Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Side 6
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 Fréttir JOV FÍB telur naglaskattinn ekki vænlega leið: Hrannar byggir á 15 ára gömlum gögnum „Hrannar B. Amarsson, for- maður heilbrigð- isnefndar Reykja- víkur, er á slæm- um villigötum í málflutningi sin- um þegar hann heldur því fram að ef dísilbílum fjölgi í umferð- inni en bensínbíl- um fækki að sama skapi þá ______ muni svifryks- mengun aukast. Hrannar virðist byggja málflutning sinn á tíu til fimmtán ára gömlum gögnum," seg- ir Stefán Ásgrímsson hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda. Stefán segir að dísilvélar sem framleiddar eru í dag í litla og meö- alstóra fólksbíla séu búnar mjög há- Stefán Ásgrímsson Skattur á örygg- isbúnaö orkar tvímælis. þrýstum samrásarinnsprautun- arbúnaöi - auk breytilegs opn- unartíma ventla. Vélar með þessum búnaði nýti eldsneytið mun betur en eldri gerðir dísil- véla gerðu. Þessu til viðbótar séu nýjar dísilvélar með út- blásturshreinsibúnað sem fjar- lægi 90% sótagna úr útblæstrin- um. Mengun frá þeim sé því sáralítil. „í Danmörku hefur það verið hálfopinber stefna yfirvalda í samgöngumálum að draga sem mest úr kaupum almennings á dísilbílum vegna þess að sótagn- ir í útblæstri þeirra séu krabba- meinsvaldar. Nú hefur umhverfis- ráðherra Dana, Svend Auken, kom- ist á aðra skoðun eftir að hafa kynnt sé málið. Hann er búinn að selja gamla ráðherrabílinn, sem var bensinbíll - og er kominn á dísilbíl, H«libriaM*n«lna btxiwmnu tsiiar Ui4« ul »ð *»«<• Dísilbilar valda meira svifryki en bensínbílar . Ht.innai M- Aruarwon og tullar eftli aagvrAuut ^wnénsuraðuncylh Svlfryk Hrannar B. Arnarsson hélt því fram í DV aö dísilbílar yllu meiri svifryksmengun en bensínbílar. Peugeot 607. Ráðherrann sagði í við- tali við Jyllands-Posten nýlega að hann teldi nýja orkugjafa fyrir bíla, svo sem vetni og rafmagn, í sjón- máli og veröa að veruleika á næsta áratug eða svo. Þangaö til skipti það mestu máli að al- menningur nýtti þá bíla sem minnstu jarðefnaeldsneyti eyddu og minnst menguðu. Það séu einmitt dísilbíiar." Um hugmyndir um nagla- i dekkjaskatt segir Stefán Ás- á grímsson að ávallt orki tvimælis að skattleggja hvers konar ör- yggisbúnað fyrir bíla - nagla- dekk ekkert síður en barnabíl- stóla og öryggisbelti. Þá sé sér- stakur nagladekkjaskattur sem einvörðungu ætti að innheimta í borginni flókinn í framkvæmd. „Reykjavíkurborg getur ekki upp á sitt eindæmi lagt á nýja skatta held- ur þarf til þess sérstakar lagaheim- ildir sem ekki eru til staðar í dag,“ segir Stefán. -sbs. Óku go-kart bílum meö ölvunarakstursgleraugu: Ætlum aldrei að aka undir áhrifum DV. HORNAFIRDI: Ökuleiknin var nýlega haldin á Höfn og hófst með því að um 50 ung- lingar úr vinnuskólanum mættu við íþróttahúsið. Byrjað var á að aka go-kart-bílum með ruglaða sjón, þ.e. með ölvunarakstursgleraugum og svo án þeirra. Eftir þennan saman- burö á akstursgetu og hæfni hlust- uðu unglingarnir á leikþátt um ölv- unarakstur og hvaöa afleiðingar hljótast af slíkum akstri. Athygli þeirra var óskert meðan þátturinn var fluttur og var auðséð að hann haföi mikil áhrif á allan hópinn en þarna var sögð saga íslenskra ung- menna sem lent höfðu í alvarlegum bilslysum vegna áfengisnotkunar og hverjar afleiðingamar hefðu orðiö og hver viðhorf þeirra til lífsins væru í dag. Nær allir unglingamir undirrituðu yfirlýsingu um að þau hefðu tekið þá ákvörðun að aka aldrei undir áhrifum áfengis. Um kvöldið var ökuleikni við íþróttahúsið þar sem fram fór reið- hjólakeppni, go-kart-leikni og öku- leikni. Beltasleðinn og veltibíllinn voru á staðnum og i gangi allt kvöldið en þeir eru sérlega vinsælir hjá krökkunum sem fjölmenntu á staðinn. Þátttaka í keppni var mjög góð, voru keppendur 51 og var áberandi mikil þátttaka kvenna í go-kart og ökuleikni. Sigurvegarar í hjóla- keppni voru Þröstur Þ. Ágústsson í eldri flokki og Baldvin Haraldsson hjá þeim yngri. í go-kart-leikni kvenna sigraði Sig- urborg J. Bjömsdóttir og í karla- flokki Freysteinn Borgþórsson. í öku- leikni kvenna sigraði Sólveig M. Hauksdóttir og Karl Sigurðsson í karlaflokki. Nú þegar hafa 1.447 manns, bæði í vinnuskólafræðslunni og keppnunum þrem, tekið þátt í þessu stærsta umferðarátaki á sumr- inu sem Sjóvá-Almennar og Bindind- isfélag ökumanna halda í samstarfi DV-MYND JÚLÍA IMSLAND. Ógeðslega gaman. Biöröö var allt kvöldiö eftir aö komast í veltibílinn og sagöi einn afyngri far- þegum bílsins aö þetta væri alveg „ógeöslega gaman". við Rás 2, Heklu, Umferðarráð, Flytj- anda og Skeljung. Úrslitakeppnin verður 25. ágúst við Kringluna 5 í Reykjavík -JI Veðurspáin fyrir ágúst: Hitamet jafnvel slegið - besta veðriö fyrir norðan seinni part verslunarmannahelgar DV. DALVlKr Júlíspáin gekk ágætlega eftir á köflum, segja félagar í Veðurklúbbi Dalbæjar á Dalvík. Félögum líst ekki alveg á að bæði tunglið og hundadagamir sviku, sem kallað er. Hann tók tunglinu vel fyrstu tvo dagana og sama var með hundadag- ana sem áttu að lofa góðu en svo breytti hann um og sveik og oftast boðar það ekki gott. Eins og kom fram í síðustu spá bjóst einn félag- inn við þoku og svölu eitthvað áfram og það má segja aö hann hafi nú komist næst því sem rétt var. Mikil skoðanaskipti urðu um ágústspána og skiptust menn i tvo ef ekki þrjá hópa. „Kannski var þetta vegna þess að ýmis veðurtákn voru að stríða okk- ur og hlýddu ekki sem skyldi. En flestir eru svona hæfilega bjartsýnir og aðrir bjuggust við svipuðu og verið hefur. Sæmilegt með góðum dögum á milli, það er helst að menn séu ekki sáttir við þennan loftkulda og meðan að svo er þá sé kannski ekki hægt að búast viö miklu,“ segja félagarnir í Dalbæ. DALBÆR Bjartsýnlr veðurspámenn Félagar í veöurklúbbnum á Dalvík gera ráö fyrir því aö ágústmánuöur veröi góöur og strax upp úr helgi hlýni í veöri meö suölægum áttum. En niðurstaðan er þessi: „Þeir bjartsýnustu búast við því að það fari að hlýna eitthvaö meira og verði jafnara og betra veöur upp úr 4. ágúst á fullu tungli og að við för- um þá að fá suðlægar áttir. Sem þýðir aö seinni hluta verslunar- mannahelgarinnar verði besta veör- ið á Norðurlandi. Annars verður veðrið frekar köflótt en með mjög góðum dögum inn á milli og klúbb- félagar eru nokkuö vissir um að það komi tveggja til fjögurra daga kafli þar sem jafnvel verða slegin hita- met, alla vega verði mjög hlýtt og gott, aftur á móti koma lika dagar í mánuðinum þar sem hann veröur mjög kaldur. Veðrið þann 11. ágúst, á „fiskidaginn mikla", verður gott. Nýtt tungl kviknar i NNA þann 19. ágúst og voru menn hugsi yfir því tungli á fundinum en vonandi tekur hann því vel og svíkur ekki. Klúbbfélagar trúa því ekki að kall- inn í tunglinu svíki tvisvar í röð og búast við að seinni hluti ágústmán- aðar verði góður. Bjart veður á Lárentíusarmessu 10. ágúst boðar oft hvassviðri og veit á kaldan eða votan vetur, sól- skin á Maríumessu fyrri, 15. ágúst, boðar sólskin fram undan. Höfuð- dagur 29. ágúst ræður mjög miklu í trú margra á veður, breytir þá vana- lega um veður og helst eins næstu 20 daga. -hiá Umsjon: Birgir Guðmundsson Árni og írafárið í pottinum hafa menn verið að skoða auglýsingar um þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og það hefur ekki farið fram, hjá þeim að þar | er Árni John- sen auglýstur i I brekkusöngnum. Raunar _er sagt j að Árni og Birgitta muni sjá I um að halda I uppi söngstuði i og mun hér átt við söngkonuna góðkunnu úr hljómsveitinni íra- fári, Birgittu Haukdal. Þykir mörgum sem hér sé á ferðinni merkileg tilviljun, í fyrsta lagi að söngkonan sem syngur með Árna syngi venjulega með írafári og í öðru lagi að hún skuli bera eftir- nafnið Haukdal, eins og hinn forni fjandvinur Árna úr pólitíkinni, Eggert Haukdal, sem lika hefur átt í nokkrum samskiptum við landslög og rétt... í fótspor feðranna Fréttir af veðri á sjónvarpsstöð- inni Popptíví hafa vakið nokkra at- hygli upp á síðkastið en þar flytur ung stúlka, Margrét Hild- | ur Guðmunds- dóttir, veður- I fréttimar klædd eftir spá morg- undagsins. í við- tali í íslandi í dag á Stöð 2, sagði Margrét Hildur, sem er dóttir Guðmundar Árna Stefánssonar alþingis- manns, spurð hvemig föður henn- ar litist á tiltækið, að hann hefði í fyrstu verið því mótfallinn en síð- ar sá hann að þetta var stórt tæki- færi fyrir hana. Menn velta nú fyr- ir sér hvort þetta sé upphafið að því að Margrét sé á leið í stjóm- málin - rétt eins og pabbi.... Jarðakaup í Svarfaðardal Ekkert lát virðist ætla að verða á jarðakaupum frægra Reykvík- inga. Helgi Valdimarsson, læknir í Reykjavík, og, Guðrún Agn- arsdóttir, fyrr- um forsetafram- bjóðandi, munu nú hafa fest kaup á jörðinni Gröf í Svarfaðar- dal af landbúnað- arráðuneytinu. Jörðin var boðin út og fékkst hún fyrir 8 milijónir en Sigurður M. Kristjánsson á Brautarhóli og frændi Helga átti hæsta tilboðið, 8,5 milljónir en féll síðan frá því enda maður við aldur. í pottinum er hvíslað að ýmsir heimamenn séu hugsi yfir þróuninni enda munu bændur á svæðinu hafa boö- ið í jörðina í því skyni að nýta hana en ekki fengið. Ekki er að efa að þau Guðrún og Helgi uni sér vel í Svarfaðardalnum en þar á margt frægra manna sér athvarf, s.s. Þór- arinn Eldjárn og annað Tjarnar- fólk, og þau Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri og Helga Bryndis Magnúsdóttir pi- anóleikari búa þar, svo einhverjir séu nefndir... valgerdur.is Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytin gefa út fréttabréf og er ekki nema gott eitt um það að segja. Þó væri réttara, ef skoð- "— r & að er nýjasta bréf ráðuneyt- anna, að kalla það fréttabréf iðnaðar- og við- skiptaráðherra. Bréfið er 8 síður og í þvíeru hvorki fleiri né færri en 7 mynd- ir af ráðherranum og að sjálfsögðu bæöi á forsíöu og baksíðu. í fréttabréfinu góða er meðal annars bent á heimasíðu ráðherrans, valgerdur. is, auk þess sem áherslur hans eru tíundaðar...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.