Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Síða 24
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 r>v Helgarblað - Davíö Oddsson nefndi nafn þitt í vió- tali viö DV um síðustu helgi og sakaói þig um spillingu. Hverju svararðu þvl? „Viötalið minnir á að það er tilefni til að óska Davíð Oddssyni til hamingju með að hafa setið samfellt i áratug á stóli forsætisráðherra sem er ekki heigl- um hent í hretviðrum íslenskra stjóm- mála. Ég hefði getað komið i veg fyrir það en kaus að gera það ekki. Hitt kom mér á óvart að minn gamli samstarfs- maður notaði tækifærið á þessari gleði- stundu til þess að skipa mér á saka- mannabekk með helstu afreksmönnum sjálfstæðismanna í fyrirgreiðslupoti. Þeir sem mig þekkja vita að ég er ein- hver hundónýtasti fyrirgreiðslupotari sem nokkum tíma hefur setið á Alþingi Islendinga. Reyndar var rauði þráður- inn í minni pólitík vörn og sókn gegn fyrirgreiðslupoturum sem satt að segja höfðu á mér litlar mætur, samanber ræður Eggerts frá Bergþórshvoli sem gjaman talaði eins og Kató gamli: „Að lokum legg ég til að Jón Baldvin segi af sér.“ Ég trúi þvi ekki að forsætisráðherra hafi sakað mig um spillingu i trausti þess að ég gæti ekki borið hönd fyrir höfuð mér þar sem það er ekki til siðs að sendiherrar munnhöggvist við ráð- herra. Mér leyfist samt vonandi að bera af mér sakir. Ég gerði mig sekan um að láta einhverjar léttvínsflöskur af risnukostnaði ráð- herra í fertugsafmæli ritstjóra Alþýðublaðs- ins sem samkvæmt flokkslögum Alþýðu- flokksins var í þing- flokki Alþýðuflokks- ins. Hann var ekki maður úti í bæ. Um likt leyti kom fram opinberlega að sam- ráðherra minn, Friðrik Sophusson, kvartaði undan því að fundið væri að því að hann gæfi gömlum bekkjarbræð- um í glas. Um sama leyti kom einnig fram að formaður Alþýðubandalagsins hafði haldið fyrrverandi þingflokksfor- manni, Lúðvík Jósepssyni, samsæti. Oft hafa ráðherrar nýtt risnu sína til að heiðra menn af minna tilefni en Lúðvík; þeim er uppálagt að heiðra jafnt fegurð- ardrottningar sem sigursæla briddsspil- ara. Ef ég hefði haldið samstarfsmanni mínum í þingflokki veislu í tilefni af af- mælinu hefði enginn fundið neitt að neinu." - Hugleiddiröu hvort þú œttir að segja af þér af vegna þessa máls? „Já, en ég komst að þeirri niðurstöðu að yfirsjónin væri of smá á mælikvarða þeirra verka sem ég vann. Reyndar er það svo að hefði ég gert það þá hefðu all- ir ráðherrar íslandssögunnar frá Hann- esi Hafstein til Davíðs Oddssonar orðið að segja af sér. Samanburður við mál Árna Johnsens kallar allavega á Qörugt ímyndunarafl. Þetta gefur mér tilefni til að rifja upp annað mál sem var mér sýnu erfiðara. Málið snerist um málaferli, kennd við Magnús Thoroddsen. Verjandi hans, Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar- lögmaður, - maður úr innsta hring for- sætisráðherra - beitti því í málsvörn sinni fyrir Magnús að víða væri pottur brotinn, spurðist fyrir um dularfulla reikninga úr fjármálaráðherratíð minni og dróttaði því að mér að ég hefði mis- notað aðstöðu mína til að kosta afmæl- isveislu konu minnar. Fjölmiðlar tóku málið upp og þessar grunsemdir, að- dróttanir og brigsl stóðu mánuðum sam- an. Með eftirgangsmunum féllst Ríkis- endurskoðun loksins á að rannsaka málið og komst að þeirri niðurstöðu að þessar aðdróttanir væru með öllu tilefn- islausar. Ég var með öðrum orðum hafð- ur fyrir rangri sök. Hæstaréttarlögmað- urinn baðst aldrei afsökunar. Fjölmiðlar með Stöð 2 1 fararbroddi báðust aldrei afsökunar. En skaðinn var skeður. Stöð 2 efndi til skoðanakönnunar þar sem spurt var: Hver er spilltasti stjómmála- maður íslands? Og ég vann með miklum yfirburðum. Þetta er dæmi um að fjöl- miðlar hafa ekki alltaf rétt fyrir sér og biðja sjaldnast afsökunar. En þeir eiga líka að bera ábyrgð, ekki satt? Ekki síst þegar þeim er fjarstýrt." „ Viðtalið minnir á að það er tiiefni til að óska Davíð Oddssyni til hamingju með að hafa setið samfellt í áratug á stóli forsætisráðherra sem er ekki heiglum hent í hretviðrum íslenskra stjórnmála. Ég heföi getað komiö i veg fyrir það en kaus að gera það ekki. Hitt kom mér á óvart að minn gamli samstarfsmaður notaði tækifærið á þessari gleðistundu til þess að skipa mér á sakamannaþekk með helstu afreksmönnum sjálfstæðismanna í fyrirgreiðslupoti. Þeir sem mig þekkja vita aö ég er einhver hundónýtasti fyrirgreiöslupotari sem nokkurn tíma hefur setiö á Alþingi íslendinga. “ stóð í mjög harkalegum deilumálum sem komu við kaun margra í ríkisfjár- málum, EES-samningnum, landbúnað- armálum og fleiri málum. Ég sat svo sannarlega ekki á friðarstóli. Það var ekki lognmolfa í kringum mig. Kannski situr eftir minning um mann sem var ótvílráður og afdráttarlaus. Eiga menn að sakna þeirra tíma?“ - Ég hef heyrt sögur um að þú munir fara í framboð á Reykjanesi fyrir nœstu kosningar. „Hvaðan heyrir þú það? Ég hef ekki heyrt það.“ - Ertu tilbúinn til þess? „Ég segi eins og forsætisráðherra á tíu ára starfsafmælinu: Engir menn eru jafn óþolandi og þeir sem halda að þeir séu ómissandi. Ég hef enga slika komplexa. En það má kannski bæta þvi við að sumir þessara manna með Mess- íasarkomplexinn geta verið mjög sjarm- erandi. De Gaulle var það, Gunnar Thoroddsen var það.“ - Þú ert sjarmerandi „Það eru þín orð en ekki mín - og ég er ekki viss um að þú sért meirihluta- manneskja.“ - Ætlar þú ekki að fara í pólitískt upp- gjör á prenti, líkt og Steingrímur Her- mannsson? „Jú, mér finnst að ég eigi að gera það. Mér frnnst ég skulda sjálfum mér, sam- starfsmönnum mínum og framtíðinni að leggja eitthvað í það púkk. Það yrði skemmtileg saga - og verður þar af leið- andi skemmtileg lesning og holl yngri kynslóðum. Það er bara ekki tímabært, ég hef enn svo mikið að gera. Þú nefnir bók Steingríms. Ég tel hana hafa verið afar gagnlega og vei unnið verk af höf- undarins hálfu, Dags Eggertssonar. Gagnrýnin snerist aðallega um það að Steingrímur væri að segja sína sögu. Hvaða aðra sögu átti hann að segja með leyfi?" - Eitthvað sem þér finnst ástæóa til að taka fram aö lokum? „Ég vil taka undir þau orð forsætis- ráðherra að ekki sé hægt að kvarta und- an landkostum á íslandi og ég er einnig sáttur við mannkosti konu minnar.“ í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur ræðir Jón Baldvin Hannibalsson um stjórnmálaferilinn og íslenska pólitík og svarar orðum Davíðs Oddssonar sem á dögun- um sakaði hann um spillingu. Straumar fyrirgreiöslunnar - Heldurðu aó þaó þrífist mikil spill- ing í stjórnmálum á íslandi? „Það er ekkert land til þar sem ekki þrífst einhver spilling. Það er vegna breyskleika mannsins. En hvar er spiil- inguna einkum að frnna í pólitík? Hana er að finna hjá stjómmálamönnum sem hafa aðstöðu til að úthluta almannafé, skammta, mismuna, hygla og kaupa sér atkvæði í kjördæmum. Stjómmálamenn á Islandi hafa setið í bankaráðum, jafn- vél verið bankastjórar, þeir hafa setið í stjóm sjóða sem hafa það hlutverk að úthluta fé. Þeir hafa verið settir í þá stöðu að vera beggja vegna borðs þar sem þeir eru leiddir í freistni. Sagði ekki frelsarinn: „Eigi leið þú oss í freistni heldur frelsa oss frá illu.“ Spilling viðgengst líka í samskiptum ftárhagslega öflugra aðila við stjómmála- menn og -flokka í valdabaráttunni. Við emm komin í þá stöðu að kostnaður við prófkjör og kosn- ingar er orðinn mikill og menn verða að leita til fjársterkra að- ila til að bera uppi þann kostnað. Þetta býður hættunni heim og er alvarlegt mál fyrir lýðræði í landinu. Kastljósi ftölmiðla hér á landi hefur lítið verið að þessu beint. Þeir hafa meira lagt sig eft- ir upplýsingum um risnu og dagpeninga sem líklega em smáaurar samanborið við hina stóm strauma fyrirgreiðslunn- ar. En það er vinnusparandi fyrir íjöl- miðla. Það má segja að mín pólitík og minna samstarfsmanna hafi fyrst og fremst beinst gegn þessu spillingarkerfi. Al- þýðuflokkurinn skipaði til dæmis ekki þingmenn í bankaráð. Gagnrýni okkar á landbúnaðarkerfið byggðist ekki slst á því að það væri spillt. Sömuleiðis þegar kom að Byggðastofnun og fjöldamörgum öðrum úthlutunar- og skömmtunar- stofnunum. Barátta fyrir upptöku auð- lindagjalds var barátta gegn mismunun gagnvart atvinnufrelsi fólks og krafa um að allir sætu við sama borð þegar kom að kvótaúthlutun - aðgengi að auð- lindinni. Ef menn líta á þau stóra mál sem við jafnaðarmenn beittum okkur fyrir und- ir minni forystu eiga þau það flest sam- eiginlegt að við vomm að reyna að opna þjóðfélagið, draga úr einokun á flestum sviðum, afnema höft og bönn, innleiða almennar leikreglur og gera þjóðfélagið sýnilegra og réttlátara. Okkur tókst það til dæmis í EES-málinu sem hafði gífúr- leg áhrif til bóta að því er varðar stjórn- sýslu og réttarfar. Ég tel mig því hafa hreinan skjöld eftir margar fólkormstur um umdeild mál i íslenskri pólitík. Ég er sáttur við þann árangur sem við náð- um. Hann var mun meiri en kjörfylgið eitt gaf tilefni til.“ - Telurðu þá að það hafi ekki verið mistök að mynda Viðeyjarstjórnina? „Það vora ekki mistök. Ég tel hins vegar að það hafi verið mistök Stein- gríms Hermannssonar og Ólafs Ragnars að hafa snúið kosningabaráttunni 1991 upp í áróðursherferð gegn Evrópusam- bandinu. Við Steingrímur unnum sam- an að EES-samningnum og i stjórnar- samstarfi með Alþýðubandalaginu. Þessir flokkar hrakku síðan frá fyrir kosningar og það með svo hatrömmum hætti að ég hafði fyrir þvi full rök að þeim væri ekki treystandi til að koma EES-samningnum í gegn. Ég átti því ekki annan kost en að mynda Viðeyjar- stjómina. í því máli tók ég enga áhættu. Ég mat það mikilvægara en forsætisráð- herratign í vinstri stjóm sem hefði orð- ið skammlíf." Gamalt tukthús heillar ekki - Nú hefur ekki tekist aó sameina vinstrimenn í einn stóran jafnaðarmanna- flokk - eru það ekki vonbrigöi fyrir þig? „Ég dreg enga dul á það að ég er jafn- aðarmaður en hins vegar er ég ekki lengur stjómmálamaður. Ég virði stjómmálin bara fyrir mér eins og hver annar óbreyttur borgari. Mér sýnist það vera staðreynd að upphaflega hugmynd- in um að sameina ólík stjórnmálaöfl vinstra megin við miðju hafi ekki tekist í þessari lotu.“ - HvacI á Samfylkingin aó gera? „Það þýðir ekki að spyrja sendiherra í Washington að því. Spyrðu formann- inn.“ - Saknarðu þess að hafa ekki orðið forsœt- isráóherra? „Það getur verið grafalvarlegt mál að gera að gamni sinu. Mér varð það á ein- hverju sinni að segja í gamni að ég hefði lært til forsætisráð- herra. Það var að vísu ekki út í hött en þau orð hafa fylgt mér síðan. Fáir fara út í stjómmál án þess að hafa persónulegan metnað í farteskinu. Hitt er jafnsatt að þegar þeir hafa gegnt forystuhlutverki þá er þeim metnaði út af fyrir sig sval- að. Einhvem tíma sagði ég að utanríkis- ráðuneytið væri yfirráðuneyti á íslandi. Þáttur alþjóðamála, alþjóðasamninga, væri orðinn svo yfirgripsmikill að hann tæki yfir öll málasvið. Sá sem hefur ver- ið utanríkisráðherra í mörg ár á sér engan sérstakan draum um að færa sig ofan af Rauðarárstíg niður í gamla tukt- húsið við Lækjartorg. Hverju breytir það?“ - Hittiröu ekki fólk sem segir að þú eigir aö koma heim og í pólitíkina? „Jú, það er eitthvað um það. Það eru ýmsar skýringar á því. Ein er sú að góð- ur er hver genginn. Menn era fljótir að gleyma því að ég var í langan tíma trú- lega umdeildasti stjómmálamaður landsins. Alþýðuflokkurinn undir minni forystu klofnaði undir lokin. Ég Með hreinan skjöld

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.