Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 2
2 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 Fréttir DV Schengensamningurinn hefur margvísleg áhrif: Flóttamönnum fjölgar - tíu hafa beðið um hæli síöastliðnar sex vikur Flóttamönnum sem biðja um póli- tískt hæli hér á landi hefur snar- fjölgað eftir að Schengensamningur- inn tók gildi í mars sl. Á þeim sex vikum sem liðnar eru frá því hafa tiu leitað eftir pólitísku hæli hér. Á undanförnum árum hafa þeir verið frá sautján og upp i rúmlega tuttugu á ári. Sigríður Guðmundsdóttir skrif- stofustjóri alþjóðaskrifstofu Rauða kross íslands sagði, að flóttamenn- imir kæmu frá löndum fyrrum Sov- étríkjana, Kosovo, Albaniu, Afganistan og Afríku, svo dæmi væru nefnd. Meðal þeirra væri ein fjölskylda, hjón með tvö lítil born sem komið hefðu frá Kosovo. Lang- flestir væru þó ungir karlmenn. „Ef fólk ferðast innan Schengen- svæðisins þarf það ekki að sýna vegabréf við komuna til landsins," sagði Sigríður. „Það er rætt um allt upp i sex til sjö milljónir flóttamanna innan svæðisins. Við vitum aö flóttafólk er að ferðast á milli staða. Það má leiða líkum að því að nú sé auðveld- ara fyrir það að ferðast um innan Schengen en áður var, en erfiðara fyrir þá sem eru utan þess.“ Sigríður sagði enn fremur að fólk hefði vissulega óttast þessi áhrif Schengen og því hefði Rauði kross- inn undirbúið sér sérstaklega fyrir að taka á móti hælisleitendum. Ef viðkomandi væru hins vegar með mál i gangi i öðru landi þá væru þeir sendir þangað. Ella færu þeir í hefðbundið ferli hér sem tæki sex til níu mánuði. Sigríður sagði mörg erfið mál koma upp í tengslum við hælisleit- endur, einkum ef búið væri að synja þeim um leyfi hér, en ekki væri hægt að útvega þeim skilríki og senda þá heim. Rauði krossinn hefði verið með allmarga slíka á sínum snærum siðustu mánuði og væri að reyna að mjaka málum þeirra áfram. -JSS Evróvisjón í kvöld: Angel spáð 4. sæti - í síödegisblaöinu BT Danska siðdegis- blaðið BT hefur gert könnun og reiknað út hvaða lönd það verða sem mesta möguleika eiga á efstu sætunum í Evróvisjón-söng- keppninni sem fram fer í Kaupmannahöfn í kvöld. Þar tróna Danir sjálfir efstir á blaði, Svíar eru í öðru sæti, Grikkir í því þriðja og í fjórða sæti lendir Angel með Two Tricky. „Vinnan okkar er að skila sér. Við höf- um verið jákvæð og dugleg við að kynna okkur,“ sagði Einar Bárðarson, höfundur lagsins, í gærkvöld eftir gener- alprufu sem að sögn tókst frábær- lega og ekki síst hjá íslenska hópn- um. Fagnaðarlátum 20 þúsund for- sýningargesta ætlaði aldrei að linna: „Þetta var frá- bært,“ sagði Einar og Gunnar Ólason, söngvari hópsins, var ekki síður ánægður: „Ég skemmti mér bara vel á sviðinu." Gunnar hefur vakið mikla athygli ytra og er af mörgum tal- inn einn besti söngvari keppninn- ar. Fjörutíu þúsund áhorfendur verða í Parken i Kaup- mannahöfn í kvöld þegar keppnin fer fram og er framlag íslendinga annað í röðinni. Eru það viss vonbrigði fyrir hópinn sem heldur hefði viljað koma fram seinna í keppninni því reynslan sýnir að því seinna sem sungið er - því meiri líkur á sigri. -MT/-EIR Lokaæfingin Two Tricky í sveiflu fyrir framan tugþúsundir áhorfenda á genaralprufunni í Parken. Fagnaöarlátum ætlaði aldrei að linna. Smábátakvóti: Sjávarútvegsráð- herra í klemmu „Það er ekkert komið fram um það,“ svaraði Einar Krist- inn Guðfínnsson, for- maður sjávarútvegs- nefndar Alþingis, þeirri spurningu hvort í undirbúningi væri frumvarp sem gerði ráð fyrir því að horfíð yrði frá því að kvótasetja smábáta- flotann f haust eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi um fiskveiðistjómun sem væntanlega verður afgreitt frá Alþingi á næstu dögum. Einar sagði að engin ákvörðun lægi fyrir í málinu en sagði að málið væri vissulega til umræðu og það væri mik- ið rætt. Ég held að það geri sér allir grein fyrir alvöru málsins verði frum- varpið lagt fram óbreytt og þær alvar- legu afleiðingar sem það myndi hafa bæði fyrir einstaklinga og ekki síður fyrir einstaka byggðalög," sagði Einar og sagði einnig að niðurstaða í málinu þyrfti að fást á allra næstu dögum. DV hefur heimildir fyrir þvi að stjómarlið- ar séu nú undir vemlegum þrýstingi að kvótasetja ekki smábátana og hafa sumir þingmenn sem blaðið hefur rætt við jafnvel talið að ekki væri þing- meirihluti fyrir óbreyttu frumvarpi. Ámi Mathiesen sjávarútvegsráðherra er hins vegar milli steins og sleggju í málinu því þrýstingurinn er ekki síður mikill aö koma böndum á smábátaveið- amar, eins og útgerðamenn orða það gjaman. -gk uv-ivitinu nnm IXdKIIl upp ruiiubllgdllll Fjöldi manns fylgdist með þegar nöktu viðskiþtavinirnir streymdu inn í versl- unarmiðstöðina Fjörð sídegis í gær. Naktir viðskiptavinir „Það hafa aldrei jafnmargir kom- ið hingað í verslunarmiðstöðina Fjörð frá opnun. Svo mikið er víst,“ sagði Gunnar Már Levísson, eigandi tískuverslunarinnar Herra Hafnar- fjörður, sem lofaði viðskiptavinum sínum jakkafötum og bindi kæmu þeir naktir í verslunina klukkan 16 í gærdag. Margir hlýddu kallinu og mættu eldsnemma, staðráðnir í að grípa gæsina á meðan hún gæflst. „Fólkið hímdi hér í sloppum úti í bílum sínum og svo var kapphlaup þegar stundin rann upp,“ sagði Gunnar Már sem efndi loforð sitt við tíu fyrstu viðskiptavinina en sex urðu út undan og stóðu eftir, naktir með tvær hendur tómar. „Þetta voru sex stelpur og fjórir strákar. Öll fengu þau jakkaföt og bindi og strákarnir klippingu að auki. Aukavinningur til stúlknanna var svo demantshringur að verð- mæti 60 þúsund krónur og hann féll í hlut stúlku sem dómnefnd valdi sérstaklega. Hún fékk hringinn vegna þess að hún var með svo stór og falleg brjóst. Allar fengu stelp- urnar ostakörfur og hvítvín og ein hreppti tvær nætur á svítunni á Hótel Keflavík en sú var komin sjö mánuði á leið,“ sagði Gunnar Már sem taldi að uppátækið hefði kostað sig um 800 þúsund krónur. „Þetta margborgaði sig. Þetta er besta aug- lýsing sem ég hef fengið." -EIR Berlusconi og mafían Erlent fréttaljós Kona í karlaveldi Svana bóndi á Melum Mér finnst ég vera alveg komung Matt Fjórir á toppnum Ragnheiöur Eiríksdóttir Fyndni vekur fýsnir Kynþokki karla Mikið hljóð í litlum búk Hildur Tryggvadóttir Trlcky Jónas Kristjánsson Kynskipti og ferðalög Baráttan um bensínið Björnsson Stuttar fréttir Íslandssími á Veröbréfaþing Verðbréfaþing íslands hefur sam- þykkt að skrá fs- landssima hf. á að- allista þingsins að loknu útboði á nýju hlutafé enda hafi félagið upp- fyllt öll skilyrði skráningar. Stefnt er að skráningu í fyrri hluta júnímánaðar. Ekki meir Geðhjálp hefur ekki sóst eftir að samningur um stuðningsþjónustu við geðfatlaða verði endurnýjaður. Gert er ráð fyrir að Félagsþjón- usta Reykjavíkur og Svæðisskrif- stofa um málefni fatlaðra taki al- farið við rekstrinum. Framsal samþykkt Hollenskur undirréttur hefur samþykkt framsal á íslenskum karlmanni á fertugsaldri sem grunaður er um aðild að umfangs- miklu fíkniefnasmygli hingað til lands. Til Skipulagsstofnunar Skýrsla Reyðaráls hf. um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhug- aðs álvers við Reyðarfjörð var send Skipulagsstofnun í gær. Dýrara fiug Flugfélag íslands hækkar far- gjöld sín í innanlandsflugi um 5-6% frá og með 15. maí. Drukkinn þjófur Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í gær tvítugan mann í mánaðar skilorðsbundið fangelsi og 50 þúsund króna sekt fyrir nytjastuld og ölvunarakstur. Klám - ekkert mál Naumur meirihluti landsmanna telur klám ekki vandamál á Is- landi að þvi er fram kemur í könn- un PricewaterhouseCoopers. Tölvusameining Fyrirtækin Álit, Miðheimar, Nett og Veftorg, sem rekur Torg.is, eru í samræðum um hugsanlega sameiningu fyrirtækjanna. Ósló Hydro Alumini- um, Landsvirkjun og Reyðarál stóðu fyrir kynningar- fundi í Ósló í gær um áform fyrir- tækjanna um að reisa virkjun og ál- ver á Austurlandi. Breskur Baugur Baugur hf. hefur eignast 20 pró- senta hlut í Arcadia-verslanakeðj- unni í Bretlandi eftir aö hafa keypt út aðra hluthafa í eignar- haldsfélaginu A-Holding. Haldið tii haga í fimmtudag- spistli Garra hér í DV sagði að leik- konan Ólafía Hrönn heföi stjórn- að sjónvarpsþætti að bandarískri fyr- irmynd á Stöð 2. Hið rétta er að það var starfssystir hennar, Helga Braga Jónsdóttir, sem stjórnaði þættinum. -EIR Álkynning í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.