Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 6
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 Fréttir I>V Ný tóbaksvarnarlög tóku gildi um mánaðamótin: Tóbak úr hillum verslana undir borðið - tóbaksvarnarlögin ganga lengra en áfengisvarnarlögin DV. SELFOSSI: Ný lög um tóbaksvarnir tóku gildi nú um mánaðamótin. Með gildistöku laganna er aukin sú áhersla að gera aðgengi að tóbaki erfiðara fyrir neytendur þess. Nú verða þeir sem versla með tóbak að hafa til þess sérstakt leyfi frá heilbrigðisnefnd viökomandi svæðis. Verslanir fá ekki tóbak frá birgjum nema gegn framvísun leyf- isins. Tóbak má ekki vera sýnilegt á fullgildum sölustöðum þess. Áhersla á að halda tóbaki frá þeim sem eru yngri en 18 ára er einnig aukin. Samkvæmt lögunum er óheimilt að selja þeim sem ekki hafa náð 18 ára aldri tóbak. Þá mega þeir sem ekki eru orðnir 18 ára ekki selja tóbak nema að á sölustaðnum vinni einhver yfir 18 ára aldri. Búið að afgreiða fjölmörg leyfi „Menn hafa verið duglegir að koma með umsóknir og við bú- umst við að þær verði að berast nú um mánaðamótin því söluaðilar fá ekki afgreitt tóbak frá heildsölum nema gegn framvísun leyfls Heil- brigðiseftirlitsins," sagði Elsa Ingj- aldsdóttir, framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Suðurlands, við DV. Heilbrigðiseftirlitið var þegar búið DV-MYND NJORÐUR HELGASON. Sótt um leyfi Stefán Þormar Guðmundsson, veitingamaður i Litlu Kaffistofunni, sækir um leyfi til að selja tóbak hjá Eisu Ingjaldsdóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðis- eftirlitsins á Suðurlandi að afgreiða 61 leyfi til söluaðila tó- baks á Suðurlandi. Elsa segir að leyfisveitingamar hafl gengið ótrú- lega vel fyrir sig þrátt fyrir þann stutta tíma sem hafi verið til að undirbúa sig fyrir afgreiðslu þeirra. „Söluaðilar virðast sækja um leyfin þrátt fyrir að með útgáfu þeirra séu gerðar til þeirra miklar kröfur i nýju lögunum, eins og að tóbak skuli ekki vera sýnilegt og ákvæðin um aldur afgreiðslufólks- ins, Þetta eru miklar breytingar fyrir verslanir," segir Elsa. Hún segir að mörgum finnist lögin ganga heldur langt. „Einn sagði að sér þætti það skjóta skökku við að starfsmaður sinn mætti ekki af- greiða tóbak i verslun sinni en hann mætti aka bíl á götum og veg- um á talsverðum hraða og í mikilli umferð," sagði Elsa. Ýmsum þykja nýju tóbaksvarn- arlögin stinga í stúf við áfengis- varnarlögin. Tóbak má ekki selja þeim sem hafa náð 18 ára aldri. En áfengi má ekki selja fólki undir tví- tugu. Afgreiðsla á tóbaki er bundin við 18 ára aldur en aldurstakmörk vegna starfsfólks á veitingastöðum með vínveitingaleyfl er bundið lög- um um vinnuvernd barna og ung- linga. „Tóbaksvarnarlögin ganga mun lengra en áfengisvarnarlögin í þessum málum. Við erum búin að komast að þvi í vinnu okkar vegna söluleyfa tóbaksins," sagði Elsa Ingjaldsdóttir hjá Heilbrigöiseftir- liti Suðurlands. -NH Tóbak að tjaldabaki á Selfossi „Ég geri þetta til að tóbaksvör- urnar verði ósýnilegar viðskipta- vinum mínum. Lögin segja að þær veröi að vera úr augsýn þeirra. Reyndar er ég að bíöa eft- ir varanlegri geymslu fyrir tóbak- ið sem er verið að smíða fyrir mig, þar sem það verður geymt lögum samkvæmt, undir borði og aðeins afgreitt af fulltíða fólki,“ sagði Gunnar B. Guðmundsson, verslunarmaður í Horninu á Sel- fossi. Hann brá á það ráð að hengja svartan dúk yfir tóbaks- vörur í verslun sinni á miðviku- dagsmorgun, fyrsta morguninn eftir að ný tóbakslög tóku gildi. Á svarta dúknum er síðan leyfis- bréfið sem Heilbrigöiseftirlit Suð- urlands gaf út. „Allt gert samkvæmt reglun- um,“ sagði Gunnar. -NH DV-MYND NJORÐUR HELGASON Tóbak aö tjaldabaki Gunnar B. Guðmundsson, kaupmaður í Horninu á Selfossi, teygir sig bak við svarta tjaldiö eftir forboðnu vörunni. Vargur í Vaðlaheiði ■ - skildi þar við bílhræ - allar upplýsingar fylgdu „Bíll virðist vera búinn að vera allnokkrar vikur þarna í gryfj- unni,“ segir Sveinberg Laxdal, bóndi á Túnsbergi á Svalbarðs- strönd, í samtali við DV. Hann var á ferð um Vaðlaheiði fyrr í vikunni og fann þá i malargryfju í heiðinni austanverði hræ af bíl, MMC Lancer. Vafalaust hefur ætlan eig- enda bílsins, sem var afskráður í maílok, verið að skilja hann eftir og hylja slóð sína. Það tókst þó ekki betur en svo að i hanskahólfi bilsins var skilin eftir smurbók með skrán- ingarnúmeri bílsins og öðrum upp- lýsingum. „Þetta er ekki sniðug aðferð til þess að losa sig við bíla,“ segir Sveinberg sem ekki var skemmt yfir þessu. Með upplýsingum frá Skráningarstofunni fann hann út hver hefði átt bílinn og þá væntan- lega skilið hann þarna eftir. „Fólk á ekki að vera að skilja bilahræ eftir út um hvippinn og hvappinn og eng- in ástæða er heldur til slíks. Ekki er innheimt skilagjald fyrir bílhræ. Hér fyrir norðan þarf fólk ekkert annaö að gera en fara með bílinn í brotajárnsmóttöku og þá ætti málið að vera úr sögunni," segir Svein- berg sem kom upplýsingum um fundinn til oddvita Hálshrepps, en gryfjan sem bílinn var í var innan hreppamarka hans. Að sögn oddvitans, Jóns Óskars- sonar á Illugastöðum, mun sveitar- félagið sem slíkt ekki grípa til neinna sérstakra aögerða vegna þessa máls. Gryfjan þar sem bíllinn fannst er í heimalandi jarðarinnar Háls í Fnjóskadal og því tilheyrir A vettvangi dvmynd Sveinberg Laxdal við bílhræið sem hann fann á hábungu Vaðlaheiðar. málið í raun ábúendum þar. Segir Jón Óskarsson að ábúendur þar ættu að geta krafist þess af bíleig- andanum að hann fjarlægi hræið en ella gripið til þeirra aðgerða sem þurfa þykir. -sbs Umsjón: Birgir Guðmundsson Kvikmynda Brekkusöng íslendingar hafa jafnan gaman af því þegar erlendir fjölmiðlamenn koma til landsins og fjalla um land og þjóð. Nú, hefur frést af | heimsókn breskra sjón- varpsmanna I til íslands en þeir munu ætla að fara á I þjóðhátíö í Eyj- um og gera um hana mikla' heimildamynd. Eftir því sem full- yrt er þá voru það mál Áma Johnsens sem kveiktu áhuga Bret- anna á þjóðhátíðinni og aðalerind- ið mun vera að mynda Árna að stjóma Brekkusöngnum víðfræga. Að dokúmentera restina af hátíð- inni er síðan talinn bónus... Utan þjónustusvæðis í pottinum var verið að ræða um tímasetningu úrskurðar Skipulags- stofnunar um Kárahnjúkavirkjun. Svo vildi nefnilega til að þeir tveir ráðherrar sem málið varðar hvað mest, þær Siv Frið- leifsdóttir um- hverfisráð- herra og Val- gerður Sverr- isdóttir iðnaðarráðherra, vora báð- ar á ferðalagi og ekki í símasam- bandi og fengu því að vita af úr- skurðinum síðastar manna. Val- gerður er í gönguferð um fjöll á Austfjörðum og utan símasam- bands en Siv var í Kanada á ferð- um milli símasvæða og sambands- laus að mestu. Pottverjar töldu þó líklegt að þeim hafi veri slétt sama þótt þessi tíðindi hafi tafist aðeins á leiðinni til þeirra!. Eitthvað fyrir alla Fjölskylduhátíöin „Ein með öllu“, sem haldin er á Akureyri um verslunarmannahelgina, hefur nú verið __ kynntmeð látum um - skeið og ljóst þykir að þar á eitthvað að j vera við allra hæfi.1 Þannig þykir dagskráin sem skipu- lögð er á tjaldsvæðinu að Hömrum t.d. til mikillar fyrirmyndar og ým- islegt er þar gert fyrir bömin - morgunstund, óvissuferðir og kvöldvökur. 1 bæklingi, sem dreift hefur verið um hátíðina og þar sem dagskrá er kynnt, kemur fram að enginn verður út undan á þess- ari fjölskylduhátíð og þegar pabb- inn er orðinn leiöur á íjölskyld- unni getur hann komið við á hin- um fjölskyldufóðurvænu nektar- stöðum sem auglýstir eru i bæk- lingnum, Venusi og Setrinu!... Burt með gamla settið! í pottinum voru menn að ræða um eplið og eikina. Ágúst Ágústs- son, skeleggur ritstjóri vefritsins Pólitíku, og varaformaður ungrajafhað- iarmanna skrifar á síðu sína pistil þar sem hann lýsir þvi að skipta þurfi út fjöl- mörgum þing- mönnum Sam- fylkingarinnar því þetta séu gömul andlit sem hafi fengiö sín tækifæri og þeirra tími sé liðinn. í pottinum bíða menn spenntir eftir að sjá hvort hinn skeleggi varaþingmaður og forustumaður Samfylkingarinn- ar, Ágúst Einarsson, taki ekki upp vörn fyrir hina gömlu þing- menn en Ágúst er einmitt faðir Ágústs yngri!...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.