Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2001, Qupperneq 28
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2001
I>V
Helgarblað
■■
-
Ólfna Þorvaröardóttir er nýráöinn skólameistari Menntaskóians á ísafiröi
„Þegar við fundum þessa löngun heimamanna þá könnuöum viö starfsskilyröin og stööu menntaskótans og ákváöum síöan aö stökkva en hrökkva ekki. Ég fann glöggt langt út fyrir raðir skólanefndar aö
nýtt blóö inn í skólastarfiö og endurheimta eitthvaö af sínu fólki
Sýslumannsdóttirin
snýr heim aftur
- Ólína Þorvarðardóttir, doktor og skólameistari,
snýr aftur heim til Isafjarðar og
tekst á við ögrandi verkefni í skólamálum.
Hún ræðir við DV um þessa ákvörðun, erfiða dokt-
orsvörn og stjórnunarstíl.
Ólfna Þorvarðardóttir, fyrrverandi
fréttamaður, stjómmálamaður, doktor í
bókmenntum og þjóðfræði og nýskipað-
ur skólameistari Menntaskólans á ísa-
firði, er nýbúin að taka malaríutöflur
þegar hún tekur á móti blaðamanni
DV.
Ekki svo að skilja að blaðamenn beri
með sér smitandi hitabeltissjúkdóma
heldur er Ólína i þann veginn að leggja
upp í langt ferðalag. Hún ætlar með
dætrum sínum og tengdadóttur í nokk-
urs konar safarí-leiðangur til Afríku til
þess að skoða villt dýr i sínu náttúrlega
umhverfi og heimsækja fáséða ætt-
bálka. Hún hlakkar mikið til.
Tíu dögum eftir heimkomuna leggur
Ólína upp með lungann úr fjölskyld-
unni í annað og mun lengra ferðalag,
þegar hún flytur vestur á ísafjörð til
þess að taka þar við starfi skólameist-
ara Menntaskólans á ísafirði. Bjöm
Teitsson sagnfræðingur lætur af starfi
þar vestra eftir ríflega 20 ára þjónustu
við skólann. Veiting embættisins hefur
vakið nokkra athygli, eins og reyndai'
flest sem Ólína hefur tekið sér fyrir
hendur um ævina. Hún hefur sjaldan
farið troðnar slóðir og þaö hefur alltaf
gustað um hana.
Það er líkt með þessum ferðum
tveimur að þær em báðar famar á vit
þess ókunna. Þótt hvorttveggja séu
framandi staðir er Ólína kunnugri
innviðum ísfirsks samfélags en gresjum
Afríku, þvi hún ólst að miklu leyti upp
á ísafirði og útskrifaðist sjálf árið 1979
úr þeim menntaskóla sem hún tekur nú
við stjómtaumunum á.
Fjórði ferillinn haflnn
Ólína varð þjóðþekkt í starfi sínu
sem fréttamaður á Sjónvarpinu á áram
áður, síðan sem ötull borgarfulltrúi Nýs
vettvangs og liðsmaður Alþýðuflokks-
ins. Hún er höfundur umtalaðrar við-
talsbókar við Bryndísi Schram, eigin-
konu Jóns Baldvins Hannibalssonar,
fyrrverandi utanríkisráðherra og for-
manns Alþýðuflokksins. Síðast en ekki
síst hefur Ólína komist í fréttir fyrir
fræðastörf sín, einkum umtalaða dokt-
orsvörn á síðasta ári sem fór alls ekki
hávaðalaust fram.
- Er sanngjamt að segja að með bú-
ferlaflutningum vestur til ísafjarðar og
starfi skólameistara þar sé hún að
takast á við fjórða starfsferilinn?
„Já, það má segja það. Ég fór úr
fréttamennsku i pólitík og byrjaði með
fram því að vinna að fræðastörfum og
háskólakennslu. Ég hef litið á mig sem
fræðimann síðari ár, en það segir sig
sjálft að í þessu nýja starfi muni fræða-
störfin fara nokkuð halloka. Undanfar-
in ár hef ég ekki verið í fastlaunuðum
störfúm, svo það má eiginlega segja að
nú sé ég loksins að koma út á vinnu-
markaðinn," segir Óiína sem hefur ver-
ið sjálfstætt starfandi fræðimaður með
fram háskólakennslunni.
Heimamenn grétu af gleði
Umsókn Ólínu um starfið var að þvi
leyti sérstök að einungis sóttu tveir um.
Hinn umsækjandinn dró umsókn sína
til baka á lokastigi en mun kenna við
skólann í vetur. í fréttum DV kom fram
að skólanefnd menntaskólans hefði
komist við af gleöi þegar ljóst var að
umsókn Ólínu lá fyrir.
- Hverjar vora helstu ástæður þess
að hún ákvað að stíga þetta skref og
söðla um á sínum starfsferli?
„Athygli mín var vakin á þessari
auglýsingu um leið og hún birtist. Jafn-
framt fóram við hjónin að fá símhring-
ingar frá ísfirðingum sem vora að hlera
eftir því hvort mögulegt væri að fá okk-
ur aftur heim í hérað og taka við skól-
anum. Við höfum nokkuð lengi verið að
gæla við þá hugmynd að flytja vestur,
þó aö það hafi fram að þessu verið frem-
ur kæruleysislegt tal. Ég hef alltaf fund-
ið að „hin ramma taug“ hefur togað í
Sigga og sjálf hef ég haft taugar til skól-
ans og bæjarins."
Stökkva en ekki hrökkva
Þama talar Ólína um eiginmann
sinn, Sigurð Pétursson sem er innfædd-
ur og uppalinn ísfirðingur, sonur Pét-
urs Sigurðssonar, forseta Alþýðusam-
bands Vestfjarða. Sigurður er sagnfræð-
ingur sem hefur starfað sem kennari og
stefnuvottur hin síðari ár. Hann mun
gerast undirmaður eiginkonu sinnar og
verður kennari í fullu starfi við
menntaskólann þar sem hann ætlar að
kenna sögu og dönsku.
„Þegar við fundum þessa löngun
heimamanna þá könnuðum við starfs-
skilyrðin og stöðu menntaskólans og
ákváðum síðan að stökkva en hrökkva
ekki. Ég fann glöggt langt út fyrir raðir
skólanefndar að það var mikill hugur í
heimamönnum að fá nýtt blóð inn í
skólastarfið og endurheimta eitthvað af
sínu fólki."
Ólina segir að þau hjón ætli ekki að
selja húsið á Framnesveginum heldur
muni íjölskyldan nýta það meö öðram
hætti. Samt era húsnæðismál nýs
skólameistara enn óleyst heima á ísa-
firði þegar þetta viðtal fer fram en það
virðist ekki valda Ólinu neinum
áhyggjum.
Atgervisflóttinn er mikill
ísafjöröur hefur sannarlega ekki far-
ið varhluta af þeirri miklu byggðarösk-
un sem átt hefur sér stað undanfarin ár
og Vestfirðir hafa orðið hvað harðast