Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Side 38
Víiii
smelónumolar
Vatnsmelónu-
baka
H
~ 46 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
DV
Tilvera
* bókabúð. Gestum er boðið að taka
með sér bækur og blöð úr búðinni tO
að skoða á meðan þeir drekka kaffið
sitt og eru því iðulega með nefið ofan
í bók eða slúðurblaði. Súfar sem sækja
staðinn eiga erfitt með að standast
ljúffengar veitingamar sem eru í boði,
kaffið er ágætt og kökumar góðar.
Einu sinni heyrði ég að Súflstinn
væri algengur stefnumótastaður fólks
sem kynntist á Netinu. Ég ætla ekki
að ábyrgjast aö svo sé en ég verð að
viðurkenna að ég velti því oft fyrir
mér hvað fólk er að gera þegar það
kemur inn og lítur rannsakandi yfir
salinn. -Kip
Kaffi List
Á Laugaveginum er að finna fjölda
kaffihúsa og er eitt þeirra Kaffi List.
Þar er yfirbragðið spænskt og hægt að
gæða sér á margs konar réttum sem
eiga ættir aö rekja til Spánar. Um-
hverfið er frekar einfalt og hrátt og
þjónustan ágæt.
Meðal þess sem hægt er að fá sér á
Kaffi List er bagetta með kjúklingi og
beikoni en hana er hægt að fá með
tvenns konar sósum. Sósan á bagett-
unni sjálfri var frekar lítil en ekkert
mál reyndist að fá meiri sósu í skál til
að bæta á hana. Fyrir þá sem em
\ hrifiiir af fiski má benda á salffisksal-
at sem bragðaðist ágætlega að mati
sessunautar míns. Þeir sem ekki era
mjög svangir geta aftur á móti fengið
sér að tapas-smárétti. Eftir matinn var
café au lait smakkað sem reyndist
mjög gott og var það borið fram í glasi.
Þess má þó geta að fólk getur valið
sjálft hvor það vill fá kaffið í glasi eða
bolla. -MA
t* fc-w s jtfcak* éJtíuL A'irtiiart’*' _____
Vatnsmelóna
Talið er að fyrstu vatnsmelónurnar hafi orðiö
til í Kalaharieyðimörkinni í Afríku og fyrstu
heimildir um vatnsmelónuuppskeru voru í
Egyptalandi fyrir fimm þúsund árum.
Vatnsmelónur voru oft settar í grafhýsi konunga
til að næra þá í framhaldslífinu. Frá Egyptalandi
fóru þær síðan um allan heim um Miðjarðarhaf-
ið með kaupskipum. Kínveijar eru aðalframleið-
andi vatnsmelóna í heiminum en byrjað var að
rækta vatnsmelónur þar á tíundu öld.
I dag er hægt að fá vatnsmelónur allan
ársins hring enda fjölgar þeim lönd-
um sífellt þar sem hún er ræktuð.
Þegar kemur að því að velja
melónur er best að velja melónu
sem er stinn, regluleg í laginu og
laus við alla skemmdir, holur og
annað slíkt. Einnig á hún að vera
þung og á botninum á að vera rjóma-
gulur blettur þar sem melónan hefur
legið á jörðinni og þroskast í sólinni.
Vatnsmelóna er ekki bara góður og safaríkur
ávöxtur því það er líka hægt að búa til úr henni
skál undir ávaxtasalat. Allt tfi þessa árs hefur
eingöngu verið hægt að fá kringlóttar
vatnsmelónur en nú hafa
Japanar sett á markað
ferhyrndar vatnsmelón-
ur. Engum sögum fer
þó af því hvernig
gengur að selja
þær en verðið á
einni slíkri er um
10 þúsund ís-
lenskar krónur.
•JB
Ingi Rafn Hauksson
„ Vatnsmelónan er mjög safamikil og hentar því vel í ferska drykki. “
Sumardrykkur með vatnsmelónu:
Ferskur og svalandi
Vatnsmelónur er hægt að nota
í margs konar rétti, til að
mynda sem fyllingu í böku. í
vatnsmelónufyllingu þarf 2 bolla
af niðurskorinni melónu, 1 bolla
af sykri, 2 tsk. hveiti, 1 tsk.
kanil, 1/4 tsk. múskat, 1/8 tsk.
salt, 3 msk. vínedik, 1/2 bolla af
rúsínum og 1/2 bolla af valhnet-
um.
Vatnsmelónan er sett í sósu-
pott svo vatn fljóti yfir. Þegar
suðan er komin upp er hitinn
lækkaður og melónan látin
krauma í 15 til 20 mínútur. Því
næst er potturinn tekinn af og
sigtað og hinum hráefnunum
blandað saman við og öllu hrært
vel saman.
Fyllingin er sett í bökudeig
sem búið er að setja í form og
afgangurinn af bökudeiginu sett-
ur ofan á. Bakan er bökuð í 45
til 50 mínútur í 180 gráða heit-
um ofni. Þegar hún er búin að
vera 25 mínútur í ofninum er
málmpappír látinn ofan á. Best
er að láta bökuna standa á borði
svolitla stund eftir að hún er
tekin úr ofninum.
Ávaxtasalat í
melónukörfu
Þegar gestum er boðið upp á
ávaxtasalat er upplagt að bera
það fram í vatnsmelónukörfu.
Til að hægt sé að búa til körfu
úr vatnsmelónu þarf hún að
vera ílöng. í salatið er best að
nota 1 cantaloupe-melónu, 1
hunangsmelónu, 1 ferskan an-
anas, 2 ferskar perur eða
nektarínur, 2 bolla af ferskum
bláberjum og myntulauf til
skrauts.
Efsti hlutinn er skorinn af
vatnsmelónunni (geymdur þang-
að til seinna) og síðan eru búnar
til kúlur úr innhaldinu með sér-
stökum kúluskera. Kúlurnar eru
síðan hreinsaðar og geymdar í
ísskáp. Best er að skera síðan
þunnan sneið af melónunni að
neðan þannig að hún geti staöið.
Kúlur eru einnig búnar til úr
hinum melónunum og ananas-
inn skorinn niður og það sett i
ísskáp. Rétt áður en salatið er
borið fram er öllum ávöxtunum
blandað saman og perunum og
bláberjxmum bætt út í. Að lok-
rnn er það sett í vatnsmelónu-
körfuna og skreytt með myntu-
laufum og körfuhald búið til úr
efsta hlutanum af vatnsmelón-
unni.
Með ávaxtasalatinu er svo
hægt að hafa hungangshmesósu
en í hana þarf aðeins 2 msk.
limesafa, 3 msk. hunang og 1/2
bolla hvítvín eða ginger ale.
Þessu er einfaldlega blandað vel
saman og þá er sósan tilbúin.
Oddukaffi
í Hellisgeröi
Gengilbeinan í Oddukaffi segist
vera búin að reka litla kaftihúsið í
Hellisgerði undanfarin fiögur sumur.
„Þaö hefur yfirleitt verið nóg að gera
þar til í sumar. Ég held að það sé
vegna þess að það er verið að laga göt-
una og það fælir fólk frá. Karlamir
era búnir að lofa því að vera búnir að
þessu fyrir verslunarmannahelgina og
vonandi aukast viðskiptin þá.“
Oddukaffi, sem upprunalega var
íbúðarhús, er minnsta kaffthús sem ég
hef komið inn á. Ég sá ekki betur en
það væra einungis tvö lítil borð inn-
andyra. Fyrir utan era aftur á móti
bekkir sem gaman er að sitja við á
góðviðrisdögum. Andrúmsloftið á
Oddukaffi er svo heimilislegt að mér
leið eins og það væri sunnudagur og
ég hefði bragöiö mér í heimsókn til
ömmu. Kaffið var ljómandi gott og
vafilan með jarðarberjasultu og rjóma
ekki síðri. Verðið er eins og gengur og
gerist, kaffi með ábót kostar tvö
hundrað krónur og vafflan tvö hundr-
uð og fimmtíu.
Vinalegt kaffihús í skemmtilegu
umhverfi sem gaman er að heimsækja
á góðviðrisdögum.
Súfistinn
Andrúmsloftið á Súfistanum er í
anda dulhyggjunnar sem staðurinn er
nefndur eftir. Súfistinn er eina kaffi-
húsið á landinu svo ég viti sem er í
„Vatnsmelónan er mjög safa-
mikil og hentar því vel í ferska
drykki," segir Ingi Rafn Hauksson,
veitingastjóri á Brasserie Borg, á
meðan hann sker niður melónu í
svalandi sumardrykk. Hann segir
að í þennan drykk dugi einn fiórði
hluti vatnsmelónunnar í fiögur
glös en hún er meginuppistaða
hans. Vatnsmelónan er síðan
maukuð í matvinnsluvél eða mix-
ara með ísmolum. „Best er að hafa
vatnsmelónuna vel þroskaða því
annars er hætta á að hún maukist
illa,“ segir Ingi Rafn. ísmolar eru
nauðsynlegir til
að gera
drykkinn
kaldan og
ferskan. Þeg-
ar búið er aö
mauka
vatnsmelón-
una er jarðar-
berjabragðefni
bætt út í og
segir Ingi
Rafn aö það
sé bara eitt af
mörgum
bragöefnum
i drykki
sem til eru
og gott sé
að eiga við
höndina.
Sítrónusafi
er það næsta
sem fer í
drykkinn og
þegar búið er að
blanda öllu vel sam-
an í vélinni eða mixaran-
um er drykknum hellt í
glös. Það síðasta er að
bæta við ísmolum og
skreyta glasið til að
mynda með með
jarðarberjum og
appelsinum.
„Þessi
vatnsmelónu-
drykkur hentar
vel sem fordrykkur fyrir grill-
matinn eða einfald-
lega til að
svala þorst-
anum þegar
maður sit-
ur út á svöl-
um í sólinni
þegar heitt er í
veðri.“
Hann
landsmenn til að reyna
sig við drykkjargerð-
ina enda eigi flestir
þau tæki og tól sem til þarf.
Hér fylgir svo uppskriftin að
sumardrykknum og þess má geta
að heil melóna dugar í 12 glös.
1/4 vatnsmelóna
5 cl jarðarberjabragðefni
(strawberry mix)
3 cl sítrónusafi
ísmolar
jarðarber og
appelsínusneiðar til skrauts.
segir ao
ef menn vilji
bragðbæta
drykkinn, til
dæmis þegar
hann er not-
aður sem for-
drykkur í grill-
veislunni, geti
verið sniðugt að
setja romm út í
eða jafnvel ein-
hvern líkjör, til dæmis
appelsínulíkjör eða
melónulíkjör. „Þótt
vatnsmelónan henti vel í
sumardrykki er vel hægt
að nota hvaða ávexti
sem er í slíka
drykki, svo
framarlega sem
þeir eru fersk-
ir,“ segir Ingi
Rafn sem hvetur
Vatnsmelónu
barbecuesósa
Safa úr vatnsmelónu má nota
þegar kemur að því að laga bar-
becuesósu og hér er uppskrift að
einni slíkri. 1/2 bolli af
vatnsmelónusafa, 1/2 bolli af
balsamic vínediki, 1/4 bolli
púðursykur, 1/4 bolli ;
sojasósa, 2 msk. grænmetisolia,
2 msk. dijonsinnep, 2 hvítlauks-
rif og 2 tsk. af rauðum pipar.
Þessu öllu er blandað vel saman
og nota má sósuna á grænmeti,
kjúkling, svínakjöt og fisk til aö
marinera. Best er að láta kjötið
marinerast í nokkra tíma eða
yfir nótt. Einnig er hægt að
pensla matinn rétt áöur en hann
er grillaður.
Næringargildi
Vatnsmelónur eru mjög heilsusamlegar og þær innihalda efni sem varna því
aö menn fái krabbamein og aðra slíka sjúkdóma. Einnig er í þeim mikil orka og
svo eru þær eru líka algjörlega fitulausar.
280 grömm af vatnsmelónu innihalda:
Kaloríur 90
Prótín 1 g
Kolvetni 23 g
Fita 0 g