Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2001, Qupperneq 56
FRETTASKOTIÐ SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 3. AGUST 2001 ^ Þjóðhátíð: Arni syngur „Ámi er búinn að vera 'f, ~i kynnir á þjóöhátíð og syngja brekkusönginn i JMHk 20 ár. Það veröur engin {|M ^^ft breyting þar á ár," ■ segir Sigurður Þórar- I insson sem situr í ■ þjóðhátíöarnefnd í Vestmannaeyjum. Árni Johnsen. Nefndarmenn hafa rætt við Arna um hvernig málum verði fyrirkomið og Sigurður staöfesti i morgun að brekku- söngur Árna væri á dagskrá klúkkan 23.00 á sunnudagskvöldið. -EIR Verslunarmannahelgin: Sól og blíða Veðrið um verslunarmannahelgina virðist ætla að verða með besta móti í -3 flestum landshlutum þetta sumarið. Það verður norðlæg átt fram á sunnudag en þá snýst í hæga norðaustlæga eða breytilega átt sem verður ríkjandi fram í miðja næstu viku. Á suðvesturhomi landsins verður bjart veður alla helgina og allt upp í 18 tU 20 stiga hiti. Næsta sólarhringinn gæti hins vegar orðið dálitil rigning á austanverðu landinu og þar verður ögn kaldara. Á sunnudag ætti að verða þurrt um allt land og hið ágætasta veður. -MA Norsk Hydro bíður Talsmenn álfyrirtækisins Norsk- Hydro í Noregi segjast ekki geta eða vilja segja neitt á þessu stigi um úr- skurð Skipulagsstofnunar um Kára- hnjúkavirkjun sem birtur var á mið- vikudag. „Viö erum enn að vinna eftir þeim yfirlýsingum og samþykktum sem gerðar hafa verið um Reyðarál í Reyð- arfirði og við verðum og munum bíða hinnar pólitísku ákvörðunar á ís- landi,“ segir Thomas Knutzen, fulltrúi Norsk Hydro. -GG Smáauglýsingadeild DV er opin á föstudag frá kl. 9-18. Lokað er laugardag og sunnudag, opið á mánudag, frídag verslunar- manna, frá kl. 16-22. Þjónustuver DV er opið föstudag frá kl. 9-20. Lokað laugardag. Opið þriðjudag frá kl. 8-20. Ritstjórn DV er lokuð laugardag og sunnudag, vakt verður á mánu- dag frá kl. 16-23. Sími fréttaskots er 550 5555. DV kemur næst út eldsnemma ,þriðjudaginn 7. ágúst. Góða helgi! KLETTURINN HAFINU! Einar Oddur: Kannast ekki við forgangskröfur Einar Oddur Kristjánsson. „Ég held ég fari örugglega með rétt mál þegar ég segi að það séu engar slíkar kröfur í Skelfisk, þær voru allar greiddar,“ segir Ein- ar Oddur Kristjáns- son spurður um hvort Bragðefni ehf., arftaki Skelfisks á Flateyri sem varð gjaldþrota í fyrra, muni yfirtaka for- gangskröfur s.s. vegna lífeyrissjóðs starfsmanna. Bragðefni, sem keypt hefur mest af eignum Skelfisks úr þrotabúinu, hefur gert samning við Hraðfrystistöð Þórshafnar um sam- vinnu um kúfiskveiöar og er samstarf þegar hafið að sögn Einars Odds. „Verksmiðjan er komin til Þórshafnar og menn eru að reyna að sameina þessa þekkingu sem til er. Vitaskuld eru menn hræddir við miðin vegna þeirrar reynslu sem varð hér fyrir vestan og reyna að koma í veg fyrir slikt gerist aftur. Við erum sannfærð- ir um að þetta sé heilmikil auðlind og okkur er það metnaðarmál að þetta verði klárað með bravör," segir Einar Oddur. -BG Sjá frétt á bls. 2 Samtaka nú! dv-mynd gva Jökulár tandsins eru varasamar og aöeins á færi kunnáttumanna aö fara yfir þær. Síöast í fyrradag lá viö stórslysi í einni þeirra, Skaftá. Þessi mynd var tekin af hópi feröafötks um síöustu helgi. Hópurinn er hér á leiö úr Laka i Núps- staöarskóg ogglímir hér viö helstu hindrunina á leiöinni, einn álinn í Hverfisfljóti. Samtaka nú, segir fólkiö og heldur út í flauminn, samtvinnaö og einbeitt á svip. Nú, þegar verslunarmannahelgin, mesta feröahelgi ársins, er aö ganga í garö, má búast viö feröamannastraumi um land allt. Halldór Ásgrímsson segir undirbúning virkjunarleyfis í fullum gangi: Engin breyting á áformum um leyfi - stefna stjórnvalda að byggja virkjunina, segir utanríkisráðherra „Það er stefna stjómvalda að þessi virkjun verði byggð og þessi úrskurð- ur Skipulagsstofnunar breytir engu þar um,“ segir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og ut- anríkisráðherra. Hann telur að hér sé á ferðinni stærra mál en svo að úr- skurður einnar ríkisstofnunar einn og sér ráði úrslitum um það. Halldór telur að þjóðkjömir fulltrúar á Al- þingi hljóti að fjalla um og taka af- stöðu til málsins. „Það er rétt að í undirbúningi hef- ur verið frumvarp að lögum um virkjunarleyfi Kárahnjúkavirkjunar og það er skoðun framsóknarmanna að ekkert tfiefni sé tU annars en halda þeim undirbúningi áfram þó þessi úrskurður liggi nú fyrir,“ segir HaUdór. Það er Valgerður Sverris- dóttir iðnaðarráðherra sem gefur út virkjunarleyfið en þarf tU þess heimUd frá Alþingi. HaUdór minnti á að þingið kæmi sam- an i byrjun október og hann á von á að iðnaðarráðherra taki þetta mál upp í ríkisstjóminni á næstu dögum þegar hún kemur úr sínu sumarleyfi. Síðan muni rikisstjómin í heUd fara yfir málið og meta það. Ljóst er að ef Alþingi á að fjalla úm Kárahnjúkamálið, eins og HaUdór Ásgrímsson vfil, aðkoma þess einmitt í gegnum þetta virkjunarleyfi, sem er gefið út sam- kvæmt raforkulögum og er óháð því hvað kemur út úr niðurstöðu um um- hverfismat. Aðspurður kvaðst HaU- dór ekki reikna með að umræður um virkjunarleyfið á Alþingi myndu fara fram áður en umhverfisráðherra feUdi sinn úrskmð og taldi eðlUegra að beðið yrði eftir honum og Alþingi hefði síðan síðasta orðið. Samkvæmt upplýsingum sem DV aflaði sér i iðnaðar- ráðuneytinu í gær er venjan sú að endanleg niðurstaða úr umhverfismati liggi fyrir Halldór áöur en virkjunarleyfi er Ásgrímsson. fengið, en þó er það ekki al- gUt. Þannig mun t.d. Vatns- feUsvirkjun enn hafa verið í umhverf- ismatsferlinu þegar virkjunarleyfið var gefið út. Hins vegar er sjaldgæft að þeir frestir sem gefnir eru tU að úrskurða vegna umhverfismats eða kærumála þeim að lútandi standist ekki og því væri ólíklegt að úrskurð- ur umhverfísráöherra um væntan- lega kæru á úrskurði Skipulagsstofn- er unar mundi dragast fram yfir 1. nóv- ember. GUdir það jafnt þótt ráðherra óskaði eftir viðbótargögniun í mál- inu, sem fastlega er búist við að muni lögð fram af hálfu Landsvirkjunar, sem síðan þyrfti að skoða og leita um- sagnar Skipulagsstofnunar um. Eftir því sem næst verður komist yrði litið svo á í iðnaðarráðuneyti að ef um- hverfisráðherra staðfesti í einu og öUu úrskurð Skipulagsstofnunar myndu vera brostnar forsendur fyrir því að leita eftir virkjunarleyfi. Þegar DV spurði HaUdór Ásgrímsson hvort hann teldi að þingið ætti að afgreiða frumvarp um virkjunarleyfi óháð því hver úrskurður umhverfisráðherra kynni að vera sagðist hann ekkert vfija um slíkt spá, hann vUji ræða um mál á grundveUi staðreynda þegar þær liggi fyrir. -BG Geir A. Gunnlaugsson um yfirlýsingar lífeyrissjóðanna: Meta þarf stöðuna - óttast ekki að grænir skattar skekki samkeppnisstöðu Reyðaráls „Ég veit ekki annað en að lífeyrissjóðahópurinn ætli að hittast eftir verslunarmanna- helgina og ég tel nú rétt að bíða með að draga mikiar ályktanir þar tU sá fundur er afstaðinn," segir Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmda- stjóri Hæfis, aðspurður hvort fiármögnun álvers sé ekki að hrynja í kjölfar úrskurðar Skipulagsstofmmar. Þorgeir Eyjólfsson, sem fer fyrir hópi lífeyris- sjóða, telur að ein af meginforsend- Geir A. Gunnlaugsson. um fyrir aðkomu sjóðanna að málinu hafi brostið með þess- um úrskurði eins og fram kom í DV í gær. „Það er nátt- úrlega ljóst að menn þurfa að skoða vel hvað þetta þýðir og hvaða leiðir eru færar i mál- inu. Þetta var niðurstaða sem menn áttu ekki von á en al- mennt held ég að menn ættu að leyfa rykinu að setjast svo menn sjái betur hvað þetta þýðir nákvæmlega,“ segir Geir. Aðspurður hvort það hafi verið rætt að hugsanlegir grænir skattar eða mengunarskattar á íslandi hefðu áhrif á fiármögnun sagði Geir svo ekki vera umfram það sem venjulegt gæti talist. Hann taldi að jafnvel þótt sfiómar- skipti yrðu í landinu og sú stefna yrðir ofan á að sefia á græna skatta og beita Kyoto-ákvæðinu ekki sérstaklega gagn- vart stóriðju, þá væri mjög ólíklegt að jafnræðisreglu yrði ekki beitt þannig að samkeppnisstaða skekktist ekki gagnvart innlendum fyrirtækjum í greininni eða erlendum. -BG HEILSUNNAR ve6*4 Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.