Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Síða 40
48
Helgarblað
Jack Lemmon 1925-2001:
'Stórleikari
sem öllum
þótti vænt
„Hamingja er það orð sem mér dettur
fyrst í hug þegar ég hugsa um Jack
Lemmon,“ sagði leikstjórinn Billy Wild-
er þegar hann var spurður hvemig væri
að vinna með honum: „Sem leikari er
hann einhvers staðar mitt á milli
Charlie Chaplin og Cary Grant og sem
maður er hann einstakur vinur." Billy
Wilder er sá leikstjóri sem oftast leik-
stýrði Lemmon og saman gerðu þeir
sumar af eftirminnilegustu kvikmynd-
um á ferli þeirra beggja. Nægir að nefna
Some Like It Hot, The Apartment,
Fortune Cookie og The Front Page.
Jack Lemmon, sem lést í enda júní-
' mánaðar, var einhver besti og virtasti
leikarinn í Hollywood. Hann var einn af
fáum leikurum sem hafði fullkomið
vald bæði á gamanleik og drama. Sem
gamanleikari náði hann háum hæðum í
myndum á borð við Irma la Douce, Odd
Couple og Some Like It Hot og var ekki
síður eftirminnilegur i dramatískum
myndum á borð við The Apartment,
Save the Tiger og Days of Wine and
Roses. Þá er ógetið samstarfs hans og
Walters Matthaus en sjaldan eða aldrei
hafa stórstjömur á borð við þá tvo náð
jafhvel saman í leik og ein ástæðan fyr-
ir þessu góða samstarfi var sú að þeir
voru perluvinir. Aðeins eitt ár leið milli
dánardægra þeirra.
Forstjórasonur
Segja má að Jack Lemmon hafi fæðst
með silfurskeið í munninum. Faðir
hans var forstjóri stærsta kleinuhringja-
fyrirtækis í Bandaríkjunum og bjó fjöl-
skyldan í Boston. Lemmon fékk hefð-
bundið uppeldi rikra bama, fór í einka-
skóla og lauk háskólanámi við Harvard
með gráðu i leiklist. Áður en hann hóf
að leita fyrir sér á fiölunum gerði hann
stuttan stans í sjóhemum og hélt síðan
til New York þar sem hann í upphafi
sjötta áratugarins lék á Broadway og í
sjónvarpi. Fyrsta alvöruhlutverkið sem
hann fékk i kvikmynd var á móti Judy
Holliday í It Should Happen to You.
Samstarf þeirra gekk það vel að þau
vom sett saman aftur í Phfft árið 1954.
Eftir það fékk hann á sig orð fyrir að
vera góður gamanleikari og var ekki lit-
ið til afreka hans á Broadway þar sem
hann hafði sýnt góðan leik i dramatísk-
um hlutverkum.
Stóra tækifærið fékk hann í Mr. Ro-
berts, sem gert var eftir leikriti sem
hann hafði leikið í. Frammistaða hans í
þeirri mynd skilaði honum óskarsverð-
launum fyrir aukahlutverk. Fram á sjö-
unda áratuginn lék Lemmon jöfnum
höndum í kvikmyndum og leikhúsi.
Hann var þekktur leikari án þess að
vera kvikmyndastjama. Þann titil öðl-
aðist hann þegar Billy Wilder valdi
hann til að leika á móti Tony Curtis í
Some Like It Hot. Frammistaða hans
þar er öllum ógleymanleg. Stuttu síðar
fékk hann tækifæri til að sýna hvað í
honum bjó þegar hann lék drykkju-
manninn í Days of Wine and Roses. í
þeirri mynd var leikur hans mjög sann-
færandi. Sjálfur átti Jack Lemmon við
sams konar vandamál að stríða á þess-
um árum og haföi því reynsluna. 1 hönd
fóm gósentímar fyrir Jack Lemmon og
lék hann hvert stjömuhlutverkið af
öðm og skipaði sér í flokk leikara í
Hollywood sem litið var upp til.
Jack Lemmon og Walter Matthau
Náðu einstaklega vel saman.
Aðeins ár leið á milli dánardægra þeirra. Hér eru þeir í Out to Sea.
um
Lemmon og Matthau
Leiðir Jacks Lemmons
og Walters Matthaus
lágu fýrst saman þegar
Billy Wilder fékk þá
til að leika saman í
The Fortune
Cookie.
Það var þó í The Odd Couple, sem gerð
var tveimur ámm síðar, sem þeir slógu
i gegn sem dúett. í upphafi átti Billy
Wilder einnig að leikstýra þeirri mynd
en Paramount fannst hann of dýr og
Gene Saks, sem hafði leikstýrt leikrit-
Some Like It Hot
Jack Lemmon ásamt Tony Curtis
klæddust kvenmannsfötum til að
komast í kvennahijómsveit.
inu á Broadway, var fenginn til að
stjóma myndinni. Fórst honum það vel
úr hendi. Það sem þeir félagar áttu eftir
óiifað vora þeir af og til að leika saman
í kvikmyndum og þó þær væru misjafn-
ar að gæðum þá náðu þeir alltaf vel
saman. Það átti því vel við að síðasta
mynd þeirra saman skyldi vera Odd
Couple II þar sem þeir slógu á létta
strengi í hlutverkum sem þeir gjör-
þekktu.
Seinni óskarsverðlaun sín fékk Jack
Lemmon fyrir leik sinn í Save the Tiger
(1973) og nú fyrir aðalhlutverk. Það
gekk ekki átakalaust að koma þeirri
mynd á koppinn. Lemmon hafði fengið
handritið sent og var yfir sig hrifinn.
Framleiðendur vom ekki eins vissir um
gæðin og það var ekki fyrr en Lemmon
sagðist myndu vinna launalaust gegn
þvi að hann fengi ágóðahlut ef einhver
yrði. Síðar sagði Lemmon að þessi kvik-
mynd væri sú sem hann væri hreykn-
astur af. 1 kjölfarið tók hann sér tveggja
ára hlé, lék síðan í nokkmm gaman-
myndum, en kom síðan sterkur inn í
The China Syndrome (1979) þar sem
hann lék stjómanda í kjamorkuveri
sem kemur á framfæri göllum í verinu.
Jafnt og þétt hefur Lemmon verið að
minnka við sig, enda missti hann heils-
una um miðjan níunda áratuginn og
Lelkstjórinn og leikarlnn
Sá ieikstjóri sem Jack Lemmon vann mest meö var Billy Wilder. Hér eru þeir
við upptökur á The Apartment.
Um Verslunarmannahelgina
—
Skemmtistaður
Eín vinsœlasta hljómsveit landsins
Stuðbandalagið frá
Borgarnesi
iaugarda8s m
Odd-vitinn • pub-skemmtistaöur • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867 4069
náði henni aldrei almennilega aftur. Má
segja að síðasta stórhlutverk hans sé í
The Missing, frá árinu 1983. En fyrir
það hlutverk og hlutverk sitt í The
China Cyndrome var hann í tvö skipti
valinn besti leikarinn á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes.
Á síðustu árum hafði Lemmon meira
og meira verið að færa sig aftur inn í
sjónvarpið og lék þar nokkur eftir-
minnileg hlutverk sem hann var verð-
launaður fyrir. Síðasta hlutverk hans í
kvikmynd var sögumaður í kvikmynd
Roberts Redfords, The Legend of Bagger
Vance.
Jack Lemmon var tvígiftur. Fyrri
konunni, Cynthiu Stone, var hann gift-
ur á árunuml950-1956 og áttu þau einn
son, Christopher. Seinni kona hans var
leikkonan Felicia Farr. Þau giftu sig
1962 og lifir hún mann sinn. Þau áttu
eina dóttur, Courtney, fædda 1966.
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
DV
Bfógagrrrýrrí
The Yards
Hver er sjálf-
um sér næstur
James Gray
er ungur banda-
rískur leikstjóri
sem heftm gert
tvær gæðamyndir,
Little Odessa og
The Yards. Kvik-
myndir sem eiga
það sameiginlegt
að fialla um skipu-
lega glæpastarfsemi út frá mannlegum
þáttum sem gerir það að verkum að
myndir hans em blanda af spennu og
drama. Það hafa þó verið örlög mynda
hans hér á landi að fara beint á mynd-
bandamarkaðinn sem er óskiljanlegt
þegar höfð era í huga í huga gæði
þeirra og sérstaklega það að þær em
stjömum hlaðnar. Mark Wahlberg,
Joaquin Phoenix og Charlize Theron,
sem leika aöalhlutverkin í The Yards,
era meðal heitustu ungu leikaranna í
Hollywood og hafa sjaldan verið betri.
Og þegar við bætast kempur á borð viö
James Caan og Faye Dunaway þá er
komin meira en boðleg kvikmynd í
bíó.
Hvað um það. í Little Odessa fiallaði
Gcuy um rússnesku mafíuna í New
York. í The Yards, sem verður að telj-
ast heilsteyptari kvikmynd, er það
spilling innan verktakafyrirtækis sem
teygir sig inn í innsta hring borgar-
stjómarinnar. Mark Wahlberg leikur
ungan mann sem nýkominn er úr
fangelsi þar sem hann hafði setið fyrir
að hafa tekið á sig sökina fyrir aðra.
Vinir hans taka honum fagnandi og
vilja allt fyrir hann gera. Gallinn er að
öll starfsemi sem þeir fást við er ólög-
leg. Þegar allt fer í handaskolum við
eitt verkið kemur í ljós að vinskapur-
inn nær ekki langt og hver er sjálfum
sér næstur. -HK
Útgefandl: Skífan. Lelkstjóri: James Gray.
Lelkarar: Mark Wahlberg, Joaquin Phoeniox,
Charlize Theron, James Caan og Faye
Dunaway. Bandarikin, 2000. Lengd: 115 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
The Thin Blue Ue
Rotið kerfi &
★★ Spilling í stór-
um mæli er við-
fangsefni The Thin
Blue Lie eins og í
The Yards. Sjónar-
homið er samt
annað. í The Thin
Blue Lie er það
rannsóknarblaða-
mennskan sem
gerir það að verkum að upp kemst um
spillingu og grimmd lögreglunnar í
Fíladelflu, spillingu sem borgarstjór-
inn á sjálfur þátt í að skapa. Það sem
gerir myndina áhugaverða fýrir utan
að um er að ræða þétta og spennandi
mynd er að hún er byggð á sönnum at-
burðum og er aðalpersónan blaðamað-
urinn Jonathan Neumann en greina-
flokkur sem myndin er byggð á vann
til Pulitzer-verðlaunanna.
í The Thin Blue Lie er rakin sagan
sem gerði það að verkum að borgar-
stjóri Fíladelfiu varð að hætta við að
bjóða sig fram í þriðja sinn. Neumann
er ungur og ákafur blaðamaður sem
kemst að því að lögreglumenn borgar-
innar eru ósparir á kylfur og önnur
vopn til að fá játningar frá þeim sem
þeir halda að hafi framið glæp og þá
skiptir engu máli hvort maðurinn sé
raunverulega sekur eða ekki. Lögregl-
an kemst fljótt að því aö Neumann er
að grafast fyrir um aðferðir þeirra og
brátt er hann i lifshættu. Það sem
verður honum til bjargar er að ekki
era allir lögreglumennimir spilltir.
Helsti galli The Thin Blue Lie er að
raunsæið er oft látið liggja milli hluta
til að geta skapað spennu þannig að sú
staðreynd að myndin er byggð á sönn-
um atburðum gerir það að verkum að
hún verður ótrúverðug. Það sama á
við um leik aðalleikaranna. Þeir virka
aldrei mjög trúverðugir. -HK
Útgefandl: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Roger
Voung. Leikarar: Rob Morrow, Randy Quaid,
Paul Sorvino og Cynthia Preston. Bandaríkin,
2000. Lengd: 97 mín. Leyfð öllum aldurshóp-
um.
4-
mm