Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001
Fréttir I>V
Norskt loðnuskip tekið norður af Vestfjörðum:
Laug til um aflann
- stefnt til ísafjarðar í varðskipsfylgd
Varðskipsmenn á Óðni fóru um
borð i norska loðnuveiðiskipið
Magnarson norður af Vestfjörðum í
gærmorgun. Urðu lyktir þeirrar
heimsóknar þær að loðnuskipinu
var stefnt til Isafjarðar í varðskips-
fylgd þar sem réttaö verður yfir
skipstjóranum fyrir að hafa geflð
upp rangar aflatölur. Um borð í
Magnarson komust varðskipsmenn
að þvi að skipið var meö allt annan
og miklu meiri afla en skipstjórinn
hafði gefið upp og tilkynnt stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar.
„Skipstjórinn laug einfaldlega að
okkur. Því var hann tekinn,“ sagði
talsmaður Landgelgisgæslunnar í
gærkvöldi en
varðskipið Óðinn
og Magnarson
voru væntanlegir
til Ísaíjarðar laust
fyrir miðnætti í
nótt.
Fyrir tæpum
þremur árum tók
norska strand-
gæslan íslenska
loðnuveiðiskipið
Sigurð VE og
færði til hafnar 1
Noregi. Þar var
skipið kyrrsett og fór málið í gegn-
um þrjú dómstig áður en skipstjór-
inn, Kristbjörn
Árnason, var
sektaður:
„Það mál var
allt öðruvísi vaxið
en þetta sem nú er
að gerast. Við vor-
um ekki með
neinn afla og vor-
um ekki einu
sinni að veiða þeg-
ar við vorum tekn-
ir,“ sagði Krist-
björn skipstjóri í
gærkvöldi en
hann var í fríi og Árni Björn sonur
hans í brúnni á Sigurði VE á mið-
Sigurður VE í Noregi
Þetta mál ööruvísi vaxiö, segir Krist-
björn skipstjóri sem dæmdur var i
sekt af Norömönnum.
unum:
„Þessir norsarar eru ansi kræfir
að skjóta sér inn fyrir landhelgis-
mörkin þegar kvótinn er búinn.
Þeir eru ótrúlega kaldir," sagði
Árni Björn Kristbjörnsson sem
bjóst hins vegar ekki við neinni
milliríkjadeilu vegna málsins eins
og varð þegar faðir hans var tekinn
hér um árið. „Þetta verður bara gert
upp við skipstjórann sjálfan. Norsk
yflrvöld fara ekki að skipta sér af
þessu.“
Norsk loðnuveiðiskip eru á veið-
um hér við land samkvæmt milli-
ríkjasamningi sem i gildi er.
-EIR
Þroskaþjálfar semja:
40 prósent hækk-
un grunnlauna
Samninganefnd
Þroskaþjálfafélags Is-
lands og rikið skrif-
uðu undir nýjan
kjarasamning rétt
fyrir miðnætti á laug-
ardagskvöld. Samn-
ingurinn er svipaður
og tveir aörir sem fé-
lagið hefur gert við
Reykjavíkurborg og
önnur sveitarfélög en
samkvæmt heimildum blaðsins var þar
samið um grunnlaun einhvers staðar í
kringum 145 þúsund krónur á mánuði.
Áður voru grunnlaunin um 100 þúsund
krónur. Samningurinn gildir til 30.
nóvember 2004.
„Hækkunin var einhvers staðar á
bilinu 38 til 40 prósent og erum við sátt,
svo langt sem það nær,“ sagði Sólveig
Steinsson, formaður Þroskaþjálfafélags
íslands í gærkvöldi.
Samningurinn verður kynntur fé-
lagsmönnum í þessari viku og fljótlega
eftir það verða greidd um hann at-
kvæði. Með undirskrift samningsins er
verkfalli þroskaþjálfa hjá hinu opin-
bera frestaö til 1. ágúst en verði samn-
ingurinn felldur hefst það þá aftur.
Sólveig kvaðst bjartsýn á að samn-
ingurinn verði samþykktur. -fin
Skagafjörður:
Staða sveitar-
stjóra óviss
Nýr meirihluti
Framsóknarflokks og
Skagafiarðarlista er í
uppsiglingu í sveitar-
félaginu Skagafirði
eftir að meirihluti
Framsóknarflokks og
Sjáifstæðisflokks
sprakk vegna sölu á
Rafveitu Skagafjarð-
ar. Ljóst er að um
tíma hefur ákveðin
blokk innan framsóknarmanna í Skaga-
firði viljað slíta samstarfinu við Sjálf-
stæðisflokkinn.
Snorri Styrkársson segir að Skaga-
Öarðarlisti haldi öllum mögleikum opn-
um, s.s. um embætti formanns byggðar-
ráðs eða forseta bæjarstjómar, meiri
ástæða sé til þess að sýna ábyrgð í fjár-
málum sveitarfélagsins, og í því verk-
efni felist m.a. að ganga í það að selja
allar þær eignir sveitarfélagsins sem
hægt sé að selja án þess að draga úr
þjónustunni við íbúana. Snorri viil t.d.
selja 20% Skagafjarðar í Steinullarverk-
smiðjunni til ríkisins sem metin er á
um 250 milljónir króna. Nafhverð hluta-
bréfa verksmiðjunnar eru 66 milljónir
króna. Einnig vill Snorri taka á að-
kallandi vanda félagslega íbúðakerfisins
í sveitarfélaginu.
Samkvæmt heimildum DV ríkir mik-
il óvissa um framtíð sveitarstjórans,
Snorra Bjöms Sigurðssonar, en hann
hefur oftar en ekki haft uppi tilburði til
þess að hverfa til annarra starfa. Skaga-
fjaröarlistinn hefur einnig verið mjög
gagnrýninn á hans störf. -GG
Sólveig
Stelnsson.
Par komst í hann krappan í Hólsá:
Sátu föst í þrjár stundir
- fjöldi björgunarsveita kom á vettvang
Jeppi festist á grjóti í Hólsá, á
Syðri-Fjallabaksleið, um klukkan
hálffjögur í gærdag og var dreginn
upp af björgunarsveitarmönnum
eftir þriggja klukkustunda bið í
straumnum.
„Við fylgdum slóðinni út í vatn-
ið og snerum við í ánni þegar viö
sáum ekki lengur hvert hún lá. Þá
lentum við á bjargi og sátum þar
fost,“ segir Akureyringurinn Sig-
urður Tryggvason sem ásamt
konu sinni varð fyrir þessari leið-
inlegu reynslu. Sigurður gerði tO-
raun til aö losa jeppann, sem er af
Mitshubishi Pajero gerð, og óð út í
ána. Hann gafst fljótlega upp og
hélt kyrru fyrir innan dyra eftir
það. Framendi jeppans stóð upp úr
vatninu og því var hægt að halda
miðstöðinni gangandi þar til aö-
stoð fékkst. Vatn smaug inn en
ekki svo mikið aö skaði hlytist af
og segir Sigurður ástandið hafa
verið þolanlegra hlémegin bílsins.
Siguröur hafði meðferðis lítinn
NMT-síma og tókst, þrátt fyrir
stopult gervihnattarsamband, að
hafa samband við Neyðarlínuna
og koma þannig upplýsingum til
lögreglunnar í Vik. Þrjár björgun-
arsveitir hófu leit að jeppanum,
þar sem lögreglunni var ókunnugt
um nákvæma staðsetningu hans,
björgunarsveitirnar Stjarnan úr
Skaftártungum, Lífgjöf úr Álfta-
veri og Víkverji úr Vík sinntu út-
kallinu. Samkvæmt lögreglunni í
Vík var ekki um glæfraskap öku-
manns aö ræða, áin er mjög við-
sjárverð og breytir sér reglulega.
Sigurður kennir á hinn bóginn lé-
legum vegmerkingum um að hafa
þurft að fara yfir Hólsá. „Við ætl-
uðum í Eldgjá en sáum ekki vega-
númer á skilti sem við ókum fram
hjá og það var aðalástæðan fyrir
því að viö vorum komin svo langt
af leið,“ segir Sigurður Tryggva-
son.
-sör
Treglega gengur að leigja verslunarpláss í Smáralind:
Reyna að bakka út
- segir stjórnarformaöur KEA
Fullyrt er að um 85% af 63.000 fer-
metra verslunarhúsnæði i verslunar-
miðstöðinni Smáralind sé nú þegar út-
leigt en það séu aðeins fjórir aðilar
sem það eigi, þ.e. kvikmyndahús,
Depenham’s, Hagkaup og tískuversl-
unarkeðjan Zara. Forsvarsmenn
Smáralindar eru þó bartsýnir og telja
að búið verða að ganga frá samning-
um um leigu á um 98% alls húsnæðis-
ins þegar opnað verði eftir 12 vikur.
Fullyrt er að nú þegar sé farið aö gæta
samdráttar í hagkerfi landsins í þá
veru að pláss séu boðin á mun lægra
verði en lagt var upp með.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjómarformaður KEA, segir að hann
hafi ekki fylgst svo nákvæmlega með
Smáralind
Treglega gengur aö leigja út
verslunarrými.
málinu og geti ekki svarað því hvort
t.d. standi til að Nettó fari þar inn,
það sé í höndum Matbæjar og Sam-
kaupa.
„Ég hef heyrt að það gangi mjög illa
að leigja verslunarpláss þarna og þeir
sem eru þegar inni séu að reyna að
bakka út úr þessu. Það er svolítið
hætta á því að samdrátturinn í hag-
kerfinu og vaxandi verðbólga hafi
þessi áhrif,“ segir Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson.
Smáratorg er eigandi að verslunar-
miðstöðinni Glerártorgi á Akureyri
sem opnuð var í nóvembermánuði
2000. Jakob Björnsson, framkvæmda-
stjóri Glerártorgs, segir að eina breyt-
ing þar sé að verslunin Borð fyrir tvo
hafi komið í staðinn fyrir Parið. Eng-
ar vangaveltur séu t.d. um að Byko sé
á leið út en Jakob viðurkennir að hafa
heyrt orðróm þar að lútandi en hann
eigi sér engar stoðir í raunveruleikan-
um. -GG
mmm
Hafnar ásökunum
Reynir Tómas
Geirsson, forseti
læknadeildar HÍ, seg-
ir það vera af og frá
að ásakanir Félags
Bæklunarlækna, sem
komu fram 1 bréfi
sem fjölmiðlum var
sent, eigi við rök að
styðjast. Reynir Tómas segir að hrossa-
kaup eða pólitískir greiðar séu ekki
ástæöan fyrir þvi að prófessorsstaðan
sé lögð niður.
Kjúklingaeldi á Dalvík
Tæplega 13 þúsund kjúklingaungar
skriöu úr eggjum hjá íslandsfugli i Dal-
víkurbyggð fyrir helgina.
Þetta eru fyrstu ungar fyrirtækisins
og verða þeir fluttir í eldishús fyrirtæk-
isins að Ytra-Holti í
Svarfaðardal í dag. Búist er við að
fyrstu kjúklingar fyrirtækisins komi á
markað um miðjan ágúst.
Ólykt á Fáskrúðsfirði
Mikill fnykur hefur legið yfir Fá-
skrúðsfirði undanfarna daga vegna
bræðslu á kolmunna í Loðnuvinnsl-
unni. Um 20 stiga hiti hefur verið í
bænum og logn svo fnykurinn hreyfist
ekki. íbúar á Fáskrúðsfirði hafa kvart-
að mikið vegna lyktarinnar frá Loðnu-
bræðslunni sem er ekki mjög góð.
Ástæðan er bræðsla á kolmunna sem
nú veiöist fyrir Austurlandi. Verk-
smiðjan var tómkeyrð í nótt en þá leik-
ur loft um tæki og tól sem gerir það að
verkum að gufa fer út í andrúmsloftið
og þegar ekki hreyfir vind fer þessi
lykt um allan bæ.
Bátur brennur á Hornvík
Eldur kviknaði í vélarrúmi hand-
færabáts út af Hornvík á Ströndum um
helgina. Eldinn tókst að slökkva en bát-
urinn varð vélarvana og var því hringt
í neyðarlínu og óskað eftir aöstoð þar
sem verið gat að hann myndi reka upp
í land. Björgunarbátamir Gunnar Frið-
riksson frá ísafirði og Gísli Hjalta frá
Bolungarvík voru sendir norður til að-
stoðar en stuttu síðar var aðstoðin aft-
urkölluð og bátunum snúið við. Tekist
hafði að koma vél bátsins í gang.
Bæklunarlæknar ósáttir
Félag íslenskra
bæklunarlækna mót-
mælir harðlega að
prófessorsstaða i
slysalækningum hafi
verið lögð niður hjá
Háskóla íslands og
þess í stað stofnuð
prófessorsstaða í
bráðalækningum. Þetta séu hrossa-
kaup og gerð án sýnilegra faglegra for-
sendna. Páll Skúlason, rektor Háskóla
íslands, lagði niöur stöðu prófessors
Gunnars Þórs Jónssonar í slysalækn-
ingum frá og með 1. júlí og jafnframt
stöðu dósents í sömu fræðigrein. Gunn-
ar Þór hefur mótmælt þessu og hyggst
leita réttar síns.
Atvinnuleysi í Rangárþingi
Illa horfir í atvinnumálum i vestan-
verðri Rangárvallasýslu. Með lokun
sláturhúsa Goða í Þykkvabæ og á Hellu
og hugsanlegri lokun sláturhúss
Reykjagarðs á Hellu missir fjöldi fólks
atvinnuna. í fréttabréfi sveitarfélagsins
segir að líklega verði þessir atburðir að
mestu afstaðnir fyrir næstu áramót.
Fjalar úr Fram í Þrótt
Fjalar Þorgeirsson,
markvörður úrvals-
deildarliðs Fram,
sem vermir botnsæti
deildarinnar, hefur
skipt yfir í sitt gamla
félag, Þrótt, sem leik-
ur í 1. deild. Hann
verður strax löglegur
með Þrótti. Fjalar hefur barist um I
markvarðarstöðuna í Fram við Gunnar
Magnússon. -GG