Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 24
36 ________________________________MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001 Tilvera I>V U r lí f iö E F T I R V J N N U Jonna á Café Karólínu Listakonan Jonna hefur opnað sýningu á 35 mósaíkspeglum á Café Karólínu á Akureyri og er það einn spegill fyrir hvert ár sem hún hefur lifað. Jonna tekur einnig þátt í sýningunni Akureyri í myndlist sem nú stendur yfir í Listasafninu. Fyrirlestur____________________ Borgþór Kjærnested, skjaíaþýðandi og túlkur, heldur fyrirlestur í dag í Norræna húsinu um ýmsa þætti ís- lensks samfélags. Fyrirlesturinn hefst klukkan 13.30 og lýkur kl. 15. Að honum loknum gefst viðstöddum kostur á að bera fram spurningar. Fyrirlesturinn verður á sænsku og er liöur í fyrirlestra-röðinni Menning, Mál og Samfélag. Sýningar ■ GERÐUR HELGADÓTTIR í LISTA- SAFNI KOPAVOGS I Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, er sýning á g 'erlist og höggmyndum Gerðar I elgadóttur. A sýningunni að >essu sinna verða um 30 gluggar •ftir hana og einnig vinnuteikningar yrir glerglugga. I tilefni sýningarinnar f r kynning á minjagripum sem hann- iðir hafa veriö út frá verkum Gerðar. Hópur hönnuða, þau Ingiríöur Óðins- dóttir, Kristín S. Garöarsdóttlr, Kristín Isleifsdóttir, Ólöf B. Garðars- dóttlr, Tinna Gunnarsdóttir og Þor- bergur Halldórsson, hefur unnið að þessu verkefni um nokkurt skeið. Listafólkið sótti einkum innblástur til verka sem Gerður vann eftir að hún fór til Egyptalands á 7. áratugnum. Minjagripirnir eru silfurmunir, postu- lín, slæður, bolir og minnisbækur og verða þeir til sölu I safninu. Sýningin stendur til 12. ágúst. Hún er opin alla daga nema mánudaga frá 11-17. ■ UÓSMYNDIR HANS MALM- BERGS I HAFNARBORG Svnine á Ijósmyndum sænska Ijósmýndarans Hans Malmberg stendur yfir I Hafnarborgí Hafnarfirði. Hans Malmberg var einn fremsti Ijósmynd- ari Svía á sinni tíð. Nokkrar Ijós- myndabækur voru gefnar út með myndum Hans Malmberg og er ein þeirra helguö myndum frá íslandi. Hún var gefin út af sænsku útgáfu- félagi árið 1951 á ensku og sænsku. Bókin hefur að geyma ferska sýn á ísland og úrvals Ijós- myndir sem endursþegla efnistök blaöaljósmyndara sem starfaði í anda Ijósmyndablaðanna. Á sýning- unni, sem er í samvinnu við Þjóð- minjasafn Islands (Ijósmyndadeild), verða sýndar nýjar stækkanir á ís- landsmyndum Hans Malmberg og frummyndir af nokkrum íslands- mynda hans. ■ SKOTSKÍFUR í HAFNARBORG í Sverrissal Hafnarborgar verður oþn- uð í dag sýning á skotskífum I eigu Det Kongelige Skydeselskab og Danske Broderskab. Skífurnar eru frá árunum 1787-1928. Margar þeirra sýna íslenska kaupstaði og vegna þess hve myndefni frá fýrri öldum er fágætt á íslandi hafa þær mikið menningarsögulegt gildi. ■ LÁRUS H. LIST. í LISTHÚSINU í LAUGARDAL Listamaðurinn Lárus H. List er meö málverkasýninguna Vitundarástand í Listagalleríi, List- húslnu í Laugardal. ■ MARGRÉT í SAFNASAFNINU Margrét Jónsdóttlr sýnir spiladósir úr leir 7 Safnasafnlnu á Svalbarðsströnd. ■ MAGNÚS LOGI í KOMPUNNI Magnús Logl Kristinsson er með sýningu í Kompunni á Akureyri. Sjá nánar: Líflð eftlr vinnu á Vísl.is Kínversk kvik- Kínverskir kvikmyndadagar hófust með pompi og pragt í Há- skólabíói á íostudaginn með sýn- ingu myndarinnar Brotlendingar eftir leikstjórann Zhang Jianya. Ji- anya var sjálfur viðstaddur opnun- ina og flutti stutt ávarp áður en ljós- in voru slökkt og sýningin hófst. Alls voru sjö kínverskar kvikmynd- ir sýndar á hátíðinni en að henni stóðu Kvikmyndasjóður, Kínverska sendiráðið og kvikmyndaklúbbur- inn Filmundur. Kinverska sendinefndin Þorfinnur Ómarsson, formaöur Kvikmyndasjóös, ásamt kínversku sendinefndinni. Góöir gestir Möröur Árnason íslenskufræöingur og Arnþór Helgason útvarpsmaöur taka tal saman en Arnþór er manna fróö- astur um kínverska menningu. Kvikmyndamógúlar Leikstjórarnir Júlíus Kemp, Róbert Douglas og Ari Krist- insson létu sig ekki vanta á opnun Kínverskra kvik- myndadaga. DV-MYNDIR EINAR J Fjör í miöröðinni Þaö fór greinilega vel á meö þeim Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, og Zhang Jianya, leikstjóra opnunar- myndarinnar. Melasveitin á leið til Færeyja: Steini í Dúmbó og Gísli bæjarstjóri í hljómsveitinni DV-MYND DVÓ Melasveitin á sviði Gísli Gíslason meö gítarinn að syngja írskan slagara ásamt hluta Melasveit- arinnar. DV, AKRANESI: ____________ A næstunni munu Færeyingar fá að sjá og heyra í hinni vinsælu hljómsveit Melasveitinni en meðal tónlistarmanna i hljómsveitinni eru Gisli Gíslason bæjarstjóri sem spil- ar á gítar og syngur auk þess sem hann er kunnur fyrir að setja sam- an góðar gamavísur og góða texta við lög og Sigursteinn Hákonarson, þjóðfrægur undir nafninu Steini í Dúmbó. „Hljómsveitin Melasveitin er um það bil 6 ára gömul og hefur spilað sparlega en komið fram nokkrum sinnum á ári,“ segir Gisli bæjar- stjóri. I hljómsveitinni eru átta félagar. Á trommur leikur Eiríkur Guömundsson, kennari og raf- magnsverkfræðingur, á gítara Birg- ir Guðmundsson sálfræðingur, Ein- ar Skúlason æskulýðsfulltrúi og Gísli Gíslason bæjarstjóri, á hljóm- borð Lárus Sighvatsson tónlistar- skólastjóri, á bassa Guðmundur Jó- hannsson blikksmiður, á fiðlu Skúli Ragnar Skúlason tónlistarkennari. Um meginhluta söngsins sér Sigur- steinn Hákonarson rafvirki, sjálfur Steini í Dúmbó. Að auki hefur Þór- gunnur Stefánsdóttir komið fram sem gestasöngvari. Melasveitin hefur spilað fyrir dansi viö ýmis tækifæri en einnig leikið írsk þjóðlög. Fyrir fjórum árum fór sveitin í Evrópuferð til Færeyja og spilaði þar á Vesta- stevnu í Sörvági, vinabæ Akraness, og ferðinni er heitið þangað nú í júlí auk þess sem spilað verður í Klakksvik. Með í för verður Söng- hópurinn Sólarmegin sem mun syngja í Sörvági, Þórshöfn, og Klak- svik en Guðmundur Jóhannsson er stjórnandi sönghópsins auk þess sem Sigursteinn Hákonarson er einnig í þeim hópi. „Melasveitin hefur ekki í hyggju að fara víðar en til Færeyja að þessu sinni en hvað verður í fram- tíðinni er aldrei að vita,“ sagði Gísli Gíslason, bæjarstjóri, gítarleikari og söngvari, í spjalli við blaðið. -DVÓ Kirsten Dunst Fmnst ekki nógu gott aö hafa leikiö vampíru sem geymdi rotnandi lík saumakonunnar undir rúminu. Vill leika geðsjúkan fjöldamorðingja. Vill leika morð- ingja Táningsstirnið Kirsten Dunst segist orðin leið á því að leika klappstýrur og sætar unglings- stúlkur. Nú vill hún fá að leika morðingja. „Ég er leið á þessum heimsku stelpumyndum með heimskum hlutverkum," segir sú 19 ára. Hún segist vilja verða eins og Jodie Foster, Meryl Streep og Jessica Lange. I nýjustu kvikmynd henn- ar, Crazy/Beautiful, ætti Kirsten að hafa nálgast drauminn örlítið. Þar leikur hún ríka stelpuskjátu með áfengisflkn sem hatar for- eldra sína og byrjar með rómönsk- um pilti úr röngum borgarhluta. En ungar stúlkur eiga sér ætíð drauma. Kirsten vill fá hlutverk sem geðsjúkur fjöldamorðingi. Hún hefur reyndar áður leikið unga vampíru sem drap sauma- konuna sína og geymdi rotnandi lík hennar undir rúminu. En það var bara ekki alveg nóg. Bowie leikur Frank Sinatra Tónlistarmaðurinn David Bowie hefur tekið að sér að leika goðsögnina Frank Sinatra í kvik- mynd um ævi hans. Bowie lýsti sér á 8. áratugnum sem „Frank Sinatra martraðanna". Hann er upp með sér fyrir að vera boðið hlutverk þess gamla bláeygða. „Sinatra hefur alltaf verið ein af fyrirmyndum mínum," segir furðufuglinn. Bowie er langt því frá að stíga sín fýrstu skref á hvíta tjaldinu. Hann lék síðast popplistamanninn Andy Warhol í kvikmyndinni Basquiat. Einnig átti hann eftir- minnilegan leik í Völundarhús- inu, eða Labyrinth, og Absolute Beginners á níunda áratugnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.