Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 22
26 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 I>V íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára__________________________ Gunnar Þorsteinsson, Seilugranda 7, Reykjavík. Björn Helgason, Hæðargaröi 24, Reykjavík. Friðrik Jónsson, Kópavogsbraut lb, Kópavogi. Eggert ísaksson, Arnarhrauni 39, Hafnarfirði. 75 ára__________________________ Sigurlaug Bjarnadóttir, Njörvasundi 15a, Reykjavík. Kristgeir Kristinsson, Vesturgötu 111, Akranesi. Sigurjón Björnsson, Árbraut 17, Blönduósi. 70 ára__________________________ Kári Arnórsson, Huldulandi 5, Reykjavík. Ragnheiður Magnúsdóttir, Hlaðbæ 20, Reykjavik. Jóhannes Þór Egilsson, Lækjargötu 13, Siglufirði. 60 ára__________________________ Þórgunnur Þórarinsdóttir, Miðleiti 2, Reykjavík. Árni Vilhjálmsson, Vallarási 1, Reykjavík. Guðmundur Helgi Gíslason, Veghúsum 21, Reykjavík. Ester Haraldsdóttir, Krosseyrarvegi 8, Hafnarfirði. Kjartan Jónsson, Hlíðarenda, Hofsósi. Valur Johansen, Hvanneyrarbraut 42, Siglufiröi. Stefán Björnsson, Lónabraut 25, Vopnafirði. 50 ára__________________________ Hildur Skarphéðinsdóttir, Langholtsvegi 118a, Reykjavík. Ólína Ben. Kjartansdóttir, Langholtsvegi 196, Reykjavík. ívar Þ. Björnsson, Vesturbrún 29, Reykjavík. Sjöfn Kristjánsdóttir, Lágholtsvegi 8, Reykjavík. Áslaug Sigvaldadóttir, Stórageröi 8, Reykjavík. Kjartan Tryggvason, AsparfeHi 4, Reykjavík. Baldur Örn Baldursson, Skipagötu 5, Akureyri. 40 ára__________________________ Ingibjörg Tómasdóttir, Bergstaðastræti 27, Reykjavík. María Lilja Indolos Alfante, Háteigsvegi 52, Reykjavik. Elías Bragi Sólmundsson, Réttarholtsvegi 73, Reykjavík. Anna Lára Gunnarsdóttir, Kambaseli 53, Reykjavík. Gunnar Hallgrímsson, Suðurhólum 14, Reykjavík. Robert Jacob Kluvers, Borgarholtsbraut lla, Kópavogi. Sigríður Ósk Birgisdóttir, Funalind 9, Kópavogi. Guðmundur Ýmir Bragason, Hringbraut 30, Hafnarfirði. Gunnhildur Manfreðsdóttir, Lambhaga 5, Bessastaðahreppi. Guðrún Magnúsdóttir, Hólabraut 26, Skagaströnd. Signý Berglind Guðmundsdóttir, Skálholti, Selfossi. IJrval - gott í hægindastólinn Bjargmundur Ingólfsson rafeindavirki, Hllðarbyggð 23, Garðabæ lést á heimili sínu sunnudaginn 1. júlí. Ingveldur Guðrún Finnbogadóttir, Núpa- lind 2, Kópavogi, varð bráökvödd á heimili sínu sunnudaginn 1. júlí. Dagbjört Jóna Jónsdóttir lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi sunnu- daginn 1. júlí. Stefán Jónasson, áður til heimilis í Urriðakvísl 16, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstudaginn 29. júni. Guðrún Kristinsdóttir, lést á hjúkrunar- heimilinu Holtsbúö laugardaginn 30. júní. Sjötugur Pétur Urbancic, leiðsögumaöur og skjalaþýðandi Pétur Marteinn Páll Urbancic, leiðsögumaður og skjalaþýðandi, Goðheimum 8, Reykjavík er sjötug- ur í dag. Starfsferill Pétur fæddist í Vín í Austurríki og ólst þar upp en kom til íslands árið 1938 og hefur síðan búið í Reykjavík. Pétur lauk stúdents- prófi frá MR 1950, útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1951 með burtfararprófi í celló- og kontrabassaleik árið 1951. Hann lauk fyrrihlutaprófi í íslenskum fræðum við HÍ 1953 en fór síðan til Vínar þar sem hann stundaði nám í samanburðarmálfræði og þýðing- um. Pétur hóf störf við Landsbanka íslands á námsárum sinum og var starfsmaður Seðlabanka íslands frá stofnun hans 1961 til 1997. Pétur lék með Sinfóníuhljóm- sveit íslands á sjötta áratugnum, og með Nausttríóinu ásamt Carli Billich og Jan Moravek um 15 ára skeið. Þá hefur hann spilað í leik- húsum borgarinnar, inn á fjöl- marga útvarps- og sjónvarpsþætti og á fjölda hljómplatna. Pétur er löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur og hefur starfað sem slíkur fyrir þýska sendiráðið í Reykjavík í um 40 ára skeið. Hann hefur verið leiðsögumaður fyrir ferðamenn til íjölda ára og var meðal stofnfélaga í Félagi leiðsögu- manna og varaformaður þess fyrstu árin. Þá hefur hann starfað mikið fyrir kaþólska söfnuðinn í Reykjavík og var um tíma formað- ur. Fjölskylda Þann 21. september árið 1957 giftist Pétur Ebbu Ingibjörgu Egils- dóttur Urbancic, fyrrv. kennara, f. 10, júlí 1933. Foreldrar hennar voru EgÚl Sigurgeirsson, f. 21. desember 1910, d. 14. mars 1996, og Ásta Dahlmann, f. 27, maí 1914, d. 26. október 1980. Egill var hæstaréttar- lögmaður og Ásta húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík Börn Péturs og Ebbu eru: 1) Ásta Melitta, f. 9. október 1958, landfræð- ingur, gift Tómasi Óskari Guðjóns- syni líffræðingi, f. 19. ágúst 1959, börn þeirra eru Pétur Marteinn, f. 9. ágúst 1991, Jóhannes Bjarki, f. 6. júní 1993, Sigrún Ebba, f. 5. mars 1995, og Guðjón Páll, f. 19. nóvem- ber 2000; 2) Viktor Jóhannes, f. 24. febrúar 1961, verslunarmaður, kvæntur Gunnhildi Úlfarsdóttur flugfreyju, f. 6. janúar 1962, börn þeirra eru Marteinn Pétur, f. 5. júlí 1993, og Tómas Ingi, f. 13. nóvem- ber 1996; 3) Anna María, f. 26. júní 1965, viðskiptafræðingur, gift Finni Árnasyni rekstrarhagfræðingi, f. 12. september 1961, börn þeirra eru Árni Grétar, f. 14. maí 1990, Ebba Katrín, f. 7. apríl 1992, Oliver Páll, f. 21. september 1995 og Viktor Pét- ur, f. 26. október 1999; 4) Linda Katrín, f. 21. október 1966, móttöku- ritari, sambýlismaður hennar er Ásgeir Rafn Reynisson bifreiða- smiður, f. 8. desember 1961, hann á eina dóttur, Unni Grétu, f. 27. jan- úar 1987 ; 5) Óskírður drengur, f. og d. 30. desember 1970; 6) Elísabet Sigríður, f. 1. nóvember 1972, bygg- ingaverkfræðingur. Systkini Péturs eru: 1) Ruth Erb, f. 27. nóvember 1932, bóksali í Richmond í Virgina í Bandaríkjun- um, gift dr. James Erb fyrrv. pró- fessor í tónlist og eiga þau 4 börn og 7 barnabörn; 2) Sibyl Urbancic Kneihs, f. 4. júni 1937, tónlistarmað- ur í Vin i Austurríki, gift Hans Kneihs prófessor í tónlist, þau eiga 3 syni og eitt barnabarn en áður átti Sibyl, Ruth Ólafsdóttur; 3) Ei- ríka Urbancic, f. 9. mai 1945, lækna- ritari, gift dr. Ásgeiri B. Ellertsyni yfirlækni og eiga þau tvo syni. Foreldrar Péturs voru dr. Viktor Jóhannes Urbancic hljómsveit- arstjóri og tónskáld, f. 9. ágúst 1903, d. 4. apríl 1958, og dr. Melitta Urbancic, f. 21. febrúar 1902, d. 17. febrúar 1984. Þau bjuggu lengst af í Austurríki en á íslandi frá 1938. Fimmtugur Þorsteinn Árnason vélfræðingur Þorsteinn Árnason, vélfræðing- ur Ártúni 15, Selfossi er fimmtugur í dag. Starfsferill Þorsteinn fæddist í Vík í Mýr- dal og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Skógarskóla 1967, nám í Iðnskólanum á Selfossi 1970-1972. Lauk námi frá Vélskóla fslands 1975 og sveinsprófl frá Vél- smiðjunni Héðni í Reykjavík 1976. Þorsteinn var vélstjóri á ýmsum skipum fram til ársins 1989 og oft i afleysingum eftir það. Lengst var hann vélstjóri á Páli Pálssyni frá Hnífsdal og Sighvati Bjarnasyni frá Vestmannaeyjum. Hann var umdæmisstjóri siglingarmála- stofnunar i Eyjum fram til 1991, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vestmannaeyja til 1993. Þorsteinn vann hjá Einari og Guðjóni sf. í Vestmannaeyjum þar til hann flutti i Kópavog 1995. Þorsteinn var bifreiðastjóri hjá Skeljungi til haustsins 1996. Frá þeim tíma hef- ur hann unnið hjá Vélsmiðju KÁ, Selfossi, fyrst við upptöku og aflaukningu véla i Búrfellsstöð. Núna leysir hann af sem vélfræð- ingur við Búrfells- og Sultartanga- stöðvar. Þorsteinn var i nokkur ár full- trúi Vélstjórafélags Vestmanna- eyja 1 stjórn FFSÍ, allt þar til vél- stjórar stofnuðu eigið samband. Hann var í framboði fyrir Frjáls- lynda flokkinn fyrir siðustu al- þingiskosningar og er í miðstjórn flokksins. Fjölskylda Þann 25. september 1971 grftist Þorsteinn, Arndísi Ástu Gestsdótt- ur, leikskólakennara og SOV-fræð- ingi, f. 26. maí 1952. Foreldrar hennar eru Gestur Jónsson, d. 1994, og Steinunn Ástgeirsdóttir, sem búsett er að Ártúni 8 á Sel- fossi. Börn Þorsteins og Arndísar Ástu eru: 1) Jón, f. 23. nóvember 1970, kjötiðn.maður, verkstj. hjá SS. Hvolvelli, maki Guðrún Berglind Jóhannesdóttir, nuddari, börn þeirra eru Heiðrún Huld, Sif, og nýfæddur drengur; 2) Þóra, f. 1. maí 1979, húsmóðir/nemi, Selfossi, maki Böðvar Þór Kárason, vél- stjóri, börn þeirra eru Þórdís Mjöll, Úlfur Þór, Bjartþór Freyr; 3) Haukur, f. 14. apríl 1981, verkamað- ur, Selfossi. Systkini Þorsteins eru: 1) Sigríð- ur Dóróthea, f. 11. júlí 1952, banka- starfsmaður, Vík 1 Mýrdal; 2) Sig- urjón, f. 9. júlí 1957, húsasmíða- meistari, Reykjavik; 3) Hermann, f. 4. október 1958, stöðvarstjóri SS á Selfossi; 4) Elín,' f. 22. júlí 1961, d. 11. október 1997, var búsett á Sel- fossi; 5) Oddur, f. 6. maí 1965, verk- smiðjustjóri SS á Hvolsvelli. Uppeldissystir (systrabörn) Þor- steins eru Hrafnhildur Oddný Sturludóttir, f. 13. mai 1949, fjalla- kokkur í hálendismiðstöðinni Hrauneyjum, búsett í Garöabæ. Foreldrar Þorsteins eru Árni Sigurjónsson, fyrrveranndi bíl- stjóri og verkamaður, f. 21. mars 1926 og Ásta Hermannsdóttir, 6. mars 1930, d. 26. ágúst 1993, Vík í Mýrdal. Þorsteinn og eiginkona hans, Amdís Ásta Gestsdóttir, bjóða öll- um þeim sem vilja kannast við hann til veislu laugardaginn 7. júlí kl. 19.00 í Pósthúsinu á Laugar- vatni, vísir.is 3 CC FAX /i k 550 5727 'CC E <o ■ Þverholt 11, 105 Reykjavík Merkir Islendingar Sveinbjörn Beinteinsson, bóndi og alls- herjargoði ásatrúarmanna, var fæddur þann 4. júli 1924 í Grafardal í Skorradal i Borgarfirði. Foreldrar hans voru Beinteinn Einarsson bóndi frá Litla- botni á Hvalfjarðarströnd og Helga Pétursdóttir húsfreyja frá Drag- hálsi í Svínadal. Árið 1934 flutti Sveinbjörn með foreldrum sínum að Draghálsi í Svínadal og var þar bóndi frá 1944. Sveinbjörn var af Bergsætt, Klingelsbergætt af Akranesi og ýms- um þekktum ættum úr Kjós og Borg- arfirði, eins og Fremra-Hálsaætt. Sveinbjörn orti og sendi frá sér rímna- og ljóðabækurnar Gömlu lögin, rímur, 1945; Sveinbjörn Beinteinsson Bragfræði og háttatal, 1953; Stuðlagaldur, kvæði, 1954; Vandakvæði, ljóð, 1957, Reið- Ijóð, 1957; Heiðin, kvæðabók, 1984; Gátur I—III, 1985 til 1991, og Bragskógar, ljóð, 1989. Þá sá hann um útgáfu á rímum, s.s. Rímnavöku, 1959; Rímnasafni, sýnisbók, 1966; Fúsakveri, 1976 og Rímnasafni Sigurðar Breiðfjörð 1-6, 1961 til 1973 auk Eddukvæða á hljómplötum og átti þátt í útgáfu Borgfirðingaljóöa 1991. Hann las einnig fjölda rimna í útvarpi og á mannamótum. Sveinbjöm var forstöðumaður Ása- trúarfélagsins og síðan allsherjargoði frá 1972. Hann lést á jóladag árið 1994. Jarðarfarir Skafti Kristófersson, frá Hnjúkahlíö veröur jarösunginn frá Blönduóskirkju, föstudaginn 6. júlí kl. 14.00. Elsa Eiríksdóttir, Spltalastíg la, Reykja- vík, verður jarösungin frá Fossvogs- kapellu, föstudaginn 6. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Rauða krossinn. María B. J. P. Maack, Langholtsvegi 5, Reykjavík, veröur jarösungin frá Foss- vogskirkju miövikudaginn 4. júlí kl. 13.30. Siguröur Einarsson, Hrafnistu, Hafnar- firöi, áöur Öldugötu 14, veröur jarösung- inn frá Fríkirkjunni I Hafnarfiröi á morg- un 5. júlí kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.