Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001
Fréttir DV
Einstök svaðilför strokuhests á Suðurlandi:
Lét sig vaða í Þjórsá
og synti á haf út
- hljóp síðan tíu kílómetra og náðist skammt frá Stokkseyri
Átta vetra hestur, sem er nýkom-
inn til tamningar að Sandhólaferju í
Djúpárhreppi, strauk á dögunum úr
gerði og hélt i mikla svaðilfór. Hest-
urinn hélt sem leið lá niður með
Þjórsá og fundust spor hans á Háfs-
fjörum og til hans sást við árósinn.
„Við fórum strax að leita hestsins
þegar við uppgötvuðum að hann var
horfmn. Við fundum spor á Háfs-
fjörum og allt benti tii að hesturinn
heföi farið yfir ósinn,“ segir Sigurð-
ur Óli Kristinsson sem rekur tamn-
ingastöð ásamt konu sinni Birnu
Káradóttur að Sandhólaferju.
Sigurður segir Þjórsá mjög
straumþunga á þessum slóðum.
„Það sást til hans þar sem hann lét
vaða út i ána og straumurinn hreif
hann þegar í staö og fleytti honum
til sjávar," segir Birna. Taliö er að
hesturinn hafi synt um 800 metra
áður en hann náði landi hinum
megin árinnar.
Náðist eftir eltingarleik
Baráttan við hafiö og straum-
þunga Þjórsána bugaði þó ekki klár-
inn sem hélt ferð sinni ótrauður
áfram. Hann náðist ekki fyrr en að
loknum eltingarleik við Baugsstaði
austan Stokkseyrar og hafði þá lagt
aö minnsta kosti tíu kílómetra að
baki, eftir að hann kom upp úr sjón-
um.
Strokuhesturinn, sem gengur
undir nafninu Gjafar, mun upp-
runninn Norðanlands og hugsanlegt
að heimþrá hafi sett að honum. Eig-
andi hans er búsettur í Reykjavík.
Sigurður Óli segir ekki vita hvort
heimþrá hrjáði klárinn en greini-
legt sé aö hann hafi ætlað sér í
burtu.
„Hann hefur verið hjá okkur í
tvær vikur og lítið samlagast hinum
hrossunum. Lengst af hefur hann
haldið sig einn úti í homi. Hann
bíður líklega eftir öðru tækifæri til
að komast í burtu," segir Birna og
bætir við að trúlega séu það mikil
viðbrigöi fyrir hestinn, sem er orð-
inn átta vetra, aö koma í tamningu
DV-MYND E.ÓL.
Siguröur Óii og strokuhesturinn Gjafar
Svaöilför hestsins þykir meö miklum ólíkindum en hann lagöist til sunds í
Þjórsárósum áöur en hann fór margra kílómetra leiö á landi.
eftir að hafa verið frjáls og óháður
um langan tíma. Hann sé þó þrátt
fyrir allt prýðilegur reiðhestur.
Við hestaheflsu
Birna og Sigurður Óli segja klár-
inn við hestaheilsu og ekki að sjá að
ævintýrafór hans um Suðurströnd-
ina og barátta við óblíð náttúruöfl
hafi haft nokkur áhrif á hann.
„Bóndinn á Hala hafði á orði við
okkur að hann hefði ekki í 65 ára
búskapartíð sinni vitað til að
skepna kæmist lífs af eftir sund i
Þjórsárósum. Þetta er þvi greinilega
hinn mesti þrekhestur," segir Sig-
urður Óli Kristinsson á Sandhóla-
ferju.
-aþ/NH
Sameining vestra:
Þetta mun
styrkja okkur
- segir oddvitinn
Svo kann að fara
Jað þrjú sveitarfélög
sameinist á þessu ári,
þ.e. Dalabyggð og
Saurbæjarhreppur á
Vesturlandi og Reyk-
hólahreppur á Vest-
fjörðum. Sigurður R.
SiguröurRúnar™1188,011’
- - - Dalabyggðar, segu- að
vel miði á fundum
Friöjónsson.
þessara sveitarfélaga.
„Ég sé fyrir mér að þessi sveitarfélög
sameinist á þessu ári en veit ekki hvort
aðrir eru sömu skoðunar. Ég tel að
þetta muni styrkja okkur og gera okk-
ur samkeppnishæfari við önnur byggð-
arlög. Hugmyndin er að það verði kos-
iö um sameiningu þessara þriggja
sveitarfélaga í vetrarbyrjun." -DVÓ
Tveir á dag
- úr þjóðkirkjunni
Tveir Islendingar sögðu sig úr þjóð-
kirkjunni á degi hverjum það sem er
af ársins - og rúmlega það. Úrsagnir
úr þjóðkirkjunni eru helmingur
þeirra breytinga sem urðu á trúfélaga-
skráningu á fyrstu sex mánuðum árs-
ins en alls kusu 406 að yfirgefa kirkj-
una. Þar af kusu 129 að vera utan trú-
félaga en aðrir hurfu í Ásatrúarsöfn-
uðinn, Fríkirkjur og óháða söfnuði.
Á móti þeim sem hurfu úr þjóð-
kirkjunni voru rúmlega hundrað
skráðir í hana með nýskráningu og er
þar undantekningarlaust um að ræða
nýfædd börn. -EIR
Kaupfélögin eiga inni verulega fjármuni hjá Goöa:
Goði rær lífróður
- taprekstur á öllum sláturhúsum á síöasta ári
Goði hefur selt öll sín vöru-
merki til Norðlenska mat-
borðsins sem er í meirihluta-
eigu KEA. Um 140 starfsmenn
hafa unnið hjá kjötvinnslum
Goða í Borgamesi og í
Reykjavík en talið er að um
20 störf flytjist til Akureyrar
fljótlega en með með því að
leggja niður kjötvinnsluna á
Kirkjusandi i Reykjavík leggj-
ast niður um 40 störf. Ekki
stendur til að leggja niður
kjötvinnsluna í Faxafeni í
Reykjavík. Eiríkur Jóhanns-
son, kaupfélagsstjóri KEA,
segir að mjög áhættusamt
hefði verið að yfirtaka allan
rekstur Goða, en með samn-
ingnum náist fram hag-
kvæmni án verulegrar
áhættu.
Til hjálpar Goða
Við slátrun haustið 2000
hlupu Kaupfélag Austur-Skaftfell-
inga á Höfn (KASK) og Kaupfélag
Héraðsbúa (KHB) á Egilsstöðum
undir bagga með Goða til þess að
fyrirtækið gæti staðið í skilum við
bændur vegna uppgjörs á sláturinn-
leggi. Kaupfélögin eiga enn inni
verulega fjármuni hjá Goða og
margir velta því fyrir sér hvort það
verði of stór baggi fyrir þau, glatist
það fé t.d. ef Goði fari í gjaldþrot.
Eigendur Goða róa hins vegar lif-
róður þessa dagana til þess að
bjarga fyrirtækinu.
Erfitt ef peningar tapast
Pálmi Guðmundsson, kaupfélags-
stjóri á Höfn, segir að erfitt sé að sjá
nú hvaða fjárhagsleg áhrif salan á
kjötvinnslum Goða hafi á KASK en
sláturleyfið standi eftir og ekki sé
annað fyrirsjáanlegt en að slátrað
verði á Höfn í haust í verktöku þó
taprekstur hafi verið á öllum slátur-
húsum á síðasta ári.
„Sláturhúsin í landinu eru rekin
með tapi, afurðalán hafa ekki verið
aðgengileg svo eigendur hafa þurft
að lána Goða svo fyrirtækið geti
staðið í skilum við bændur.
KASK á töluverðar eignir til
að mæta áföllum en auðvitað
verður það erfitt tapist þess-
ir peningar.
Til þess að koma þessum
sláturhúsum í rekstur þarf
að fækka þeim verulega. Það
er hinn sári sannleikur í
málinu. Það eru í gangi við-
ræður milli Bændasamtak-
anna og Goða um að slátrað
verði í verktöku en það er
ljóst að það verður ekki
gengið til næsta hausts með
sama hætti og var í fyrra,“
segir Pálmi Guðmundsson.
Ekkf á brauðfótum
Ingi Már Aöalsteinsson,
kaupfélagsstjóri á Egilsstöð-
um, segir að skuldir Goða
við KHB hafi lækkað mikið
en því fari fjarri að rekstur
kaupfélagsins standi á
brauðfótum vegna þessara miklu
skulda, jafnvel þótt Goði verði gjald-
þrota.
„Með sölu á kjötvinnslunni mun
Goði ekki fara í gjaldþrot. Það er
ásættanleg lausn ef slátrað verður i
verktöku í sláturhúsi Goða á Foss-
völlum og væntanlega mun Norð-
lenska svo kaupa megnið af kjötinu
beint af bændum. Aðrir munu
einnig versla við bændur. En það er
ljóst að málin geta ekki gengið eins
og verið hefur hingað til,“ segir Ingi
Már Aðalsteinsson. -GG
Umsjóri: Birgir Guðmundsson
Hugleysi
í pottinum hafa menn verið að ræða
um skýrslu ríkisendurskoðunar um
ferliverk á sjúkrahúsum en þar er
m.a. að finna ýmsa gagnrýni á það fyr-
irkomulag sem rík-
ir varðandi störf
lækna. Fullyrt er
að skýrslan hafi
farið mjög fyrir
brjóstið á mörgum
læknum og þeim
þótt að sér vegið.
Angi af þessari
gremju kemur fram í leiðara nýjasta
Læknablaðs en þar skrifar Hannes
Petersen, yfirlæknir á háls-, nef- og
eyrnadeild LHS. Segir Hannes m.a.:
„Látum kjurt aö amast við því að
möppufólk fjalli af vanþekkingu um
lækna og störf þeirra, en að þurfa að
lesa og sitja undir ávirðingum hjúkr-
unarfræðinga, okkar helstu samstarfs-
manna, í niðurlagi skýrslunnar er alls
óþolandi... Skrifað er þar meðal ann-
ars að háls-, nef- og eymalæknar setji
rör í hljóðhimnur að ástæðulausu!...
Atvinnurógur af þessu tagi ber merki
hugleysis sem er það alhliða að hvergi
ber skugga á, svo stuðst sé við snilli
skáldsins". Hver var svo að segja að
átök milli heilbrigðisstétta væru úr
sögunni?
Sérstaða Samfylkingar
Samningaviðræður um endurnýjað-
an R-lista hafa verið til umræðu í pott-
inum síðustu daga og sjá menn þar
fyrir sér að sérstaða Samfylkingarinn-
ar á þeim vettvangi
sé talsverð. Sérstað-
an felst i því að
eins og málin hafa
þróast hefur Sam-
fylkingin í raun sex
af átta borgarfulltrú-
um flokksins - fram-
sókn hefur tvo en
VG í raun engan eymamerktan flokks-
mann. Við nýja uppstillingu er ljóst að
þessir sex fulltrúar komast ekki allir
aö og þvi er samfylkingarfólki vandi á
höndum því bæði framsókn og VG
gera kröfu um jafna skiptingu sem
þýðir að Samfylkingin fær tvo til fjóra
fulltrúa, ef Ingibjörg Sólrún er talin
með. Einhverjir verða þvi að víkja og
er sagt að það gæti orðið viðkvæmt
mál sem samfylkingarmenn vilji bíða
með þar til á síðari stigum. Samfylk-
ingarfólkið í borgarstjóm er, auk Ingi-
bjargar Sólrúnar, Helgi Hjörvar,
Hrannar B. Arnarson, Steinunn
Valdis Óskarsdóttir, Helgi Péturs-
son (sem mun vera að hætta) og
Anna Geirsdóttir...
Flestum er sama...
Talsverð umræða hefur verið um
samband þeirra Dorrit Moussaieff og
Ólafs Ragnars Grímssonar eftir að
Ágúst Einarsson skrifaði grein um
málið á heima-
síðu sinni í síð-
ustu viku. Taldi
Ágúst tíma til
kominn að Ólaf-
ur skilgreindi
betur hvað
þarna væri í
gangi. Ekki virð-
ist þó þjóðin hafa miklar áhyggjur af
þessu sambandi eins og kom fram i
síðdegisþætti á Rás 2 þar sem fjallað
var um málið og í skoðanakönnun
sem er í gangi á Pressunni á Netinu
virðist niðurstaðan svipuð. Þar segja
19% að þau Dorrit og Óiafur eigi aö
gifta sig, 8,1% telja að þau eigi ekki að
gera það en 72,9% segja að þeim sé al-
veg sama...
Ungur ofurhugi
Fréttablaðið er 2ja mánaða um
þessar mundir og eru flestir sammála
um að það hafi reynst góð viðbót í fjöi-
miðlaflóruna. Þetta unga biað er í
pottinum
hefur það vakið athygli að blaðið virð-
ist ótrautt ætla að keppa við Mogg-
ann á sviði fasteignaauglýsinga en
Fréttablaðið hefur verið með slíkar
augiýsingar upp á síðkastið. Menn
biða spenntir eftir aö sjá hvort hinum
unga ofurhuga tekst að ráðast inn í
þetta höfuðvígi auglýsingadeildar
Morgunblaðsins...