Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Side 24
28
________FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001
Tilvera DV
lí f iö
Kirkjuaríur í
Hallgrímskirkju
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
stórtenór og Guðmundur Sigurðs-
son organisti halda hádegistón-
leika í Hallgrímskirkju fimmtu-
daginn 2. ágúst kl. 12.00-12.30. Á
efnisskránni eru nokkrar af fræg-
ustu kirkjuaríum tónbókmennt-
anna, m.a. Ave Maria eftir
Bach/Gounod, Pietá, Signore eftir
Stradella og Agnus Dei eftir Bizet.
Opnanir
MAX COLE I i8
Myndlistarkonan IVlax Cole opnar í
dag sýningu á verkum sínum í i8
gallerí. Max Cole (fædd 1937)
stundaöi nám viö háskólann í
Arizona og við Ft.-Hays State-háskól-
ann í Bandaríkjunum. Hún er löngu
orðin heimsþekkt fyrir verk sín sem
byggjast á iáréttum línum sem
myndaðar eru með smágerðum lóð-
réttum hreyfingum. Samspil láréttra
forma of einsleitra litaflata mynda
taktfastan samhljóm sem er ein-
kennandi fyrir verk hennar í gegnum
tiöina, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu. Sýningin stendur til 15.
september.
THOMAS RUPPEL í i8
I dag opnar Thomas Ruppel
sýningu á verkum sínum í Neðra
rými I8gallerí. Thomas er fæddur í
Ebingen, Baden-Wurttemberg árið
1960. Hann stundaði nám í málun
og grafík við Staatliche Akademie
der Bildende Kunste. Thomas hlaut
Felix Hollenberg verölaunin áriö
1997. Hann hefur haldið
einksýningar og tekið þátt í
samsýningum í Þýskalandi sem
öðrum löndum frá árinu 1999. Auk
þess hefur hann unnið við kennslu
og rekið grafíkverkstæöi þar sem
hann býr og vinnur í Stuttgart.
Djass
TUBORGDJASS I DEIGLUNNI
Píanódúó sem skipaður er þeim
Gunnari Gunnarssynl á píanó og
Tómasl R. Einarssynl á kontrabassa
leikur á sjötta Tuborgdjassi í
Deiglunni á Akureyri í kvöld klukkan
21.30. Efnisskráin er óvenju
fjölbreytt af djassprógrammi aö
vera; þar er lög klassískra
djasshöfunda, latíndansar, norrænar
vísur í djassbúningi og íslensk
tónlist, m.a. lög eftir þá Magnús
Eiríksson og Magnús Blöndal
Jóhannsson.
Sýningar
ÍSLAND 1951 Aefri hæð..... ~
Hafnarborgar stendur nú yfir sýning
á Ijósmyndum sem teknar voru af
Hans Malmberg í kringum 1950.
Sýningin nefnist ísland 1951 og er
hún í samvinnu við Þjóðminjasafn
Islands. Sýningin er opin alla virka
daga nema þriðjudaga og lýkur þann
27. ágúst næstkomandi.
SKOTSKÍFUR í SVERRISAL
HAFNARBORGAR
I Sverrlsal Hafnarborgar er sýning á
skotskífum frá Det Kongelige
Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Alls eru sýndar
um 15 skotskífur frá árunum 1787
til 1928 með íslensku myndefni
eða frá íslenskum félögum
skotfélagsins. Sýningin er í
samvinnu við Þjóðminjasafn íslands
og er opin alla daga nema
þriðjudaga. Henni lýkur 6. ágúst.
UÓSMYNDASÝNING GRUNNSKÓLA-
NEMA sem í vetur hafa unnið undir
handleiöslu Marteins Sigurgeirs-
sonar í Geröubergl, er opin virka
daga frá 12 til 17. og lýkur 17.8.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísl.ls
Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður rær fyrir vestan:
Tekur skakið
fram yfir laxveiðar
„Við vorum út af Kögrinu og Hæla-
víkurbjarginu og það var bongóblíða
um allan sjó. Það er ekkert sem er fall-
egra en að vera á sjó i svona veðri,
þegar himinn og haf renna saman i
eitt og björgin standa á haus í spegil-
sléttum sjónurn," sagði Guðjón Arnar
Kristjánsson alþingismaður klukkan
flmm í morgun þar sem hann var að
koma úr róðri á handfærabátnum
Pétri halta ÍS frá ísafirði. Guðjón rær
með Kristjáni Andra syni sínum á
bátnum sem þeir gera saman út.
„Það er mjög gott fyrir þingmenn að
taka þátt í hinum raunverulegu störf-
um sem fólk er að sýsla við í landinu
og finna hvernig þjóðarpúlsinn slær.
Án þess eru þingmenn fljótir að tapa
tengslum við raunveruleikann," segir
hann.
Guðjón Amar, eða Addi Kitta Gau
eins og hann er einatt kallaður vestra,
var um árabil einn af fengsælustu tog-
araskipstjórum á íslandsmiðum og
hefur stundað sjó frá bamsaldri og
getur ekki slitið sig frá honum þrátt
fyrir aö hafa reynt ýmislegt í vondum
veðmm á Vestijarðamiðum á löngum
ferli.
„Sumir hafa áhuga á laxveiðum og
stunda þær stíft en mér finnst miklu
skemmtilegra að eltast við þorsk auk
þess sem það gefur tekjur í þjóðarbúið
og svo er líka nauðsynlegt fyrir alla
sem hafa áhuga á lífríki sjávar að vera
í tengslum við sjóinn með beinum
hætti. Það væri ekki verra fyrir þá
sem starfa við það að fara stöku sinn-
um á sjó. Það er til dæmis ekkert æti
í þessum fiski utan stöku sandsíli.
Þessi fiskur er að éta sjálfan sig,“ seg-
ir Guðjón kátur á bryggjunni í gamla
sjógallanum þar sem þeir feðgar eru
að landa liðlega þremur tonnum af
þorski.
Þrátt fyrir langan skipstjórnarferil
á stærstu skipum og mikla aflasæld er
Guðjón nú háseti með Kristjáni Andra
á trillunni þeirra. „Nú er ég bara há-
seti og þarf ekkert að spá í veður eða
hvenær er fariö og þetta hefur gengið
mjög vel.“
Óvenjulegt nafn bátsins Péturs
halta vekur athygli en þeir feðgar
segja nafnið hafa fylgt bátnum þegar
hann var keyptur frá Súðavik en til
standi að breyta því og eru þeir sam-
mála um að fmna verði virðulegt nafn
á bátinn. „Allir bátar verða að heita
sterkum og virðulegum nöfnum. Við
erum að velta fyrir okkur að skíra
hann Kristján Ragnarsson eftir LÍÚ-
foringjanum," segja þeir feðgar og
hafa gaman af.
1 ÁM 1
1 j
I morgun
Feögar á fiskibát
Guöjón Arnar Kristinsson og Kristján Andri sonur hans ianda liölega
þremur tonnum af þorski klukkan fimm í morgun.
Bíógagnrýrtí
Þingmaðurlnn
Guöjón Arnar Kristinsson alþingismaöur um borö í Pétri
halta í ísafjaröarhöfn í morgunsáriö.
Sambíóin - Brother ★ ★
Blóðbað í Los Angeles
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Japanskur Yakuzi í Los Angeles
(Beat) Takeshi Kitano i hlutverki stríösmannsins Yamamoto sem neyðist til
aö yfirgefa fööurlandiö.
Sjálfsagt eru mestu stríðsmenn
glæpafokka þeir sem vita að þeir
munu einhvern tímann verða
drepnir og lengja liflð með því að
drepa aðra. Þannig maður er
Yakamoto (Beat Takeshi), japansk-
ur atvinnumorðingi og meðlimur í
stórum glæpasamtökum í Tokyo
sem dag einn gengur of langt og er
eftir það ekki líft í heimalandi sínu.
Yakamoto flýr til Los Angeles þar
sem hann á hálfbróður sem selur
eiturlyf á götuhornum. Yakamoto
þekkir ekkert annað en vald
byssunnar og byrjar að hreinsa til í
kringum bróður sinn og félaga hans
þegar þeim er ógnað. Athafnasemi
hans gerir það að verkum að áður
en langt um líður er hann í forsvari
fyrir glæpagengi sem með aðgerð-
um sínum ógnar tilveru annarra
glæpagengja og Yamamoto er ekkert
á þeim buxunum að semja við aðra.
En þegar hann ætlar að takast á við
mafíuna gerir hann sér grein fyrir
þvi að hann hefur gengið of langt.
Japanski leikstjórinn Takeshi
Kitano, sem einnig skrifar handrit-
ið og leikur aðalhlutverkið (kallar
sig að Beat Takeshi þegar hann er í
hlutverki leikarans), kemur sjálf-
sagt mörgum á óvart í sinni fyrstu
kvikmynd sem hann gerir utan Jap-
ans. Þekktustu kvikmyndir hans
utan heimalandsins eru Hana-bi
(Gullljónið í Feneyjum) og Kikujiro
sem lítið eiga sameiginlegt með
Brother. Þær eru þó aðeins tvær af
níu kvikmyndum sem Kituno hefur
leikstýrt og eiga fyrri kvikmyndir
hans, sem ekki hafa náð sömu hylli
á Vesturlöndum, meira sameigin-
legt með Brother sem er í anda
Hong Kong-mynda John Woos.
Brother nær þó aldrei vestrænu
yfirbragði, hún á meira sameigin-
legt með japanskri kvikmyndahefð.
Fyrst og fremst vegna þess að áber-
andi er að í myndinni eru ýmsar
hefðir sem aðeins þekkjast í Austur-
löndum fjær þó svo að myndin ger-
ist i Los Angeles. Svo er að megninu
til töluð japanska. Látið er að því
liggja að hinn kaldrifjaði Yakamoto
tali aðeins japönsku. Hann lætur þó
út úr sér eina setningu á ensku og
eina á spænsku þannig að hann er
aðeins að styrkja stöðu sína með því
að þykjast ekki skilja neitt.
Söguþráðurinn sjálfur er ekki
ýkja merkilegur. Upprisa og fall
glæpagengja er býsna algengt við-
fangsefni og Brother bætir ekki
neinu við á þeim vettvangi og satt
best að segja hafa mun betri mynd-
ir verið gerðar i þessum flokki. Það
sem Brother hefur við sig er að vel
er haldið á spöðunum í því flókna
kerfi sem myndast þegar jafn ólíkir
glæpamenn og japanskir Yakuzar
með sínar ströngu hefðir og svartir
götusalar fara að starfa saman. Tor-
tryggnin er mikil sem byggist fyrst
og fremst á skilningsleysi og þá er
stutt í þráðinn af beggja hálfu. Þá
eru hin mörgu ofbeldisatriði það
hröð að áður en maður veit af ligg-
ur fjöldi manns í blóði sinu og dreg-
ur það nokkuð úr neikvæðum áhrif-
um.
Eftir stendur að Takeshi Kitanu
er meiri kvikmyndagerðarmaður en
svo að hann eigi að eyða kröftum
sínum í blóðugar ofbeldismyndir,
nóg er af slíkum myndum gerðum
af minni spámönnum.
Leikstjóri og handritshöfundur: Takeshi
Kituno. Kvikmyndtaka: Katsumi Yanakis-
hima. Tónllst: Jo Hisaishi. Aóalhlutverk:
Beat Takeshi, Omar Epps, Kouruto Maki,
Masaya Kato og Susumu Terajima.