Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Side 2
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
17
Sport
Öttu kappi í Sydney
Þeir Örn Arnarson og Aaron Peirsol heilsast aö góðum siö íþróttamanna eftir keppninna í 200 m baksundi á Ólymp-
íuleikunum í Sydney. Þar varö Örn eins og kunnugt er fjóröi en Peirsol nældi í silfriö en þessir tveir teljast nú sigur-
stranglegastir í 200 m baksundskeppninni á HM i Japan ásamt Matthew Welsh, sigurvegaranum í gærmorgun. í bak-
grunni sést landi Peirsol, Lenny Krayzelburg, fagna sigri í greininni en hann er ekki meöal þátttakenda í Japan. Úr-
slitin fara fram á föstudagsmorgun. DV-mynd Pjetur
Örn Arnarson náöi sögulegum árangri á HM í sundi í gær:
Hef mín markmið
- en gef þau ekki upp, sagði Örn eftir silfrið í gær
Það var að vonum gott hljóð í
Erni Arnarsyni að keppni lokinni í
Fukuoka í gær. Blaðamaður DV-
Sports slð á þráðinn til hans.
- Fyrst og fremst - hvemig líður
þér?
„Bara ágætlega, þakka þér fyrir,"
segir Öm í léttum tón.
- Hvernig tilfinning var það að
standa á verðlaunapallinum með
peninginn um hálsinn?
„Það var ekki leiðinlegt, ég get
alls ekki kvartað."
- Fannstu fyrir hvatningu frá
áhorfendapöllunum?
„Já, íslenski keppnishópurinn
studdi mig auðvitað vel, sem og
keppendur og áhorfendur frá Norð-
urlöndunum.
- Hversu mikla áherslu hefur þú
lagt á 100 m baksundið á æfingum?
„Litla. Já, þetta er frekar auka-
grein hjá mér. Munurinn á þessum
tveimur greinum, 100 og 200 m
greinunum, er fyrst og fremst sá að
100 m eru „sprettgrein" en hitt er
frekar þolgrein. Enda sást það líka á
því að ég var í 5. sæti eftir fyrstu 50
metrana en náði svo að vinna mig
upp í annað sætið. Ég þurfti bara að
byrja eins hratt og ég mögulega
gæti. En þetta gekk mjög vel að
mínu mati, ég er mjög ánægður með
sjálfan mig þessa stundina."
Orðinn einn af hópnum
- Heldurðu áfram að koma keppi-
nautum þínum á óvart með árangri
þínum?
„Fólk er farið að þekkja mig
meira en það gerði i fyrra. Nú er
maður orðinn eitt af þessu stóru
nöfnum sem eru búin að vera koma
upp síðustu ár. Maður er bara orð-
inn einn af hópnum."
- Hvernig líst þér á keppnina í
200 m baksundi á fimmtudag og
fóstudag?
„Bara mjög vel. Þetta lítur mjög
vel út.“
- Hefur þú sett þér einhver mark-
mið fyrir þá keppni?
„Það kemur bara í ljós, ég gef nú
ekkert upp um það. Ég er auðvitaö
með mín markmið en held þeim fyr-
ir mig í bili. -esá
Bætti eigiö
íslandsmet
- Jakob Jóhann varö í 28. sæti í bringunni
Jakob Jóhann Sveinsson, sund-
maður úr Ægi, keppti í gærmorg-
un í 100 metra bringusundi á
heimsmeistaramótinu í Japan og
bætti Jakob eigið íslandsmet.
Hann kom í mark á tímanum
1:04,41 en sá tími dugði honum að-
eins í 28. sætið.
Fyrra met Jakobs var 1:04,50 og
það setti hann á Smáþjóðaleikun-
um á San Marínó 30. maí sl.
Jakob á síðan eftir að synda 50
og 200 metra bringusund í
vikunni. -Ben
Blcmd í poka
Manchester United er þessa dagana
að ganga frá kaupum á Roy Carroll,
26 ára noröur-irskum markverði sem
leikur með Wigan Athletic í ensku 2.
deildinni, fyrir 2,5 milljónir punda.
Carroll er ætlað að leysa af Hollend-
inginn Raimond van Der Gouw sem
varamaður Fabien Barthez. United
hefur lengi verið á höttunum eftir
varamarkverði og í síðustu viku neit-
aði Þjóðverjinn Robert Enke tilboði
ensku meistaranna. Ekkert slíkt er
hins vegar uppi á teningnum hjá Car-
roll, sem er okkur íslendingum að
góðu kunnur. Carroll færði landsliði
okkar nefnilega sigur gegn Norður-ír-
um í undankeppni HM á silfurfati er
mistök hans undir lokin leiddu til
sigurmarks Þóróar Guójónssonar.
Parma hefur fest kaup á franska
varnarmanninum Martin Djetou
fyrir 6,5 miiljónir punda, 962 milljón-
ir króna. Djetou, sem er 26 ára og hef-
ur alla tíð leikið með Monaco, er
hugsaður sem eftirmaður landa síns
Lilians Thurams sem varð dýrasti
varnarmaður sögunnar á dögunum
er Juventus keypti hann fyrir 3,25
milljarða króna. Nýliðar ensku úr-
valsdeildarinnar, Fulham, höfðu
einnig áhuga á að fá Djetou til liðs
við sig en þátttaka Parma í Evrópu-
keppni á næstu leiktíð gerði
gæfumuninn.
Tyrkneski framherjinn Hakan Suk-
ur, sem leikur með Inter Milan, hef-
ur hafnað tilboði frá enska úrvals-
deildarliðinu Fulham. Sukur vill
frekar reyna aö festa sig i sessi hjá
Inter Milan heldur en ganga til liös
við nýliða Fulham. Tveir landar
hans, Okan Buruk og Emre
Belozoglu, gengu nýverið i raðir Inter
og á það án efa nokkurn þátt í
ákvörðun Sukurs. -Ben/AÁ
Jakob Jóhann Sveinsson á fleygiferö. DV-mynd Pjetur
DV I>V
Síðasta liðið inn í undanúrslit Coca-Cola bikarkeppni karla:
FVIkir áfram
- vann Grindavík í annað skiptið á viku
iBland + i po ka
Dýrasti knattspyrnumaður heims,
Frakkinn Zinedine Zidane, vonast eft-
ir að vinna eina stórmótið sem hann
hefur ekki unnið á ferlinum, meistara-
deild Evrópu, með Real Madrid á
næsta keppnistímabili. Zidane, sem
var keyptur til Real Madrid frá
Juventus í sumar fyrir 6,5 milljarða
króna, hefur veriö einstaklega sigur-
sæll leikmaður en hann tapaði úrslita-
leik meistaradeRdarinnar tvisvar með
Juventus og fyrir það vill hann bæta.
„Ég er kominn hingað til þess að vinna
allt en það mikilvægasta fyrir mig er
að vinna meistaradeild Evrópu. Ég er
yfir mig ánægður með að vera kominn
til Real Madrid, sérstaklega i ljósi þess
að ég fæ tækifæri til að spila með Luis
Figo," sagði Zidane.
Útsendarar frá franska 1. deildar lið-
inu Troyes voru mættir á leik Stabæk
og Bryne í norsku úrvalsdeildinni í
fyrradag til þess að fylgjast með ís-
lenska landsliðsmanninum Pétri
Marteinssyni. Samningur Péturs við
Stabæk rennur út í haust og þá getur
hann farið frítt til hvaða liðs sem er.
Troyes kom mjög á óvart í frönsku 1.
deildinni á síðasta keppnistímabili og
hafnaði í sjöunda sæti. Félagið er
einnig komið í ijórðu umferð Intertoto-
keppninnar eftir að hafa slegið AIK frá
Svíþjóð út um helgina.
Argentínski varnarmaðurinn Jose
Luis Chamot, sem leikið hefur með
AC Milan undanfarin ár, mun að öll-
um líkindum ganga til liðs við Totten-
ham á næstu dögum. Chamot, sem
kemur til með að leysa Sol Campbell
af hólmi, á aðeins eftir að fara í lækn-
isskoðun áður en gengið verður frá
kaupunum. Þar með hefur Glenn
Hoddle, knattspyrnustjóri Tottenham,
keypt fimm leikmenn í sumar. Teddy
Sheringham, Gustavo Poyet, Christi-
an Ziege og Goran Bunjevcevic eru
allir komnir til liðsins frá því að síð-
asta keppnistímabili lauk.
Branislav Trojanovic, eigandi Zvezd-
ara Belgrad í Júgóslavíu, var um síð-
ustu helgi myrtur fyrir framan heimili
sitt. Trojanvic er þriðji eigandi knatt-
spyrnuliðs í Belgrad sem myrtur er á
þremur árum.
Arsenal gekk í gær frá kaupunum á
japanska leikmanninn Junichi Ina-
moto og hann er fimmti leikmaöur-
inn sem Arsenal hefur fengið í sum-
ar. Arsenal borgaði 4 milljónir punda
fyrir kappann.
Þá staðfestir Arsene Wenger það aö
Patrick Vieira muni vera áfram hjá
Arsenal þrátt fyrir að orðrómur sé
um annað. -Ben/AÁ
0-1 Ólafur Stigsson (52.)
1-1 Óli Stefán Flóventsson (53.)
1-2 Gunnar Þór Pétursson (98.)
1-3 Steingrímur Jóhannesson (119.)
Fylkismenn slógu Grindvíkinga úr
Coca-Cola bikarnum í Grindavík í gær-
kvöld með því að sigra þá, 3-1. Leikur-
inn fór í framlengingu en liðin voru jöfn,
1-1, að loknum 90 mínútna leik.
Leikurinn fór ágætlega af stað og það
var mikil breyting á liði heimamanna
frá því í deildarleiknum sl. fimmtudag.
Sinisa Kekic kom inn í liðið eftir meiðsli
og þá voru þeir aftur í byrjunarliðinu
Scott Ramsey og Paul McShane. Það var
augljóst strax í byrjun hve Kekic er mik-
ilvægur liðinu því þó hann léki ekki á
fullum hraða virtist sem hann skapaði
liðinu stöðugleika á miðjunni. Lið Fylk-
ismanna var einnig breytt því Stein-
grímur Jóhannsson var á bekknum og í
hans stað kom Errol Edderson McFar-
land og þá kom Kristinn Tómasson inn í
liðið í stað Péturs Björns Jónssonar.
Stööubarátta á miöjunni
Fylkismenn áttu fyrsta færi leiksins á
8. mínútu þegar Kristinn Tómasson
skaut fram hjá eftir góða rispu Sævars
Þórs og fyrirgjöf frá honum. Kekic átti
síðan skot yfir mark Fylkismanna úr
aukaspymu og á 21. mínútu bjargaði
Kjartan Sturluson vel eftir skalla frá
Grétari Ólafi Hjartarsyni. Eftir þessi
færi tók við mikil stöðubarátta á miðj-
unni þar sem liðin skiptust á að hafa yf-
irhöndina þar til á 39. mínútu þegar
Scott Ramsey átti hörkuskot af löngu
færi sem Kjartan sló yfir markið.
Skömmu fyrir hálfleik átti Scott síðan
fyrirgjöf sem Kjartan sló fram hjá stöng-
inni.
Seinni hálfleikur byrjaði mjög fjör-
lega og hinir tæplega 1000 áhorfendur
þurftu ekki að bíða lengi eftir marki því
Ólafur Stígsson skallaði að marki
Grindavíkur á 52. mínútu af löngu færi
en Albert, sem virtist ekki vera í full-
komnu jafnvægi, sló boltann en ekki
nógu langt. Grindvíkingar voru íljótir að
svara fyrir sig því þeir fóra í sókn og Óli
Stefán Flóventsson skallaði óverjandi
fyrir Kjartan í marki Fylkismanna.
Grétar meiddist
Fjör hljóp í leikinn við mörkin og áttu
bæði liðin góða kaíla. Scott Ramsey átti
skot hárfínt fram hjá marki Fylkis-
manna og Zoran Djuric komst fyrir skot
frá Ólafi Stígssyni. Grétar Hjartarson
átti skalla að marki Fylkismanna sem
Kjartan varði.
Grindvíkingar urðu síðan fyrir áfalli
á 79. mínútu þegar Sinisa Kekic meidd-
ist og þurfti að fara af velli. Við það virt-
ist eins og leikmenn liðsins misstu það
sjálfstraust sem hafði einkennt leik
þeirra fram að því. Leikurinn fiaraði út
og framlenging fram undan. Grétar
Hjartarson meiddist einnig og var skipt
út í byrjun framlengingar þannig að
mesti broddurinn var úr sóknarleik
heimamanna auk þess sem nokkuð var
af Scott Ramsey dregið.
Fylkismenn voru sterkari í fyrri hálf-
leik framlengingarinnar og Ólafur Stígs-
son átti hörkuskot á 98. mínútu sem
hafði viðkomu í varnarmanni Grindvík-
inga, breytti um stefnu og endaði í
markinu án þess að Albert fengi rönd
við reist. Steingrímur Jóhannsson skor-
aði síðan 3. mark Fylkismanna á
lokamínútunni og gulltryggði sigur
Fylkismanna.
Fylkir meö heilsteypt lið og fáir
veikir hlekkir
Fylkismenn halda því áfram í bikar-
keppninni en Grindvíkingar sátu eftir
með sárt ennið eftir góða baráttu. Það
var allt annað að sjá til liðsins eftir síð-
asta leik og nú, þegar þeir eru fallnir úr
bikarnum, geta þeir einbeitt sér að
deildinni.
Fylkismenn voru vel að sigrinum
komnir. Leikur þeirra mjög heilsteyptur
og fáir veikir hlekkir. Þórhallur Dan
stjórnaði vörninni að hætti herforingja
og Ólafur Stígsson var mjög sterkur á
miðjunni. Þeirra sterku hliðar eru vam-
arbarátta og hraðar sóknir þar sem hraði
framlínumanna er mikill. Nýi framlínu-
maðurinn þeirra, Errol McFarland, lofar
góðu og er leikinn með knöttinn.
Er svekktur að hafa tapað
„Mér fannst við betra liðið í 90 mín-
útur en þegar Kekic fór út af urðu smá-
breytingar á liðinu. Það hefði verið
betra að skora á undan en mér fannst
við spila betur í leiknum. Ég er svekkt-
ur að tapa þessum leik en bæði liðin
spiluðu mjög agað og vel. Ég er mjög
ánægður með mína stráka, þeir börðust
vel í leiknum og nú getum við einbeitt
okkur að deildinni," sagði Milan Stefán
Jankovic, þjálfari Grindvíkinga, eftir
leikinn.
Kominn tími til aö fá heimaleik
„Maður er þreyttur eftir svona erfið-
an leik. Þeir voru miklu grimmari núna
heldur en á fimmtudaginn. Við héldum
áfram í leiknum þrátt fyrir að þeir
kæmu strax í bakið á okkur með jöfnun-
armark og í framlengingunni bættum
við bara við. Ég er mjög sáttur við sigur-
inn, það er ekki hægt annað. Ég á enga
sérstaka ósk um framhaldið aðra en þá
að fá heimaleik. Við erum búnir að vera
á útivöllum hingað til,“ sagði Finnur
Kolbeinsson, fyrirliði Fylkismanna, eftir
leikinn.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Fylkis-
manna, var brosmildur eftir leikinn.
„Það er þungu fargi af manni létt. Svona
bikarleikir sem fara í 120 mínútur taka
á en maður verður bara að vera undir-
búinn í það. Þetta var alveg hörkubar-
átta og við sáum það að þetta gat lent
hvoru megin sem var i venjulegum leik-
tíma.
Mér fannst við hins vegar eiga frum-
kvæðið í framlengingunni. Þeir misstu
úr sóknarleiknum þegar þeir misstu
Grétar út og Kekic en þetta var þolin-
mæðisvinna og nú erum við komnir
áfram. Ég á enga sérstaka ósk um fram-
haldið aðra en að fá heimavöll," sagði
hann eftir leikinn. -FÓ
Bland í poka
Kjartan Sturluson, | i.‘rWJl^Si
markvörður Fylkis, hafði I
haldiö hreinu í 404
leikmínútur þegar Óli m m
Stefán Flóventsson skor- R
aði með skalla á 53. mín-
útu í leik liðanna í gær- R* ’
kvöld.
Bjarni Jó- m
hannesson jafnaði í gær-
kvöld met Guöjóns Þórð-
arsonar þegar Guðjón fór
með Skagaliöið í undanúr-
slit fimm tímabil í röö,
1992-1996. Bjarni fór með
ÍBV1 undanúrslit þau þrjú
tímabil sem hann var í
Eyjum og nú með Fylki
bæði timabilin sem hann hefur verið við
stjórnvölinn.
Gunnar Þór Pétursson, Fylki, hefur
skorað 3 mörk i bikarnum í sumar en
ekkert í deildinni. Gunnar skoraði ekk-
ert í fyrra. -ÓÓJ/Ben
Sinisa Kekic, Grindvíkingur, er hér á milli tveggja Fylkismanna, þeirra Kristins Tómassonar og Finns Kolbeinssonar, í leik liðanna í Grindavík í gær. Fylkismenn unnu sigur, 1-3, eftir framlengdan leik og
komust því áfram í undanúrslit ásamt FH, KA og ÍA. Dregið verður í undanúrslitin í hádeginu í dag. DV-mynd E.C
Sport
Sportvörugerðin lif.,
skipholt 5. s. 562 8383.
Blanda og Svartá hafa gefið 466 laxa saman en þeir Hilmar Hansson og
Gestur Gestsson voru á árbakkanum fyrir nokkru og þá veiddi Gestur
maríulaxinn sinn á flugu. DV-mynd FF
Laxá á Ásum:
Ríflega tvö
hundruð laxar
- veiðin gengur rólega í húnvetnsku veiðiánum
Veiðin hefur oft gengið betur en
núna í húnvetnsku laxveiðiánum,
en staðan í gærkvöld var þessi:
Blanda og Svartá voru komnar með
466 laxa saman, Laxá á Ásum hefur
gefið rétt ríflega 200 laxa, sem ekki
er neitt til að hrópa húrra yfir,
Vatnsdalsá hefur gefið um 60 laxa á
aðalsvæðinu, Víðidalsá hefur gefið
220 laxa, Miðfjarðará hefur aðeins
gefið 173 laxa og Hrútafjarðará hefur
gefið um 50 laxa.
Blanda og Svartá eru að taka
„spretti" og standa sig ágætlega. Á
nokkrum dögum hafa veiðst um 150
laxar i Blöndu, en erlendir
veiðimenn eru núna við veiðar. Það
sem vantar á þessu svæði, og jafnvel
víða um land, eru kröftugar göngur
laxa, 100-150 laxa göngur eins og
komu í árnar fyrir nokkrum tugum
ára, en eru orðnar sjaldséðar eins og
hvitir hrafnar.
„Veiðin gengur rólega hjá okkur
en það togast upp laxar - það vantar
meiri göngur og miklu kraftmeiri,
stærsti laxinn er 15 pund, Það hafa
veiðst 220 laxar núna,“ sagði
Theódór Már Sigurjónsson,
leiðsögumaður við Víðidalsá, í gær.
„Síðasta holl sem ég frétti af í ánni
veiddi 6 laxa, en síðan komu flóð og
það var erfitt að veiða, en þetta
hefur allt lagast síðan. Tengdasonur
minn er að veiða og hann fær
örugglega eitthvað af fiski,“ sagði
Sverrir Hermannsson, leigutaki
Hrútafjarðarár, er við spurðum um
stöðuna í ánni.
Sá stærsti 17 punda í
Hrútafjaröará
„Við erum búnir að veiða 10 laxa
hollið og það eru komnir á milli 30
og 40 laxar í ánni núna,
veiðiskapurinn mætti samt ganga
betur,“ sagði Matthías Sveinsson en
hann var við veiðar í Hrútafjarðará í
gær og var að landa laxi skömmu
áður en við heyrðum í honum.
„Ég var að landa laxi í
Ármótunum fyrir nokkrum
mínútum - hann var 7 punda og var
grálúsugur. Stærsti laxinn sem hefur
veiðst hérna í ánni er 17 pund,“
sagði Matthías 1 lokin.
I Hrútafjarðará er aðeins veitt á
flugu eins og reyndar er orðið í
mörgum laxveiðiám landsins,
eitthvað hefur veiðst af bleikju í
Hrútafjarðará og sumar eru vel
vænar. -G.Bender
Sérfræðingar
í fluguveiði
Mælum stangir.
splæsum línur
og setjum upp
aui
gir. i
lur Ja
íslenski handboltinn:
3
Letti til
Grótt u/KR
Lettinn Dainis Tarakanovs
kemur á fimmtudag til reynslu
hjá Gróttu/KR. Miklar líkur eru
taldar á því að Tarakanovs muni
leika með liðinu næsta vetur en
menn vilja skoða kappann áður en
gengið er frá samningi. Sam-
kvæmt upplýsingum sem forráða-
menn Gróttu/KR hafa fengið er
Tarakanovs einn besti leikmaður
landsliðs Lettlands. Hann er 23
ára, 195 cm á hæð og er rétthent-
ur. Tarakanovs spilaði í Króatíu 7
sl. vetur. -Ben