Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001 Skoðun r>V Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Sigríður Brynja Jónsdóttir, 9 ára: Ég veit það ekki. Lilja Rúriksdóttir, 9 ára: Lögfræöingur, ég held að það sé skemmtilegt starf. Bryndís Eva Erlingsdóttir, 9 ára: Ég veit það ekki. Atli Freyr Magnússon, 6 ára: Ég veit það ekki. Helgi Gunnarsson, 6 ára: Skipstjóri. Ari Brynjarsson, 8 ára: Fimleikamaður. Helst að öllum háska hlæ Seðlabankinn greip inn í á gfaldeyrismarkaði um 3,3% Viðvörun Efnahagsmál Efnahagstillögupakki ASI inniheldur eina til- lögu, sem Tryggvi I’ór Herbertsson telur að Uadirtektir við efnahagslállðgur ASI Skammtímaáhrif erlendrar lán- töku óumdeild SKYN!S,ft' Kronan stenst ekki ad^yðu , - segja forkólfar í atvinnulífinu ÍAIVIBANDSINS J gjalda beri varhuca Mikiö skrafað, mikiö skrifaö. Nýjasti og jafnfram síðasti þátturinn í ís- lenska gengis- og verðbólgu- spilinu hófst í sl. viku með því að Alþýðu- samband ís- lands bauð upp á fordrykk og léttar veitingar. Allir voru boðnir velkomnir, jafnt sérfræðingar í efnahags- málum sem leikmenn þjóð- arsálarinnar, oft nefndir „kverólantar“ sem sífellt fara á kreik þegar umræðan beinist að fyrstu hjálp fyrir þjóðarbú- ið. - Þeim er þetta ritar dettur ekki eina mínútu í hug að firra sig þeim eðaltitli enda búinn að vera á flakki sem framleið- andi pistla hér í DV og forvera þess, Vísi og Dagblaðinu frá miðjum sjöunda áratugnum. En aftur að kræsingum ASÍ. Það bauð upp á þá „skynsam- legu“ tillögu að til að draga úr verðbólgunni og hækka gengi krónunnar. Ríkið skyldi taka stórt erlent lán til að geiða nið- ur innlendar skuldir sínar (svo sem lífeyrssjóðsskuldir, ríkisverðbréf o.fl.). Ekki var ASÍ fyrr búið að flagga þessum tillögum sínum en Morgunblaðið birti leiðara um frétt- ina, „Skynsamlegar tillögur Alþýðu- sambandsins". - „Forystumenn laun- þega átta sig greinilega á því að það myndi ekki hjálpa til við núverandi aðstæður að gera kröfu um að taka upp kjarasamninga eftir næstu ára- mót,“ sagði þar m.a. - Klausan sú er þó margfalt nær sannleikanum held- ur en fyrirsögn leiðarans sjálfs því engin skynsemi er í því að rjúka í lántöku erlends fjár til að sprauta yfir þjóðlífið. En eftir móttöku boðskorts ASÍ hefur ekki linnt á yfirlýsingum sér- fræðinga sem áhugamanna þar sem „Hvort vill þjóðin frekar búa við fastbindingu launa og verðlags og við stöðug- leika um nokkurra ára skeið a.m.k. - eða sífellt versnandi ástand þar til efnahagskerfið hrynur? þeir yfirbjóða veitingar ASÍ. Að öllu samanlögðu telja þó fLestir að áhrif erlendrar lántökur nú séu vægast sagt umdeild. Hér verður einfaldlega að reikna með þröngri stöðu íslensks efnahagslífs um ófyrirsjáanlega framtíð úr því ekki má hlusta á eða a.m.k. láta kanna hvort efnahagsað- gerðin frá 1980, þegar tvö núll voru tekm af krónunni, gæti komið ró á efnahagslifið. - Eða var sú aðgerð ásamt myntbreytingunni bara frum- hlaup til einskis? Allir voru sammála um það þá að sú aðgerð væri nauðsynleg. En það vantaði hliðarráðstafanirnar. Að binda kaupgjald og verðlag til ákveð- ins tima. Nokkrum árum síðar var efnt til svokallaðrar „þjóðarsáttar" sem dugði á meðan hún varði. En hvort vill þjóðin frekar búa við fast- bindingu launa og verðlags og stöð- ugleika um nokkurra ára skeið a.m.k. - eða sífellt versnandi ástand þar til efnahagskerfið hér hrynur? Og það verður mikið fall. - Hagfræð- ingur Seðlabankans orðaði það líka svo í útvarpsviðtali: „Það er úr háum söðli að detta nú“. Geir R. Andersen blm. skrifar: Ástæða lækkunar orkugjalda á Akranesi í nokkrum lesenda- bréfum í DV að und- anförnu hefur borið á þeim misskilningi að Reykvíkingar væru að greiða niður orku- gjöld á Akranesi. - Svo er ekki. í sameiningarvið- ræðum milli Orku- veitu Reykjavíkur og veitufyrirtækjanna á Akranesi lögðu bæj- aryfirvöld á Akranesi af skiljanlegum ástæðum mikla áherslu á að orku- gjöld yrðu þau sömu á báöum stöð- um. Tvær leiðir komu til greina í því sambandi. Annars vegar að orku- „Orkuveita Reykjavíkur verður öflugra fyrirtœki með ákveðin sóknarfœri á Vesturlandi og hagkvœmni stœrðarinnar mun tryggja lág orkuverð til framtíðar. “ gjöld á Akranesi yrðu lækkuð í áföngum á fimm árum og hlutur Akraness í hinu nýja sameinaða fyr- irtæki yrði 6,3%. Hins vegar að orku- gjöldin yrðu lækkuð í einum áfanga strax, um næstu áramót, en hlutur Akraness í Orkuveitunni yrði 0,8% lægri eða 5,5%. Bæjaryfirvöld á Akranesi kusu að fara síðari leiðina og lækka orku- gjöld Akurnesinga strax. Þar með minnkar eignarhlutur þeirra í Orku- veitunni um samsvarandi upphæð og lækkun orkugjaldanna nemur. Um sameiningu orkufyrirtækj- anna að öðru leyti er það að segja að hún kemur bæði Akurnesingum og Reykvíkingum til góða. Orkuveita Reykjavíkur verður öflugra fyrirtæki með ákveðin sóknarfæri á Vestur- landi og hagkvæmni stærðarinnar mun tryggja lág orkuverð til framtíð- ar. Þess má að lokum geta að full sam- staða er um þetta mál milli meiri- hluta og minnihluta í bæjarstjórn Akraness og borgarstjórnar Reykja- víkur. Aifred Þor- steinsson, formaöur stjórn■ ar Orkuveitu Reykjavíkur, skrifar: Allir eru ógiftir í verinu Ein af mögnuðustu bókum Snjólaugar Bragadóttur frá Skáldalæk heitir Allir eru ógiftir í verinu, og fjallar eins og titillinn gef- ur vísbendingu um, einkum um ástir og örlög i verinu. Það gerir hins vegar ekki önnur fræg bók, I verum, en það er nú önnur saga og í annarri bók. En það hafa ýmsir fleiri listamenn en Snjólaug samið sögur um samlíf fólks í verstöðvum og verbúðum, m.a. Bubbi Morthens og er hann þar með úr sögunni eða a.m.k. úr þessum pistli. Þessa dagana er reyndar verið að skrifa á Netinu og birta um- fjöllun sem gæti sem best verið undir samheit- inu „Allir eru ógiftir á Bessastöðum“. Það mun reyndar vera staðreynd en sumir eru hins vegar trúlofaðir á Bessastöðum og sú trú- lofun fór ekki beinlínis leynt og miklu heldur beint, á sínum tíma eins og flestir muna. Svlgrúmlö Ýmsir telja sem sé að forseti íslands herra Ólafur og heitmey hans Dorrit eigi að drífa sig í heilagt hjónahand sem fyrst. Þetta langa til- dragelsi þeirra eftir trúlofun sé bara ekki nógu gott og þjóðin eigi heimtingu á að vita hver sé þróun mála í hinu margumrædda til- finningalega svigrúmi á Bessastöðum. Aðrir hafa bent á að mætustu menn íslend- inga hafi áður gefið sér góðan tíma í trúlofun- arstandi og m.a. hafi sjálfur Jón forseti Sig- urðsson látið sína tilvonandi ektafrú sitja í festum svo árum skipti. Þannig aö fordæmi fyrir langri trúlofun forseta eru fyrir hendi. Brullaup í Sandavági? Hinn eitursnjalli EIR upplýsti það i DV að ein helsta spákona þjóðarinnar hefði spáð því að Ólafur og Dorrit mundu gifta sig í Færeyj- um. Og þegar spákonur og miðlar tala þá sperra íslendingar jafnan eyrun, því „annar eins maður og Oliver Lodge/fer ekki með neina lygi.“ Ef þetta reynist rétt, þá eru þarna auðvitað hrapalleg mistök á ferðinni. Ef íslenski forset- inn giftir sig í Sandavági í Færeyjum en ekki á Þingvöllum eða Bessastöðun þá er það bara móðgun við íslensku þjóðina. Og það er engin afsökun að segjast vera að flýja undan ágangi ágengra fjölmiðla á íslandi með þvi að gifta sig í fámenninu í Færeyjum. Þó snarpir frétta- haukar séu vissulega til staðar á DV og Stöð tvö þá eru líka harðvítugir naglar á Dimm- lætting og Socialnum sem myndu ekki síður elta Óla og Dorrit á röndum. Annars er Garra hjartanlega sama hvort fólk- ið á Bessastöðum eða í verinu er gift eða ógift. Það er þeirra mál og gæsanna leyndarmál. Garri Lægri vexti! Carl J. Eiríksson skrifar: Hagfræðingar, oft sjálfskipaðir og fram- kvæmdaglaðir stjórn- málamenn sem ekkert virðast þekkja til hag- fræði, hamast nú í fjölmiðlum, hver í kapp við annan, og heimta vaxtalækkan- ir „til að draga úr verðbólgunni“ eins og þeir orða það. - Jafn- vel ASÍ tekur þátt í þessum flflakór og vill lækka vexti og auðvelda mönnum þannig að taka meiri lán. Þessir menn hugsa bara um óverulegar skamm- timalausnir eins og alþýðubandalags- menn gerðu forðum, en virðast ekki skilja, að vaxtalækkun er sem olía á eld verðbólgunnar í þensluástandi, því að þá aukast lántökur og seðla- prentun. - Einn maður stendur sem klettur upp úr þessu moldviðri. Það er Birgir ísleifur seðlabankastjóri. Hann vill a.m.k. ekki lækka vexti. Ráðið gegn verðbólgu er að hækka vexti á nýjum lánum, svo að eitthvað dragi úr lántökum og skuldir heimilanna hætti að vaxa. Jafnréttisstofa vett- vangur valdastreitu J.M.G. ^krifar: Jafnréttisstofa virðist ekki sinna mikiö þeim lægst launuðu. Helst virð- ist hún berjast fyrir því að fjölga kon- um í þeim embættum sem eru eftir- sóttust vegna valda og góðra launa. Aftur á móti minnist ég þess ekki, að Jafnréttisráð hafi barist fyrir jafnri kynjaskiptingu á frystitogurunum eða á öðrum aflaskipum. Heldur ekki fyrir jafnri kynjaskiptingu við skúringar á sjúkrahúsunum eða í afgreiðslusölum bankanna. Jafnréttisráð virðist mér vera vettvangur fyrir valdastreitu og yfirgang. Seta í nefndum eins og í jafn- réttisnefndum virðist vera afar eftir- sótt og vinsæl. Fróðlegt væri að vita hversu margar verkakonur sitja í þessum nefndum, eða fólk af erlendum uppruna. - Jafnréttisnefnd hefur ekki skapað jafnrétti, svo mikið er víst. Fossinn Dynjandi. Ekki fyrir alla að aka heiðarnar. Birgir ísleifur Gunnarsson Stendur upp úr moldviðr- inu. Ferðalög á Vestfirði Friörik Sigurösson skrifar: Víkverji Mbl. hugleiddi nýlega Vestfirði og ferðalög þangað. Fólk segði að þangað væri erfitt að komast sakir slæmra vega og þar væri lítið að sjá. Víkverji er ekki sama sinnis. Ég er sammála honum að því er snertir landslag og markverða staði. Þeim sem á Vestfirði fara i fyrsta sinn vérð- ur ferðin ógleymanleg. Svo var t.d. um mig í fyrstu ferð þangað fyrir u.þ.b. fimm árum, landleiðina. Ég hafði hins vegar komið ótal sinnum á alla firðina sem skipsmaður á Esjunni gömlu. Akstursleiöin vestur, allt frá Brjánslæk, yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði, er auðvitað ekki mönnum bjóðandi. Næstum ófær aö sumarlagi, hvað þá er kemur fram á haustið. Þarna þarf mikið átak að gera ef ferðamannastraumur á að vaxa. - Hin leiðin, um Hólmavík, er lítið skárri, hún er hrikaleg og ekki á allra færi að aka ef lofthræðsla angr- ar fólk. Og það á líka við um áður- nefndar heiðar. Þar þarf einfaldlega jarðgöng, og þá er Vestfjörðum líka borgið i flestu tilliti. B Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@ff.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.