Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001
Fréttir
JOV
FÍB telur naglaskattinn ekki vænlega leið:
Hrannar byggir á 15
ára gömlum gögnum
„Hrannar B.
Amarsson, for-
maður heilbrigð-
isnefndar Reykja-
víkur, er á slæm-
um villigötum í
málflutningi sin-
um þegar hann
heldur því fram
að ef dísilbílum
fjölgi í umferð-
inni en bensínbíl-
um fækki að
sama skapi þá ______
muni svifryks-
mengun aukast. Hrannar virðist
byggja málflutning sinn á tíu til
fimmtán ára gömlum gögnum," seg-
ir Stefán Ásgrímsson hjá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda.
Stefán segir að dísilvélar sem
framleiddar eru í dag í litla og meö-
alstóra fólksbíla séu búnar mjög há-
Stefán
Ásgrímsson
Skattur á örygg-
isbúnaö orkar
tvímælis.
þrýstum samrásarinnsprautun-
arbúnaöi - auk breytilegs opn-
unartíma ventla. Vélar með
þessum búnaði nýti eldsneytið
mun betur en eldri gerðir dísil-
véla gerðu. Þessu til viðbótar
séu nýjar dísilvélar með út-
blásturshreinsibúnað sem fjar-
lægi 90% sótagna úr útblæstrin-
um. Mengun frá þeim sé því
sáralítil.
„í Danmörku hefur það verið
hálfopinber stefna yfirvalda í
samgöngumálum að draga sem
mest úr kaupum almennings á
dísilbílum vegna þess að sótagn-
ir í útblæstri þeirra séu krabba-
meinsvaldar. Nú hefur umhverfis-
ráðherra Dana, Svend Auken, kom-
ist á aðra skoðun eftir að hafa kynnt
sé málið. Hann er búinn að selja
gamla ráðherrabílinn, sem var
bensinbíll - og er kominn á dísilbíl,
H«libriaM*n«lna btxiwmnu tsiiar Ui4« ul »ð *»«<•
Dísilbilar valda meira
svifryki en bensínbílar
. Ht.innai M- Aruarwon og tullar eftli aagvrAuut ^wnénsuraðuncylh
Svlfryk
Hrannar B. Arnarsson hélt því fram í
DV aö dísilbílar yllu meiri
svifryksmengun en bensínbílar.
Peugeot 607. Ráðherrann sagði í við-
tali við Jyllands-Posten nýlega að
hann teldi nýja orkugjafa fyrir bíla,
svo sem vetni og rafmagn, í sjón-
máli og veröa að veruleika á
næsta áratug eða svo. Þangaö til
skipti það mestu máli að al-
menningur nýtti þá bíla sem
minnstu jarðefnaeldsneyti eyddu
og minnst menguðu. Það séu
einmitt dísilbíiar."
Um hugmyndir um nagla-
i dekkjaskatt segir Stefán Ás-
á grímsson að ávallt orki tvimælis
að skattleggja hvers konar ör-
yggisbúnað fyrir bíla - nagla-
dekk ekkert síður en barnabíl-
stóla og öryggisbelti. Þá sé sér-
stakur nagladekkjaskattur sem
einvörðungu ætti að innheimta í
borginni flókinn í framkvæmd.
„Reykjavíkurborg getur ekki upp á
sitt eindæmi lagt á nýja skatta held-
ur þarf til þess sérstakar lagaheim-
ildir sem ekki eru til staðar í dag,“
segir Stefán. -sbs.
Óku go-kart bílum meö ölvunarakstursgleraugu:
Ætlum aldrei að aka undir áhrifum
DV. HORNAFIRDI:
Ökuleiknin var nýlega haldin á
Höfn og hófst með því að um 50 ung-
lingar úr vinnuskólanum mættu við
íþróttahúsið. Byrjað var á að aka
go-kart-bílum með ruglaða sjón, þ.e.
með ölvunarakstursgleraugum og
svo án þeirra. Eftir þennan saman-
burö á akstursgetu og hæfni hlust-
uðu unglingarnir á leikþátt um ölv-
unarakstur og hvaöa afleiðingar
hljótast af slíkum akstri. Athygli
þeirra var óskert meðan þátturinn
var fluttur og var auðséð að hann
haföi mikil áhrif á allan hópinn en
þarna var sögð saga íslenskra ung-
menna sem lent höfðu í alvarlegum
bilslysum vegna áfengisnotkunar og
hverjar afleiðingamar hefðu orðiö
og hver viðhorf þeirra til lífsins
væru í dag. Nær allir unglingamir
undirrituðu yfirlýsingu um að þau
hefðu tekið þá ákvörðun að aka
aldrei undir áhrifum áfengis.
Um kvöldið var ökuleikni við
íþróttahúsið þar sem fram fór reið-
hjólakeppni, go-kart-leikni og öku-
leikni. Beltasleðinn og veltibíllinn
voru á staðnum og i gangi allt
kvöldið en þeir eru sérlega vinsælir
hjá krökkunum sem fjölmenntu á
staðinn.
Þátttaka í keppni var mjög góð,
voru keppendur 51 og var áberandi
mikil þátttaka kvenna í go-kart og
ökuleikni. Sigurvegarar í hjóla-
keppni voru Þröstur Þ. Ágústsson í
eldri flokki og Baldvin Haraldsson
hjá þeim yngri.
í go-kart-leikni kvenna sigraði Sig-
urborg J. Bjömsdóttir og í karla-
flokki Freysteinn Borgþórsson. í öku-
leikni kvenna sigraði Sólveig M.
Hauksdóttir og Karl Sigurðsson í
karlaflokki. Nú þegar hafa 1.447
manns, bæði í vinnuskólafræðslunni
og keppnunum þrem, tekið þátt í
þessu stærsta umferðarátaki á sumr-
inu sem Sjóvá-Almennar og Bindind-
isfélag ökumanna halda í samstarfi
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND.
Ógeðslega gaman.
Biöröö var allt kvöldiö eftir aö komast í veltibílinn og sagöi einn afyngri far-
þegum bílsins aö þetta væri alveg „ógeöslega gaman".
við Rás 2, Heklu, Umferðarráð, Flytj-
anda og Skeljung. Úrslitakeppnin
verður 25. ágúst við Kringluna 5 í
Reykjavík -JI
Veðurspáin fyrir ágúst:
Hitamet jafnvel slegið
- besta veðriö fyrir norðan seinni part verslunarmannahelgar
DV. DALVlKr
Júlíspáin gekk ágætlega eftir á
köflum, segja félagar í Veðurklúbbi
Dalbæjar á Dalvík. Félögum líst
ekki alveg á að bæði tunglið og
hundadagamir sviku, sem kallað er.
Hann tók tunglinu vel fyrstu tvo
dagana og sama var með hundadag-
ana sem áttu að lofa góðu en svo
breytti hann um og sveik og oftast
boðar það ekki gott. Eins og kom
fram í síðustu spá bjóst einn félag-
inn við þoku og svölu eitthvað
áfram og það má segja aö hann hafi
nú komist næst því sem rétt var.
Mikil skoðanaskipti urðu um
ágústspána og skiptust menn i tvo
ef ekki þrjá hópa.
„Kannski var þetta vegna þess að
ýmis veðurtákn voru að stríða okk-
ur og hlýddu ekki sem skyldi. En
flestir eru svona hæfilega bjartsýnir
og aðrir bjuggust við svipuðu og
verið hefur. Sæmilegt með góðum
dögum á milli, það er helst að menn
séu ekki sáttir við þennan loftkulda
og meðan að svo er þá sé kannski
ekki hægt að búast viö miklu,“ segja
félagarnir í Dalbæ.
DALBÆR
Bjartsýnlr veðurspámenn
Félagar í veöurklúbbnum á Dalvík gera ráö fyrir því aö ágústmánuöur veröi
góöur og strax upp úr helgi hlýni í veöri meö suölægum áttum.
En niðurstaðan er þessi: „Þeir
bjartsýnustu búast við því að það
fari að hlýna eitthvaö meira og
verði jafnara og betra veöur upp úr
4. ágúst á fullu tungli og að við för-
um þá að fá suðlægar áttir. Sem
þýðir aö seinni hluta verslunar-
mannahelgarinnar verði besta veör-
ið á Norðurlandi. Annars verður
veðrið frekar köflótt en með mjög
góðum dögum inn á milli og klúbb-
félagar eru nokkuö vissir um að það
komi tveggja til fjögurra daga kafli
þar sem jafnvel verða slegin hita-
met, alla vega verði mjög hlýtt og
gott, aftur á móti koma lika dagar í
mánuðinum þar sem hann veröur
mjög kaldur. Veðrið þann 11. ágúst,
á „fiskidaginn mikla", verður gott.
Nýtt tungl kviknar i NNA þann
19. ágúst og voru menn hugsi yfir
því tungli á fundinum en vonandi
tekur hann því vel og svíkur ekki.
Klúbbfélagar trúa því ekki að kall-
inn í tunglinu svíki tvisvar í röð og
búast við að seinni hluti ágústmán-
aðar verði góður.
Bjart veður á Lárentíusarmessu
10. ágúst boðar oft hvassviðri og
veit á kaldan eða votan vetur, sól-
skin á Maríumessu fyrri, 15. ágúst,
boðar sólskin fram undan. Höfuð-
dagur 29. ágúst ræður mjög miklu í
trú margra á veður, breytir þá vana-
lega um veður og helst eins næstu
20 daga.
-hiá
Umsjon: Birgir Guðmundsson
Árni og írafárið
í pottinum hafa menn verið að
skoða auglýsingar um þjóðhátíðina
í Vestmannaeyjum og það hefur
ekki farið fram,
hjá þeim að þar |
er Árni John-
sen auglýstur i I
brekkusöngnum.
Raunar _er sagt j
að Árni og
Birgitta muni sjá I
um að halda I
uppi söngstuði i
og mun hér átt við söngkonuna
góðkunnu úr hljómsveitinni íra-
fári, Birgittu Haukdal. Þykir
mörgum sem hér sé á ferðinni
merkileg tilviljun, í fyrsta lagi að
söngkonan sem syngur með Árna
syngi venjulega með írafári og í
öðru lagi að hún skuli bera eftir-
nafnið Haukdal, eins og hinn forni
fjandvinur Árna úr pólitíkinni,
Eggert Haukdal, sem lika hefur
átt í nokkrum samskiptum við
landslög og rétt...
í fótspor feðranna
Fréttir af veðri á sjónvarpsstöð-
inni Popptíví hafa vakið nokkra at-
hygli upp á síðkastið en þar flytur
ung stúlka,
Margrét Hild-
| ur Guðmunds-
dóttir, veður-
I fréttimar klædd
eftir spá morg-
undagsins. í við-
tali í íslandi í
dag á Stöð 2,
sagði Margrét
Hildur, sem er dóttir Guðmundar
Árna Stefánssonar alþingis-
manns, spurð hvemig föður henn-
ar litist á tiltækið, að hann hefði í
fyrstu verið því mótfallinn en síð-
ar sá hann að þetta var stórt tæki-
færi fyrir hana. Menn velta nú fyr-
ir sér hvort þetta sé upphafið að
því að Margrét sé á leið í stjóm-
málin - rétt eins og pabbi....
Jarðakaup í Svarfaðardal
Ekkert lát virðist ætla að verða
á jarðakaupum frægra Reykvík-
inga. Helgi Valdimarsson, læknir
í Reykjavík, og,
Guðrún Agn-
arsdóttir, fyrr-
um forsetafram-
bjóðandi, munu
nú hafa fest
kaup á jörðinni
Gröf í Svarfaðar-
dal af landbúnað-
arráðuneytinu.
Jörðin var boðin út og fékkst hún
fyrir 8 milijónir en Sigurður M.
Kristjánsson á Brautarhóli og
frændi Helga átti hæsta tilboðið,
8,5 milljónir en féll síðan frá því
enda maður við aldur. í pottinum
er hvíslað að ýmsir heimamenn
séu hugsi yfir þróuninni enda
munu bændur á svæðinu hafa boö-
ið í jörðina í því skyni að nýta
hana en ekki fengið. Ekki er að efa
að þau Guðrún og Helgi uni sér vel
í Svarfaðardalnum en þar á margt
frægra manna sér athvarf, s.s. Þór-
arinn Eldjárn og annað Tjarnar-
fólk, og þau Guðmundur Óli
Gunnarsson hljómsveitarstjóri og
Helga Bryndis Magnúsdóttir pi-
anóleikari búa þar, svo einhverjir
séu nefndir...
valgerdur.is
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytin
gefa út fréttabréf og er ekki nema
gott eitt um það að segja. Þó væri
réttara, ef skoð-
"—
r
&
að er nýjasta
bréf ráðuneyt-
anna, að kalla
það fréttabréf
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Bréfið er 8 síður
og í þvíeru
hvorki fleiri né
færri en 7 mynd-
ir af ráðherranum og að sjálfsögðu
bæöi á forsíöu og baksíðu. í
fréttabréfinu góða er meðal annars
bent á heimasíðu ráðherrans,
valgerdur. is, auk þess sem
áherslur hans eru tíundaðar...