Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Blaðsíða 7
7
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001____________________________________________________
DV Fréttir
Kjartan Ólafsson tekur sæti Árna Johnsens á Alþingi:
Flokkurinn
ekki í sárum
- segir nýr þingmaður Sunnlendinga
DV-MYNÐ NH
Tilbúinn að moka spillingunni burt!
Garöyrkjubóndinn Kjartan Ólafsson sest á þing í kjölfar afsagnar
Árna Johnsens.
„Þetta mál er allt búið að vera afskap-
lega leiðinlegt og erfitt fyrir alla þá sem
að því koma. Það hefði nú verið
skemmtilegra að taka þingsætið með
öðrum hætti, það verður að segjast eins
og er,“ segir Kjartan Ólafsson, sem verð-
ur þingmaður Suðurlandskjördæmis
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjölfar af-
sagnar Árna Johnsens.
Kjartan er framkvæmdastjóri Steypu-
stöðvar Suðurlands á Selfossi frá 1998.
Hann hefur verið formaður Samtaka
garðyrkjubænda síðustu tíu árin. Kjart-
an rekur iitla garðyrkjustöð við heimili
sitt ásamt konu sinni.
Kjartan segir Áma ekki hafa haft sam-
band við sig eða aðra samstarfsmenn sína
á lista sjálfstæðismanna á Suðurlandi síð-
an DV greindi fyrst frá úttekt þingmanns-
ins í BYKO fyrir réttri viku. Sjálfstæðis-
menn á Suðurlandi hafa enn ekki kallað
saman fund vegna málsins. „Þetta á sér
stuttan aðdraganda og hlutimir hafa
gerst mjög hratt. Þá tek ég undir orð for-
sætisráðherra sem hefur sagt að þetta sé
fyrst og síðast mál Áma sjálfs og hans að
taka ákvarðanir um framhaldið. Hann
tók sér þann tíma sem hann þurfti,“ seg-
ir Kjartan og bætir við að sér hafi komið
flest á óvart 1 máli Áma síðustu vikuna.
„Ég átti ekki von á að menn væm að
stunda þá iðju sem fjölmiðlar hafa lýst að
undanfómu."
Kallar á endurskoðun
Kjartan er þriðji maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi en flokk-
urinn náði tveimur þingmönnum inn í
síðustu kosningum. Kjartan hefur því
setið heima það sem af er kjörtímabil-
inu, fyrir utan stuttan tima síðastliðið
haust þegar hann settist á þing sem
varamaður.
Hann segir þingsetuna fram undan
hafa í fór með sér ýmsar breytingar.
„Þetta ber brátt að en þeir sem gefa kost
á sér á framboðslista verða auðvitað að
vera reiðubúnir að skipta skyndilega
um vinnu. Ég tók þessa ákvörðun á sín-
um tima. Þegar kosningaúrslit lágu hins
vegar fyrir var ljóst að ég var ekki orð-
inn þingmaður og þá ákvað ég halda
áfram fyrra starfi mínu og standa mig á
þeim vettvangi. Breytt staða kallar á
endurskoðun ailra hluta og vissulega
eru miklar breytingar fram undan sem
ég verð að fara yfir með fjölskyldunni
og sjálfum mér,“ segir Kjartan.
Rokkurinn ekki í sárum
Kjartan segir þingstarflð eiga eftir að
mótast og hann sé ekki með málefna-
pakkann í töskunni. „Þingmenn eru
kjömir sem fúlltrúar ákveðinna lands-
hluta og því kannski ekki óeðlilegt að
mál, er varða kjördæmið, séu meira í
brennidepli. Þingmenn verða samt fyrst
og síðast að hugsa um hag þjóðarinnar
því auðvitað er það stjórn landsins í
heild sem vigtar mest á Alþingi,“ segir
Kjartan.
Mál Áma Johnsens hefur vakið upp
hörð viðbrögð meðal þjóðarinnar. Um
fátt annað er talað og virðist engu skipta
hvar í flokki menn standa; afstaðan ein-
kennist af fordæmingu og hneykslan. Er
Sjálfstæðisflokkurinn í sámm eftir þess-
ar hremmingar?
„Ég fæ ekki séð að flokkurinn sem
slíkur sé í sárum. Hér hefur einn ein-
staklingur lent í mikiili ógæfu og sú
ógæfa tengist á engan hátt flokknum né
þeim einstaklingum sem em á þingi fyr-
ir flokkinn. Þetta mál á ekki að þurfa að
skaða flokkinn á nokkum hátt,“ segir
Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks á Suðurlandi. -NH
Fornleifarannsóknir í Reykholti í Borgarfirði:
Rannsaka þúsund ára
mannvistarleifar
DV-MYND DANÍEL
Fornleifarannsóknir í Reykholti
Guörún Sveinbjarnardóttir stýrir hópi sex fornleifafræöinga sem rannsaka
fornminjar í Reykholti í Borgarfiröi.
Sex fomleifafræðingar vinna nú
að rapnsóknum í Reykholti í Borg-
arfirði. Uppgröfturinn, sem er á veg-
um Þjóðminjasafnsins, mun standa
í rúmar sex vikur. „Við erum að
rannsaka gamla bæjarstæðið en þar
stóð bær allt til ársins 1930. Elstu
byggðaleifar sem unnt hefur verið
að timasetja eru frá 10. eða 11. öld,“
segir Guðrún Sveinbjarnardóttir,
sem stjómar fomleifauppgreftinum.
Guðrún segir að mörg bygginga-
skeið hafi verið greind en fyrst hafi
menn komið niður á leifar ganga-
bæjar sem trúlega hefur verið búið
í frá 17. til 19. öld. Undir bænum
fannst niðurgrafið hús, líklega kjall-
Drífa Hjartardóttir:
Formaður flokks-
ins talar fyrir
okkur
„Ég hef verið á fundi í allan morg-
un og vill ekki láta hafa neitt eftir
mér um þetta mál. Formaður flokks-
ins er sá sem talar fyrir okkur vegna
máls Áma Johnsens," sagði Drífa
Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi, í gær þegar
DV leitaði til hennar um viðbrögð
við afsögn Áma Johnsens. -NH
ari, sem gæti verið frá 14. eða 15.
öld.
„Síðastliðið sumar fundum við
mannvistarleifar sem eru frá 10. eða
11. öld og hyggjumst við rannsaka
þær nánar í sumar. Það er ljóst að
íjós og hlaöa voru byggð ofan á þess-
ar leifar upp úr 1930 og því miður
virðast þær byggingar hafa skemmt
minjarnar töluvert."
Guðrún segir vonir standa til að
rannsóknin í Reykholti varpi ljósi á
þróun bæjarhúsa á staðnum og ekki
síst á upphaf byggðar á þessum slóð-
um. Reykholt er ekki landnámsjörð
en Guðrún bendir á að minjar um
notkun hverahita hafi þegar fundist
á staönum. „Við viljum gjarna
skoða það betur auk þess sem til
stendur að rannsaka bæði kirkju-
grunna og kirkjugarðinn hér,“ segir
Guðrún Sveinbjarnardóttir og bætir
við að fornleifarannsóknir í Reyk-
holti muni standa yfir næstu tvö
sumrin.
-DVÓ
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um afgreiðslur borgar-
ráðs Reykjavíkur á auglýstum
deiliskipulagstillögum og tillögu
að breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016.
í samræmi við 3. mgr. 18. gr. og 1. mgr. 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar afgreiðslur
borgarráðs Reykjavíkur á eftirtöldum skipulags-
tillögum:
Gufunes, akstursæfingasvæði deiliskipulag.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 8. maí sl. nýtt
deiliskipulag fyrir akstursæfingasvæði neðan
Gufunesvegar í Gufunesi Grafarvogi. Deili-
skipulagstillagan var auglýst til kynningar frá 7.
febrúar til 7. mars 2001 með athugasemdafresti til 21.
mars. Ein athugasemd barst við tillöguna og voru
gerðar á henni nokkrar breytingar í samræmi við
athugasemdir. Umsögn um athugasemdirnar hefur
verið send athugasemdaaðila og honum tilkynnt um
afgreiðslu borgarráðs. Skipulagsstofnun var sent
deiliskipulagið til skoðunar og gerði stofnunin ekki
athugasemd við aö auglýsing um gildistöku
deiliskipulagsins yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda
(birtist 20. júlí).
Sólvallagötureitur, Sólvallagata, Ánanaust, Holts-
gata, Framnesvegur, svæðið innan þessa gatna.
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 27. mars sl.
deiliskipulag reits sem afmarkast af Sólvallagötu,
Ánanaustum, Holtsgötu og Framnesvegi. Deili-
skipulagstillagan var auglýst til kynningar frá 12.
janúar til 9. febrúar með athugasemdafresti til 23.
febrúar. Athugasemdir bárust frá 2 aðilum. Var
tillagan samþykkt nánast óbreytt að öðru leyti en því
að felld var niður kvöð um spennistöð sem gerð var
athugasemd við. Umsögn um athugasemdirnar hefur
verið send athugasemdaaðilum og þeim tilkynnt um
afgreiðslu borgarráðs. Skipulagsstofnun var sent
deiliskipulagið til skoðunar og gerði stofnunin ekki
athugasemd við að auglýsing um gildistöku þess yrði
birt í B-deild Stjórnartíðinda þegar smávægilegar
lagfæringar hefðu verið gerðar á tillögunni (birtist 20.
júlí).
Gatnamót Vesturlandsvegar, Reynisvatnsvegar
og Víkurvegar, breyting á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 27. mars sl.
breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016
varðandi gatnamót Vesturlandsvegar, Reynisvatns-
vegar og Víkurvegar. Tillagan var auglýst til kynningar
frá 8. desember 2000 til 5. janúar sl. með
athugasemdafresti til 20. janúar. Athugasemdir
bárust frá þremur aðilum. Ekki þótti ástæða til að
taka tillit til athugasemda og var tillagan samþykkt
óbreytt. Umsögn um athugasemdirnar hefur verið
send athugasemdaaðilum og þeim tilkynnt um
afgreiðslu borgarráðs. Umhverfisráðherra staðfesti
breytinguna þann 20. júní sl. og hefur birt auglýsingu
um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Nánari upplýsingar eða gögn um framangreindar
skipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er hægt að
nálgast á skrifstofu Borgarskipulags Reykjavíkur að
Borgartúni 3, Reykjavík.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
Reykjavík, 18. júlí 2001.
Smáauglýsingar
allt fyrir heimilið
550 5000