Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Page 24
28 ________FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 Tilvera DV lí f iö Kirkjuaríur í Hallgrímskirkju Jóhann Friðgeir Valdimarsson stórtenór og Guðmundur Sigurðs- son organisti halda hádegistón- leika í Hallgrímskirkju fimmtu- daginn 2. ágúst kl. 12.00-12.30. Á efnisskránni eru nokkrar af fræg- ustu kirkjuaríum tónbókmennt- anna, m.a. Ave Maria eftir Bach/Gounod, Pietá, Signore eftir Stradella og Agnus Dei eftir Bizet. Opnanir MAX COLE I i8 Myndlistarkonan IVlax Cole opnar í dag sýningu á verkum sínum í i8 gallerí. Max Cole (fædd 1937) stundaöi nám viö háskólann í Arizona og við Ft.-Hays State-háskól- ann í Bandaríkjunum. Hún er löngu orðin heimsþekkt fyrir verk sín sem byggjast á iáréttum línum sem myndaðar eru með smágerðum lóð- réttum hreyfingum. Samspil láréttra forma of einsleitra litaflata mynda taktfastan samhljóm sem er ein- kennandi fyrir verk hennar í gegnum tiöina, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Sýningin stendur til 15. september. THOMAS RUPPEL í i8 I dag opnar Thomas Ruppel sýningu á verkum sínum í Neðra rými I8gallerí. Thomas er fæddur í Ebingen, Baden-Wurttemberg árið 1960. Hann stundaði nám í málun og grafík við Staatliche Akademie der Bildende Kunste. Thomas hlaut Felix Hollenberg verölaunin áriö 1997. Hann hefur haldið einksýningar og tekið þátt í samsýningum í Þýskalandi sem öðrum löndum frá árinu 1999. Auk þess hefur hann unnið við kennslu og rekið grafíkverkstæöi þar sem hann býr og vinnur í Stuttgart. Djass TUBORGDJASS I DEIGLUNNI Píanódúó sem skipaður er þeim Gunnari Gunnarssynl á píanó og Tómasl R. Einarssynl á kontrabassa leikur á sjötta Tuborgdjassi í Deiglunni á Akureyri í kvöld klukkan 21.30. Efnisskráin er óvenju fjölbreytt af djassprógrammi aö vera; þar er lög klassískra djasshöfunda, latíndansar, norrænar vísur í djassbúningi og íslensk tónlist, m.a. lög eftir þá Magnús Eiríksson og Magnús Blöndal Jóhannsson. Sýningar ÍSLAND 1951 Aefri hæð..... ~ Hafnarborgar stendur nú yfir sýning á Ijósmyndum sem teknar voru af Hans Malmberg í kringum 1950. Sýningin nefnist ísland 1951 og er hún í samvinnu við Þjóðminjasafn Islands. Sýningin er opin alla virka daga nema þriðjudaga og lýkur þann 27. ágúst næstkomandi. SKOTSKÍFUR í SVERRISAL HAFNARBORGAR I Sverrlsal Hafnarborgar er sýning á skotskífum frá Det Kongelige Kjobenhavnske Skydeselskab og Danske Broderskab. Alls eru sýndar um 15 skotskífur frá árunum 1787 til 1928 með íslensku myndefni eða frá íslenskum félögum skotfélagsins. Sýningin er í samvinnu við Þjóðminjasafn íslands og er opin alla daga nema þriðjudaga. Henni lýkur 6. ágúst. UÓSMYNDASÝNING GRUNNSKÓLA- NEMA sem í vetur hafa unnið undir handleiöslu Marteins Sigurgeirs- sonar í Geröubergl, er opin virka daga frá 12 til 17. og lýkur 17.8. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísl.ls Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður rær fyrir vestan: Tekur skakið fram yfir laxveiðar „Við vorum út af Kögrinu og Hæla- víkurbjarginu og það var bongóblíða um allan sjó. Það er ekkert sem er fall- egra en að vera á sjó i svona veðri, þegar himinn og haf renna saman i eitt og björgin standa á haus í spegil- sléttum sjónurn," sagði Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður klukkan flmm í morgun þar sem hann var að koma úr róðri á handfærabátnum Pétri halta ÍS frá ísafirði. Guðjón rær með Kristjáni Andra syni sínum á bátnum sem þeir gera saman út. „Það er mjög gott fyrir þingmenn að taka þátt í hinum raunverulegu störf- um sem fólk er að sýsla við í landinu og finna hvernig þjóðarpúlsinn slær. Án þess eru þingmenn fljótir að tapa tengslum við raunveruleikann," segir hann. Guðjón Amar, eða Addi Kitta Gau eins og hann er einatt kallaður vestra, var um árabil einn af fengsælustu tog- araskipstjórum á íslandsmiðum og hefur stundað sjó frá bamsaldri og getur ekki slitið sig frá honum þrátt fyrir aö hafa reynt ýmislegt í vondum veðmm á Vestijarðamiðum á löngum ferli. „Sumir hafa áhuga á laxveiðum og stunda þær stíft en mér finnst miklu skemmtilegra að eltast við þorsk auk þess sem það gefur tekjur í þjóðarbúið og svo er líka nauðsynlegt fyrir alla sem hafa áhuga á lífríki sjávar að vera í tengslum við sjóinn með beinum hætti. Það væri ekki verra fyrir þá sem starfa við það að fara stöku sinn- um á sjó. Það er til dæmis ekkert æti í þessum fiski utan stöku sandsíli. Þessi fiskur er að éta sjálfan sig,“ seg- ir Guðjón kátur á bryggjunni í gamla sjógallanum þar sem þeir feðgar eru að landa liðlega þremur tonnum af þorski. Þrátt fyrir langan skipstjórnarferil á stærstu skipum og mikla aflasæld er Guðjón nú háseti með Kristjáni Andra á trillunni þeirra. „Nú er ég bara há- seti og þarf ekkert að spá í veður eða hvenær er fariö og þetta hefur gengið mjög vel.“ Óvenjulegt nafn bátsins Péturs halta vekur athygli en þeir feðgar segja nafnið hafa fylgt bátnum þegar hann var keyptur frá Súðavik en til standi að breyta því og eru þeir sam- mála um að fmna verði virðulegt nafn á bátinn. „Allir bátar verða að heita sterkum og virðulegum nöfnum. Við erum að velta fyrir okkur að skíra hann Kristján Ragnarsson eftir LÍÚ- foringjanum," segja þeir feðgar og hafa gaman af. 1 ÁM 1 1 j I morgun Feögar á fiskibát Guöjón Arnar Kristinsson og Kristján Andri sonur hans ianda liölega þremur tonnum af þorski klukkan fimm í morgun. Bíógagnrýrtí Þingmaðurlnn Guöjón Arnar Kristinsson alþingismaöur um borö í Pétri halta í ísafjaröarhöfn í morgunsáriö. Sambíóin - Brother ★ ★ Blóðbað í Los Angeles Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Japanskur Yakuzi í Los Angeles (Beat) Takeshi Kitano i hlutverki stríösmannsins Yamamoto sem neyðist til aö yfirgefa fööurlandiö. Sjálfsagt eru mestu stríðsmenn glæpafokka þeir sem vita að þeir munu einhvern tímann verða drepnir og lengja liflð með því að drepa aðra. Þannig maður er Yakamoto (Beat Takeshi), japansk- ur atvinnumorðingi og meðlimur í stórum glæpasamtökum í Tokyo sem dag einn gengur of langt og er eftir það ekki líft í heimalandi sínu. Yakamoto flýr til Los Angeles þar sem hann á hálfbróður sem selur eiturlyf á götuhornum. Yakamoto þekkir ekkert annað en vald byssunnar og byrjar að hreinsa til í kringum bróður sinn og félaga hans þegar þeim er ógnað. Athafnasemi hans gerir það að verkum að áður en langt um líður er hann í forsvari fyrir glæpagengi sem með aðgerð- um sínum ógnar tilveru annarra glæpagengja og Yamamoto er ekkert á þeim buxunum að semja við aðra. En þegar hann ætlar að takast á við mafíuna gerir hann sér grein fyrir þvi að hann hefur gengið of langt. Japanski leikstjórinn Takeshi Kitano, sem einnig skrifar handrit- ið og leikur aðalhlutverkið (kallar sig að Beat Takeshi þegar hann er í hlutverki leikarans), kemur sjálf- sagt mörgum á óvart í sinni fyrstu kvikmynd sem hann gerir utan Jap- ans. Þekktustu kvikmyndir hans utan heimalandsins eru Hana-bi (Gullljónið í Feneyjum) og Kikujiro sem lítið eiga sameiginlegt með Brother. Þær eru þó aðeins tvær af níu kvikmyndum sem Kituno hefur leikstýrt og eiga fyrri kvikmyndir hans, sem ekki hafa náð sömu hylli á Vesturlöndum, meira sameigin- legt með Brother sem er í anda Hong Kong-mynda John Woos. Brother nær þó aldrei vestrænu yfirbragði, hún á meira sameigin- legt með japanskri kvikmyndahefð. Fyrst og fremst vegna þess að áber- andi er að í myndinni eru ýmsar hefðir sem aðeins þekkjast í Austur- löndum fjær þó svo að myndin ger- ist i Los Angeles. Svo er að megninu til töluð japanska. Látið er að því liggja að hinn kaldrifjaði Yakamoto tali aðeins japönsku. Hann lætur þó út úr sér eina setningu á ensku og eina á spænsku þannig að hann er aðeins að styrkja stöðu sína með því að þykjast ekki skilja neitt. Söguþráðurinn sjálfur er ekki ýkja merkilegur. Upprisa og fall glæpagengja er býsna algengt við- fangsefni og Brother bætir ekki neinu við á þeim vettvangi og satt best að segja hafa mun betri mynd- ir verið gerðar i þessum flokki. Það sem Brother hefur við sig er að vel er haldið á spöðunum í því flókna kerfi sem myndast þegar jafn ólíkir glæpamenn og japanskir Yakuzar með sínar ströngu hefðir og svartir götusalar fara að starfa saman. Tor- tryggnin er mikil sem byggist fyrst og fremst á skilningsleysi og þá er stutt í þráðinn af beggja hálfu. Þá eru hin mörgu ofbeldisatriði það hröð að áður en maður veit af ligg- ur fjöldi manns í blóði sinu og dreg- ur það nokkuð úr neikvæðum áhrif- um. Eftir stendur að Takeshi Kitanu er meiri kvikmyndagerðarmaður en svo að hann eigi að eyða kröftum sínum í blóðugar ofbeldismyndir, nóg er af slíkum myndum gerðum af minni spámönnum. Leikstjóri og handritshöfundur: Takeshi Kituno. Kvikmyndtaka: Katsumi Yanakis- hima. Tónllst: Jo Hisaishi. Aóalhlutverk: Beat Takeshi, Omar Epps, Kouruto Maki, Masaya Kato og Susumu Terajima.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.