Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Síða 49
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2001 57 -EIR A FOSTUDEGI Siggi Hall Aldrei aö elda mat inni í tjaldi. Tjaldréttur Siggi Hall gefur uppskrift að tjaldrétti í tilefni verslunar- mannahelgarinnar. Hann er svona: „Gerið 15 sentímetra rifu á forhlið tjaldsins með þvi að renna rennilásnum upp. Hafið * prímus með pönnu fyrir utan tjaldið og fýrið upp. Setjið vald- ar lambalundir, smátt skornar, á pönnuna og látið hoppa í hitan- um. Teygið hönd út um rifuna á fortjaldinu og hristið pönnuna ört. Notið rigninguna sem fellur á pönnuna sem sósu. Borðist hnífaparalaust eins og pylsur. Ef enginn er prímusinn er hægt að fylgja fordæmi Líbana sem borða lambakjötið hrátt. Betra er þó að steikja það. Gætið þess að elda aldrei mat inni í tjaldi, hvorki á prímus né heldur grilla.“ Læknir skrifar bók á ensku „Þessa sögu segir maður út- lendu fólki allt öðruvisi en ís- lensku," segir Valgarður Egils- son læknir um skáldsögu sem hann hefur skrifað á ensku en ekki ís- lensku. Sagan heitir Waiting for the South Wind og fjallar um mannleg örlög eins og Valgaröur Egilsson flestar góðar Waiting for the sögur gera. south wind. „Sagan fjallar ...—um kúltúrinn þegar ég var að alast upp fyrir norðan. Ætli þetta sé ekki ein- hvers konar þroska- og uppeld- issaga," segir Valgarður. Leiðrétting Rangt er, sem haldið hefur verið fram, að Árni Johnsen ætli ekki að syngja Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum. Hið rétta er að Árni á eftir að stela senunni því hann ætlar að syngja nótulaust í þetta skiptið. Winston vinsælast Ktllla og karlarnir - topp-sex Jakob Möller Ný og ómótstæðileg útgáfa af Marlboro- manninum. Kári Stefánsson Sá sem þarf 563 fer- metra hlýtur að vera stór annars staðar líka. 9 Margeir Pétursson Góði drengurinn sem berst við ríku og vondu karlana. Friörik Sophusson Sjarmerandi útgáfa af íhaldsmanni - næstum breskur. Robert Marshall Hressilegur eins og nafnið. Litla löggan Lekur af henni kyn- þokkinn þegar hún rót- ar upp hneykslunum. Allir sem skipuöu siöasta lista féllu af honum í þess- ari viku; Davíö Oddsson, Valdimar Kristjónsson, örn Arnarson, Hraíh Jökulsson, Björn Bjarnason or meira aö segja Jón Baldvin Hannibalsson! Listinn byggir á greind, útgeislun og andlegu menntunarstigi þeirra sem á honum eru. Winston er vinsælasta sígar- ettutegundin á íslandi ef marka skal niðurstöður könnunar sem gerð var 1. ágúst í tilefni af gild- istöku nýrra tó- baksvamarlaga. í öðru sæti er Marlboro. Könn- unin var gerð á 13 útsölustöðum tóbaks á höfuð- borgarsvæðinu og er niðurstað- an vegið meðaltal svara kaup- manna á öllum stöðunum. List- inn yfir 10 vinsælustu síga- rettuttegundimar á íslandi lítur svona út: 1. Winston 2. Marlboro 3. Camel 4. Prince 5. Salem Light 6. Viceroy 7. Gold Coast 8. Royal 9. Lucky Strike 10. Capri Ánægö fyrir framan húsiö í kúlunni dv-mynd hilmar þór Geröur Jónasdóttir býr viö lengra sumar en aörir landsmenn og hjá henni er aldrei vetur. - Svona hús á aö byggja á íslandi. Húsið í kúlunni á Hellu: Hugmyndin kom að handan - þessu var hvíslað að mér, segir Gerður Jónasdóttir Nýr listi næsta föstudag. „Fólk spurði mig hvort ég væri biluð en ég lít svo á að annaðhvort sé maður skrýtinn eða ekki,“ segir Gerður Jónasdóttir, fyrrum sveitar- stjórafrú á Hellu, sem byggði sér hús inni í kúlu. „Hugmyndinni var hvíslað að mér og það ekki af mennskum." Gerður lét ekki hvísla að sér tvisvar heldur réðst í framkvæmdir og flutti inn 1. janúar 1995. Fyrst reisti hún kúluhúsið og þegar það var komið upp hófust byggingar- framkvæmdir inni í kúlunni og fyrr en varði var þar kominn venjulegur húsgafl með gluggum og öllu. Hlið- arnar og bakhlið hússins eru hins vegar hluti af kúlunni: „Ég lít á þetta sem heild. Húsið er á tveimur hæðum, samtals 120 fer- metrar, og garðurinn 85 fermetrar. Hér er sumarið lengra en annars staðar og enginn vetur. Ég er stöðugt að höggva niöur gróður því hann sprettur hér upp á örskömm- um tíma. Og ekki haggast húsið í jarðskjálftum. Fyrir því hef ég reynslu," segir Gerður og er sann- færð um að svona eigi að byggja hús á íslandi þar sem veðurfar er sem raun ber vitni. Alltaf gott veður, bæði inni og úti. Það var einmitt inntak þess sem hvíslað var í eyra Gerðar hér um árið. Heimili Gerðar stendur við bakka Rangár og út um gluggann og kúl- una er útsýni yfir ána, brúna og Hellu þar sem Gerður bjó áður ásamt eiginmanni sínum, Jóni Þor- gilssyni sveitarstjóra, en hann er látinn fyrir 10 árum. Jón átti land handan Rangár og það nýtti Gerður fyrir byggingu sína sem er einstök í sinni röð. Gerður segist ekki vera ein um þá skoðun að góður andi sé í húsinu í kúlunni og því líður henni vel þar, svo og gestum henn- ar. Hún sér mest eftir því að hafa ekki látið sér detta þetta í hug fyrir. En allt hefur sinn tíma. Það er ekki hvíslað í eyru fólks að handan á hverjum degi. Skipti um nafn og lagði land undir fót: Eilífur ferðast - heiðraður og hylltur í Árbókinni Það var fyrir sjö árum. Emil Björnsson var óá- nægður með nafnið sitt og gerði sér því ferð niður í dómsmálaráðuneytið. Þar skipti hann um nafn. Nú heitir hann Eilifur Bjöms- son: „Mér fannst sem nafnið Emil bæri með sér ógæfu. Ég get ekki alveg útskýrt það en nafnið olli mér hug- arangri. Því ákvað ég að skipta um nafn og valdi Ei- lífur eftir nafnalista sem lá frammi í ráðuneytinu. Þetta kostaði ekki nema 4.400 krónur. Eftir nafna- breytinguna llöur mér betur,‘ Eilífur sem í kjölfarið gerðist ákaf- ur ferðalangur og hefur farið í flest- ar ferðir Ferðafélags íslands, sam- ferðamönnum sínum bæði til undr- unar og ánægju. Eilífur er alltaf fyrstur 1 rútuna og er orðinn jafh- sjálfsagður hluti af ferðum Ferðafé- lagsins og bílstjórinn. „Ég fór í allar vinnuferðir Ferða- félagsins þegar við vorum að byggja nýja salemisskálann í Landmanna- laugum fyrir tveimur árum,“ segir Eilifur sem fyrir bragðið var heiðr- segir Eilífur á gangi Feröast til aö skilja veröldinni. aður í Árbók Ferðafélagsins það árið fyrir ötula framgöngu, vinnu- semi og ekki síður ræktarsemi við starf félagsins. Hefur fáum öðrum óbreyttum hlotnast sá heiður. - Gerirðu ekkert annað? „Jú. Ég er líka farinn að ferðast með Útivist. Annars starfa ég sem mælingamaður hjá Reykjavíkur- borg þótt ég sé ekki fullmenntaður mælingamaður.“ - Hvers vegna ferðastu? „Til að skilja veröldina,“ segir Ei- lifur og leggur í ‘ann. Dion á Geysi allur - 40 fylgdu honum til grafar St. bernhards-hund- urinn Dion, sem verið hefur staðartákn á Geysi í Haukadal í Qöl- mörg ár, er allur. Hann lést á dýraspítala í Ölf- usi um síðustu helgi. „Ég á eftir að sakna hans mjög. Dion var mikil persóna og fór sínar eigin leiðir. En um leið var hann geð- góður,“ sagði Már Sig- urðsson á Geysi en hann var búinn að eiga Dion í 7 ár. Dion var hreinræktaður st. bernhards-hundur og kom erlendis frá. „Ég held að fáir aðrir hund- ar hafi verið meira myndaðir en Dion. Útlendingar kepptust við að taka myndir af honum hér fyrir framan húsið og hann átti það til að stilla sér sérstaklega upp fyrir þá,“ sagði Már. Dion var borinn til grafar í sér- stökum hundakirkjugarði i Haukadal þar sem fyrir hvíla fjórir hundar. Smiðuð var sérstök kista utan um Dion og útfórin var hátíðleg. Fjörutiu — Dion á Geysi Einstakur karakter - jarövistinni lokiö. manns fylgdu Dion síðasta spölinn. Jónas Hauksson, þjónn á veitinga- staðnum á Geysi, var náinn vinur Dions. Hann lýsir honum þannig: „Dion var viljasterkur og þrjóskur en alveg einstakur karakter. Sá mesti sem ég hef kynnst og þá tel ég mann- fólkið með. Hann var vinur okkar allra og fastur punktur í tilverunni hér í Haukadalnum. Hans er sárt saknað." Rétta myndin Davíösveöur dv-mynd brink Þaö er tilbreyting fyrir þau aö koma í kuldann á íslandi því aö heimaslóöunum er alltaf hlýtt. Eða eins og Davíö Oddsson oröarþaö: „Þegar Guöni kom heim frá Kentucky, eftir aö hafa veriö í útreiöartúr meö Jóni Baldvin í 40 stiga hita,% sagði hann aö ein mesta auðlind íslendinga væri kuldinn. Þá hugsaöi ég: Alltaf hittir Guöni naglann á höfuöiö. Kuldi og trekkur íslands, gulls ígildi. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.