Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 47
55
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001
DV • Tilvera
Afmælisbörn
Drottingarmóðirin 101 árs
Elísabet drottningarmóðir verður hvorki meira né
minna en 101 árs á morgun. Hún ólst upp í St Paul’s
Waldenbury í Hertfordshire og var skírð Elizabeth
Angela Marguerite Bowes-Lyon. Þann 26. apríl 1923
gekk hún að eiga hertogann af York í Westminester
Abbey og eignuðust þau tvær dætur, Elísabetu og
Margréti. Þau voru krýnd konungshjón í Bretlandi vor-
ið 1937. Elísabet drottingarmóðir nýtur enn mikilla vin-
sælda í Bretlandi og hefur verið góð til heilsunnar
þrátt fyrir háan aldur. Hún var reyndar lögð inn á
sjúkrahús í síðustu viku vegna blóðskorts en stefnt var að því að hún fengi að
fara heim fyrir afmælisdaginn.
Neil Armstrong
Neil Alden Armstrong, sem var fyrsti maðurinn til
að hljóta þann heiður að stíga á tunglið, verður 71 árs
á sunnudaginn. Hann fæddist í Wapakoneta, Ohiofylki,
og var hermaður í bandaríska hernum áður enn hann
gekk til liðs við NASA. Armstrong flaug meðal annars
í flughernum i Kóreustríðinu. Árið 1955 gerðist hann
tilraunaflugmaður hjá NASA og sjö árum síðar var
hann valinn til að taka þátt í geimleiðangri og tók þátt
1 nokkrum slíkum eftir það. Hann verður þó alltaf
þekkastur sem maðurinn sem steig fyrst á tunglið.
Armstrong hætti störfum hjá NASA árið 1971 og gerð-
ist prófessor við Háskólann 1 Cincinnati.
Stjörnuspa
Gildir fyrir laugardaginn 4. ágúst og sunnudaginn 5. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
Spá sunnudagsms
Sýndu tillitssemi í vinn-
f unni ef þú viit fá sam-
þykki fólks fyrir því sem
þú ert að gera. Fjölskyldulífið geng-
ur óvenjulega vel þessa dagana.
Spa manudagsins
Þú verður fyrir einhverri heppni
og lifið virðist brosa við þér.
Breytingar gætu orðið á búsetu
þinni á næstunni.
Hrúturinn (21. mars-19. aoríh:
i\hemm
' Ástvinir eiga saman
einstaklega ánægjuleg-
an dag. Þú nýtur þess
vel að eiga rólegt kvöld í góðum
félagsskap.
Vinir þínir standa einkar vel sam-
an um þessar mundir og gætu ver-
ið að undirbúa ferðalag eða ein-
hverja skemmtun.
Tvíburarnlr (21. maí-21. iúníi:
Atrik sem á sér stað
snemma dags gæti sett
þig út jafnvægi en þú
færð fljótlega um annað að hugsa. Þú
þarft ekki að hafa neinar áhyggjur.
Einhver reynir að fá þig til að
taka þátt i einhverju sem þú ert
ekki viss um að þú viljir taka þátt
i. Stattu fast á þínu.
Uónið (23. iúlí- 22. áeúst):
Spá sunnudagsins
I
' Vinnan gengur vel í
dag og þú færð hrós
fyrir vel unnið starf.
Kvöldið verður líflegt og þú átt ef
til vill von á gestum.
Reyndu að eiga stund fyrir sjálfan
þig, þú þarfnast hvildar eftir erf-
iðið undanfarið. Vinur þinn biður
þig að gera sér greiða.
Vogin (23. sept-23. okt.l:
Spa sunnudagsins
Gættu þess að vera til-
litssamur við ættingja
* f og vini i dag þó að það
sé kannski eitthvað sem angrar
þig persónulega þessa dagana.
IWlMilMíFfl
Sjáifstraust þitt sem venjulega er í
góðu lagi er með minna móti þessa
dagana. Taktu fagnandi á móti þeim
sem eru \insamlegir i þinn garð.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
Fiskarnir (19. febr.-20. marsi:
Spa sunnudagsins
•Dagurinn gæti orðið
annasamur, einkum ef
þú skipuleggur þig
ekki nógu vel. Farðu varlega í
viðskiptúm.
Ekki dæma fólk eftir fyrstu kynn-
um, hvorki þvi sem það gerir eða
segir. Athugaðu þess í stað hvem
mann það hefur að geyma.
Nautið (20. anril-20. maí.):
Þér liður best í dag ef
þú ferð þér hægt og
—A gætir hófs í hvívetna.
Fjármálin lofa góðu og ástarmálin
eru í miklum blóma.
Þú syndir á móti straumnum um þess-
ar mundir og ert fuilur orku og finnst
engin vandamál þér ofviða. Eitthvað
skemmtilegt gerist í félagslífinu.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
ihíí
| Þú ert í rólegu skapi í
dag og munt eiga góð-
an og notalegan dag.
Þér gefst nægur tími til að ljúka
því sem þú þarft.
Þér var farið að leiðast tilbreyting-
arleysi hversdagslífsins og eru þess-
ir dagar þvi mjög til að kæta þig
þar sem þeir eru harla óvenjulegir.
IVIevlan (23. ágúst-22. sept.l:
AVW Ekki angra annað fólk
^^V^l».meö þvi að vera
' stöðugt að rifja upp
gömul mistök sem það gerði end-
ur fyrir löngu.
Þú ert yfirleitt mjög duglegur en
núna er eins og yfir þér hangi eitt-
hvert slen. Þetta gæti verið merki
um það að þú þarfnist hvíldar.
Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.k
Enginn er fullkominn og
>það gera ailir mistök,
hka þú. Einhver spenna
liggur í loftinu á milii vina en það er
þó ekkert til að hafa áhyggjur af.
Velgengni þín í dag byggist á því
hvemig þú kemur fram við aðra.
Þar tekst þér sérlega vel upp.
Happatölur þínar eru 9, 18 og 33.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.):
hvers bandi fólkið í kringum þig
er. Rómantíkin blómstrar.
Þú mátt vænta gagnlegrar niður-
stöðu í máli sem lengi hefur beðið
úrlausnar. Þú þarft að hvíla þig og
góð leið til þess er að hitta góða vini.
ur þarf á þér að halda og þú gætir
hjálpað honum við að leysa vandamál.
Ekki láta vorkenna þér og ekki
leita eftir hjálp nema veruleg
nauðsyn sé á. Þú munt eiga rólegt
og gott kvöld.
Sumarskóla Námsflokkanna slitið:
Fjölþjóðleg lokahátíð
Ætlar að læra íslenskuna vel
Lourdes Sánchez Contreras, sem er
frá Mexíkó, var ánægö meö tímann I
sumarskólanum og er ákveðin í aö
læra máliö vel.
Hægt er að segja að Austurbæjar-
skóli í Reykjavík hafi iðað af lífi og
fjöri síðasta þriðjudag þegar 340
nemendur frá 68 þjóðlöndum, sem
stundað hafa islenskunám í sumar-
skóla Námsflokkanna í júlí, héldu
þjóðahátíð í tilefni af því að honum
er að ljúka.
Að sögn Ingibjargar Stefánsdótt-
ur, kennara í sumarskólanum, voru
það nemendur í morgunhópum
skóians sem stóðu að lokahófinu
þar sem íslensk og erlend menning
blandaðist saman í mat og skemmt-
un. Hún segir að nemendur hafi
verið í íslenskutímum daglega, frá
niu til tólf allan júlímánuð og tekið
miklum framförum á þeim tíma.
„Við höfum lagt áherslu á að nota
hið daglega mál í tímunum og það
hefur gefið góða raun,“ segir Ingi-
björg. Einnig hefur verið kennt í
sumarskólanum þrjú kvöld í viku.
Vertu til á íslensku, rúss-
nesku og japönsku
Nemendurnir í sumarskólanum
koma víðs vegar að, til að mynda
frá Danmörku, Palestínu, Banda-
ríkjunum, Þýskalandi, Póllandi,
Indlandi og Jórdaníu. Sumir þeirra
voru klæddir þjóðbúningum heima-
lands síns á lokahátíðinni og á
boðstólum var matur frá ýmsum
heimshornum. Ýmislegt var gert til
skemmtunar, til að mynda voru taí-
lenskir dansar og fjölþjóðlegur kór
söng Vertu til, á íslensku, rúss-
nesku og japönsku. Einnig var fjall-
konan mætt á staðinn enda höfðu
nemendurnir velt þeirri spurningu
fyrir sér hvernig hún væri á litinn.
í hlutverki hennar var Melissa
Munguia frá Hondúras og flutti hún
kvæðið ísland eftir Hannes Péturs-
son.
Blaðamaður tók þrjár nemendur í
skólanum tali og var greinlegt að
þeir höfðu verið iðnir við námið.
Lourdes Sánchez Contreras frá
Mexíkó hefur búið á íslandi frá því
í apríl og hún var bara ánægð með
tímann í sumarskólanum. Hún seg-
ir að íslenska sé mjög erfitt tungu-
íslensku en samt væri það auðveld-
ara fyrir þær en til að mynda þá
sem koma frá löndum eins og
Taílandi og Filippseyjum. „Ég kom
til íslands í maí síðastliðnum og er
að fara að læra íslensku í háskólan-
um í vetur,“ segir Dagmar. Monika
segist vera búin að vera á íslandi
frá því í október árið 1999 og þá hafi
hún komið til að vinna. Þær Dag-
mar og Monika eiga báðar íslenska
maka og eru því ákveðnar að læra
málið enn betur. „ísland er
skemmtiiegt og fallegt land en ég
sakna þó trjánna mikið frá Pól-
landi," segir Monika. Dagmar er
einnig hrifm af íslenska landslag-
inu og henni finnst ekkert of kalt"
hérna. „Svo getur líka alveg verið
kalt í Þýskalandi,“ segir Dagmar.
Þær stöllur segjast koma til með að
sakna sumarskólans enda hafi þeim
líkað vel og fundist gaman að kynn-
ast fólki frá ólíkum löndum.
Það eru ekki bara fullorðnir sem
stundað hafa nám í sumarskólanum
því börn á öllum aldri hafa einnig
verið þar að læra íslensku. Þegar
blaðamaður heimsótti Austurbæjar-
skóla voru þau saman komin í sal
skólans til að flytja fjölbreytta
skemmtidagskrá sem þau höfðu -
sjálf skipulagt. Þegar búið var að
koma þögn á mannskapinn hófst
síðan skemmtunin með því að
yngstu börnin sungu Höfuð herðar
hné og tær af líf og sál og síðan
fylgdi hvert skemmtiatriði á fætur
öðru. Að því loknu var haldin grill-
veisla í portinu og heyrst hafði að
jólasveinn hefði meira að segja boð-' ^
að komu sína. -MA
Munu sakna sumarskólans
Vinkonurnar Dagmar Ziemann
frá Þýskalandi og Monika Kowa-
lewska frá Póllandi voru báðar sam-
mála um að það væri erfitt að læra
Hrifnar af landslaginu
Vinkonurnar Dagmar Ziemann frá Þýskalandi og Monika Kowalewska frá
Póllandi sögðust báöar vera hrifnar af íslenska landslaginu.
Gaman í sumarskóla
Þessar hnátur voru meöal þeirra barna sem voru í sumarskólanum og
þær biöu spenntar eftir aö fylgjast meö skemmtidagskránni sem búiö var
aö skipuleggja í tilefni dagsins.
DV-MYNDIR BRINK
Glæsilegir þjóðbúningar
Nemendur sumarskólans koma frá ýmsum þjóölöndum og hér eru nokkrir
þeirra búnir aö stilla sér upp í glæsilegum þjóöbúningum.
mál en ætlar sér að læra það mjög
vel. Spurð hvað hafi dregið hana
alla leið frá Mexíkó til íslands segir
hún að ástæðan sé að eiginmaður
hennar sé íslenskur en þau kynnt-
ust i Rússlandi. „Það er gott að vera
á íslandi en hér er mjög kalt,“ segir
Lourdes.