Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001
I>V
Fréttir
Ný stjórn kosin í Lyfjaverslun íslands:
Dramatískur
hluthafafundur
- samþykkt aö leita riftunar á kaupum á Frumafli
Fléttan gekk upp dv-myndir brink
Lögmennirnir Lárus H. Blöndal, Jón Steinar Gunnlaugsson og Gunnar Jónsson bera saman bækur sínar viö upphaf
hluthafafundarins, eftir aö í Ijós kom aö Hæstiréttur dæmdi andstæöingum Frumaflskaupanna í vil. Eftirleikurinn á
fundinum var þeim auöveidur.
Lýsti Lárus því
yfir á fundinum að
samkomulag hefði
náðst með báðum
fylkingum um að
stilla upp lista. Gerð
var tillaga um að í
nýrri aðalstjóm
tækju sæti Margeir
Pétursson, Lárus
Blöndal, Stefán
Bjamason, Örn Andr-
ésson og Grímur Sæ-
mundsen og í vara-
stjórn Ólafur Njáll
Sigurðsson og Ingi
Óttarsson. Var stjórn-
arkjör staðfest með
lófaklappi í kjölfar at-
kvæðagreiðslunnar.
í fráfarandi stjórn
sátu Grímur Sæmundsen, formaður,
Nýlr menn í stjórn
Örn Andrésson og Lárus H. Blöndal voru meðal
hörðustu andstæðinga Frumaflskaupanna - og höföu
sigur. Þeir eru báöir í nýju stjórninni.
Stjóm Lyfjaverslunar íslands
sagði öll af sér og ný var kosin á
dramatískum hluthafafundi á
Grand Hotel í Reykjavík síðdegis i
gær. Fráfarandi stjómarformaður,
Grímur Sæmundsen, gaf út yfirlýs-
ingu um afsögn stjórnar eftir að
hafa lýst sýn meirihluta hennar á
ferli mála varðandi kaupin á Frum-
afli og lesið upp úr dómi Hæstarétt-
ar. Sá dómur sem kveðinn var upp
skömmu fyrir fundinn í gær skyld-
ar sýslumanninn í Reykjavík til að
setja lögbann á kaupin sem hann
hafði áður hafnað að gera. Var ný
stjórn kosin og tillaga samþykkt að
leita riftunar kaupa á Frumafli.
Fyrir fram var búist við hörðum
átökum á fundinum um þau deilu-
mál sem tröllriðið hafa starfsemi fé-
lagsins undanfarnar vikur. Deilurn-
ar hafa snúist um ákvöröun meiri-
hluta stjórnar fyrirtækisins um
kaup á Frumafli hf. á 860 milljónir
króna og fór Lárus Blöndal lögfræð-
ingur fyrir hópi hluthafa sem vildu
rifta þeim kaupum. Hafði Lárus far-
ið fram á það við sýslumann að
setja lögbann á gjörninginn en var
hafnað og því var einnig hafnað í
héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Stein-
ar Gunnlaugsson, lögfræðingur
Lárusar og félaga, áfrýjaði málinu
til Hæstaréttar sem sneri i gær við
úrskurði héraðsdóms og sýslu-
manns.
Mikil fundarsókn
Óvenju góð fundarsókn var á
þennan hluthafafund og og mættu
þar fulltrúar fyrir ríflega 423 millj-
óna króna hlutafjár af 430 milljóna
Afsögnln
Grímur Sæmundsen, fráfarandi
stjórnarformaöur, þungur á brún í
ræöustóii, eftir erfiöa daga.
Lárus Blöndal kvaddi sér hljóðs
eftir ræðu fráfarandi formanns
Lyfjaverslunar íslands, Gríms Sæ-
mundsen, á hluthafafundinum í
gær. Lýsti hann því að fyrirhuguð
kaup á Frumafli væru sjö til átta
hundruð milljónum króna of dýr.
Verðmæti Frumafls fælist fyrst og
króna atkvæðisbærs hlutafjár í fyr-
irtækinu. Það þýðir að fulltrúar
97,81% hluthafa voru mættir til
fundarins.
Dagskrá fundarins í gær var aug-
lýst í sex liðum. Þar var um að ræða
samninga fyrirtækisins um A.
Karlsson hf., Thorarensen lyf ehf.
og margumræddan kaupsamning á
Frumafli hf. Þá átti einnig að ræða
vantraust á stjóm Lyfjaverslunar.
Sá dagskrárliður var þó felldur nið-
ur eftir að stjórnin sagði öll af sér.
Lárus Blöndal bar upp tillögu um að
fundurinn samþykkti að leita eftir
ógildingu eða riftun á samningi um
kaup á öllu hlutafé í Frumafli af Jó-
hanni Óla Guðmundssyni sem und-
irritaður var af meirihluta stjórnar
félagsins hinn 20. júní 2001. Var
stjóm félagsins falið að leita allra
leiða sem tiltækar eru til að ná fram
ógildingu eða riftun á þessum samn-
ingi.
Alls greiddu fulltrúar fyrir 313,7
milljóna króna hlutafjár atkvæði með
riftunartillögunni eða 78,3%, en
20,4% greiddu atkvæði gegn henni.
Einungis 1,4% sátu hjá.
fremst í viðskiptavild í gegnum Öld-
ung sem er með samning við rikið
um rekstur hjúkrunarheimilis við
Sóltún.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður lýsti því síðan að
með úrskurði Hæstaréttar væri
staðfest að enginn löglegur samn-
Lárus Blöndal, Ólafur G. Einarsson,
Óskar Magnússon, Öm Andrésson og
varamennimir Ásgeir Bolli Kristins-
son og Ólafur Jónsson.
Fallið var frá síðasta lið dagskrár
hluthafafundarins um vantraust á
Lárus Blöndal.
ingur hefði komist
á varðandi kaupin
á Frumafli.
í samtali við DV
eftir fundinn sagði
Jón Steinar að í
slíkum lögbanns-
málum væri ekki
endanlega skorið úr
um þau lögskipti
sem málið snerist
um.
„Það er hins veg-
ar kveðið skýrt að orði í forsendum
þessa dóms Hæstaréttar um efnisat-
riði málsins. Mér finnst því að þeir
aðilar sem urðu að láta i minni pok-
ann ættu að átta sig á því og leitast
við að semja sig frá málinu á grund-
velli þeirra forsendna sem þar eru
skýrar að mínu mati.“
- Hvað með framhald málsins?
„Þegar lögbann er lagt á er nauð-
synlegt að krefjast staðfestingar á
lögbanninu fyrir dómi og það verð-
ur auðvitað gert. Þetta er vegna
þess að eðli lögbanns er að vera
bráðabirgðaaðgerð. Lögbannið bein-
Margeir Pétursson var á fundi
nýrrar stjórnar að loknum hlut-
hafafundinum kosinn formaður.
Hann sagði í fundarlok í gær að
ljóst væri að lýðræðið hefði verið í
heiðri haft þar sem hann hefði
fengið umboð um 600 af 780 hlut-
höfum. -HKr.
Fundarstjórinn
Leitað var til formanns Lögmanna-
félagsins, Jakobs R. Möllers, til aö
stjórna fundinum í gær.
ist gegn Jóhanni Óla Guðmunds-
syni sem er einstaklingur sem telur
sig hafa átt í viðskiptum við Lyfja-
verslun Islands. Það er hans að
ákveða hvemig hann meðhöndlar
málið í framhaldinu."
-HKr
Vonbrlgðln
Athafnamennirrnir Óskar Magnússon, Bolli Kristinsson og Hannes
Guömundsson voru hlynntir kaupunum á Frumafli, en játuöu sig sigraöa á
fundinum.
Frumaflssamingi Lyfjaverslunar verður rift:
Of dýru verði keyptur
- farið verður í staðfestingarmál, segir Jón Steinar Gunnlaugsson
Valgerður til Ungverjalands
Valgerður Sverr-
isdótir iðnaðarráð-
herra heldur í opin-
bera heimsókn til
Ungverjalands í
haust. í ferðinni
mun hún m.a. undir-
rita samning þjóð-
anna um samstarf í
orkumálum. Mbl. sagði frá.
Jörð skalf í Árnessýslu
Jarðskjálfta varð vart á Selfossi um
miðjan dag í gær. Upptök skjálftans
reyndust vera um 2 kílómetra frá
bænum, nánar tiltekið í Ingólfsfjalli.
Styrkur skjálftans mældist 1,8 á
Richter-kvarða. í kjölfarið fylgdu
tveir minni eftirskjálftar.
w
•:’J4r .
#8 9
- Ji *<f— !i t * Wf -- tf
Frekari rannsóknar þörf
Talsmenn fyrirtækisins Cranfield
segja rannsókn sína sem unnið er að
á tildrögum og viðbrögðum vegna
flugslyssins í Skerjafirði á sl. ári á
lokastigi. Þeir segja að kanna þurfl
betur ýmsa þætti málsins, s.s. hvíld-
artíma flugmanna og björgunarstarf,
m.a. hvað olli þvi að þyrla Landhelg-
isgæslunnar var kölluð seint til.
Olíudreifingu mótmælt
Fulltrúar Sjómannafélags Reykja-
víkur og Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði stöðvuðu timabundið í gær
olíulöndun úr erlendu skipi með
pólska áhöfn á Siglufirði. Félögin
segja vinnulög brotin með því að er-
lend skip með erlenda áhöfn annist
olíudreifingu til staða á landsbyggð-
inni.
Leikskólagjöld hækka
Borgarráð Reykjavikur hefur sam-
þykkt að hækka leikskólagjöld. Al-
menn gjöld hækka í 25 þúsund krón-
ur á mánuði, þau verða 18.900 fyrir
námsmenn og 12.900 fyrir þá sem eru
í forgangshópi, s.s. einhleypa.
Ahorfandi slasaðist
Maður á miðjum aldri fótbrotnaði
í áhorfendastúkunni að Hlíðarenda í
gærkvöld. Leikur Vals
og Breiðabliks
var hafinn þeg-
ar atvikið átti
sér stað en talið
er að maðurinn
hafi snúið sig
fyrst og síðan fót-
brotnað þegar hann féll
niður. Lögregla og sjúkrabíll voru
kölluð að leikvanginum og var mað-
urinn fluttur á Slysadeild Landspítal-
ans.
Þriggja bíla árekstur
Þriggja bíla árekstur varð á Bú-
staðavegi um hálftíuleytið í gær-
kvöld. Sjö manns voru í bílunum
þremur og voru fluttir á slysadeild en
meiðsl fólksins reyndust minni hátt-
ar. Gangandi vegfarandinn komst
yfir götuna og var sá eini sem ekki
fór á slysadeildina.
Sóttu fótbrotna konu
Björgunarsveitin Kyndill úr Mos-
fellsbæ sótti í gær konu sem haföi
ökklabrotnað í Esjunni.
Konan, sem er á áttræðisaldri, var
komin upp í miðjar hlíðar þegar
óhappið átti sér stað. Sjúkrabifreið
beið hennar við fjaUsræturnar og var
hún flutt á Slysadeild Landspítalans.
Að sögn lögreglu var tilkynnt um
óhappið um hálfsexleytið og tveimur
stundum'síðar var konan komin und-
ir læknishendur.
-gk/-aþ