Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Blaðsíða 24
28 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 Tilvera DV lí f Lö E F T I P. V I N N U Gunnar og Njáll Nýr söngleikur verður frumflutt- ur 1 Sögusetrinu á Hvolsvelli í kvöld. Hann heitir Gunnar á Hlíð- arenda (Gunnar - the hero) og er byggður á lagaflokki Jóns Laxdals við ljóðabálk Guðmundar Guð- mundssonar. Ævi Gunnars er rak- in í tali og tónum og fornar hetjur Brennu-Njáls sögu vaktar til lífs með hjálp leikhússtækni. Borðhald hefst klukkan 19, en hetjurnar stíga á svið um klukkan 20.15. Fundir ■ FREYSTEINN SIGMUNDS I NOR- RÆNA HUSINU Freysteinn Sig- mundsson, forstöðumaður Norrænu eldfjallamiöstöövarinnar, heldur fyrir- lestur í dag í Norræna húsinu um jaröfræöl íslenskrar náttúru með sérstakri áherslu á íslenskt eldfjalla- landslag. Fyrirlesturinn hefst klukkan 13.30 og lýkur kl. 15. Að honum loknum svarar Freysteinn spurning- um viðstaddra. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku og er liöur í tyrir- lestraröðinni Menning, mál og sam- félag. Leikhús ■ MEÐ VIFH) I LUKUNUM Leikritiö Meö vífiö í lúkunum eftir Ray Coon- ey verður sýnt í kvöld klukkan 20 á Stóra sviöl Borgarleikhússins. Leik- stjóri er Þór Tulinius og þýðandi Árnl Ibsen. ■ FRÖKEN JÚLÍA - ENN OG AFTUR ALVEG OÐ Leikritið Fröken Júlía - enn og aftur alveg óö verður sýnt í Smiöjunni, Sölvhólsgötu, í kvöld klukkan 23.30. Opnanir ■ RAGNAA VINBARNUM Myndlistarkonan Ragna hefur opnað sýningu á nýjum olíumálverkum á Vínbarnum við Kirkjutorg í Reykjavík. ■ UÓSMYND- IR A SKRIÐU- KLAUSTRI Kanadíski Ijós- myndarinn Arni Haraldsson sýnir Ijósmyndir frá sex löndum í Gailerí Klaustri aö Skriðuklaustri. Þær sýna borgar- landslag og arkitektúr,frá miðri 20. öld. Arni er fæddur á íslandi en flutti ungur til Kanada. Landsbyggðin I LJÓÐAKVOLD í DAVÍDSHÚSI Ljóöakvöld verður í Davíöshúsi í kvöld og hefst kl. 20.30. Þar verður dagskrá úr Davíðsljóöum,sem ber yfirskriftina Meö útþrá - í útlegö - Utan garös. ■ BUBBI í GRINDAVÍK Bubbi Morthens heldur tónleika í veitingastaönum Sjávarperlunni Grindavík í kvöld kl. 23.00. ■ EINAR ÖRN Á ÍSAFIRÐI Trú- badorinn Einar Orn ætlar aö bjóöa ísfirðingum ubP á almennilega tóna á Eyrinni ísafiröi í kvöld. ■ MILLARNIR I EYJUM Milljóna- mæringarnir með Páli Oskari og Bjarna Ara taka sveifluna í Höllinnl í Eyjum í kvöld. Gönguleiðir 1)5 , .. Hraunin sunnan við Straumsvík: Staður sem vert er að skoða - segir Katrín Óladóttir „Þegar keyrt er á 90 kílómetra hraða eftir Keflavíkurveginum, fram hjá Straumsvík, hvarflar ör- ugglega að fáum að gaman geti verið að fá sér göngutúr með ströndinni og að það sé yfirleitt hægt. En ef maður gefur sér tíma til að skoða þetta svæði nánar kemur ýmislegt spennandi í ljós,“ segir Katrín Óladóttir, ráðningar- stjóri hjá Pricewaterhouse- Coopers. Katrín býr í Hafnarfirði fara um og hægt sé að velja sér lengri eða skemmri leiðir, eftir því sem hugurinn girnist. „Þarna ber margt fyrir augu sem minnir á liðna tíð,“ segir Katrín og lýsir því fúslega nánar. „Það eru til dæmis gömul bæjarhús frá síð- ustu öld og tóftir fleiri býla. Svo eru upphlaðnir brunnar og gamlir tvöfaldir grjótgarðar sem hafa ver- ið vandlega hlaðnir á sínum tima. Einnig er þar gamalt kvíaból, fjár- Margt býr í hrauninu „Þangaö er hægt aö fara oftar en einu sinni án þess aö komast yfir allt þaö sem vert er aö skoöa, “ segir Katrín. og er stolt af sínum heimabæ. „Það er yndislegt að búa í bæ sem státar af fallegu bæjarstæði og býður upp á þægilegar gönguleið- ir. í hrauninu sem umlykur Hafn- arfjörð hafa verið lagðir ótal fall- egir göngustígar og merkingar verið settar upp sem auðvelda fólki að þekkja ýmis kennileiti." Víða í nágrenninu segir hún áhugaverða staði sem stutt sé að heimsækja og einn af þeim einmitt hraunin við Straumsvík. „Þangað er hægt að fara oftar en einu sinni án þess að komast yfir allt það sem vert er að skoða,“ seg- ir hún. Margt sem ber vltnl um mannlíf fyrri ára Best segir Katrín að leggja bíln- um í nágrenni við Listamiðstöð- ina Straum, myndarlega byggingu rétt sunnan við Straumsvík, og hefja gönguferðina þar. Hún nefn- ir gamlar gönguleiðir og stíga í hraununum sem þægilegt sé að rétt og fleira sem ber vitni um bú- skap og mannlíf fyrri ára.“ Fjaran og skeljarnar Katrín segir merkilegar ferskvatnstjarnir vera í hraunun- um. Einstök náttúrufyrirbæri sem ekki eigi sína líka, hvorki hér- lendis né erlendis - svo vitaö sé. Fjaran er eitt af því sem gerir svæðið heillandi, að sögn Katrín- ar. „Það er alltaf spennandi að koma niður í fjöru, ég tala nú ekki um þegar tekst að finna skeljar og kuðunga. Þá verður maður aftur barn i anda,“ segir hún. Aðspurð um gróðurfar í hrauninu segir hún það að mestu klætt mosa en fjölskrúðugur gróður leynist þar líka. „Lynggróður er mjög algeng- ur, til dæmis beitilyng og kræki- og bláberjalyng. Svo sér maður fallega burkna vaxa í hraun- sprungum, burnirót og maríu- stakk víða og ekki spillir lyktin af blóðberginu," segir hún og brosir dreymandi. DV-MVNDIR HARI Katrín tekur til gönguskóna Fátt finnst henni betra eftir erilsaman clag en aö fá sérgóöan göngutúr. Snæfellsjökull blasir við Katrín hefur ekki lokið sínum náttúrulýsingum því útsýnið er eftir og hún er greinilega stödd í hraununum í góðu veðri á fallegu vor- og sumarkvöldi. „Ekki má gleyma að líta til Snæfellsjökuls í kvöldsólinni. Það er dásamlega fallegt og hver verður ekki róman- tískur á slíkri stund,“ segir hún og bætir við: „Það þarf ekki alltaf að leita langt að góðum útivistarsvæðum. Þau eru fjölmörg rétt við bæjardyrnar. Fátt er meira slakandi eftir erilsaman dag en að fá sér góðan göngutúr." -Gun Sjá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vfsl.ls Hrúðurinn Amarklettur Langiklettur Gönguleiðir Siqurðarhæð við Straumsvík Straumur Kúarétt í vandræðum vegna sukklífis Virgintónlistarútgáfan hefur lát- ið loka heimasíðu poppstjörnunn- ar Billie Piper tímabundið. Ástæð- an er, að sögn breska blaðsins The Sun, að hún hefur lifað hamlausu sukklífi með kærasta sínum og lít- ið einbeitt sér að tónlistarferlin- um. Blaðið hefur eftir innanbúðar- manni hjá Virgin að fyrirtækið hafi litla trú á áframhaldandi ferli Piper og vilji ekki eyða meiri pen- ing í að koma henni á framfæri. Á heimasíðu Piper, www.billiep- iper.com, koma skilaboð þess efnis að verið sé aö endurbyggja heima- síðuna og því sé hún lokuð. Þá seg- ir aö Piper sé upptekin við að taka upp lög á nýja plötu sína. Orðróm- urinn segir hins vegar að hún hafi ítrekað svikist um að vinna að plötunni og útgáfan sé að fá sig fullsadda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.