Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
I>V
Verkfall í Færeyjum
Helstu útflutningsvörur Færeyja
komast nú ekki úr landi vegna verk-
fallsaögeröa tveggja stórra félaga
færeyskra launamanna.
Aukin harka í
Færeyjaverkfalli
Aukin harka hefur færst í verk-
fallsaðgerðir í Færeyjum þar sem
vekfallsverðir koma i veg fyrir
flutning vöru um eyjarnar. Verkfall-
ið hefur svo gott sem lamað helstu
útflutningsgreinar færeysks efna-
hagslifs, fiskvinnsluna og laxeldið,
og hætta er á að tjón þeirra verði
metið í tugum milljóna íslenskra
króna.
Tvö stór verkalýðsfélög í Færeyj-
um lögðu niður vinnu á miðviku-
dagsmorgun eftir 30 klukkustunda
árangurslausar viðræður við at-
vinnurekendur. Verkalýðsfélögin
vilja fá meiri launahækkanir en
vinnuveitendur voru tilbúnir að
veita þeim.
Mafían grefur
undan evrunni
Mafiubófar og smáir spariíjáreig-
endur í Austur-Evrópu óttast svo
mjög að brenna inni með verðlaus
þýsk mörk þegar evran, sameigin-
legur gjaldmiðill Evrópusambands-
ins, verður tekin í notkun að þeir
eru famir að skipta mörkunum sin-
um í dollara.
Að sögn danska blaðsins Berl-
ingske Tidende hefur þetta orðið til
þess að hægja mjög á hækkun evr-
unnar á gjaldeyrismörkuðum.
Danska blaðið segir að drjúgur
hluti þýskra marka í umferð í Aust-
ur-Evrópu sé fenginn með ólöglegri
starfsemi og því geti eigendurnir
varla komið með pokafylli af mörk-
um þegar markinu verður skipt út
fyrir evruna í janúar á næsta ári.
Að sögn er næstum helming allra
þýskra marka í umferð að finna ut-
an Þýskalands, aðallega í gömlum
löndum Austur-Evrópu.
Paul Wolfowitz
Aðstoöarlandvarnaráðherra
Bandaríkjanna ræddi viö Rússa um
áform um eldflaugavarnakerfi.
Rússar létu ekki
sannfærast um
eldflaugavarnir
Rússnesk stjórnvöld létu ekki
sannfærast um ágæti eldflauga-
varnakerfis Bandaríkjamanna eftir
fyrsta fund um málið í Moskvu í
gær. Hvorir tveggja hétu þvi að
halda viðræðunum áfram.
Paul Wolfowitz aðstoðarland-
vamaráðherra fór fyrir bandarísku
sendinefndinni sem ræddi við emb-
ættismenn i rússneska utanríkis-
ráðuneytinu. Sendinefndin ræddi
einnig við yfirmann rússneska her-
ráðsins. Rússar hafa til þessa verið
andvígir áformum þessum.
Kosningabaráttunni á Ítalíu lauk í gærkvöld:
Hægrimenn æfir
út í spaugarann
ítalskir hægrimenn eru æfir út í |
háðfuglinn og kvikmyndaleikstjór-
ann Roberto Benigni fyrir að gera
grín að fjölmiðlakónginum og millj-
arðamæringnum Silvio Berlusconi,
forsætisráðherraefni hægriflokk-
anna í þingkosningunum á morgun.
„Þessa dagana heyrum við hreint
ótrúlega hluti. Páfinn fer í heim-
sókn í mosku, böm eru erfðabreytt
og Berlusconi er frambjóðandi til
forsætisráðherra," sagði Benigni í |
viðtali við ítalska ríkissjónvarpið á
fimmtudagskvöld.
„Hann (Berlusconi) vill alltaf
vera miðpunktur athyglinnar. Ef
fjöldafundur er haldinn vill hann
tala. Ef haldið er brúðkaup vill
hann vera brúðguminn. í jarðarfor
vill hann vera hinn látni,“ sagði
leikstjóri óskarsverðlaunamyndar-
innar Lífið er dásamlegt enn frem-
ur, vinstrimönnum til óblandinnar
gleði en hægrimönnum til gremju.
Mið- og hægrimenn, bandamenn
Silvio Berlusconi
ítalski fjölmiðlakóngurinn var skot-
spónn háðfuglsins Benignis í ítalska
ríkissjónvarpinu í vikunni.
Berlusconis, réðust harkalega á
Benigni fyrir tiltækið, svo og á
stjórnendur ríkissjónvarpsins fyrir
að leyfa háðfuglinum að koma þar
fram. Þeir sögðu það enn eina sönn-
un þess að ríkissjónvarpið þjónaði
vinstrimönnum.
Kosningabaráttunni á Ítalíu lauk
formlega klukkan tíu í gærkvöld að
íslenskum tíma. Frambjóöendurnir
notuðu síðasta daginn til að skiptast
á fúkyrðum. Berlusconi og
Francesco Rutelli, forsætisráðherra-
efni vinstrimanna, fluttu lokaræður
sínar í sjónvarpi og töluðu til stuðn-
ingsmanna sinna á fjöldafundum.
Stjómmálaskýrendur segja marg-
ir hverjir að mjög mjótt verði á
mununum og hugsanlegt er að hvor-
ugt kosningabandalagið fái meiri-
hluta þingmanna. I síðustu leyfilegu
skoðanakönnunum, sem birtust í
apríl, var kosningabandalag
Berlusconis þó með fjögurra pró-
sentustiga forskot.
Tony og Cherie hitta kjósendur
Tony Blair, forsætisráöherra Bretlands, og Cherie, eiginkona hans, brugöu undir sig betri fætinum í gær og hittu kjós-
endur. Forsætisráöherrahjónin fóru meðal annars til Chatham í Kent þar sem þau hittu ungt fólk aö máli. Verka-
mannaflokkur Blairs nýtur mun meiri stuönings en andstæöingar hans fyrir kosningarnar 7. júní.
Bush styður frestun aftöku
sprengjuvargsins McVeighs
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti í gær yfir stuðningi sínum
við frestun á aftöku Timothys
McVeighs og sagði nauðsynlegt að
farið yrði að stjómarskrá landsins
við meðferð allra mála.
„Ég er sannfærður um að dóms-
málaráðherrann komst að réttri
niðurstöðu í dag,“ sagði Bush eftir
að John Ashcroft dómsmálaráð-
herra tilkynnti um frestun aftök-
unnar um einn mánuð.
Til stóð að taka McVeigh af lífi
næstkomandi miðvikudag fyrir
sprengjutilræðið í Alfred P. Murrah
alríkisbyggingunni í Oklahomaborg
árið 1995, þar sem 168 manns létu
lífið. Þaö var versta hryöjuverk sem
nokkru sinni hefur verið framið
innan Bandaríkjanna. Aftökunni
var frestað til 11. júní.
Ástæða frestunarinnar er sú að
alríkislögreglan FBI hélt rúmlega
Timothy McVeigh
Oklahomamorðinginn fær eins mán-
aöar gálgafrest á meðan lögmenn
hans skoða gögn frá FBI.
þrjú þúsund síðum af gögnum frá
rannsókn málsins leyndum fyrir
lögmönnum McVeighs. Með mánað-
arfresti á að gefa lögmönnunum
kost á að skoða gögnin.
Dómsmálaráðherrann sagði á
fundi með fréttamönnum í Was-
hington að i sínum huga væri ekki
minnsti vafi á að McVeigh væri sek-
ur. Hann hefði hins vegar ákveðið
að fresta aftökunni vegna þess að
réttarkerfi Bandaríkjanna væri
byggt á sanngirni og óhlutdrægni,
eins og hann orðaði það. Hann sagði
að í gögnunum væri ekkert sem
gæti ómerkt dauðadóminn yfir
McVeigh.
Ashcroft sagðist hafa fyrirskipað
rannsókn á því hvers vegna gögnin
voru ekki afhent lögmönnum sak-
borningsins. Þá sagðist hann hafa
rætt við yfirmann FBI, Louis Freeh,
um málið.
Holger vill í stjórn
SHolger K. Niel-
sen, sem nýlega
hélt upp á tíu ára
afmæli sitt sem
leiðtogi Sósíalíska
þjóðarflokksins í
Danmörku, segir að
nú sé kominn tími
til að hann taki
sæti í ríkisstjóm, að sögn Politiken.
Hann bendir á að í ýmsum Evrópu-
löndum hafi vinstriflokkar með um
tíu prósenta fylgi tekið þátt í ríkis-
stjórnum, svo sem i Svíþjóð og
Frakklandi. Útlitið er þó ekki gott
fyrir Holger, miðað við fylgi flokks
hans í könnunum.
Jarðarber á 20 þúsund
Fyrstu dönsku jarðarber ársins
eru komin á markað og seldust á
sem svarar tuttugu þúsund krónur
kílóið í versluninni Prima á Frið-
riksbergi í fyrradag.
Wahid svaf yfir sig
Abdurrahman Wahid, forseti
Indónesíu, missti af morgunbænum
múslíma í gær vegna þess að hann
svaf yfir sig. Forsetinn, sem gengur
ekki heill til skógar, hefur aldrei áð-
ur misst af morgunbænum frá því
hann tók við forsetaembættinu.
Ungum sama um heilsuna
Danskir unglingar hafa litlar
áhyggjur af því að áfengisneysla
þeirra hafi skaðleg áhrif á heilsuna.
Danska blaðið Jyllands-Posten hef-
ur eftir heilbrigðisstarfsfólki að
unglingana skipti meira máli að
skemmta sér.
Ekki burt úr Tsjetsjeniu
Vladímír Pútín
Rússlandsforseti og
aðrir ráðamenn
hafa ákveðið að
hætta við heim-
kvaðningu rúss-
neskra hermanna
frá uppreisnarlýð-
veldinu Tsjetsjeníu.
Sex mánuðir eru nú liðnir síðan
ákveðið var að leyniþjónustan
stjórnaði aðgerðum gegn uppreisn-
armönnum.
Herforingi á eftirlaun
Franski hershöfðinginn Paul
Aussaresses, sem olli miklum úlfa-
þyt með játningum sínum á pynt-
ingum í frelsisstríði Alsírs á sjötta
áratug 20. aldar, verður sendur á
eftirlaun á næstunni. Hann fær þá
ekki lengur að vera í úníformi sínu.
Óljóst um riddaratign
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, sagðist í gær
ekki hafa heyrt af
því að hann væri að
íhuga að slá gamlan
vin sinn, Bill Clint-
on, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, til
heiðursriddara. Dagblaðið Daily
Telegraph sagði að Blair væri að
velta þessu fyrir sér en væri hrædd-
ur við að móðga Bush forseta.
Þjóöstjórn i Makedóníu
Allir helstu stjómmálaflokkar í
Makedóníu komust í gær að sam-
komulagi um að mynda þjóðstjórn.
Vesturlönd hafa mælt eindregið
með því sem bestu leiðinni til að
fást við uppreisnarmenn albanska
þjóðarbrotsins í landinu. Þingið
samþykkir stjómina á morgun.