Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Page 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001______________________________________________________________________
DV Fréttir
Horft á sjónvarp
Unnið
15%
afsláttur >
Morgunmatur
Slökun
Lesið
Tilboð!
15% afsláttur af stillanlegum
rúmbotnum, heilsulatexdýnum
og frönskum viðarrúmum.
Komdu og leggðu þig!
Sofið
Frá Borgarnesi
Hitaveita:
Rætt um að
Orkuveitan kaupi
hlut Borgar-
byggðar
DV, BORGARBVGGD:_____________
í síöustu 'viku áttu forráðamenn
Borgarbyggðar fund með mönnum
Orkuveitu Reykjavíkur í kjölfar
sameiningar Akranesveitu, Anda-
kílsárvirkjunar og hlutar Akranes-
kaupstaðar í Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar.
„Borgarbyggð óskaði eftir aö fá
að hitta fulltrúa Orkuveitunnar til
að kynna sér afstöðu hennar til
samstarfs við Borgarbyggð og eins
vildum við vita hvernig þeir sæju
fyrir sér framtíð Hitaveitu Akra-
ness og Borgarfjarðar en Orkuveit-
an er með þessari sameiningu orðin
meirihlutaeigandi að því fyrirtæki,“
segir Stefán Kalmansson, bæjar-
stjóri Borgarbyggðar, við DV
„Fulltrúar Orkuveitunnar tóku
okkur mjög vel og það var niður-
staðan að fara frekar yfir málið,
m.a. þann möguleika að Borgar-
byggð legði eignarhlut sinn í HAB
með sama hætti og Akurnesingar
inn í Orkuveituna. Einnig verður
skoðaður sá möguleiki að Orkuveit-
an taki að sér að bjóða aðgang að
heitu og köldu vatni í dreifbýli en
eins og komið hefur fram í fjölmiðl-
um er mikili áhugi á slíku, einkum
í stærri sumarbústaðahverfum,"
sagði Stefán Kalmansson, bæjar-
stjóri í Borgarbyggð. -DVÓ
Starfshópur skipaður vegna sláturhúsakreppunnar:
Landbúnaðarráðherra
vill fjórfalda
sauðfjársláturtímann
Fyrir bestu stellingarnar
framhaldi af því hefur landbúnaö-
arráðherra skipað starfshóp sem
í verða Þórólfur Gíslason, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Skagfirð-
inga á Sauðárkróki, sem verður
formaður hans, Theodór Bjarna-
son, forstjóri Byggðastofnunar,
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka íslands, Ingi Már
Aðalsteinsson, formaður
Sambands sláturleyfishafa,
Steinþór Skúlason, varafor-
maður Sambands slátur-
leyfishafa, Jón Magnússon,
viðskiptafræðingur í fjár-
málaráðuneytinu, og Guð-
mundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu. Þeim er falið
að greina stöðu og horfur í
búfjárslátrun og gera tillögur að
framtíðarfyrirkomulagi þar sem
fyllstu hagkvæmni sé gætt.
Einnig eiga þeir að gera tillög-
ur um fjármögnun birgða og
lækkun vaxtakostnaðar og að
tryggja öllum sauðfjárbændum
slátrun fyrir sitt fé og leita leiða
til flutningsjöfnunar til þeirra
framleiðenda sem þurfa að sækja
slátrun um langan veg. Vegna
takmarkaðs tíma fram að slátur-
tíð er starfshópnum falið að
hraða störfum eins og unnt og að
skila tillögum til landbúnaðarráð-
herra eigi síðar en 10. ágúst nk.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að það hafi legið
fyrir við gerð síðasta sauðfjár-
samnings að milliliðurinn, slátur-
húsin, hafi ekki verið tekin með
né heldur nein hagræðing í þeim.
Það hafi verið gert í tölu-
verðum mæli árið 1995 svo
að landbúnaðarráðuneytið
hefur enga peninga í dag til
úreldingar eða bakábyrgö
til að tryggja sauðfjár-
bændum verð fyrir afurðir
sínar.
„Menn sjá þarna fram
undan mikla byggðarlega
neyð þvi að heilu land-
svæðin eru að verða án
sláturhúsa svo að flytja þarf dýr
langar leiðir en það er jafnvel
brot á dýravernd.
Það hefur verið gríðarleg þró-
un í þessum sláturhúsamálum
hérlendis. Fyrir um 15 árum voru
um 50 sláturhús í landinu en nú
eru þau 19 og menn telja að þau
séu um 10 of mörg vegna of lítilla
verkefna. Það þarf að lengja slát-
urtímann og aðalsláturtíðin
þyrfti að vera 3 til 4 mánuðir,“
segir Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra. -GG
Guðni
Ágústsson.
Stúlkan, öndin og ungarnir
Öll erum viö ibúar á sömu jörö. Stútkan, öndin og ungarnir lifa í sátt og sam-
lyndi þótt flest skilji þau aö annaö en lífsandinn sem þau draga, hvert meö
sínum hætti.
73 ára gömul Hvítárbrú
endurbætt og fegruð
Sá vandi sem kominn er upp
vegna rekstrarerfiðleika sumra
sláturleyfishafa, aðallega Goða,
var ræddur í ríkisstjórninni í
vikunni. Samstaða var um að
skipa starfshóp til að fjalla um
þann vanda sem sauðfjárfram-
leiðslan stendur frammi fyrir. í
DV, BORGARFIRQI:_________________
Undanfamar vikur hefur verið
unnið að endurbótum á Hvítárbrú
hjá Hvitárvöllum. Hefur vegurinn
að brúnni verið lokaður af þessum
sökum mestan part dagsins undan-
farið. Verið er að styrkja brúna og
fegra í leiðinni.
Hvítárbrú var byggð 1928 og þótti
mjög merkilegt mannvirki á sínum
tíma. Brúin var í þjóðbraut allt þar
til er Borgarfjarðarbrúin var byggð
en við það minnkaði umferð um
hana til mikilia muna.
Lagfæringar sem nú er unnið að
við Hvítárbrú miða annars vegar að
því að tryggja notagildi hennar um
ófyrirséða framtíð og einnig að
varðveita hana sem merkilegar
minjar í samgöngusögu íslendinga.
Það eru Ágúst Guðmundsson,
múrari í Borgamesi, og menn hans
sem eru þessa dagana að vinna við
múrviðgerðir á Hvítarbrú. -DVÓ
Net fyrir fólk dv-mynd daníel v. óufsson
Eins og sést er Hvítárbrúin að veröa sem ný. Netið sem strengt eryfír brúna
er ekki til aö veiöa lax heldur til aö veiöa menn ef þeir detta við vinnu sína.
Áin er afar straumþung og stórhættuleg þeim sem falla í fljótiö. í gær voru
hestar á ferö yfir elfuna miklu.