Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Page 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001
r>v
Michael Portillo
Vann fyrstu umferð útsláttarkosn-
inga til leiðtoga íhaldsflokksins.
Enginn féll út
Fátt kom á óvart í fyrstu umferð
kjörs þingmanna Ihaldsflokksins á
leiðtogaefni ílokksins. Michael
Portillo var þar fyrstur, Iain Dunc-
an Smith varð í öðru sæti og Kenn-
eth Clarke í þriðja. David Davis og
Michael Ancram voru jafnir í
neðsta sæti með 21 atkvæði hvor.
Þrátt fyrir að reglan segi að einn
frambjóðandi eigi að detta út í
fyrstu umferð leiðtogakjörsins þá
verða Davis og Ancram áfram með í
annarri umferðinni sökum
jafnteflis.
Enginn árangur
af viðræðum
Enginn árangur náðist á
öðrum degi viðræöna um lausn
á deilumálum stjórnmálaflokka
kaþólikka og mótmælenda á
Norður-írlandi. Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, og
Bertie Ahem, forsætisráðherra
írlands, eru báðir viðstaddir
viðræðurnar og reyna að stýra
deiluaðilum í rétta átt.
Viðræðum átti að halda áfram i
dag.
Gerry Adams, leiötogi Sinn
Fein, og David Trimble,
fyrrverandi fyrsti ráðherra
Norður-írlands, sögðu báðir að
viðræðurnar hefðu verið
strembnar og enginn árangur
hefði náðst. Aðaldeilumálin eru
talin vera tregða Irska
lýðveldishersins til að afvopn-
ast, málið sem olli afsögn Davids
Trimble fyrir rúmri viku. Á
móti vilja kaþólikkar sjá hraðari
Gerry Adams
Finnst viðuræðurnar vera gagnlegar
fyrir alla aðila.
endurbætur á lögreglumálum í
landinu og algjört brotthvarf
breska hersins.
Þegar viðræðum lauk í gær
sakaöi Trimble leiðtoga Sinn
Fein um viljaleysi við að
uppfylla sinn þátt í
friðarsamkomulaginu sem kennt
er við föstudaginn langa.
Afvopnun IRA er þar efst á
baugi. Adams þvertók fyrir þetta
og sagði Sinn Fein vinna að
heilum hug að lausn málsins.
Hann jók einnig á bjartsýni
manna þegar hann lýsti þvi yfir
að honum þætti viðræðurnar
vera góðar fyrir alla aðila.
Ef ekkert gengur í
samkomulagsátt í dag verður
viðræðunum frestað í einn dag.
Þær halda áfram á föstudag.
Talsmaður Tony Blair sagði að
forsætisráðherrann myndi mjög
líklega sitja viðræðurnar áfram.
T JALDSIL
Inniheldur hvorki olíu né parafín
sem getur orsakað köfnun.
KÍSILL ehf. • Reykjavík • sími 551 5960
Ylnning^hafar í 6rolls o« Oorks-leiknuin
16 Grolla og Gorka-pakkar
Lovísa Lind
Valgeir Leifur
Jón Ágúst
Birkir Pálsson
Friðfinnur S. Sigurðsson
Jakob F. Stefánsson
Karen Ó. Bjömsdóttir
Magnús R. Sigurbjörnsson
Ása Hulda
Hjalti Magnússon
Bjarni Óskarsson
Kristjana Þrastardóttir
Guðjón Ingi Sigurðsson
Jóhann P. Haroa
ðarson
Finnur Jónssgn
Valgerður E. Árnadóttir
nr. 15119
nr. 15120
nr. 15637
nr. 16725
nr. 17670
nr. 12979
nr. 12894
nr. 18146
nr. 17648
nr. 7766
nr. 17823
nr. 15826
nr. 17245
nr. 11331
nr. 5476
nr.17145
Krakkakiúbbur DV óskar vinningshöfum til
hamingju.Vinningarnir verða sendir í pósti næstu
daga. Þökkum þeim sem tóku þátt
kærlega fyrir þátttökuna.
Kveðja, Tígri og Halldóra
Flóö í fangelsl
Flytja þurfti 1200 fanga um set í Taílandi í gær þegar miklar monsúnrigningar
komu af stað flóðum. Auk þess þurftu um 4000 fjöiskyldur að flýja heimili
sín vegna fióöanna. Monsúnrigningar eru árviss atburður á þessum tíma árs.
Palestinsk kona
skotin til bana
ísraelskir hermenn
skutu 35 ára gamla palest-
ínska konu til bana í
morgun samkvæmt frétta-
stofu Reuters. Atvikið átti
sér stað á Vesturbakkan-
um þegar ísraelskir her-
menn hófu skothríð á
leigubíl sem konan var í
þegar hann reyndi að
komast hjá vegatálmum.
Þá skutu palestínskir
byssumenn annan Palest-
ínumann sem grunaður
var um að vera uppljóstr-
ari fyrir ísrael. Embættis-
menn palestínskra yfir-
valda hafa hvatt fólk til aö
taka ekki lögin í eigin hendur held-
ur að leyfa dómstólum að dæma
svikarana.
Bandaríkjastjóm studdi í gær
kröfur ísraels um að
starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna afhendi
ísraelum myndband
sem varpað gæti ljósi
á hvarf þriggja ísra-
elskra hermanna ná-
lægt Líbanon í októ-
ber síðastliðnum. Hiz-
bollah-samtökin eru
grunuð um verknað-
inn og talið er að
mannræningjamir
sjáist á myndbandinu.
Málið er orðið hið
vandræðalegasta fyrir
Sameinuðu þjóðirnar
þar sem þær hafa
staöfastlega neitað tilvist mynd-
bandsins, allt þar til í seinustu viku
þegar loks var viðurkennt að það
væri til.
Styöur ísraela
Vill að ísraelar fái
myndband.
Montesinos geösjúklingur
Dómari í máli
fangelsaða njósna-
foringjans Vla-
dimiros Montesinos
sagði í gær að hann
væri geðsjúklingur
sem væri sífellt að
úthugsa málsvörn
sína. „Hann talar of
mikið og reynir að afvegaleiða
mann,“ sagði dómarinn.
Demókrata dreymir betur
Bandarísk rannsókn sýnir fram á
að repúblikanar eru þrisvar sinnum
líklegri til að fá martraðir en
demókratar. Auk þess er algengara
að í draumum þeirra birtist meiri
árásargirni, ólukka og ógnun.
Skothríö í Gautaborg
Maður var skotinn á næturklúbbi
í Gautaborg í nótt. Talið er að þrír
menn hafi valdið skothríðinni.
Þetta er þriðja skotárásin í borginni
síðustu vikuna.
Tennisleikari kemur á ró
Nýkrýndi Wimbledon-meistarinn
Goran Ivanisevic hefur komið á ró i
Króatíu. Þjóðin klofnaði í tvennt í
afstöðu sinni til framsals meintra
stríðsglæpamanna til Haag, en
tennisleikarinn geysivinsæli hefur
sameinað Króata á ný.
20 hýddir í íran
Tuttugu manns voru hýddir opin-
berlega í Teheran, höfuðborg Irans,
í gær. Hýðingin var refsing fyrir
dreifingu á syndsamlegum geisla-
diskum og myndböndum.
Sprengjumanni gefiö líf
Kviðdómur í máli
Tansaníumanns
sem sprengdi banda-
ríska sendiráðið í
heimalandi sínu
náði ekki saman um
að veita honum
dauðadóm. Hann
var dæmdur í ævi-
langt fangelsi.
Dýr da Vinci
Teikning eftir endurreisnarlista-
manninn Leonardo da Vinci var
seld á tæpan 1 og hálfan milljarð
króna á uppboði í Lundúnum í gær.
Chirac vitnar ekki
Yfirlýsing hefur
borist frá skrifstofu
Jacques Chiracs
Frakklandsforseta
um að hann hyggist
ekki sitja fyrir svör-
um í rannsókn á
meintu fjármála-
hneyksli hans.
írakar dæla olíu á ný
írakar hófu í gær að dæla olíu á
ný til Vesturlanda, í fyrsta skiptið í
rúman mánuð. Olíuverð lækkaði í
kjölfarið í gær.
Móöir myrti börn sín
23 ára móðir í Venesúela myrti í
gær þrjú ung börn sín með rottu-
eitri. Henni mistókst síðan að
svipta sjálfa sig lífi.
Gaddafi vinsæll í Sambíu
Muammar Gaddafi, leiðtogi Líb-
íu, hefur öðlast miklar vinsældir í
Afríkuríkinu Sambíu fyrir hug-
myndir sínar um sambandsríki Afr-
íku. Fundi Einingarsamtaka Afríku
í Sambíu lýkur í dag.