Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Page 27
27
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
DV
Helgarblað
Aö lauga lúin bein
Á bökkum Vestarí-Bergvatnsár í Beina-
dai noröan Núpsstaðarskóga er aö
finna þessa snarpheitu laug sem ell-
efu þreyttir feröalangar rúmast t á
þessari mynd. í þessari laug taldi einn
ferðalanganna sig sjá nakta álfkonu
lauga sig snemma morguns.
straumnum. Á ellefta tíma var gengið
þennan daginn, þar af fóru þrír tímar
í að vaða jökulvötnin, sýnin var til
jökla og sanda, landið gróðursnautt
með eindæmum. Fólk taldi sig mjög
lánsamt aö hafa ekki lent í þessum
svaðilfórum í þeim veðurofsa sem geis-
aði daginn áður.
Menn veltust í jökulleðjunnl
Þreyttir en sælir lögðust menn til
hvílu í tjöldum
sínum á sandin-
um. Næsti dagur
skyldi tekinn
snemma, gengið á
sporð Síðujökuls
tÍL að krækja fyrir
Djúpá sem er mikill farartálmi á leið-
inni á Beinadal. Jökulgangan gekk vel,
með þeirri undantekningu þó að erfitt
reyndist að komast á jökuiinn vegna
sandbleytu sem fólk sökk í þegar
minnst varði. Fólk þurfti að velta sér
upp úr eðjunni til að losna úr pyttun-
um og litfagur útbúnaðurinn fékk á sig
drulluslikju.
Út af jöklinum fórum við; við Há-
göngur og upptök Djúpár, sem við
óðum, sem og nokkrar kvíslar úr jökl-
inum á leið okkar í næsta náttstað.
Álfkonan striplast í heitum potti
Tiu tima ganga var að baki og nátt-
staðurinn með ólíkindum! Á bökkum
Vestari-Bergvatnsár er heit lind eða
Dýragras
pottur frá náttúr-
unnar hendi með
grasbölum um-
hverfis þar sem
tjöldum var slegið.
Nafnlaus unaðs-
staður þar sem
fólk baðaði sveittan skrokkinn eftir
volk síðustu daga. Heiðríkur himinn-
inn heiisaði sælu og útsoihu fólki að
morgni, ein kvennanna var þó
árrisulli en aðrir ferðalangar og fór á
evuklæðunum einum í laugina góðu.
Sá er næst vaknaði og leit út undan
Ijaldskör sá hvar kona nakin baðaði
sig í lindinni og taldi að þar væri álf-
kona og lét fyrirberast í tjaldinu þar til
hann heyrði aðra komna á stjá í tjald-
búðunum. Sagði söguna fuilur vissu
um að álfkona hefði baðað sig í lind-
inni meðan fólkið svaf. Álfkonulaug
skal laugin heita, varð einum að orði
þegar við tókum okkur upp frá þessari
miklu vin í hrjóstrugu landslagi á
Beinadal.
Hannes hugsar um landið
Næstsíðasti dagurinn var risinn
Á ferð á jökli
Djúpá sem kemur undan Síöujökli er of strítt vatnsfall til aö vaöa og því varö
hópurinn aö krækja upp á jökulinn fyrir upptök árinnar.
með sólskini og blíðu, ámar
sem verða að Núpsá vaðnar og
gengið út á sléttumar svokall-
aðar við Núpsá. Dagleiðin var
einungis sex tíma gangur, svo
þeir sprækustu hlupu upp á
Eggjamar til að sjá Grænalón
við Skeiðarárjökul fyrir kvöld-
matinn. Síðasta dagleiðin á
þessu ferðalagi okkar var að
klífa Súlutinda, tinda sem
Skeiðaráijökull er búinn að
slípa til og þverhnipið jökul-
megin er 517 metra hátt. Hví-
líkt útsýni í heiðríkjunni,
Hvannadalshnjúkur austast,
SkeiðarárjökuU og jökulbreið-
umar inn úr öllu svo langt
sem augað eygði. Síðasti áfang-
inn var niður í Núpsstaðar-
skóg þangað sem ferðaglaðir ÍR-ingar
vom sóttir af Hannesi Jónssyni sér-
leyfishafa, manninum sem þekkir um-
hverfið þama inn frá eins og lófann á
sér og ber mikla umhyggju fyrir því.
Sést það best í þeirri athöfn hans að
stoppa rútuna og ganga niður að bökk-
um Núpsvatna og sækja þangað tóma
Stumrað yfir feröalangi
Sumir fá hælsæri, aörir blöörur á
tærnar en þessi rak tá í stein og
steytti á nefinu en fékk góöa aö-
hlynningu. Anna Lára Steingrímsdótt-
ir hjúkrar Helga Gíslasyni.
Eyrarrós
S&Jökuil
vínflösku sem auðvitað átti ekki heima
þama. Svona hugsa sveitamenn í dag,
hreint land og ekkert hálfkák. Hann ók
okkur til byggða, þessa tæpa áttatiu
kílómetra til baka að Kirkjubæjar-
klaustri þar sem ferðin hófst.
GVA
Viö rætur Súlunnar
Vaskur feröaiangur, Birgir Sveinsson, stendur á fjallsbrún Súlutinda viö Súluna sem fjöllin eru kennd viö. Viö fætur
hans, fimm hundruö metrum neöan, liggur Skeiöarárjökull en handan hans grillir í til Færineseggia.
Stœriin 13" 14" 15" 16"
(jBimoJ
Slærðir: 14" ir 16" 17“
jeppafelgur
Stærðir 1F 16" ir
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35, sími: 553 1055
Þjónustuaðilar um land allt