Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 42
50
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
Helgarblað__________________________________________________________________________________________________PV
Sé með lokuðum augunum
- Jón Rafnkelsson miðill leysir frá skjóðunni
Það er margt milli himins
og jarðar sem við skiljum
ekki og oft er erfitt að við-
urkenna að aðrir sjái heim-
inn með öðrum augum en
við. Jón Benedikt Rafnkels-
son er einn þeirra sem sjá
annað og meira en aðrir.
Hann er landsþekktur
vegna fyrirbæna og margir
telja sig hafa hlotið lœkn-
ingu með hans hjálp.
Jón segist hafa fæðst skyggn og
oft heyrt í og séð ýmislegt sem
aðrir skynjuðu ekki þegar hann
var bam. „Skyggnin hvarf um
tíma á meðan ég var að flippa út,“
eins og hann kemst að orði. „Ég
vissi stundum að það var einhver við
hliðina á mér þó ég sæi hann ekki. Já,
blessaður vertu, ég er eins viss um það
og að þú situr á móti mér.“
Byrjaðl að lækna meri
„Ég pældi ekkert í miðilshæfileik-
unum á meðan ég var krakki en
mamma ýjaði stundum að lækninga-
hæfileikum mínum í sambandi við
dýr.
Þegar ég fór að eldast langaði mig að
prófa mig áfram en þorði ekki að segja
nokkrum manni frá því, af hræðslu
við að gera mig að fífli. Að lokum gat
ég ekki setið á mér og fór að gera til-
raunir með skepnur, alveg eins og
menn gera í læknisfræðinni, og gekk
bara vel. Þetta byrjaði allt á meri sem
Gutti bróðir átti. Dýralæknirinn var
búinn að úrskurða að augað í henni
væri ónýtt eftir slys en ég vorkendi
henni svo mikið að ég ákvað að prófa.
Smátt og smátt fór merinni að batna
og eftir nokkrar vikur var hún orðin
alheil. Þegar dýralæknirinn skoðaði
augað í merinni aftur ætlaði hann ekki
að trúa sínum eigin augum - hann
hristi bara hausinn og gat engan veg-
inn útskýrt hvað hafði gerst."
Boð að handan
Jón segir aö með árunum hafi hann
sífellt orðið forvitnari um störf miðla.
„Ég greip því tækifærið þegar einn
slíkur kom til Hornafjarðar, fyrir tíu
árum, og fór að hitta hann. Þótt ótrú-
legt megi virðast komu boð að handan
i gegnum hann um það sem var fram
undan hjá mér. Handanheimaverun-
um fannst líklega kominn tími til að
hrista upp í mér. í framhaldi af því fór
ég til fleiri miðla til að fá staðfestingu
og viti menn, þetta voru alltaf sömu
skilaboðin. Ég átti að fara og hjálpa
fólki og jafnvel dýrum. Ég fór næst á
námskeið sem felst i þvi að prófa
næmi og getu manna á þessu sviði. Á
námskeiðinu var til dæmis bundið fyr-
ir augun á mér og ég beðinn að lýsa
sjúkdómum fólks sem ég hafði aldrei
séð. Það tók mig tíma að viðurkenna
hæfileikana fyrir sjálfum mér og öðl-
ast leikni í að stilla mig inn á rétta
bylgjulengd."
Jarðtengíng
„Eftir að ég náði tökum á þessu fór
ég að prófa lækningahæfileikana á
kunningjunum og gera tilraunir. Það
kann að hljóma lygilega en ótrúlegustu
hlutir fóru að gerast og stundum á
staðnum.
Ég byrjaöi náttúrlega alltaf á að ná
sambandi við leiðbeinendur mína og
biðja um hjálp, ég get ekkert án þeirra.
í raun og veru er ég ekkert annað en
jarðtenging eða millistykki fyrir þá
sem vilja vinna í gegnum mig og ná
jarðsambandi en það þurfa ekki alltaf
að vera sömu verumar."
Konan hefur séð Indíánann
„Mér var sagt að það væri gamall
indíáni sem stjómaði öllum mínum
málum þama hinum rnegin," segir Jón
og bendir á teikningu af indíána uppi
á vegg hjá sér, „og sæi um að ekkert
færi úr böndunum eða að vitlausir að-
ilar kæmust í gegn.“
DV-MVNDIR V. HANSEN
Röntgenmiðill
að sjá inn í líkama fólks og þá sé meiniö eins og svört slæöa eöa ský.
Þó að ég taki enn þá á móti fólki geri
ég mun minna af því en áður. Ég get
ekkert skorast undan.“
Jón leggur áherslu á að fólk megi
ekki hætta að fara til læknis þrátt fyr-
ir að það sækist eftir aðstoð að hand-
an. „Þegar jarðneskir læknar ráða við
sjúkdóminn era hinir ekkert að skipta
sér af honum."
Endanlega genginn af
göflunum
„Einu sinni stóð ég hjá konu á með-
an handanheimalæknamir voru að
krukka í henni. Hún var veik í gall-
blöðranni, það var eins og það væri
gragg i henni.
Meðan á aðgerðinni stóð var eins og
það opnuðust varir á maganum á
henni. Verumar stóðu yfir konunni og
það láku snjóhvítir dropar úr höndun-
um á þeim ofan í sárið og í gallblöðr-
una. Þegar dropamir komu í graggið
var eins og það spryngi, graggið hvarf
og gallblaðran var orðin hrein. Síðan
lokaðist sárið eins og rennilás. Konan
sagði mér að hún hefði fundið fyrir að-
gerðinni á meðan á henni stóð.
Ég er reyndar ekki svo galinn að
halda að þetta hafi gerst svona, verum-
ar vora bara að sýna mér lækninguna
á þann hátt að ég skildi. Mér fannst
rosalega skrýtið að sjá svona inn í
likamann og hélt að ég væri endanlega
genginn af göflunum."
Að sögn Jóns varð honum mjög létt
þegar hann kynntist fólki sem sér eins
og hann. „Þú trúir því ekki hvað ég
varð feginn að vita til þess að ég væri
ekki einn um að vera svona skrýtinn."
-Kip
Arnanes i Nesjum
Þegar Jón keypti húsiö haföi þaö staöiö autt í nokkur ár. Hann segir aö fyrr-
verandi áþúendur kíki stundum í heimsókn þrátt fyrir aö þeir
hafí látist fyrir mörgun árum.
Stoð og stytta
Jón Benedikt Jónsson og Ásrún Svava Jónsdóttir. „Ás-
rún hefur staöiö eins og klettur viö hliöina á mér frá
því viö kynntumst. Ég var ótrúlega heþpinn aö hún
skyldi vilja mig," segir Jón og blikkar til hennar.
lýsa honum fyrir fólkinu. Það fer alveg
eftir tilefninu við hvem ég fæ sam-
band, það er ekkert verið að hleypa
manni óþarflega langt yfir mörkin.
Það virðast vera mismunandi þroska-
og tilverastig þama hinum megin sem
þeir tengja einhvem veginn saman, al-
veg eins og við tengjum okkur við
þennan heim.
Áður en ég bið læknana um að
koma til mín fer ég með bæn til að fá
vemd.“ Jón segir að það séu til ill öfl
sem reyni að hafa áhrif í gegnum hann
og aðra miðla. „Ef það væri ekkert illt
í heiminum þyrfti gott ekki að vera til.
Sem sagt, maður biður vemdara sína
um vernd og býður læknana vel-
komna.“
Fæ að vita hvað er að
„Þegar fólk kemur til mín sé ég
hvað er að hjá þvi. Ég fæ að vita hvort
meinið er líkamlegt eða tilfinningalegt
og það þarf ekki einu
sinni að segja mér
það.“ Við þessi orð er
ekki laust við að það
fari léttur hrollur um
viðmælanda Jóns og
hann hugsar með sér:
Hvað ætli sé að mér?
„Undantekningarlít-
ið finnur fólkið sem ég
vinn með fyrir því þeg-
ar verið er að með-
höndla það og stundum
hefur fólk meira að
segja fundið fyrir því
þegar ég tala við það í
síma. Þegar ég bið
lækna að heimsækja
fólk þykir mér afskap-
lega vænt um þegar það
hefur samband við mig
og segir mér hvemig
fór.“
Þegar Jón er spurður um fólkið sem
hann sér segir hann að þetta sé bara
venjulegt fólk eins og við. „Fötin hafa
reyndar breyst frá þvi að ég var krakki
nema þegar maður hittir huldufólkið -
það er svolitið á eftir í tískunni," segir
hann og hlær með augunum.
Á mína bamatrú
í herberginu sem Jón vinnur í er
mikið af helgimyndum og kristnum
trúartáknum. Þegar hann er spurður
hvort hann sé trúaður segist hann eiga
sína bamatrú. „Hún hefur reynst mér
vel og ef mér hefur fundist ég eiga bágt
tala ég bara við vin minn,“ segir Jón
um leið og hann bendir á mynd af
Jesú.
„Ég veit að það era til góð öfl en ég
ábyrgist ekki að þau séu eins og kirkj-
an boðar. Prestamir era mannlegir og
við vitum að Biblían hefúr oft verið
Verndarar aö handan
Teikningarnar á veggnum sýna handan-
heimaverur sem Jón segir aö verndi sig
gegn vondum öflum sem sækjast eftir
aö ná völdum yfir honum.
Krossar, sálmabók og kristallar
Barnatrúin hefur reynst mér vel.
Jón segir að Ásrún konan sín hafi
einu sinni séð indíánanum bregða fyr-
ir. „Hún var að fara niður stigann eina
nóttina þegar hún heyrði þrask, þegar
hún leit upp stóð hann fyrir framan
hana í fullum herklæðum. Henni brá
hræðilega og öskraði upp en þá hvarf
hann. Fólk verður að vera undir það
búið að sjá svona lagað, annars bregð-
ur því óþægilega. Ég held að það sé
löngu ákveðið hverjir eiga að sjá og
hverjir ekki og við höfum ekkert um
það að segja. Manni er þetta ætlað.“
Eins og að stilla útvarp
„Persónulega hef ég alltaf haft gam-
an af þessu en í dag sé ég bara með lok-
uðum augunum þannig að
draugfólkið er ekkert að flækj-
ast fyrir mér i tima og ótíma.
Ég bið um samband og stilli
mig inn, alveg eins og þegar
fólk stillir útvarp."
Jón segist ekki missa jarð-
samband eða vera út úr heiminum
þegar hann tengir sig inn á aðrar
bylgjur. „Ég er meðvitaður um um-
hverfið - þetta er svokallaður hálf-
trans. Þeir sem falla i fullkominn trans
vita ekkert í sinn haus og muna ekkert
eftir atvikinu."
Jón leggur áherslu á að hann sé
ekki sambandsmiðill sem færi fólki
fréttir frá afa og ömmu að handan. „Ég
er lækningamiðill en stundum þvælist
einhver með sem viðkomandi þekkir
og það er bara bónus. Ég reyni þá að
notuð í vondum tilgangi til að ná völd-
um yfir lýðnum. Það er margt gott í
henni en stundum er það misskilið eða
hreinlega mistúlkað. Mér finnst að fólk
eigi að reyna að sameina allt það góða
sem býr í hjarta þess og lifa sam-
kvæmt því.“
Orka og andorka
„Hinir heimamir era allt í kringum
okkur en ekki einhvers staðar úti á
heimsenda eins og margir virðast
halda. Mér finnst gott að líkja sam-
bandinu við handanheimana við út-
varp. Við erum stillt inn á eina stöð og
verumar hinum megin inn á aðra og
það er litið mál að skipta á milli ef
maður er þannig gerður."
Jón segir að verumar séu í öllum
regnbogans litum þegar þær birtast
honum og að þær noti einhvers konar
ljós eða orku við lækningar. „Ég hef
ekki hugmynd um eðlisfræðina á bak
við þetta né hvemig orkan virkar en
þetta era orkugeislar úr alheiminum
sem veruma geta stýrt. Það er líka til
vond orka eða andorka og ég hef séð
hana sem grásvart ský og heyrt í
henni eins og hvin „hviss“ eða árásar-
hljóð. Ég fæ gæsahúð af að hugsa um
hana og það líður öllum illa í návist
hennar.“
Jón segir aö hann fái stundum
Mikið álag
„Orkan getur verið mismunandi á
milli staða. Ég held að flestir kannist
við að hús geta haft mismunandi anda
en það stafar af því að orkan í þeim er
misgóð."
Jón segir að miðilsstarfið taki mikið
á hann og að álagið geti verið hræði-
legt. „Það getur enginn stimdað miðils-
störf til lengdar án þess að brenna upp.
—