Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Síða 12
12
Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
DV
Að kjörborðmu
með mafíunni
Saksóknarinn Roberto Scarpinato
í Palermo á Sikiley óttast að eftir
nokkur ár muni valdhafar á Ítalíu
krefjast vinnufriðar á ný fyrir
glæpamenn með hvíta flibba.
Scarpinato segir í nýlegri grein í
ítölsku menningartímariti að valda-
klíkan á Ítalíu samanstandi af risa-
stóru kerfi stjórnmálamanna, kaup-
sýslumanna og fjölmiðlamanna auk
annarra úr borgarastéttinni sem
séu í samkrulli með mafiunni og
pólitiskum öfgamönnum. Klíkan
hafi alltaf verið hafin yfir lög og
rétt. Stundum hafi þó jafnvægið far-
ið úr skorðum, eins og til dæmis
1992 þegar stjórnmálamenn, sem
voru að missa áhrif sín, þrjóskuðust
við að krefjast allt of hárra mútu-
greiðslna frá mönnum í viðskiptalíf-
inu. Einnig hafi ójafnvægi komist á
þegar morð Cosa Nostra á þjóðhetj-
unum og rannsóknardómurunum
Falcone og Borsellino leiddi til ólgu
meðal þjóðarinnar sem hafði í för
með sér áður óþekktan þrýsting á
stjórnmálamenn.
Við slík tilfelli leyfði valdaklíkan
lögreglunni og saksóknaraembætt-
inu að grípa inn í og koma lögleys-
unni á þolanlegt stig. En um leið og
„eðlilegt ástand sé komið á“ sé þess
vænst að saksóknaraembættið loki
augunum fyrir afbrotum valdhaf-
anna og sýni eingöngu smákrimm-
um áhuga. Það hafi saksóknarar
hins vegar ekki gert eftir 1992. Það
er mat Scarpinatos að nú sé þó
„vorinu“ að ljúka.
Nærbuxnasali og bílstjóri
Ejölmiðlakóngurinn Silvio
Berlusconi, frambjóðandi mið- og
hægrimanna, hefur til dæmis reynt
að þagga niður í einu röddinni í
flokki sínum, Forza Italia, sem barð-
ist gegn mafíunni á Sikiley.
Sikileyingurinn Christina
Matranga, sem í sjö ár hafði barist
gegn Cosa Nostra, heyrði í fréttum í
byrjun apríl að hún yrði ekki i
framboði fyrir flokkinn í Zisa-kjör-
dæminu í Palermo þar sem hún í
kosningunum 1996 hlaut næstum 46
þúsund persónubundin atkvæði,
rúmlega tvöfalt fleiri atkvæði en sá
sem varð i öðru sæti. Sá sem boðinn
er fram í hennar stað er Pippo Fall-
ica, fyrrverandi nærbuxnakaup-
maður og bílstjóri fyrir varakóng
mmmm
Forza Italia á Sikiley, Gianfranco
Micciché. „Pólitíkin og maflan leið-
ast eins og bestu vinir. Þegar það
hjónaband leysist upp mun maflan
tapa,“ segir Cristina Matranga
reiðilega.
Illa þefjandi menn í
heimsókn
Hún minnist dagsins í baráttunni
fyrir kosningarnar 1994 þegar tveir
stórir, grimmilegir og illa þeQandi
menn heimsóttu hana á skrifstof-
una og spurðu hvort þeir gætu veitt
henni aðstoð. Það var maflan sem
hafði knúið dyra. Cristina visað
þeim strax á dyr. „Ég sagði þeim að
þeir skyldu aldrei láta sjá sig aftur.
Síðan hef ég haft lífverði á heimili
mínu, verði fyrir utan húsið mitt og
fylgdarmenn hvert sem ég fer,“ seg-
ir hún í nýlegu blaðaviðtali.
Fyrir tveimur árum var and-
I pólítíkina til aö losna viö dómarana
Fjölmiölakóngurinn Silvio Berlusconi á að hafa sagt á flokksfundi aö hann hafi fariö í pólitíkina til aö sleppa viö
réttvísina. Sérfræöingar telja velgengni Berlusconis, sem spáö hefur veriö sigri í kosningunum á Ítalíu á morgun, stafi
af því aö fát hafi komiö á kjósendur eftir fall gömlu flokkanna. Auk þess sé veldi sjónvarpsins óskaptegt. Beriusconi
hafi notaö þaö óspart í áróöursskyni og allir horfi á sjónvarp.
rúmsloftið þrungið svo mikilli
spennu að hún varð að senda dóttur
sína langt í burtu frá Palermo, til
leynilegs staðar á N-Ítalíu.
Cristina spyr sig hvort barátta
hennar hafi verið fórnanna virði.
„Þetta er erfitt fyrir mig og ógnvekj-
andi fyrir ítaliu. Ég verð vör við
skugga, sem áður virtust óraun-
verulegir, en sem ég get nú snert
með höndunum. Ef til vill hef ég
háð rétta baráttu en í röngum
flokki. Þetta er ekki rólegt tímabil
því að í baráttunni gegn mafiunni
er hættulegasta augnablikið alltaf
þegar maður stendur einn. Nú hef
ég verið einangruð af Forza Italia og
ég óttast um líf mitt og framtíð,"
segir Cristina.
Fjáröflun hjá mafiósum
Samskipti Forza Italia við mafl-
una eru löng og flókin. Flokkurinn
var stofnaður á árunum 1992 og 1993
af Marcello Dell’Utri, yfirmanni
auglýsingafyrirtækisins Publitalia
sem tilheyrir fyrirtækjasamsteypu
Berlusconis. Dell’Utri er bæði full-
„trúi flokksins á ítalska þinginu og á
Evrópuþinginu. Hann hefur á und-
anförnum árum setið á sakamanna-
bekknum í heimabæ sínum, Pal-
ermo, vegna mafíustarfsemi.
Það kemur fram í dagbók
Marcellos Dell’Utris að þegar hann
var að ýta flokknum úr vör átti
hann fundi með mafiuforingjanum
Vittorio Mangano. Fyrrverandi
perluvinur Dell’Utris, Sikileyingur-
inn Filippo Alberto Rapisarda,
minnist viðræðna sinna við hann í
flugferð á milli Catania til Mílanó. í
flugferðinni tjáði Dell’Utri honum
að hann hefði verið á Sikiley til að
afla fjár fyrir nýja flokkinn hans
Berlusconis hjá aðilum sem voru í
nánum tengslum við mafluna.
í frétt frá því tveimur dögum áð-
ur en Berlusconi sigraði í kosning-
unum 1994 varaði formaður þing-
nefndar, er barðist gegn maflunni,
Luciano Violante, sem er núverandi
þingforseti, þá þegar við því að
Forza Italia gengi vísvitandi eða án
þess að vita af því erinda mafiunn-
ar. Það gerði flokkurinn með því
meðal annars að lýsa þvi yfir á
kosningafundi í höfuðborg ítölsku
maflunnar, Corleone, að stærsta
vandamál Corleone væri ekki mafí-
an heldur andmaflan, það er að
segja allir þeir sem berðust gegn
Cosa Nostra, hvort sem um væri að
ræða embættismenn eða óbreytta
borgara.
Síðan hefur fjöldi félaga i Forza
Italia verið handtekinn, dæmdur,
ákærður eða grunaður um sam-
skipti við mafíuna. Efstur á listan-
um er formaður flokksins, Silvio
Berlusconi sem margir iðrandi
mafiósar hafa sakað um að hafa
þvegið peninga maflunnar i fjöl-
miðlasamsteypu sinni og staðið á
bak við morðin á rannsóknardóm-
urunum Falcone og Borsellino.
Formaður héraðsráðsins i Pal-
ermo, lögmaðurinn Francesco
Musotto, var handtekinn vegna
gruns um að hafa falið mafiuforingj-
ann Leoluca Bagarella fyrir yfir-
völdum. Lögmanninum var sleppt
vegna skorts á sönnunargögnum en
bróðir hans, Cesare, var dæmdur
fyrir afbrotið í staðinn.
Starfsbróðir Musotto i Ragusa,
Giovanni Mauro, var ákærður fyrir
fjárkúgun fyrir maflufjölskyldu á
staðnum.
Á listanum eru einnig litlir fiskar
eins og þingmaðurinn Gaspare Giu-
dice sem er sakaður um að vera í
vasanum á einni maflufjölskyldn-
anna. Hann slapp við gæsluvarð-
hald vegna þinghelgi sinnar.
Giuseppe Aquila, einn af leiðtogum
Forza Italia, er grunaður um aðild
að morði. Borgarfulltrúinn Vito
Conticello í Trapani var handtekinn
með seðlabúnt á sér sem hann hafði
fengið í mútur í tengslum við útboð
á sorphreinsun. í mars síðastliðn-
um var þingmaður Forza Italia,
Amedeo Matacena, dæmdur í fimm
ára fangelsi fyrir aðild að mafíu-
starfsemi.
Boðar dómstól gegn of-
sóknardómurunum
Það skortir ekki ábendingar um
að Forza Italia sé orðinn uppáhalds-
flokkur sikileysku mafiunnar eftir
upplausn Kristilega demókrata-
flokksins og Sósíalistaflokks Bettin-
os Craxis. Það er skoðun margra að
í öllum öðrum Evrópulöndum hefðu
grunsemdirnar um mafiutengslin
og öll hneykslismálin kæft flokkinn
í fæðingu. En Forza Italia er nú
stærsti stjórnmálaflokkurinn á ítal-
íu og Berlusconi boðaði ekki alls
fyrir löngu að sigraði hann í kosn-
ingunum yrði skipaður sérstakur
dómstóll sem dæma ætti kommún-
ísku dómarana sem hann segir hafa
ofsótt sig. Hann hefur einnig velt
fyrir sér lagasetningu sem heimilar
stjórnvöldum að ákvarða hvaða af-
hrot dómarar eigi að fjalla um á
ákveðnum árum.
Cristinu Matranga er nú ljóst að
hún gekk í rangan flokk. „Þeir
bjóða fram alla þá sem rannsóknar-
dómararnir hafa eitthvað í höndun-
um gegn og fleygja mér út. Það er
ekki lengur neinn í flokknum sem
berst gegn mafíunni. Þetta er ekki
eðlilegt,“ leggur Cristina áherslu á.
Meðal þeirra sem eru í framboði
nú eru stofnandi Forza Italia,
Marcello Dell’Utri, sem vegna þing-
helgi sinnar slapp við gæsluvarð-
hald í apríl 1999 er hann var grun-
aður um mafíustarfsemi. í framhoði
er einnig Cesare Previti, fyrrver-
andi lögmaður Berlusconis og varn-
armálaráðherra. Hann var kærður
fyrir að hafa mútað dómurum í
Róm fyrir hönd Berlusconis. Þing-
helgi hans bjargaði honum frá
gæsluvarðhaldi 1998 og hann getur
eins og Dell’Utri vel hugsað sér þá
vernd sem þingmennskan veitir fyr-
ir réttarkerfinu.
Eini svarti péturinn er þingmað-
urinn Amedeo Matacena frá Cali-
briu, sá sem nýlega var dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir maflustarf-
semi. Framboð hans var ekki endur-
nýjað frekar en framboð Cristinu.
Margir minnast glottsins á honum
þegar greitt var atkvæði gegn
gæsluvarðhaldi hans á þingi. Hann
var sá eini sem klappaði þegar
Previti slapp við gæsluvarðhald ár-
inu áður. Matacena var greinilega
vinur vina sinna en augljóslega
ekki í nægu vinfengi við þá.
Greiði sem ber að
endurgjalda
Á grinteikningu í einu stóru dag-
blaðanna á Ítalíu er spurt hvers
vegna Dell’Utri og Previti séu í
framboði en ekki Matacena. „Vegna
þess að Berlusconi veit hver
Matacena er en Dell’Utri og Previti
vita hver Berlusconi er,“ var svar-
ið.
Ekki er talið útilokað að
Berlusconi hafi misreiknað sig.
Matacena hafði nefnilega borið
vitni gegn Rapisarda, perluvini
Dell’Utris, i Palermo-réttarhöldun-
um og sagt að Rapisarda hefði við-
urkennt fyrir sér að allar ásakanir í
garð Dell’Utri væru uppspuni. Og
það var varla búið að dæma
Matacena í fimm ára fangelsi og
fleygja honum út úr kosningabarátt-
unni fyrr en hann gaf i skyn að
vitnisburðurinn hefði verið greiði
sem bæri að endurgjalda.
Dómstólar hafa 10 sinnum frá ár-
inu 1996 rannsakað viðskipti
Berlusconis sjálfs. Hann hefur
þrisvar verið dæmdur. Tveir
dómanna, sem voru felldir vegna
mútugreiðslna til lögreglunnar og
ólöglegrar fjármögnunar flokks
hans, voru ógiltir þar sem ekki var
hægt að ljúka málunum á þeim tíma
sem kveðið er á um í lögum. í einu
málanna, sem var höfðað vegna
bókhaldssvika, var Berlusconi náð-
aður.
Sjö málum er enn ólokið. Um er
að ræða ákærur vegna bókhalds-
svika, spillingar og skattsvika.
Byggt á Reuter, Politiken o.fl.