Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001
DV
29
-EIR A MIÐVIKUDEGI *
Gráhæröir
ekki sköllóttir
„Það er mín reynsla að
menn sem grána ungir halda
frekar hárinu en hinir. Ég
veit ekki hvers vegna,“ segir
Guðlaugur Jónsson, hár-
greiðslumeistari í Kirkjuhvoli
í Reykjavík. Sjálfur segist
Guðlaugur hafa verið grá-
hærður allt lífið - og haldi
hári.
Gulli rakari
Lét lita háriö rautt í París.
„Annars hefur hárið á mér
alltaf verið ósköp ljótt. Ég er
ekki með gott hár. Ég lét einu
sinni lita það rautt í París og
geri það ekki aftur. Ég var svo
lengi að vinna litinn úr,“ segir
Guðlaugur.
Jón, starfsbróðir Guðlaugs
sem rekur rakarastofu í Skip-
holtinu, heldur hinu gagn-
stæða fram. Jón rakari segir
að þeir sem missi hárið ungir
verði ekki gráir. Þessu mót-
mælir Guðlaugur eins og að
framan greinir.
Jón Steinar forseti?
Ekki er ólík-
legt að Jón Stein-
ar Gunnlaugsson
hæstaréttarlög-
maður bjóði sig
fram til embættis
forseta íslands
þegar næst verð-
ur kosið. Er það
óþreyja hans og
óánægja með núverandi forseta
sem veldur því að Jón Steinar
aftekur ekki með öllu hugsan-
legt framboð.
„Ég mun ekki gera athuga-
semdir við það þó fréttir þessa
efnis birtist í fjölmiðlum," segir
Jón Steinar sem er rúmlega
fimmtugur, kvæntur Kristínu
Pálsdóttur Bergþórssonar fyrr-
um veðurstofustjóra.
Leiðrétting
Aö gefnu tilefni skal tekið fram
að hið nýja samgöngufyrirtæki,
Strætó bs., tekur ekki ábyrgð á
þeim farþegum sem biða eftir vögn-
um í strætisvagnaskýlum fyrirtæk-
isins. Fari þeir upp í önnur farar-
tæki en þau sem eru merkt Strætó
er það á eigin ábyrgð.
Rónarnir vafra úr Kaffi Austurstræti:
Þvo sér um hárið
hjá Jónínu Ben
- sorgiegt og óþolandi ástand, segir Jónína
Keisaralið dagdrykkjufólks, sem
flutt hefur sig um set frá Hlemmi
og niður á veitingastaðinn Kaffi
Austurstræti, notfærir sér snyrti-
aðstöðu heilsuræktarstöðvarinnar
Planet City í Austurstræti 8-10 til
að þrífa sig. Er það gert i óþökk
eigenda og starfsfólks en heilsu-
ræktarstöðin er í næsta húsi viö
drykkjustað fólksins.
„Við erum í vandræðum með
þetta og starfsfólkið mitt er hrætt.
Þetta fólk hefur í hótunum við
okkur,“ segir Jónína Ben sem
bjóst við öðru þegar hún opnaði
glæsilegustu líkamsræktarstöö
landsins í hjarta höfuöborgarinn-
ar. „Það er bæði sorglegt og óþol-
andi að ekki sé tekið á þessu
vandamáli. Hingað kom einn af
gestunum af Kaffi Austurstræti og
fór að þvo sér um hárið í vaski við
snyrtiherbergin. Við lentum í
vandræðum eins og gefur að
skilja. Annar trylltist inni á veit-
ingastaðnum hjá okkur og henti
þar öllu um koll. Við erum
ótryggð fyrir svona uppákomum,"
segir Jónína sem brýnir lögregl-
una tii aðgerða en hún stendur
jafnráðþrota gagnvart ástandinu í
Austurstræti eins og hún var „Á 17. júní varð ég vitni aö því kaffihúsið til geymslu. Ég hef
gagnvart Keisaranum þegar hann þegar lögreglan smalaði öllum aldrei séð sorglegri skrúðgöngu,"
var og hét við Hlemm. rónunum úr Austurstræti og inn á segir Jónína Ben.
Rónavaskurinn í Planet City dvaiynd hari
Starfsfólkiö býr viö hótanir og óttast nágrannana á Kaffi Austurstræti.
Verkfæri úrelt með dularfullri ákvörðun:
Milljörðum
skrúfjárna hent
- nýju skrúfukerfi þrengt inn á markaðinn
Aggi sæti með nýju skrúfjárnin dvj»iynd hari
Verslunarstjórinn í Byko mundar nýjungarnar aö hætti
Morgan Kane -■ ekki tilræöi gegn mannkyni.
„Þetta er bara
þróun sem fag-
mennirnir hafa
fallið fyrir. Það er
miklu betra grip í
þessum nýju skrúf-
um,“ segir Sigurð-
ur Arnar Sigurðs-
son, framkvæmda-
stjóri hjá Byko, um
nýja gerð af skrúf-
um sem rutt hafa
eldri og sígildari
skrúfum af mark-
aðnum. Nýju skrúf-
urnar heita Torx
og eru til í tveimur
útgáfum; með sex
raufum og svo sem
ferhyrningur. Fyr-
ir bragðið eru
stj örnuskrúfjárn og
hin með stakri rauf
ekki lengur gjald-
geng. Varlega áætl-
að má gera ráð fyr-
ir að íbúar jarðar-
kringlunnar muni
á næstunni henda
milljörðum skrúf-
járna þar sem þau
passa ekki lengur
fyrir nýja gerð
skrúfna.
- Eru ákvarðanir eins og þessar
teknar á fundum leiðtoga helstu iðn-
ríkja heims?
„Ég get ekki svarað því hver tók
upphaflega þessa ákvörðun. Menn
kynnast þessu á sýningum erlendis
og smám saman komast neytendur
að því að þetta er betra kerfi. Við
kaupum þessar skrúfur að mestu
leyti frá Austurlöndum fjær og þetta
nýja skrúfukerfi er alls staðar að ná
yfirhöndinni. Þetta er bara þróun,“
segir Sigurður Amar og neitar því
aðspurður að hér sé eingöngu um að
ræða tilræði gegn mannkyni sem
miði að því einu að selja heims-
byggðinni ný skrúfjárn eina ferðina
enn.
Nýju Torx-skrúfurnar og skrúf-
jámin sem hafa þann eiginleika
fram yfír gamla kerfið að í skrúfu-
hausnum er seguistál sem veldur þvi
að skrúfan lafir alltaf á skrúfjáminu,
þó það sé hrist. Þetta þykir sérlega
hentugt fyrir skjálfhenta sem fagna
mjög nýju skrúfunum.
Sigurður Arnar í Byko gat ekki
svarað því hvenær búast mætti við
að hamarinn yrði úreltur í núver-
andi mynd. Fastlega má ætla að ein-
hvers staðar úti í heimi sitji menn
og reyni að finna upp nýja gerð af
hamri sem selja megi i milljarðaupp-
lagi á einu bretti. En þá þarf líka að
breyta nöglunum.
lii-tt.i inyiHÍlpi
Frjálsir við fótstalllnn dv-mynd e.ól
Drengirnir príla frjálslega viö fótstall Jóns forseta sem ruddi brautina fyrir því
sjálfstæöi og frelsi sem þeir búa viö í dag - oggera vonandi þar til yfir lýkur.
m