta alveg þess virði. En núna er sveitasamfélagið að lognast út af, svo ætli þetta sé ekki deyjandi hefð.“ Beljurnar migu á hausinn á mér Steinn Skaptason, tónlistarmaóur. „Ég veiktist af heilahimnubólgu þegar ég var þetta eUefu eða tólf ára og eftir að ég náði mér upp úr henni var ákveðið að senda mig í sveit tU að herða mig upp. Ég lenti á ónefnd- um afskekktum bæ í Austur- Húna- vatnssýslu. Það var allt mjög frum- stætt þarna. Fjósið var í torfkofa og beljurnar voru mjólkaðar með hönd- unum. Bærinn var líka bara svona ómálað steinhús. Það var ekkert frá- rennsli frá klóakinu heldur hafði verið smíðuð renna sem lá bara beint út í tún. Bærinn stóð í brekku þannig að mannaskíturinn náði að fljóta greiðlega eftir rennunni. Baðkarið á bænum var stUlað aUt sumarið og ég komst aðeins þrisvar sinnum í nokkurs konar þvott. Ekki almennilegt bað heldur bara svona smá skrúbb með þvottapoka. Sóða- skapurinn þama var rosalegur. Það var t.d. alltaf notað sama vatnið í uppvaskið. Það var orðið grátt eftir vikuna og alltaf vaskað upp í sama vatninu. Ég kom frá mjög snyrtilegu heimili þannig að þetta var mikil breyting fyrir mig. Þetta var svona bær sem tók að sér krakka í bland við einhverja krakka sem áttu heima þarna. Einn heimaguttinn sagði mér að ef ég léti beljurnar míga á haus- inn á mér þá yxi hárið á mér hraðar. Ég trúði honum og lét það vaða. Stakk hárinu undir bununa og lét hlandið dynja á hausnum. Síðan þvoði ég mér upp úr köldum bæjar- læknum, sannfærður um að hárið myndi vaxa betur. Þrátt fyrir að ég hafi gert þetta nokkrum sinnum þetta sumar þá hef ég ekki gert það aftur, þó að það gangi á ýmsu í einkalifi mínu,“ segir Steinn og kím- ir. „í sveitinni fékk ég það sem er kallað hvolpavitið þegar ég fylgd- ist með bóndanum gamna sér við 14 ára vinnukonu eða frænku sem var þarna í dvöl. Hann var 38 ára með fitukleprað hár niður á herðar. Þetta var hresst og ófeimið fólk, það má nú segja. Ég komst reyndar ekki að þvi hvernig börn eru búin til í gegnum kynni mín af þeim, en ná- lægt því. Þarna ók ég einnig, í fyrsta og síðasta sinn á ævi minni, vél- knúnu ökutæki. Ég brunaði á traktor eftir bökkum jökulárinnar Blöndu. Það var heyvagn aftan á þessum traktor og Guð má vita hvað. Mér fannst stýrið þungt og stíft og fyrr en varði missti ég stjórn á ferðinni. Það munaði hálfum metra að ég hefði steypst út í ánna með traktor og öllu. Ég hefði drepist. Það var mesta mildi að bóndinn hoppaði upp á vagninn og greip í taumana. Þetta fældi mig frá vélknúnum ökutækjum. Ég hef ekki snert þau síðan. Ekki einu sinni bifhjól! Annar lífsháski sem ég lenti í þarna var þegar illvígt naut stangaði mig utan 1 gaddavirsgirðingu. Ég hékk þar fastur og emjaði og engdist í, nokkrar mínútur þar til ■ bóndinn kom og bjargaði 1 mér í annað sinn.“' Hvernig var mataræðið á bænum? „Skelfilegt í einu orði sagt. Fjórum sinnum i viku var annaðhvort soðin eða steikt lifur með þunnri sósu og hálfri kartöflu. Á », sunnudögum var alltaf' steikt lamb með saltri sósu. Fiskur var eitthvað sem sást næstum aldrei. Það var ekkert lagt upp úr eldamennsku. Ég hef ekki get- að borðað lifur síðan ég var þarna. Kúgast við tilhugsunina. Þetta ör- lagasumar tók ég lika fyrsta sopann af alkóhóli eftir að ég hafði vaðið út í ána eftir netum. Það var hrikaleg einangrun þarna. Við fórum hrein- lega aldrei af bænum, ekki á aðra bæi og ekki á Blönduós sem var ekki það langt frá. Tónlistin sem var í gangi þarna var agaleg. Það eina sem heyrðist voru Júdas og Pelican. Svo filuðu þau Geirmund rosa vel. Hann var þá rétt að byrja í bransanum. Eina blaðið sem var lesið var Tím- inn og sjónvarpið var bara snjór. Þetta var skelfilegt. Þegar ég kom heim úr þessari vist þá æpti móðir mín heitin upp yfir sig og lét renna þrisvar í bað, henti öllum fötunum sem ég hafði ^ farið með og setti mig í fitun. enda hafði ég lést um tiu kíló. Ég átti að fá fimmþúsund kall fyrir sumarið - Sveitin var ógeðsleg sá hann aldrei. m>Ég fór þarna 'með sixpensara og platformskó sem átti að nota spari en kerl- ingin á bænum stal þessu. Þó að ég sé hýper jákvæður og . ansi mikið náttúrubarn í ‘dag þá get ég ekki séð einn i einasta ljósa í.ji blett á þess- 'óf' ari reynslu!" segir Steinn aö lokum og hristir hausinn. J Solveig Edda Vilhjálmsdóttir, nemi á hönnunarbraut Iönskólans. „Tólf ára gömul upplifði ég mína fyrstu og síðustu dvöl í sveit. Þetta var svona eins konar blanda af heimsókn og tilraun í sveitamennsku. Það sem mér fannst fyndið var að flestum krökkum sem ég þekkti, sem voru sendir í sveit, fannst þetta vera rosa fullorðinsvígsla. Klukkan hálfsjö var allt liðið rifið upp og svo settist það niður í fimm rétta morgunmat. Ég var aldrei vakin. Var alltaf látin sofa fram að hádegi. Þegar ég kom svo fram úr herberginu sem ég svaf i, með stírumar í augunum, mætti mér bara veggur af þögn. Svo heyrðist eitthvað „Góðan daginn, Edda“ með mikilli áherslu á daginn frá einhverjum sem sat á bak við dagblað. Svona var þetta í hvert skipti. Mér fannst maturinn þama ógeöslegur. Það var líka alltaf eitthvað helv.... „kaffi“. Kvöldkaffi, morgunkaffi, síðdegiskaffi og kökuógeð með. Mjólkin var líka ógeðsleg, eitthvað sem mér fannst vera meira eins og fljótandi smjör en mjólk. Svo voru alltaf svona einhverjar tægj- ur úr beljunni í mjólkinni. Oj! Ég held að ég hafi þyngst um 7-12 kíló á þess- um stutta tíma sem ég hélt þetta út,“ segir Solveig og hlær. Hvernig fannst þér dýrin? „Það var einn heimalning- ur á bænum og hann var eina dýrið sem ég meikaði. Mér fannst beljurnar leiðinlegar, kettirnir voru bara þarna einhvers staðar, þeir sáust aldrei og ég var hrædd við hundinn. Ég bara náði ekki þessari svoköliuðu tengingu við dýrin sem hinir virtust hafa. Ég var alin upp í Indiana i Bandaríkjunum og þar var ekki ein einasta belja, hæna. kind eða neitt sem bara líktist þessum fyrirbærum. Við átum marsh-mallows og versluðum í súpermarkaði sem var álíka stór og landareignin sem bærinn var á. Að koma úr þessu umhverfi, í ís- lenska sveit þar sem málið var bara að vera rosaduglegur á gúmmístígvélum, var eins og að vera send á aðra plánetu. Ég var farin eftir tvær vikur. Til ömmu og afa i Neskaupstað til að aðlagast aðeins og þaðan aftur í eðli- legheitin í vesturbænum“ Myndirðu senda barnið þitt í sveit? „Nei, glætan!" 23. febrúar 2001 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.