Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Qupperneq 11
11
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001______________________________________________________________________________________________
:PV Útlönd
Lögreglumaður lætur
lífið í sprengjutilræði
Lögreglumaður lét lífið í
sprengjutilræði ETA, skæru-
liðasamtaka aðskilnaðarsinna
Baska, í úthverfi Madrídar, höf-
uðborgar Spánar. Auk þess
særðust a.m.k. 12 almennir
borgarar. Spænska lögreglan
fékk aðvörun 45 mínútum áður
en sprengjan sprakk frá manni
sem sagðist vera meðlimur
ETA. Lögreglumaðurinn lést er
lögregla var að rýma hverfið
þar sem sprengjunni var hótað
og athuga grunsamlega bíla.
Hann er 32. fómarlamb tilræða
ETA á seinustu 18 mánuðum.
Sprengjutilræðið kom degi
áður en nýendurkjörinn forseti
Baskahéraðsins, Juan Jose
Ibarretxe, tekur við völdum.
Ibarretxe, sem sjálfur er að-
skilnaðarsinni, hefur beitt sér
mjög fyrir lausn á ofbeldisverk-
um ETA. Samtökin eru gjörn á
Einn látinn og a.m.k. 12 særöir
Svona var umhorfs eftir sprengjuna. Spánverjar eru löngu búnir aö fá sig fullsadda af
ofbeldisverkum ETA og hafa skipulagt mótmælagöngur víöa um land. Búist er viö
þúsundum í göngurnar.
að tímasetja tilræði sín rétt fyr-
ir stóra pólitíska atburði á
Spáni til að vekja athygli á sér
og draga úr umfjöllun um póli-
tísku atburðina.
Búið er að skipuleggja fjölda
mótmælagangna gegn ofbeldis-
verkum ETA viða um Spán.
Stuðningur við baráttu þeirra
hefur líka aldrei verið minni.
Jafnvel á meðal Baska sjálfra
hefur stuðningur við samtökin
hrunið. Þetta kom fram í nýaf-
stöðnum kosningum þar sem
stjórnmálaflokkur tengdur sam-
tökunum beið afhroð. Flokkur-
inn missti helming atkvæða
sinna og náði rétt um 10% fygli
meðal baskneskra kjósenda.
Vopnuð barátta ETA hefur nú
staðið í yfir 30 ár eða frá 1968. Á
þessum tima hefur ETA verið
kennt um i kringum 800 morð.
Bush og Koizumi
Japanar styöja umbótatillögur
Koizumis, jafnvel þótt þær veröi
þeim erfiðar.
Efnahagslífinu
hrakar enn
Japönsk yfirvöld viðurkenndu í
fyrsta skiptið í 6 mánuði í gær að
efnahagslífinu væri enn að hraka.
Þau sögðu útflutning og neyslu
halda áfram að dragast saman. 1
Japan er næststærsta efnahagskerfi
heims og þar gætir ekki sömu bjart-
sýni og í því stærsta. Bush Banda-
ríkjaforseti sagði á dögunum að
efnahagslífið væri á uppleið.
Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, hefur heitið því að
koma á umbótum og leynir því ekki
að þær gætu orðið „sársaukafullar".
Kannanir sýna 62 prósenta stuðning
kjósenda við umbótatillögurnar.
Sautján dauöir kettir í tré
Þetta tré er oröiö þekkt i Ástralíu fyrir þaö aö þar byrjuöu aö birtast dauöir hangandi villikettir í mars síðastliönum.
Villikettir í Ástralíu eru aö gera út af viö innfædd dýr í Ástralíu og viröist einhver vera aö vekja athygli á þvi.
LÖgreglan leitar á
heimili Condits
Lögreglan í Washington-borg í
Bandaríkjunum hóf leit á heimili
þingmannsins Gary Condits seint í
gærkvöldi.
Sjónvarpsstöðvar i borginni
sýndu lögregluþjóna fara inn í íbúð
hans bakdyramegin. Leitin var
gerð með samþykki Condits, sem
hefur heitið fullri samvinnu við
lögregluyfirvöld i mannhvarfsmáli
Chöndru Levy, fyrrverandi lær-
lings hans. Lögreglan hefur einnig
lýst því yfir að Condit verði látinn
taka lygapróf, eins og móðir Levy
hefur krafist. Auk þess hefur
Condit fallist á að gefa lögreglunni
DNA-sýni.
Þrátt fyrir allan hamaganginn
segir lögreglan að demókrataþing-
maðurinn sé ekki grunaður um að-
ild að hvarfi lærlingsins, sem hefur
ekki sést síðan 30. apríl. Condit hef-
Heimili Condits
Þingmaöurinn gaf fullt leyfi fyrir lög-
regluleit á heimili hans i tengstum
viö hvarf Chöndru Levy.
ur viðurkennt opinberlega að hafa
átt í ástarsambandi við Levy þegar
hún hvarf. Lögreglan segist einung-
is hafa verið að taka boði þing-
mannsins um fulla samvinnu. Lög-
reglan hefur yfirheyrt Condit
þrisvar og eiginkonu hans einu
sinni.
Málið er hið erfiðasta fyrir fjöl-
skyldu Levy, sem kom til Was-
hington á mánudag. Fjölskyldan er
bitur út í þingmanninn. Ísímtali
við móður Levy í júní neitaði þing-
maðurinn að hafa átt í sambandi
við dóttur hennar. Ifyrstu yfir-
heyrslum lögreglunnar bar hann
því við að hún væri vinur hans.
Það var ekki fyrr en á föstudag sem
hann viðurkenndi ástarsambandið.
Móðir Levy segir að Condit hefði
átt að koma fram fyrr og sleppa því
að ljúga.
Bjóðum Lindu Rós
hársnyrtimeistara
velkomna aftur til starfa.
Smm
RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFA
Grand Hótel - Sigtúni 38
sími: 588 3660.
STYRANLEGUR - BOR
BORARALLTAÐ 300metra
150 til 450mm
FRIKKI&UATTI
LEXUS IS 200 05/01.
Nýr, ABS og spólvörn,
beinskiptur, 6 gíra, 6 diska
magasín, loftkæling, 17“
álfelgur o.fl.
Ásett verð kr. 2.900.000.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is