Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Blaðsíða 45
53
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
X>V_______________________________________________________________________________________________íslendingaþættir
Mánudagurinn 6. ágúst
90 ára__________________
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
85 ára______________
Björgvin Ólafsson,
Grænumörk 3, Selfoss.
80 ára_____________________________
Ágústa Árnadóttir,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
Þuríður Hermannsdótt'r,
Fossvöllum 2, Húsavik.
75 ára_____________________________
Gunnar Karl Gunnarsson,
Gullsmára 7, Kópavogi.
Herluf Clausen,
Gnoöarvogi 42, Reykjavík.
Marheiður Viggósdóttir,
Hverfisgötu 47, Hafnarfiröi.
Sigurlaug Helga Leifsdóttir,
Marklandi 16, Reykjavík.
Þórarinn Jónsson,
Skarðaborg, Húsavík.
70 ára_____________________________
Árni Þór Þorgrímsson,
Kirkjuvegi 15, Keflavík.
Ingunn Jónsdóttir,
Neöri-Hjarðardal 3, Þingeyri.
60ára______________________________
Kristín Gestsdóttir,
Melteigi 18, Keflavík.
Rósa Ámundadóttir,
Langholtsvegi 182, Reykjavík.
Sigurjón Pálsson,
Miövangi 105, Hafnarfirði.
50 ára_____________________________
Anna María Bjarnadóttir,
Hrísmóum 3, Garöabæ.
Gísli Pétursson,
Álftageröi, Varmahlíð.
Guðjón Rúnar Jónsson,
Álfhólsvegi 133, Kópavogi.
Helga Jónsdóttir,
Hálsaseli 48, Reykjavík.
Sigurður Helgi Jónsson,
Reykjanesvegi 50, Njarðvík.
40 ára_____________________________
Anna Elín Svavarsdóttir,
Sörlaskjóli 82, Reykjavík.
Bryndís Bára Garðarsdóttir,
Bakkavör 1, Seltjarnarnesi.
Davíð Baldursson,
Safamýri 53, Reykjavík.
Friðmundur H. Helgason,
Dynskógum 18, Hveragerði.
Hafdís Hrönn Garðarsdóttir,
Bakkavör 1, Seltjarnarnesi.
Ingimundur Ingimundarson,
Neshömrum 2, Reykjavík.
Ingunn Jóna Björnsdóttir,
Marargötu 2, Grindavík.
Jónína Steinunn Jónsdóttir,
Akurholti 18, Mosfellsbæ.
Lárus Sighvatur Lárusson,
Akurholti 19, Mosfellsbær.
Oddgeir Kristjánsson,
Lautasmára 25, Kópavogi.
Þorgerður Sigurðardóttir,
Hábæ 44, Reykjavík.
IJrval
- gott í hægindastólinn
Níræður
harðabónda í Mörk í Laxárdal Jóns-
sonar. Móðir Þórðar var Steinunn
Þórðardóttir, b. í Ljótshólum í
Svínadal Þórðarsonar, b. á Kúfu-
stöðum í Svartárdal Þóðarsonar, b.
á Kúfustöðum Jónssonar, b. á
Lækjamóti í Víðidal Hallssonar, b. á
Þóreyjarnúpi Björnssonar, b. á Guð-
laugsstöðum í Blöndudal Þorleifs-
sonar, ættföður Guðlaugsstaðaætt-
ar. Bróðir Halls var Ólafur á Svína-
vatni, langafi Guðmundar Arnljóts-
sonar, alþm. á Guðlaugsstöðum, afa
Páls á Guðlaugsstöðum, föðir
Björns á Löngumýri, afi Páls á
Höllustöðum og langafi Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar.
Ellen Johanne var dóttir Jens
Ludvigs Joachims Kaaber, stór-
kaupmanns og forstjóra í Kaup-
mannahöfn, bróður Ludvigs Kaaber
bankastjóra. Móðir Ellenar var
Sara, f. í Fredericia í Suður-Jót-
landi, af frönskum hugenottaættum.
Úlfar Þórðarson
augnlæknir í Reykjavík
syni verslunarmanni.
Úlfar sat í stjórn Sundfélagsins
Ægis 1931-34, var formaður Knatt-
spymufélagsins Vals 1946-50, sat í
stjórn íþróttavallanna í Reykjavík
um skeið, var borgarfulltrúi í
Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1958-78, sat í sjúkrahúsnefnd
Reykjavíkurborgar 1960-70, var
stofnfélagi Fuglaverndunarfélags ís-
lands 1963 og fyrsti formaður þess,
formaður ÍBR 1967-82, fulltrúi í heil-
brigðismálaráði Reykjavíkurborgar
1970-78 og formaður þess 1972-74,
formaður stjórnar sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar 1975-78, formað-
ur byggingarnefndar Borgarspítal-
ans 1973-78 og í bygginarnefnd aldr-
aðra 1980-84.
Úlfar hefur skrifað Qölda greina í
innlend og erlend læknarit og sat i
ritstjórn Acta Ophthalmologica
1958-78. Hann er heiðursfélagi
Sundfélagsins Ægis og Knatt-
spyrnufélagsins Vals.
Fjölskylda
Úifar kvæntist 31.7. 1938 Unni
Jónsdóttur, f. 16.4. 1916, d. 8.6. 1994,
BA í ensku og frönsku og kennara.
Hún var dóttir Jóns Hjálmarssonar,
f. 1.10. 1889, fórst með togaranum
Ólafi 2.11. 1938, vélstjóra og togara-
sjómanns, og k.h., Elísabetar Sigfús-
dóttur, f. 20.6. 1891, d. 6.6. 1978, hús-
móður.
Börn Úlfars og Unnar: Þórður
Jón, f. 14.6. 1939, fórst með flugvél-
inni TF-AID 18.3. 1963, flugmaður
hjá Loftleiðum, var kvæntur Guð-
nýju Ingadóttur Árdal ritara; Ellen
Elisabet, f. 13.10. 1942, húsmóðir í
Reykjavík; Unnur, f. 4.6.1948, blaða-
maður og fararstjóri í Reykjavík en
maður hennar er Gunnar Gunnars-
son, stjórnmálafræðingur og sendi-
herra; Sveinn Egill, f. 2.2. 1950, hag-
fræðingur og framkvæmdastjóri í
Úlfar Þórðarson augnlæknir,
Bárugötu 13, Reykjavík, varð níræð-
ur í gær.
Reykjavík,
kvæntur
Ágústu Sigur-
birnu Björns-
dóttur.
Systkini Úlf-
ars: Hörður, f.
11.12. 1909, d.
6.12. 1975, lög-
fræðingur og
sparisjóðs-
stjóri SPRON í
Reykjavík;
Sveinn, f. 10.1.
1913, dr.
rer.nat, skóla-
meistari á
Laugarvatni
og síðar pró-
fessor f
Kanada; Nína
Thyra, f. 27.1.
1915, húsmóðir
í Reykjavík;
Agnar Jóhannes, f. 11.9.1917, rithöf-
undur og bókavörður í Reykjavík;
Gunnlaugur Einar, f. 14.4. 1919, d.
20.5. 1998, hrl. í Reykjavík; Sverrir
Friðþjófur, f. 29.3. 1922, blaðamaður
í Reykjavík.
Foreldrar Úlfars voru Þórður
Sveinsson, f. 20.12. 1874, d. 21.11.
1946, yfirlæknir á Kleppsspítalanum
í Reykjavík og prófessor, og k.h.,
Ellen Johanne Sveinsson, f. Kaaber
9.9. 1888, d. 24.12. 1974, húsfreyja.
Ætt
Þórður var sonur Sveins, b. á
Geithömrum í Svínadal Pétursson-
ar, b. á Refsstöðum, bróöur Krist-
jáns, afa Jónasar Kristjánssonar
læknis, afa Jónasar Kristjánssonar
ritstjóra. Kristján var einnig langafi
Sigurlaugar, móður Jónasar Jónas-
sonar útvarpsmanns. Pétur var son-
ur Jóns, b. á Snæringsstöðum Jóns-
sonar, b. á Balaskarði Jónssonar
Starfsferill
i við Reykja-
vík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1930, stundaði nám með Humbolt-
námsstyrk við Albert-Universitát í
Köningsberg í Þýskalandi 1933-34,
lauk embættisprófi i læknisfræði
við HÍ 1936, stundaði kandídatsnám
við Kleppsspítalann í Reykjavík og
á Universitát-Augenklinik í Berlín
1936-37, var kandídat við Landspít-
alann 1937-38, stundaði sérfræði-
nám á Rigshospitalet í Kaupmanna-
höfn, augndeild, 1938^10, öðlaðist al-
mennt lækningaleyfi 1938 og sér-
fræðileyfi í augnlækningum 1940.
Hann var við nám við Harvard
Medical School 1958-59 og lauk það-
an prófi í huglækningum 1959 og
var við nám á Lovelace Clinic í Al-
buquerqe í New Mexico 1963.
Úlfar var aðstoðarlæknir við
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn
1938-40, starfrækti eigin lækninga-
stofu í Reykjavik frá 1940 og var
jafnframt sérfræðingur við Landa-
kotsspítala 1942-81. Þá fór hann
augnlæknisferðir til Færeyja að ósk
Færeyinga 1942, var læknir flug-
björgunarsveitar Reykjavíkurflug-
vallar 1950-84 og trúnaðarlæknir
Flugmálastjórnar 1962-97.
Úlfar fór fræga ferð heim til ís-
lands frá Danmörku 1940 er stríðið
hafði lokað fyrir allar ferðir milli
landanna. Gísli Jónsson vélstjóri
festi kaup á gömlum 32 tonna bát í
Fredrikshavn sem þeir nefndu
Frekjuna og sigldu þeir Úlfar á
henni til íslands, ásamt Gunnari
Guðjónssyni skipamiðlara, Lárusi
Blöndal skipstjóra, Björgvin
Frederiksen vélstjóra, Theodór
Skúlasyni lækni og Konráð Jóns-
Fimmtug_________________________________________
Ragnheiður Björg Sigurðardóttir
bóndi í Efstadal í Laugardalshreppi
Ragnheiður Björg Sigurðardóttir,
bóndi í Efstadal í Laugardalshreppi,
verður fimmtug á sunnudaginn.
Starfsferill
Ragnheiður fæddist á Selfossi og
ólst þar upp. Hún stundaði nám i
Gagnfræðaskólanum á Selfossi og
við Húsmæðraskóla Suðurlands á
Laugarvatni.
Ragnheiður starfaði á drengja-
deild á Sólheimum í Grímsnesi og á
Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í
Reykjavík. Hún var búsett í Reykja-
vík 1971-75. Þá flutti hún að Efsta-
dal í Laugardal og hóf þar bústörf.
Ragnheiður hefur starfað með
Ungmennafélagi Laugdæla og I
söngkór Miðdalskirkju auk þess
sem hún situr nú í stjórn Kvenfé-
lags Laugdæla.
Fjölskylda
Ragnheiður giftist 3.11.1973 Theo-
dór Indriða Vilmundarsyni, f. 17.9.
1950, bónda. Hann er sonur Vil-
mundar Indriðasonar, f. 13.4. 1916,
d. 20.8. 1999, og Kristrúnar Sigur-
finnsdóttur, f. 3.1. 1919, bænda i
Efstadal.
Börn Ragnheiðar og Theodórs
Indriða eru Sigrún, f. 17.5. 1971,
garðyrkjufræðingur, gift Bjarna Þór
Sigurðssyni íslenskufræðingi og er
dóttir þeirra Kristín Heiða, f. 13.12.
1999; Vilmundur, f. 23.7. 1973, vél-
smiður, í sambúð með Guðrúnu
Erlu Sigfúsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og er sonur þeirra Óskar Fann-
ar, f. 4.10. 1997; Rakel, f. 30.1. 1982,
nemi í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Systkini Ragnheiðar eru Jóna
Sigríður, f. 14.2.1948, leikskólakenn-
ari í Reykjavík en maður hennar er
Guðmundur V. Þorkelsson; Sigurð-
ur Júníus, f. 19.5. 1954, mjólkurbíl-
stjóri á Selfossi en kona hans er
Hjördís Gunnlaugsdóttir.
Foreldrar Ragnheiðar: Sigurður
Óskar Sigurðsson, f. 18.6. 1922, d.
24.7. 1994, mjólkurbílstjóri á Sel-
fossi, og Guðrún Guðjónsdóttir, f.
21.1.1922, húsmóðir á Selfossi.
Ætt
Sigurður var sonur Sigurðar Sig-
urðssonar frá Ysta-Koti í Vestur-
Landeyjum og Sigríðar Hannesdótt-
ur frá Bollastaðakoti í Hraungerðis-
hreppi. Uppeldisfaðir Sigurðar var
Júníus Ingvarsson og bjuggu þau
Sigríður í Kálfholti.
Guðrún er dóttir Guðjóns Guð-
mundssonar, b. á Voðmúlastaða-
austurhjáleigu í Austur-Landeyjum,
nú Búland, og k.h., Jónu Guð-
mundsdóttur frá Fífustöðum í Arn-
arfirði.
Ragnheiður tekur á móti gestum í
garðinum heima hjá sér 11.8. kl.
21.00. Hlýlegur klæðnaður æskileg-
ur.
Ætla að skemmta sér á Flateyri
Þorlákshafnarbúarnir Ægir Hafberg útibússtjóri og Böövar Gíslason múrara-
meistari eru mættir til Önundarfjarðar
Verslunarmannahelgin í Önundarfirði:
Lýður læknir og Óli popp
messa og gifta á hátíðinni
Mikið verður um dýrðir í Önund-
arfirði um næstu helgi, verslunar-
mannahelgina. Skemmtidagskrá
verður afar íjölbreytt þar sem boðið
verður upp á leiki fyrir börn, pilu-
kastskeppni, kajakróður, hlöðuball
og margt, margt fleira. Búast má við
því að hápunktur hátíðarinnar
verði eldmessa þar sem Lýður
Árnason héraðslæknir og Ólafur
Ragnarsson, poppari og skipstjóri,
þjóna fyrir altari. Þeir félagar gerðu
einmitt garðinn frægan í popp-
messu sem haldin var í kirkjunni á
Flateyri fyrir nokkrum árum og
náðu að tvífylla kirkjuna á einu og
sama kvöldinu. Að þessu sinni verð-
ur messan utandyra, við menning-
ar- og mannlífssetur Önfirðingafé-
lagsins að Sólbakka. En það er Ön-
firðingafélagið í Reykjavík og vina-
félag Ingjaldssands sem gengst fyrir
hátíðarhöldunum sem bera yfir-
skriftina Sólbakka- og Sandshátíð
enda hátíðarhöld á báðum stöðun-
um. í eldmessunni verður brúð-
kaup. Ekki fæst uppgefið hverjir
hyggjast þar láta pússa sig saman.
Lýður vill ekkert láta uppi um það
eða hvort jafnvel verði endurnýjuð
gömul og slitin hjónabönd. Helginni
lýkur svo með hátíðardagskrá þar
sem minnst verður þess að stærsta
hvalstöð sem reist hefur verið í
norðurhöfum og stóð á Sólbakka
varð eldi að bráð fyrir réttum 100
árum. Verksmiðja þessi var rekin af
Norðmanninum Hans Ellefsen. í til-
efni þess kemur bæjarstjóri
Stokkebæjar í heimsókn auk þess
sem þessa atburðar verður minnst
með viðeigandi hætti þar sem eldur
og reykur skipa veglegan sess.
-GS