Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Page 37
45 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 DV Svolgra vínsull Frægð, frami og auðæfi virðast ekki hafa náð að kenna bragðlauk- um Beckhamhjónanna að njóta dýr- ari lystisemda lífsins, alla vega ekki þegar kemur að góðum vínum. Svo virðist vera sem uppáhalds- vínið þeirra sé ódýrt og dísætt þýskt sull að nafni plonk Liebfraumlich, sem kostar á milli 400-500 krónur í stórmörkuðum á Bretlandi. Þau skötuhjúin komu upp um sig í þess- um málum þegar þau settust að snæðingi í veitingahúsinu The Straw Hat í Hertfordshire héraði, Englandi. Þar pöntuðu þau eina flösku af fyrrnefndum drykk. Þar sem veitingahúsið er í íinni kantin- um þurfti starsfólkið að hlaupa út matvöruverslun og kaupa vínið. kyrr í lofti Peter Buck, gítarleikari REM, neitaði fyrir fyrir rétti ásökunum um um að hann hefði gengið ber- serksgang á fyrsta farrými í áætlun- arflugi British Airways. Buch var á leiðinni á tónleika á Trafalgartorgi þann 21. apríl síðastliðinn þegar at- vikið varð. Gítarleikarinn er ákærður fyrir tvær líkamsárásir, skemmdarverk, ölvun í flugvél og fyrir að óhlýðnast flugstjóra. Hann mætti í réttarhöld- in í dökkum jakkafotum, með svart bindi og sólgleraugu og sagðist sak- laus af öllum ákæruatriðum. Hljóm- sveit hans, REM, á enn þá feikilegra vinsælda að fagna og hefur selt 40 milljónir platna. Varúlfurinn snýr aftur Michael Jackson hefur heillað heimsbyggðina um árabil með skrækri rödd sinni. Nú ætlar hann hins vegar að endurvekja forna frægð upp á nýtt með söngstil sem líkt hefur verið við lágt urr. Hann hefur ráðið söngkennara til að víkka tónstigann hjá sér og gengur það að sögn vel. Hann getur nú sungið nótur sem hann gaf aöeins frá sér í draumum áður. Nýi hljóm- urinn úr Jackson mun heyrast á breiðskífunni Invincible og smáskíf- unni Rock My World. Svo virðist sem Jackson sé að endurmeta fortíö sína í tónlist og reyna að endur- vekja það besta. í Thriller lék hann einmitt urrandi varúlf en hvort hann er að taka feil með því að gera út á þaö eitt skal ekki sagt. Við auglýstum sófann og unnumferð fyrir tvo til London!!! Smáauclýsinc í DV ER FYRSTA SKREFIÐ... Hringdu núna í síma 5505000 eða skráðu inn smáauglýsingu á VÍSÍ V.ÍS I SUMAR DRÖCUM VIÐ ÚT CLÆSILECA VINNINCA í HVERRI VIKU ’ Ferðirtil London med lágfargjaldaflugfélaginu Go ' Grundiq útvarpsklukka frá Sjónvarpsmiðstöðinni ’ Olympus stafræn myndavél frá Bræðrunum Ormsson ’ United ferðatæki frá Sjónvarpsmiðstöðinni ’ Tasco kíkir frá Sjónvarpsmiðstöðinni ’ Olympus diktafónn frá Sjónvarpsmiðstöðinni ’ Beko 21 tommu sjónvarp með nikam, textavarpi og veggfestingu frá Bræðrunum Ormsson Sjónvarpsmiðstöðin UIMUIIIIUII • tliBMllA t • tlm III tlll • ■n.ia.U Helgarblað Pakkhúsið í Ólafsvík: Myndlist og sagnfræði Fyrir skömmu voru opnaðar tvær sýn- ingar í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Það var myndlistarsýningin „Brauðmyndir og bú- mörk“ eftir listamennina Bryndísi Jóns- dóttur og Þorgerði Sigurðardóttur. Hin sýningin ber nafnið „Athafnamaður í Ólafsvík". í henni er stikiað á stóru um ævi og störf Viglundar heitins Jónssonar, útgerðarmanns og fiskverkanda í Ólafs- vik, og konu hans, Kristjönu Tómasdótt- ur. Hún lést árið 1986 en Víglundur lést árið 1993. Myndir eru af öllum þeim bát- um sem Víglundur eignaðist um ævina og einnig frá Fiskverkunni Hróa hf. en hún var ein stærsta saltfiskverkun lands- ins um árabil. Víglundur var enn fremur fyrsti heiðursborgaiú Ólafsvíkur. Sýningamai' eru á vegum Byggðasafns Snæfellsbæjar og uppsetningu annaðist Aldís Sigurðardóttir, forstöðumaður Norska hússins í Stykkishólmi, og Ragn- heiður Víglundsdóttir. í tilefni af sýning- unum var ibúum í Snæfellsbæ boöið er hún var opnuð og flutti Svanhildur Páls- • dóttir, formaður Pakkhúsnefndar, ávarp af þessu tilefni. Að sögn Aldísar, sem einnig er starfsmaður Héraðsnefndar Snæfelisness, er fyrirhugað að halda Við opnun sýningarinnar Aldís Siguröar- dóttir, sem stjórnaöi upp- setningu sýning- anna, Ragnheiö- ur Víglundsdótt- ir, Svanhildur Pálsdóttir, for- maöur Pakkhús- nefndar, og Kristinn Jónas- son, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. fleiri sýningar um líf og störf athafna- manna í Ólafsvík í Pakkhúsinu. Sýning- amar verða opnar út ágústmánuð. -PSJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.