Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 Fréttir DV Trillukarlar á Suðureyri vinna dag og nótt - „landslið“ úr öllum landshornum: Ganga á orkudrykkjum - segir fiskmarkaðsstjórinn - „er eiginlega mamma karlanna“ DV, SUÐUREYRI: Arni Árnason. Grlðarlegar ann- ] ir og mikil veiði er hjá trillukörlum á Suðureyri sem flestir eru komnir víða af landinu. „Við höfum mest séð um 60 trillur hérna í einu enda er svo stutt á miðin - þetta er alveg sér- stakt og einstaklega samheldið samfélag manna hér viö bryggjuna. Það eru forréttindi að vera á með- al þessa fólks,“ segir Árni Árna- son, fiskmarkaðsstjóri á Suður- eyri. „Við erum búnir að vera að landa í alla nótt. Maður drekkur 8-12 orkudrykki á dag og tekur í nefið líka til að halda sér gang- andi. Við eigum von á slæmu veðri núna og erum eiginlega fegnir - margir sem þú sérð hérna á bryggj- unni eru búnir aö vaka í meira en sólarhring,“ segir Árni sem kom frá Reykjavík sem byggingarverk- taki fyrir sex árum. Árni segir að trillukarlarnir séu svo hjálpsamir hver við annan að stundum setji einn trillukarl grill á bryggjuna og matreiöi fyrir hina. „Það er mjög gaman að sjá þetta," segir Árni. Hann kemur aflanum í hús fyrir trillukarlana þar sem fiskurinn er slægður og settur í gáma og sendur ýmist noröur í land, á Suðurnes, til höfuðborgar- svæðisins eða annað til frekari vinnslu og síðan útflutnings. „Ég er eins og mamma þeirra," segir Árni. Hann útvegar mönnum ýmsa nauðsynlega þjónustu til út- gerðarinnar. Flestir búa karlarnir í bátunum þann tima sem þeir eru DV-MYNDIR GVA Tvö tonn eftir daginn Verðmæti aflans er 280 þúsund krónur. Af því fá trillukarlarnir tveir 40 prósent. Ekki slæmt, en á þaö ber þó aö líta aö menn mega ekki fiska meö þessum hætti nema í 23 daga á ári. á Suðureyri á sumrin. „Það er bara ekki pláss fyrir þá annars staðar í bænum því það er svo mikill upp- gangur hérna. Útlendingar eru líka sestir hér að og fara hvergi,“ segir Árni. 110 þúsund fyrir daginn Þegar DV ræddi við menn á bryggjunni á Suðureyri í gær voru feðgar úr Nökkvavogi í Reykjavík að landa tveimur tonnum af þorski eftir daginn. Fyrir kílóiö af vænum fisk fást 130-150 krónur. Af þessu fær trillukarlinn 40 prósent og deilist sú upphæð oftast niður á tvo því á flestum bátunum eru tveir menn. Áhöfnin úr þessum túr fékk því samtals um 110 þúsund krónur fyrir daginn en heildaraflaverðmæt- ið er 280 þúsund. „Ég er sestur að hérna,“ segir fiskmarkaösstjórinn. „Trillurkarl- arnir koma hingað á sumrin en á veturna kemst lífið í fastari skorð- ur. Þá er gert út á línu, menn róa á morgnana og koma inn síðdegis - vaka ekki svona lengi í einu eins og núna. Við þurfum ekkert hér frá neinum. Við viljum bara fá vinnu- frið. Mennirnir við Austurvöll mega vita að við höfum allt af öllu,“ sagði Árni Árnason. Um helgina er búist við miklum mannfjölda í Súgandafjörð - á Sælu- daga á Suðureyri. Margur trillukarlinn á þá von á konu sinni og börnum og ekki síst taka bæjar- búar á móti „gömlunf' Súgfirðing- um sem leggja leið sína á heima- slóðir. -Ótt Þróttarar á Suöureyri Feögarnir Snæbjörn Sigurgeirsson t.h. og Sigurgeir Snæbjörnsson eru úr Nökkvavogi í Reykjavík en eru á fullu í veiöiskapnum fyrir vestan. Heimsmótjiáskóla: Háskóli íslands í öðru sæti Skáksveit Háskóla íslands náði glæsilegum árangri á heimsmóti há- skóla sem lauk í Singapore í gær. Sveitin hafnaði í öðru sæti. Sveitin tapaði 1 1/2-2 1/2 í hreinni úrslita- viðureign gegn hinni geysisterku kínversku sveit Nan Kai sem fram fór í gær. Kínverjarnir voru stiga- hærri á öllum borðum. Engu að síð- ur glæsilegur árangur hjá íslensku skáksveitinni en hana skipuðu: Þröstur Þórhallsson, Magnús öm Úlfarsson, Sigurbjörn J. Bjömsson og Páll A. Þórarinsson. -HK DV-MYND SIGRÚN BJÖRGVINSDÓTTIR Heltt Hitastigiö á Austfjöröum fór vel yfír tuttugu stigin í gær og eflaust munu stærri tölur sjást á næstunni. Eins og á Spáni DV, EGILSSTOÐUM:___________________ Það er heitt á Austfjörðum þessa dagana eins og myndin frá Café Nilsen á Egilsstöðum sýnir. Þar sat fólk ut- andyra í gær undir sólhlifum og varð að orði: Þetta er bara eins og á Spáni. Veitingastaðurinn er í einu af elstu húsum Egilsstaða sem er þó ekki nema rúmlega hálfrar aldar gamalt og byggt af dönskum manni. Síðustu fimm árin hefur verið þama veitingahús. Þegar fréttamaður heimsótti vertinn átti hann von á 35 Finnum í kvöldmat. Þeir báðu um íslenskan mat og átti að bjóöa upp á sjávarréttasalat, hangikjöt og jafning ásamt ýmsu meðlæti og kaffi og pönnukökur. -sb CMR á rústum íslenskrar miðlunar: Ekki í kennitöluleik - segir Árni Sigfússon - vorum komnir fram af hengifluginu „Við erum ekki í kennitöluleik. Samstarfssamning- ur íslenskrar miðl- unar viö hið nýja fyrirtæki, CMR, var eina færa leið- in til að fá svigrúm til aö endurskipu- leggja reksturinn. Sigfússon. Við vorum komnir fram af hengiflug- inu,“ segir Árni Sigfússon, for- stjóri Tæknivals, sem er einn stærsti hluthafi í markaðsfyrir- tækinu Islenskri miðlun sem er ein rjúkandi rúst eftir misheppn- aðan rekstur víða um land. Fimm- tíu starfsmenn hafa verið launa- 50 störf og hundr- uö milljóna i húfi - jnaitiinU J íýttöprvn Framkvæmdastjórinn hættir- - 4(1 N«arf»i»rnn Uiuulau«ii tilun i nuií ' KUtkí ravMos terintr CKM *■& nir h*n.kur>ó,-í liAins Mér líst glimrandi vel Hörmungasaga Fréttir DV af málefnum ístenskrar miðlunar. Höfuöstöövarnar á Krókhálsi CMR flutt inn og greiöir leigu til íslenskrar miölunar. lausir um mánaða- skeið, framkvæmda- stjóri horfið á braut og tekjur í engu sam- ræmi viö kostnað. Því tóku hluthafar sig saman og stofnuöu nýtt fyrirtæki sem yf- irtekur verkefni og starfsemi íslenskrar miðlunar. „CMR-markaðs- lausnir greiða leigu til íslenskrar miðlunar fyrir afnot af tækja- búnaði og öðru og sú leiga fer í að greiða skuldir og kostnað sem íslensk miðlun stendur frammi fyrir. Án þessa samstarfs- samnings hefði öllum rekstri verið lokið. Þetta er heiðarleg leið til að bjarga þvi sem bjargað verður," segir Árni Sigfússon og leggur áherslu á að án þessara aðgerða hefði starfsfólkið aldrei fengið launin sín og ekki heldur haft vinnu. CMR stendur fyrir Customer Relations- hip Management og nýr framkvæmda- stjóri þess er Gylfi Þórisson sem áður var forstöðumaður GSM-deildar íslands- síma. Auk Tæknivals eru aðaleig- endur íslenskrar miðlunar Kaup- félag Árnesinga og Sparisjóður Hafnarfjarðar. „Þaö er enn óljóst hvað verður um íslenska miðlun en þetta var eina leiðin til að eiga möguleika á að semja um skuldir fyrirtækis- ins og að því stefnum við,“ segir Árni. -EIR Ekki meiri styrkir Sturla Böðvarsson samgönguáðherra hefur brugðist þannig við þeim „kröfum“ forsvars- manna ýmissa sveit- arfélaga á lands- byggðinni um auk- inn styrk til innan- landsflugs að flugið hafa verið styrkt mikið á undanförnum árum og ekki sé fyrirhugað að styrkja innanlands- flugið á næstunni. Bílstjórar sömdu Nýr kjarasamningur milli Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis og Sam- taka atvinnulífsins hefur verið undir- ritaður en efni hans ekki upplýst að svo stöddu. Samningaferlið tók 18 mánuði og haldnir voru um 50 samn- ingafundir áður en deiluaðilar komust að niðurstöðu. Þrengsli á gjörgæslu Hvert rúm er skipað á gjörgæslu- deild Landspítala i Fossvogi, m.a. vegna tíðra slysa að undanförnu. Verði ekki lát á slyasahrinunni gæti komið til alvarlegra vandræða á deildinni vegna plássleysis. Þyrlar upp moldviöri Einar Rafn Har- aldsson, talsmaður samtakanna Aíl fyr- ir Austurland, segir að Náttúruvernd ríkisins þyrli upp moldviðri og vinnu- brögð stofnunarinn- ar varðandi umsögn um álver í Reyðarfirði séu dapurleg. Stattu þig, Páll Aðstandendur þroskahefts fólks fjölmenntu i miðbæ Reykjavíkur í gær til að vekja athygli á slæmri stöðu skjólstæðinga sinna og seina- gangi t samningaviðræðum ríkisins og þroskaþjálfa. Hópurinn afhenti Páli Péturssyni félagsmálaráðherra áskorun af þessu tilefni og fékk Páll að heyra það frá einum fundarmanna að hann ætti að fara að taka til hend- inni í ráðuneyti sínu og sýna aö hann væri starfi sínu vaxinn. „Þetta er móttekið," var svar ráðherrans. Togarafjöldi í Hafnarfirði Mikill fjöldi erlendra togara var í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Þeir voru hátt í 20 talsins þegar flest var og flestir rússneskir eða þýskir. Togar- arnir hafa að undanförnu stundað karfaveiðar á Reykjaneshrygg og þessir voru að koma inn til löndunar að þeim loknum. Óheftar veiðar áfram Strandþjóðirnar við norðanvert Atlantshaf sem stunda kolmunna- veiðar héldu fund í Færeyjum í gær þar sem freista átti að ná samkomu- lagi um veiðarnar. Fundurinn bar engan árangur og verða því kolmunnaveiðar óheftar áfram og hver veiðir sem betur getur. Enginn pappír til Enginn pappir er til í landinu til að nota í ný ökuskírteini og verður ekki fyrr en um næstu mánaðamót. Þangað til kemur það í hlut sýslu- manna á hverjum stað að gefa út bráðabirgðaökuleyfi til þeirra sem þurfa ný skírteini. Haldið til haga Með viðtali við Sigurð Friðjóns- son, oddvita Dala- byggðar, á bls. 6 í DV i gær, var fyrir mistök birt mynd af Sigurði Á. Friðþjófssyni. Hér er birt rétta myndin. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.