Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
Gæsluvarðhaldsfangi krafðist þess að fá sendan mat og aðgang að tölvupósti:
Einangrunarfangar
einir mega fá pitsur
- héraðsdómur hafnaði kröfunni - fanginn kærir til Hæstaréttar
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði
í gær kröfu gæsluvarðhaldsfanga á
Litla-Hrauni um að hann fái leyfi til
að láta senda sér mat í fangelsið og að
hann fái takmarkaðan aðgang að
tölvupósti.
Fanginn, 26 ára karlmaður, var
handtekinn þann 16. apríl með 2.800 e-
töilur í farangri sínum við komuna fá
útlöndum. Hann var úrskurðaður í
gæsluvarðhald daginn eftir og hefur
hann verið á Litla-Hrauni upp frá því.
Heimsóknarbanni var aflétt 27. apríl.
í reglugerð um fangelsismál segir
að gæsluvarðhaldsfóngum sé heimilt
að útvega sér sjálfir fæði. Hins vegar
geta forstöðumenn fangelsa takmark-
að eða bannað að fangi fái sent fæði sé
hætta á að „það raski góðri reglu eða
öryggi í fangelsinu". Þegar fanginn
fór fram á það við Fangelsismálastofn-
un að hann fengi sendan mat til sín í
fangelsið - mat sem aðstandendur
hefðu í hyggju að færa honum - hafn-
aði stofnunin því. Var slíkt talið geta
raskað góðri reglu um öryggi innan
fangelsisins - að aðrir fangar, þ.e. af-
plánunarfangar - hafi ekki þessi sömu
réttindi. Það verði því eitt yflr alla að
ganga hjá þeim sem eru saman í fang-
elsi, það er gæsluvarðhaldsfanga sem
komnir eru í svokallaða lausagæslu
og eru því ekki lengur í einangrun, og
þá sem þegar hafa verið dæmdir og
eru að afplána dóma.
Samkvæmt þessu heimila íslensk
lög í rauninni að aðstandendur
gæsluvarðhaldsfanga geti útvegað
þeim pitsur, hamborgara og svo fram-
vegis ef þeir eru i sérstöku fangelsi.
En á meðan þeir þurfa að dvelja með
afplánunarfóngum á Litla-Hrauni er
það ekki hægt því þeir njóta ekki
sömu réttinda og þeir sem eru í
gæsluvarðhaldi og eitt verður yfir
alla að ganga. Fangelsismálastjóri
upplýsti á hinn bóginn fyrir dómin-
um að á Litla-Hrauni, sem og í öðrum
fangelsum, sé heimilt að senda fæði
til gæsluvarðhaldsfanga sem eru í
einangrun, en ekki til annarra. Menn
verða því að vera í einangrun á Litla-
Hrauni til að fá pitsur og hamborg-
ara.
Varðandi rétt til notkunar rafpósts
sagði fangelsismálastjóri að netteng-
ingar hefðu ekki veriö leyfðar í fang-
elsinu Litla-Hrauni fremur en öðrum
fangelsum. Ekki sé hægt að koma við
eftirliti á sama hátt og um venjulegar
póstsendingar og bréf væri að ræða.
Héraðsdómur segir að i lögum og
reglugerð sé ekkert ákvæði að finna
um sendingar pósts í gegnum tölvu
en telur slíkt ekki jafngilda því sama
og venjulegar bréfaskriftir. „Ekki er
ljóst hvers umbúnaðar væri þörf til
þess að viðhlítandi eftirlit væri við
komið,“ segir dómurinn og fellst ekki
á að gæsluvarðhaldsfanginn eigi
kröfu á að þeim búnaði verði komið á
sem þarf til að fullnægja óskum hans.
Ekki liggur fyrir hvort fanginn
hyggst kæra úrskurðinn til Hæsta-
réttar. -Ótt
Mánaðar-
fangelsi fyrir
nefbrot
DV, AKRANESI:______________________
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi
í vikunni 18 ára Akurnesing í eins
mánaðar fangelsi fyrir líkamsárás.
Fresta skal fullnustu refsingarinnar
og fellur hún niður að liðnum
tveimur árum frá uppsögu dóms,
haldi ákærði almennt skilorð.
Drengurinn var dæmdur til að
greiða 17 ára pilti sem hann sló
skaöabætur og auk þess allan sakar-
kostnað og málsvarnarlaun verj-
anda síns. Ákærði var kærður fyrir
líkamsárás aðfaranótt sunnudags-
ins 11. mars 2001 fyrir utan Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Þar gaf
hann 17 ára Reykvíkingi hnefahögg
í andlit með þeim afleiðingum að
aðkomupilturinn hlaut nefbeins-
brot.
Finnur Torfi Hjörleifsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. -DVÓ
Sex refsidómar:
Situr í 45 daga
í fangelsi
DV, AKRANESI:
Tvítugur Snæfellingur var dæmdur
í 45 daga fangelsi í Héraðsdómi Vest-
urlands í síðustu viku. Hann hefur
ítrekað brotið af sér í umferðinni og
hefur skapað stórfellda hættu, sjálfum
sér og öðrum vegfarendum. Á rúm-
lega þriggja ára ökumannsferli pilts-
ins hefur hann sætt refsingum sex
sinnum, hann hefur þurft að greiða
um 400 þúsund krónur í sektargreiðsl-
ur vegna afbrota sinna, hefur ítrekaö
verið sviptur ökuleyfi sem hann hefur
síðan hunsað; sviptingarnar eru upp á
fjögur ár og níu mánuði samtals - og
varðhaldsdómar eru samtals upp á 120
daga. Tveir fyrstu varðhaldsdómarnir
voru skilorðsbundnir, en nú fær öku-
þórinn að sitja bak við lás og slá í 45
daga.
Síðasta afbrot mannsins átti sér
stað aðfaranótt sunnudagsins 11. febr-
úar 2001. Hann ók fólksbifreið undir
áhrifum áfengis og ökuréttindalaus
frá félagsheimilinu Röst á Hellissandi
og þangað til lögregla stöðvaði akstur
hans á Útnesvegi á móts við Rif. Auk
fangelsisvistar var ungi maðurinn
sviptur ökuréttindum ævilangt og við
bættist sakarkostnaöur. -JBP
Lögguhjól
Lögreglan hefur fengiö ný reiðhjól til afnota og munu lögregluþjónar veröa vel sýnilegir ð þeim í umferöinni á næst-
unni. Hjólin eru smekktega merkt lögreglunni og fýlgia skemmtilegir hjáimar sem veita lögregluþjónunum traustvekj-
andi yfirþragö. Þá fýlgja einnig hliöartöskur á bögglabera.
Þjófi gerður grikkur:
Fékk kvikmyndavélina
aftur og þakkar DV
„Ég er fullur þakklætis því án að-
stoðar DV hefði ég örugglega aldrei
fengið vélina aftur,“ segir Árni
Sveinsson, 25 ára gamall kvikmynda-
gerðarmaður, sem varð fyrir því
óláni á dögunum að Sony-digital-
myndavél hans var stolið. Vélin er
metin á 400 þúsund krónur þannig að
um umtalsvert tjón var að ræða hjá
Árna, móður hans og systur, en sam-
an höfðu þau fjárfest i vélinni.
„Það hringdi f mig strákur sem ég
þekki en hann hafði séð vélina hjá
einhverjum gaur. Eftir snarpar
samningaviðræður fékk ég svo vél-
<HulijK5förí «iífcíi jö tSkttvit
Var nánast rifin úr
höndunum á mér
- < <um tr Uibuu.n ***** UaunnrjÚMld
Fréttin um Árna og þjófnaöinn
Án aöstoöar DV heföi ég aidrei
fengiö vélina aftur.
ina en þurfti í raun að kaupa hana
aftur - en ekki fyrir fullt verð sem
betur fer,“ segir Árni sem um leið
endurheimti nær fullgerða mynd
sem var f vélinni og hann hefur unn-
ið að svo mánuðum skiptir. Fjallar
hún um líf fegurðardrottningar en
Hrönn, systir Árna, smyglaði sér í
Fegurðarsamkeppni Islands til að
hægt væri að ná raunsannri mynd af
lífi stúlknanna þar. Eftir aö hafa end-
urheimt myndavélina, með hjálp DV,
stefnir Árni að því að frumsýna
næsta haust.
-EIR
.
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
netfang: sandkorn&ff.is
Ekki peningar
í yfirheyrslu DV í síðustu viku
við Kára Stefánsson forstjóra ís-
lenskrar erfðagreiningar kom
margt athyglivert fram, en margir
munu hafa lesið tvisvar það sem
Kári sagði þegar hann var spurður
hvort hann hefði hagnast á eign
sinni í fyrirtækinu. Svarið var á
þann veg að hann
hafi sjálfsagt tap-
að meira fé en all-
ir aðrir samanlagt
sem keyptu hluta-
bréf í ÍE. Svo kom
rúsínan, sem var
sú að Káriu hefði
aldrei litið á hluta
fé sitt sem raun-
verulega peninga, heldur tölu sem
menn voru að leika sér með. Fróð-
legt væri að vita hvort aðrir sem
tapað hafa fjármunum vegna hluta-
bréfakaup í fyrirtækinu séu tilbún-
ir að lita hlutina sömu augum.
Hörður hógværi
Hörður Magnússon knattspyrnu-
maður og „markamaskina" sem jafn-
framt er íþróttafréttamaður á Stöð 2
hefur lent í þvi að segja fréttir af
leikjum síns félags sem er FH. Á dög-
unum gerði hann
það með glæsi-
brag, og nafn-
greindi alla marka-
skorara í leiknum
nema sjálfan sig,
en Hörður skoraði
einmitt síðasta
mark FH í umrædd-
um leik. Þetta er nú
óþarfa hógværð, en hógværðina hlýt-
ur Hörður að sækja til fóðurs síns
sem er enginn annar en Magnús
Ólafsson leikari, söngvari og
skemmtikraftur með meiru.
Milosevic í Ólafsfirði?
í æsilegri og furðulegri frásögn
Mogga af knattspyrnuleik i Ólafs-
firði á dögunum þar sem gestaliðið
lamdi óþyrmilega á heimamönnum í
Leiftri, að sögn heimamannsins sem
skrifaði fréttina, kom fram að
Slobodan MOosevic hefði verið einn
aðkomumannanna í liði KA. Menn
voru að velta fyrir sér hvort sjálfur
stríðsglæpamaður-
inn og óvinur
mannkynsins,
fyrrverandi forseti
Júgóslaviu, hefði
verið að spila með
KA að undanförnu
og þyrfti þá ekki
að koma á óvart að
hann væri með
fantabrögð á knattspyrnuvellinum.
Hið rétta er hins vegar að einn
Júgóslavi hefur verið að spila með
KA, en sá heitir Slobodan Milic og
er að því er best er vitað ekkert
skyldur Milosevic sem nú situr í
fangaklefa í Hollandi.
Laxinn í hættu
Samkvæmt fregnum frá Noregi
er eldislaxinn þar við land um
það bil aö ganga endanlega af
villta laxinum dauðum í ám þar 1
landi, en sem kunnugt er hyggj-
umst við Islending-
ar feta í fótspor
Norðmanna með
laxeldið sem þýð-
ir að villti laxa-
stofninn í íslensk-
um ám fer vænt-
anlega sömu leið
og sá norski. Á
vefsíðunni flugu-
veiði.is var þetta
rætt og segir þar m.a. að íslenskir
stjórnmálamenn og aðrir sem eiga
starfa sinna vegna að hafa frum-
kvæði að vemdun laxastofnsins
keppist nú við að koma laxeldi á
laggimar og muni þeir um leið að
hljóta þann vafasama heiður að
komast í sagnfræðibækur framtíð-
arinnar sem tortímendur íslenska
laxastofnsins. Ekki er ólíklegt að
sá sem þetta ritar hafi haft
Guðna Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra í huga en Guðni er sá
sem endanlega veitir leyfi til lax-
eldisstöðvanna.