Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Síða 24
36
________________________________MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001
Tilvera I>V
U
r
lí f iö
E F T I R V J N N U
Jonna á Café
Karólínu
Listakonan Jonna hefur opnað
sýningu á 35 mósaíkspeglum á
Café Karólínu á Akureyri og er
það einn spegill fyrir hvert ár
sem hún hefur lifað. Jonna tekur
einnig þátt í sýningunni
Akureyri í myndlist sem nú
stendur yfir í Listasafninu.
Fyrirlestur____________________
Borgþór Kjærnested, skjaíaþýðandi
og túlkur, heldur fyrirlestur í dag í
Norræna húsinu um ýmsa þætti ís-
lensks samfélags. Fyrirlesturinn
hefst klukkan 13.30 og lýkur kl. 15.
Að honum loknum gefst viðstöddum
kostur á að bera fram spurningar.
Fyrirlesturinn verður á sænsku og er
liöur í fyrirlestra-röðinni Menning,
Mál og Samfélag.
Sýningar
■ GERÐUR HELGADÓTTIR í LISTA-
SAFNI KOPAVOGS I Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, er sýning á
g 'erlist og höggmyndum Gerðar
I elgadóttur. A sýningunni að
>essu sinna verða um 30 gluggar
•ftir hana og einnig vinnuteikningar
yrir glerglugga. I tilefni sýningarinnar
f r kynning á minjagripum sem hann-
iðir hafa veriö út frá verkum Gerðar.
Hópur hönnuða, þau Ingiríöur Óðins-
dóttir, Kristín S. Garöarsdóttlr,
Kristín Isleifsdóttir, Ólöf B. Garðars-
dóttlr, Tinna Gunnarsdóttir og Þor-
bergur Halldórsson, hefur unnið að
þessu verkefni um nokkurt skeið.
Listafólkið sótti einkum innblástur til
verka sem Gerður vann eftir að hún
fór til Egyptalands á 7. áratugnum.
Minjagripirnir eru silfurmunir, postu-
lín, slæður, bolir og minnisbækur og
verða þeir til sölu I safninu. Sýningin
stendur til 12. ágúst. Hún er opin
alla daga nema mánudaga frá
11-17.
■ UÓSMYNDIR HANS MALM-
BERGS I HAFNARBORG Svnine á
Ijósmyndum sænska Ijósmýndarans
Hans Malmberg stendur yfir I
Hafnarborgí Hafnarfirði. Hans
Malmberg var einn fremsti Ijósmynd-
ari Svía á sinni tíð. Nokkrar Ijós-
myndabækur voru gefnar út með
myndum Hans Malmberg og er ein
þeirra helguö myndum frá íslandi.
Hún var gefin út af sænsku útgáfu-
félagi árið 1951 á ensku og
sænsku. Bókin hefur að geyma
ferska sýn á ísland og úrvals Ijós-
myndir sem endursþegla efnistök
blaöaljósmyndara sem starfaði í
anda Ijósmyndablaðanna. Á sýning-
unni, sem er í samvinnu við Þjóð-
minjasafn Islands (Ijósmyndadeild),
verða sýndar nýjar stækkanir á ís-
landsmyndum Hans Malmberg og
frummyndir af nokkrum íslands-
mynda hans.
■ SKOTSKÍFUR í HAFNARBORG í
Sverrissal Hafnarborgar verður oþn-
uð í dag sýning á skotskífum I eigu
Det Kongelige Skydeselskab og
Danske Broderskab. Skífurnar eru
frá árunum 1787-1928. Margar
þeirra sýna íslenska kaupstaði og
vegna þess hve myndefni frá fýrri
öldum er fágætt á íslandi hafa þær
mikið menningarsögulegt gildi.
■ LÁRUS H. LIST. í LISTHÚSINU í
LAUGARDAL Listamaðurinn Lárus
H. List er meö málverkasýninguna
Vitundarástand í Listagalleríi, List-
húslnu í Laugardal.
■ MARGRÉT í SAFNASAFNINU
Margrét Jónsdóttlr sýnir spiladósir
úr leir 7 Safnasafnlnu á
Svalbarðsströnd.
■ MAGNÚS LOGI í KOMPUNNI
Magnús Logl Kristinsson er með
sýningu í Kompunni á Akureyri.
Sjá nánar: Líflð eftlr vinnu á Vísl.is
Kínversk kvik-
Kínverskir kvikmyndadagar
hófust með pompi og pragt í Há-
skólabíói á íostudaginn með sýn-
ingu myndarinnar Brotlendingar
eftir leikstjórann Zhang Jianya. Ji-
anya var sjálfur viðstaddur opnun-
ina og flutti stutt ávarp áður en ljós-
in voru slökkt og sýningin hófst.
Alls voru sjö kínverskar kvikmynd-
ir sýndar á hátíðinni en að henni
stóðu Kvikmyndasjóður, Kínverska
sendiráðið og kvikmyndaklúbbur-
inn Filmundur.
Kinverska sendinefndin
Þorfinnur Ómarsson, formaöur Kvikmyndasjóös, ásamt kínversku sendinefndinni.
Góöir gestir
Möröur Árnason íslenskufræöingur og Arnþór Helgason
útvarpsmaöur taka tal saman en Arnþór er manna fróö-
astur um kínverska menningu.
Kvikmyndamógúlar
Leikstjórarnir Júlíus Kemp, Róbert Douglas og Ari Krist-
insson létu sig ekki vanta á opnun Kínverskra kvik-
myndadaga.
DV-MYNDIR EINAR J
Fjör í miöröðinni
Þaö fór greinilega vel á meö þeim Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, og Zhang Jianya, leikstjóra opnunar-
myndarinnar.
Melasveitin á leið til Færeyja:
Steini í Dúmbó og Gísli
bæjarstjóri í hljómsveitinni
DV-MYND DVÓ
Melasveitin á sviði
Gísli Gíslason meö gítarinn að syngja írskan slagara ásamt hluta Melasveit-
arinnar.
DV, AKRANESI: ____________
A næstunni munu Færeyingar fá
að sjá og heyra í hinni vinsælu
hljómsveit Melasveitinni en meðal
tónlistarmanna i hljómsveitinni eru
Gisli Gíslason bæjarstjóri sem spil-
ar á gítar og syngur auk þess sem
hann er kunnur fyrir að setja sam-
an góðar gamavísur og góða texta
við lög og Sigursteinn Hákonarson,
þjóðfrægur undir nafninu Steini í
Dúmbó.
„Hljómsveitin Melasveitin er um
það bil 6 ára gömul og hefur spilað
sparlega en komið fram nokkrum
sinnum á ári,“ segir Gisli bæjar-
stjóri. I hljómsveitinni eru átta
félagar. Á trommur leikur Eiríkur
Guömundsson, kennari og raf-
magnsverkfræðingur, á gítara Birg-
ir Guðmundsson sálfræðingur, Ein-
ar Skúlason æskulýðsfulltrúi og
Gísli Gíslason bæjarstjóri, á hljóm-
borð Lárus Sighvatsson tónlistar-
skólastjóri, á bassa Guðmundur Jó-
hannsson blikksmiður, á fiðlu Skúli
Ragnar Skúlason tónlistarkennari.
Um meginhluta söngsins sér Sigur-
steinn Hákonarson rafvirki, sjálfur
Steini í Dúmbó. Að auki hefur Þór-
gunnur Stefánsdóttir komið fram
sem gestasöngvari.
Melasveitin hefur spilað fyrir
dansi viö ýmis tækifæri en einnig
leikið írsk þjóðlög. Fyrir fjórum
árum fór sveitin í Evrópuferð til
Færeyja og spilaði þar á Vesta-
stevnu í Sörvági, vinabæ Akraness,
og ferðinni er heitið þangað nú í júlí
auk þess sem spilað verður í
Klakksvik. Með í för verður Söng-
hópurinn Sólarmegin sem mun
syngja í Sörvági, Þórshöfn, og Klak-
svik en Guðmundur Jóhannsson er
stjórnandi sönghópsins auk þess
sem Sigursteinn Hákonarson er
einnig í þeim hópi.
„Melasveitin hefur ekki í hyggju
að fara víðar en til Færeyja að
þessu sinni en hvað verður í fram-
tíðinni er aldrei að vita,“ sagði Gísli
Gíslason, bæjarstjóri, gítarleikari
og söngvari, í spjalli við blaðið.
-DVÓ
Kirsten Dunst
Fmnst ekki nógu gott aö hafa leikiö
vampíru sem geymdi rotnandi lík
saumakonunnar undir rúminu. Vill
leika geðsjúkan fjöldamorðingja.
Vill leika
morð-
ingja
Táningsstirnið Kirsten Dunst
segist orðin leið á því að leika
klappstýrur og sætar unglings-
stúlkur. Nú vill hún fá að leika
morðingja.
„Ég er leið á þessum heimsku
stelpumyndum með heimskum
hlutverkum," segir sú 19 ára. Hún
segist vilja verða eins og Jodie
Foster, Meryl Streep og Jessica
Lange. I nýjustu kvikmynd henn-
ar, Crazy/Beautiful, ætti Kirsten
að hafa nálgast drauminn örlítið.
Þar leikur hún ríka stelpuskjátu
með áfengisflkn sem hatar for-
eldra sína og byrjar með rómönsk-
um pilti úr röngum borgarhluta.
En ungar stúlkur eiga sér ætíð
drauma. Kirsten vill fá hlutverk
sem geðsjúkur fjöldamorðingi.
Hún hefur reyndar áður leikið
unga vampíru sem drap sauma-
konuna sína og geymdi rotnandi
lík hennar undir rúminu. En það
var bara ekki alveg nóg.
Bowie
leikur
Frank
Sinatra
Tónlistarmaðurinn David
Bowie hefur tekið að sér að leika
goðsögnina Frank Sinatra í kvik-
mynd um ævi hans. Bowie lýsti
sér á 8. áratugnum sem „Frank
Sinatra martraðanna". Hann er
upp með sér fyrir að vera boðið
hlutverk þess gamla bláeygða.
„Sinatra hefur alltaf verið ein af
fyrirmyndum mínum," segir
furðufuglinn.
Bowie er langt því frá að stíga
sín fýrstu skref á hvíta tjaldinu.
Hann lék síðast popplistamanninn
Andy Warhol í kvikmyndinni
Basquiat. Einnig átti hann eftir-
minnilegan leik í Völundarhús-
inu, eða Labyrinth, og Absolute
Beginners á níunda áratugnum.