Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Page 47
55 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 DV • Tilvera Afmælisbörn Drottingarmóðirin 101 árs Elísabet drottningarmóðir verður hvorki meira né minna en 101 árs á morgun. Hún ólst upp í St Paul’s Waldenbury í Hertfordshire og var skírð Elizabeth Angela Marguerite Bowes-Lyon. Þann 26. apríl 1923 gekk hún að eiga hertogann af York í Westminester Abbey og eignuðust þau tvær dætur, Elísabetu og Margréti. Þau voru krýnd konungshjón í Bretlandi vor- ið 1937. Elísabet drottingarmóðir nýtur enn mikilla vin- sælda í Bretlandi og hefur verið góð til heilsunnar þrátt fyrir háan aldur. Hún var reyndar lögð inn á sjúkrahús í síðustu viku vegna blóðskorts en stefnt var að því að hún fengi að fara heim fyrir afmælisdaginn. Neil Armstrong Neil Alden Armstrong, sem var fyrsti maðurinn til að hljóta þann heiður að stíga á tunglið, verður 71 árs á sunnudaginn. Hann fæddist í Wapakoneta, Ohiofylki, og var hermaður í bandaríska hernum áður enn hann gekk til liðs við NASA. Armstrong flaug meðal annars í flughernum i Kóreustríðinu. Árið 1955 gerðist hann tilraunaflugmaður hjá NASA og sjö árum síðar var hann valinn til að taka þátt í geimleiðangri og tók þátt 1 nokkrum slíkum eftir það. Hann verður þó alltaf þekkastur sem maðurinn sem steig fyrst á tunglið. Armstrong hætti störfum hjá NASA árið 1971 og gerð- ist prófessor við Háskólann 1 Cincinnati. Stjörnuspa Gildir fyrir laugardaginn 4. ágúst og sunnudaginn 5. ágúst Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l: Spá sunnudagsms Sýndu tillitssemi í vinn- f unni ef þú viit fá sam- þykki fólks fyrir því sem þú ert að gera. Fjölskyldulífið geng- ur óvenjulega vel þessa dagana. Spa manudagsins Þú verður fyrir einhverri heppni og lifið virðist brosa við þér. Breytingar gætu orðið á búsetu þinni á næstunni. Hrúturinn (21. mars-19. aoríh: i\hemm ' Ástvinir eiga saman einstaklega ánægjuleg- an dag. Þú nýtur þess vel að eiga rólegt kvöld í góðum félagsskap. Vinir þínir standa einkar vel sam- an um þessar mundir og gætu ver- ið að undirbúa ferðalag eða ein- hverja skemmtun. Tvíburarnlr (21. maí-21. iúníi: Atrik sem á sér stað snemma dags gæti sett þig út jafnvægi en þú færð fljótlega um annað að hugsa. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. Einhver reynir að fá þig til að taka þátt i einhverju sem þú ert ekki viss um að þú viljir taka þátt i. Stattu fast á þínu. Uónið (23. iúlí- 22. áeúst): Spá sunnudagsins I ' Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og þú átt ef til vill von á gestum. Reyndu að eiga stund fyrir sjálfan þig, þú þarfnast hvildar eftir erf- iðið undanfarið. Vinur þinn biður þig að gera sér greiða. Vogin (23. sept-23. okt.l: Spa sunnudagsins Gættu þess að vera til- litssamur við ættingja * f og vini i dag þó að það sé kannski eitthvað sem angrar þig persónulega þessa dagana. IWlMilMíFfl Sjáifstraust þitt sem venjulega er í góðu lagi er með minna móti þessa dagana. Taktu fagnandi á móti þeim sem eru \insamlegir i þinn garð. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: Fiskarnir (19. febr.-20. marsi: Spa sunnudagsins •Dagurinn gæti orðið annasamur, einkum ef þú skipuleggur þig ekki nógu vel. Farðu varlega í viðskiptúm. Ekki dæma fólk eftir fyrstu kynn- um, hvorki þvi sem það gerir eða segir. Athugaðu þess í stað hvem mann það hefur að geyma. Nautið (20. anril-20. maí.): Þér liður best í dag ef þú ferð þér hægt og —A gætir hófs í hvívetna. Fjármálin lofa góðu og ástarmálin eru í miklum blóma. Þú syndir á móti straumnum um þess- ar mundir og ert fuilur orku og finnst engin vandamál þér ofviða. Eitthvað skemmtilegt gerist í félagslífinu. Krabbinn (22. iúní-22. iúin: ihíí | Þú ert í rólegu skapi í dag og munt eiga góð- an og notalegan dag. Þér gefst nægur tími til að ljúka því sem þú þarft. Þér var farið að leiðast tilbreyting- arleysi hversdagslífsins og eru þess- ir dagar þvi mjög til að kæta þig þar sem þeir eru harla óvenjulegir. IVIevlan (23. ágúst-22. sept.l: AVW Ekki angra annað fólk ^^V^l».meö þvi að vera ' stöðugt að rifja upp gömul mistök sem það gerði end- ur fyrir löngu. Þú ert yfirleitt mjög duglegur en núna er eins og yfir þér hangi eitt- hvert slen. Þetta gæti verið merki um það að þú þarfnist hvíldar. Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.k Enginn er fullkominn og >það gera ailir mistök, hka þú. Einhver spenna liggur í loftinu á milii vina en það er þó ekkert til að hafa áhyggjur af. Velgengni þín í dag byggist á því hvemig þú kemur fram við aðra. Þar tekst þér sérlega vel upp. Happatölur þínar eru 9, 18 og 33. Stelngeitin (22. des.-19. ian.): hvers bandi fólkið í kringum þig er. Rómantíkin blómstrar. Þú mátt vænta gagnlegrar niður- stöðu í máli sem lengi hefur beðið úrlausnar. Þú þarft að hvíla þig og góð leið til þess er að hitta góða vini. ur þarf á þér að halda og þú gætir hjálpað honum við að leysa vandamál. Ekki láta vorkenna þér og ekki leita eftir hjálp nema veruleg nauðsyn sé á. Þú munt eiga rólegt og gott kvöld. Sumarskóla Námsflokkanna slitið: Fjölþjóðleg lokahátíð Ætlar að læra íslenskuna vel Lourdes Sánchez Contreras, sem er frá Mexíkó, var ánægö meö tímann I sumarskólanum og er ákveðin í aö læra máliö vel. Hægt er að segja að Austurbæjar- skóli í Reykjavík hafi iðað af lífi og fjöri síðasta þriðjudag þegar 340 nemendur frá 68 þjóðlöndum, sem stundað hafa islenskunám í sumar- skóla Námsflokkanna í júlí, héldu þjóðahátíð í tilefni af því að honum er að ljúka. Að sögn Ingibjargar Stefánsdótt- ur, kennara í sumarskólanum, voru það nemendur í morgunhópum skóians sem stóðu að lokahófinu þar sem íslensk og erlend menning blandaðist saman í mat og skemmt- un. Hún segir að nemendur hafi verið í íslenskutímum daglega, frá niu til tólf allan júlímánuð og tekið miklum framförum á þeim tíma. „Við höfum lagt áherslu á að nota hið daglega mál í tímunum og það hefur gefið góða raun,“ segir Ingi- björg. Einnig hefur verið kennt í sumarskólanum þrjú kvöld í viku. Vertu til á íslensku, rúss- nesku og japönsku Nemendurnir í sumarskólanum koma víðs vegar að, til að mynda frá Danmörku, Palestínu, Banda- ríkjunum, Þýskalandi, Póllandi, Indlandi og Jórdaníu. Sumir þeirra voru klæddir þjóðbúningum heima- lands síns á lokahátíðinni og á boðstólum var matur frá ýmsum heimshornum. Ýmislegt var gert til skemmtunar, til að mynda voru taí- lenskir dansar og fjölþjóðlegur kór söng Vertu til, á íslensku, rúss- nesku og japönsku. Einnig var fjall- konan mætt á staðinn enda höfðu nemendurnir velt þeirri spurningu fyrir sér hvernig hún væri á litinn. í hlutverki hennar var Melissa Munguia frá Hondúras og flutti hún kvæðið ísland eftir Hannes Péturs- son. Blaðamaður tók þrjár nemendur í skólanum tali og var greinlegt að þeir höfðu verið iðnir við námið. Lourdes Sánchez Contreras frá Mexíkó hefur búið á íslandi frá því í apríl og hún var bara ánægð með tímann í sumarskólanum. Hún seg- ir að íslenska sé mjög erfitt tungu- íslensku en samt væri það auðveld- ara fyrir þær en til að mynda þá sem koma frá löndum eins og Taílandi og Filippseyjum. „Ég kom til íslands í maí síðastliðnum og er að fara að læra íslensku í háskólan- um í vetur,“ segir Dagmar. Monika segist vera búin að vera á íslandi frá því í október árið 1999 og þá hafi hún komið til að vinna. Þær Dag- mar og Monika eiga báðar íslenska maka og eru því ákveðnar að læra málið enn betur. „ísland er skemmtiiegt og fallegt land en ég sakna þó trjánna mikið frá Pól- landi," segir Monika. Dagmar er einnig hrifm af íslenska landslag- inu og henni finnst ekkert of kalt" hérna. „Svo getur líka alveg verið kalt í Þýskalandi,“ segir Dagmar. Þær stöllur segjast koma til með að sakna sumarskólans enda hafi þeim líkað vel og fundist gaman að kynn- ast fólki frá ólíkum löndum. Það eru ekki bara fullorðnir sem stundað hafa nám í sumarskólanum því börn á öllum aldri hafa einnig verið þar að læra íslensku. Þegar blaðamaður heimsótti Austurbæjar- skóla voru þau saman komin í sal skólans til að flytja fjölbreytta skemmtidagskrá sem þau höfðu - sjálf skipulagt. Þegar búið var að koma þögn á mannskapinn hófst síðan skemmtunin með því að yngstu börnin sungu Höfuð herðar hné og tær af líf og sál og síðan fylgdi hvert skemmtiatriði á fætur öðru. Að því loknu var haldin grill- veisla í portinu og heyrst hafði að jólasveinn hefði meira að segja boð-' ^ að komu sína. -MA Munu sakna sumarskólans Vinkonurnar Dagmar Ziemann frá Þýskalandi og Monika Kowa- lewska frá Póllandi voru báðar sam- mála um að það væri erfitt að læra Hrifnar af landslaginu Vinkonurnar Dagmar Ziemann frá Þýskalandi og Monika Kowalewska frá Póllandi sögðust báöar vera hrifnar af íslenska landslaginu. Gaman í sumarskóla Þessar hnátur voru meöal þeirra barna sem voru í sumarskólanum og þær biöu spenntar eftir aö fylgjast meö skemmtidagskránni sem búiö var aö skipuleggja í tilefni dagsins. DV-MYNDIR BRINK Glæsilegir þjóðbúningar Nemendur sumarskólans koma frá ýmsum þjóölöndum og hér eru nokkrir þeirra búnir aö stilla sér upp í glæsilegum þjóöbúningum. mál en ætlar sér að læra það mjög vel. Spurð hvað hafi dregið hana alla leið frá Mexíkó til íslands segir hún að ástæðan sé að eiginmaður hennar sé íslenskur en þau kynnt- ust i Rússlandi. „Það er gott að vera á íslandi en hér er mjög kalt,“ segir Lourdes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.