Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Side 15
15
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
DV
Búnaðarbankinn
spáir óbreyttu
verði milli
mánaða
Greiningardeild Búnaðarbankans ger-
ir ráð fyrir að vísitala neysluverðs standi
í stað á miili júlí og ágúst. Gangi spáin
eftir maélist verðbólga frá áramótum 6,0%
og 12 mánaöa verðbólga 7,6%.
í forsendum spárinnar er gert ráð fyr-
ir að áhrif launahækkana á þjónustuliði
ásamt verðhækkunum á matvöru komi
til hækkunar á visitölunni. Lækkun
bensínverðs ásamt útsöluáhrifum koma
hins vegar til lækkunar. Gert er ráð fyrir
að útsöluáhrifm gangi til baka á næstu
tveimur mánuðum. í ágúst í fyrra hækk-
aði vísitalan um 0,5%.
Fasteignaverð lækkar
í spánni kemur einnig fram að grein-
ingardeildin spáir því einnig að fasteigna-
verð taki að lækka á næstu mánuðum.
í verðbólguspánni er gert ráð fyrir lít-
illegri hækkun á fasteignaverði í ágúst
vegna nýlegrar hækkunar hámarkslána
íbúðalánasjóðs og fjölgunar viðbótarlána.
Hins vegar segir greiningardeild Búnað-
arbankans að eftirspum eftir húsnæði
virðist vera að dragast saman, ef litið er
til fjölgun fasteigna á söluskrám fast-
eignasala. Því gerir greiningardeildin ráð
fyrir að aukin viðbótarlán og rýmkun
tekju- og eignamarka muni einungis
fresta en ekki koma í veg fyrir lækkun
fasteignaverðs.
Ovænt
vaxtalækkun
í Bretlandi
Peninga-
málanefnd
breska
seðlabank-
ans lækkaði
stýrivexti
sína í gær og kom sú ákvörðun
mjög óvænt. Bankinn lækkaöi vexti
um 25 punkta og eru stýrivextir
bankans núna 5%. Þetta er fjórða
vaxtalækkun bankans á þessu ári.
Vextir í Bretlandi voru síðast 5%
sumarið 1999 og þar áður haustið
1977. Evrópski seðlabankinn ákvað
einnig vexti sína í dag en hann hélt
þeim óbreyttum í 4,5%.
Langflestir sérfræðingar höfðu
spáð því að bankinn myndi ekki
hreyfa við vöxtum vegna ótta við að
slíkt myndi auka neyslu almenn-
ings sem síðan myndi skapa aukinn
verðbólguþrýsting.
KAUP SALA
W- ÍDollar 97,910 98,410
SsPund 140,030 140,750
| *| Kan. dollar 63,780 64,170
l'jg IPönskkr. 11,5800 11,6440
Bhf-Norsk kr 10,8090 10,8680
ggjSænsk kr. 9,3930 9,4450 |
!0Hr. mark 14,5051 14,5923
Fra. franki 13,1477 13,2267 j
|T Belft. franki 2,1379 2,1508
[_ J Sviss. franki 57,1800 57,4900
: QhoII. gyllini 39,1355 39,3707 ;
Þýskt mark 44,0955 44,3605 1
B 1 jít. líra 0,04454 0,04481
I-3» 1 Aust. sch. 6,2676 6,3052
■ Port. escudo 0,4302 0,4328 j
j’.‘ jSpá. peseti 0,5183 0,5214
; | ® jjap. yen 0,79000 0,79480
jírskt pund 109,506 110,164 |
SDR 123,5000 124,2400
j Becu 86,2434 86,7616
_________________________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptabladið
Slæm afkoma Útgerðarfélags Akureyringa:
Rekstrartap 553 milljónir
króna fyrstu 6 mánuðina
Útgerðarfélag Akureyringa var rekið
með 553 milljóna króna tapi fyrstu sex
mánuði ársins 2001. Þetta er lakari af-
koma en árið áður þegar tapið nam 203
miiljónum króna. Meginástæðuna fyrir
lakari afkomu má rekja til mikils gengis-
taps af skuldum félagsins en það nam
hátt í einn milljarð á fyrstu sex mánuð-
um ársins. Aftur á móti er vergur hagn-
aður mun betri en árið áður og hið sama
má segja um veltufé frá rekstri. Þannig er
vergur hagnaður núna 765 milljónir, sam-
anborið við 386 milfjónir árið áður, eða
26% af tekjum. Veltufé frá rekstri nam
557 milljónum króna, samanborið við 353
miiljónir árið áður.
Heildarvelta samstæðunnar nam sam-
tals rúmum 3,3 milljörðum króna og jókst
um 171 milljón frá árinu áður. Rekstrar-
tekjur, þ.e. heildarvelta að frádregnum
eigin afla til vinnslu, voru samtals 2,9
milljarðar króna, samanborið við 2,7
milljarða árið áður. Rekstrargjöld námu
samtals tæpum 2,2 milljörðum króna,
miðað við 2,3 mifljarða árið áður. Félagið
hefur gðða kvótastöðu, 24.611
þorsklgildistonn, og getur því nýtt fram-
leiðslutækin betur en áður. Loks keypti
félagið snemma á árinu 50% hlut í GPG-
fiskverkun á Húsavík en þau kaup auka
veltu og framlegð samstæðunnar. Endur-
skoðuð áætlun fyrir seinni hluta ársins
gerir ráð fyrir að afkoman verði betri en
fyrstu 6 mánuði ársins og að veltufé frá
rekstri aukist.
„Það er auðvitað ekki viðunandi að fé-
lagið sé gert upp með tapi en ég vil benda
á þá staðreynd að þetta er besta rekstrar-
niðurstaða félagsins frá upphafí ef horft
er til vergs hagnaðar og veltufjár frá
rekstri. Það er hins vegar fyrst og fremst
veiking íslensku krónunnar sem er að
gera okkur, eins og flestum öðrum fyrir-
tækjum sem skulda erlendis, þessa skrá-
veifu. Á hinn bóginn má ekki gleyma því
að veiking krónunnar mun skila félaginu
auknum tekjum í framtíðinni. Ég er því
bjartsýnn á betri tíð á seinni hluta árs-
ins,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA. -GG
Flugleiðir opna fragtmiðstöð
í gær opnuðu Flugleiðir nýja fragt-
miðstöð á Keflavíkurflugvelli. Fragtmið-
stöðin er 5000 fermetra bygging á þjón-
ustusvæði Keflavíkurflugvallar,
skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Fragtmiðstöðin bætir úr brýnni þörf og
mun gjörbreyta allri aðstöðu til vöru-
flutninga með flugi. Gríðarleg umskipti
hafa orðið í fragtflutningum Flugleiða á
síðasta áratug. Árið 1990 fluttu Flugleið-
ir tæplega 11.500 tonn af fragt með vél-
um félagsins. Árið 1995 var magnið
komið í 14.560 tonn en á síðasta ári
fluttu Flugleiðir-Frakt 33.650 tonn af
vörum. Það er þrefalt meira magn en
fyrir tiu árum og ríflega tvöfalt meira
en fyrir flmm árum.
Spár gera ráð fyrir mikilli aukningu
Spár gera ráð fyrir að enn verði mik-
il aukning á fragtflutningum íslendinga
með flugi á næstu árum. Jafnframt
aukast stöðugt kröfúr viðskiptavina um
nýja og fullkomnari þjónustu í tengslum
við vöruflutninga.
Við hönnun og byggingu hússins var
því lögð áhersla á hagkvæmni, hraða og
gæði sem ekki hafa þekkst fyrr í flug-
fragt á íslandi. Öll þjónusta er undir
einu þaki: vöruafgreiðsla, skrifstofur,
tollafgreiðsla, fragtmiðlunarskrifstofur
og fleira. Fragtmiðstöðin er 3500 fer-
metra vöruhús ásamt 1500 fermetra
skristofuhúsnæði. Reiknað er með að á
fyrsta ári verði flutningur í gegnum
húsið um 30 þúsund tonn en gert er ráð
fyrir að húsið geti annað allt að 45 þús-
und tonnum. Þá er gert ráð fyrir stækk-
un um 4400 fermetra með viðbyggingu
sem reisa má með skömmum fyrirvara.
í húsinu verða Flugleiðir-Frakt með al-
menna flutningsþjónustu og verður boð-
ið upp á alla þjónustu fyrir inn- og út-
flytjendur nánast hvenær sem er sólar-
hringsins. Þar verður einnig toliaf-
greiðsla og fullkomin aðstaða fyrir af-
greiðslu og meðhöndlun matvöru. F
iskistofa verður með landamærastöð í
húsinu og þar er útleigurými fyrir flutn-
ingsmiðlara og aðra í fragttengdum
rekstri.
Kostnaður 456 milljónir
Kostnaður við byggingu Fragtmið-
stöðvarinnar var 456 milljónir króna og
annaðist verktakafyrirtækið Höjgaard
og Schultz á íslandi framkvæmdir eftir
útboð. I byggingunni er einnig fúllkom-
ið færibandakerfl og kælar frá þýska
framleiðandanum Schenk. Við opnun-
arathööiina f gær kynntu þeir Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, Einar Sig-
urðsson, stjómarformaður Flugþjónust-
unnar á Keflavíkurvelli, og Pétur J. Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri Flugleiða-
Fraktar, bygginguna og starfsemina fyr-
ir gestum. Dótturfyrirtæki Flugleiða,
Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli,
mun annast rekstur hússins.
^ Ég geri margtÁj
fyrirmilljón enmeira
S>- fyrir Þrilljón! >
Breytt og betra Lottó. Nú verður 1. viriningur
alltaf um eða yfir 3 milljónir í einföldum potti.
ÞaðköllumviðÞrilljón!
Þrilijón þýðir hæni 1. vinningur í einföldum eða margföldum potd', semsagt
stæni pottur, hærri Þrilljón! Þú getur alb staðar unnið milljónir en það er
bara í Lottóinu sem þú getur unnið Þrilljónir!
Kauptu þér miða fyrir kl. 18.40 á laugardaginn. <\
O
Röðinkostar75 krónur. Æ