Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001
Fréttir DV
OV-MYND: EIRÍKUR JÓNSSON
Kynbótahross
Baldvin Ari Guölaugsson og Birgir Árnason meö fjögur afkvæmi Galsa frá Sauöárkóki sem voru í veröiaunasætum á kynbótasýningunni á Vindheimamelum.
Vindheimamelar:
Galsaafkvæmi
atkvæðamikil
Afkvæmi Galsa frá Sauðárkróki
voru atkvæðamikil á kynbóta-
hrossasýningunni á Vindheima-
melum i síðustu viku. Glampi og
Sleipnir frá Efri-Rauðalæk stóðu
efstir í 5 og 4 vetra flokki stóðhesta
og Sól og Dimma frá Efri-Rauða-
læk voru í 1. og 2. sæti í flokki 5
vetra hryssna. Einnig voru sýnd
athyglisverð hross undan Gusti frá
Hóli. Kynbótahrossin voru óvenju
mörg og fengu mörg hrossanna
góðar einkunnir. Ágúst Sigurðsson
landshrossaráðunautur var ánægð-
ur með hrossin, sérstaklega 5 og 6
vetra hryssur.
! flokki 6 vetra stóðhesta stóö
efstur Sólon frá Ytri-Tjörnum, und-
an Gusti frá Hóli, og Ósk frá Hösk-
uldsstöðum með 8,24 fyrir bygg-
ingu, 7,87 fyrir hæflleika og 8,02 í
aðaleinkunn. Fengur frá Sauðár-
króki fékk 7,91.
í 5 vetra flokki stóðhesta stóö
efstur Glampi frá Efri-Rauðalæk,
undan Galsa frá Sauðárkróki og
Brynju frá Kvíarhóli, með 7,93 fyr-
ir byggingu, 8,25 fyrir hæflleika og
8,12 í aðaleinkunn. Andri frá Haf-
steinsstöðum fékk 7,98.
í 4 vetra flokki stóðhesta stóð
efstur Sleipnir frá Efri-Rauðalæk,
undan Galsa frá Sauðárkróki og
Hreyfingu frá Húsey, með 7,88 fyr-
ir byggingu, 8,10 fyrir hæfileika og
8,02 í aðaleinkunn. Húmi frá Haf-
steinsstöðum fékk 7,88 og Nökkvi
frá Efri-Rauðalæk 7,84.
Gola frá Kommu stóð efst 7 vetra
hryssna með 8,10 í aðaleinkunn.
Gola er undan Gusti frá Hóli og
Helgu frá Sauðárkróki og fékk 7,94
fyrir byggingu og 8,20 fyrir hæfi-
leika. Von frá Keldulandi fékk 8,03
og Prinsessa frá Litla-Dunhaga I
fékk 8,03. í 6 vetra flokknum stóð
efst Hrima frá Hofi, undan
Kolfinni frá Kjarnholtum I og
Hlökk frá Hólum, með 8,16 fyrir
byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og
8,11 í aðaleinkunn. Ugla frá
Kommu fékk 8,07 og Iðja frá Blesa-
stöðum 1A fékk 8,03. í 5 vetra
flokki stóð efst Sól frá Efri-Rauða-
læk, undan Galsa frá Sauðárkróki
og Sögu frá Þverá, með 7,99 fyrir
byggingum, 8,36 fyrir hæfileika og
8,21 í aðaleinkunn. Dimma frá Efri-
Rauðalæk fékk 8,19 og Gunnvör frá
Miðsitju 8,16. í 4 vetra flokki stóð
efst Þruma frá Hvoli með 7,84.
íslandsmet dugöi ekki til sigurs
Með Fákagleði 2001 hafa Vind-
heimamelar öðlast aftur þann sess
sem þeir áttu í hugum manna
milli 1980 og 1990 er stórmót voru
haldin þar um verslunarmanna-
helgar. Nú kom þangað fjöldi
knapa með marga af bestu hestum
landsins og um leið fjölgaði í
áhorfendabrekkunni. Keppt var í
helstu greinum hestamennskunn-
ar en auk þess var kynbótasýning
hrossa fyrir allt Norðurland.
Dómar hrossa voru nokkuð
frjálslegir. Tveir dómarar dæmdu
í hverjum flokki og gáfu eina ein-
kunn. Ekki var sýnt fet og stökk í
A- og B-flokki gæðinga. Einkunnir
voru háar. Sextándi hæst dæmdi
B-flokks hesturinn fékk 8,70 og í
A-flokki fékk Sif frá Flugumýri,
sem Páll B. Pálsson sýndi í for-
keppni, hæstu einkunn sem A-
flokks hestur hefur fengið, 9,28, en
það nægði ekki til sigur því
Skuggabaldur frá Litla-Dal stóð
efstur eftir úrslit með 9,13 en
knapi hans var Sigurður Sigurð-
arson.
Fyrra metið í A-flokki átti
Sif með íslandsmet
Sif frá Flugumýri setti Islandsmet er hún fékk 9,28 í aöaleinkunn í forkeppni
A-flokks á Vindheimamelum. Knapi er Páll B. Pálsson.
Svartur frá Högnastöðum, 9,27,
sett á landsmótinu á Vindheima-
melum 1990. Sigurður Sigurðar-
son sýndi einnig hæst dæmda B-
flokks hrossið, Fífu frá Brún, sem
fékk 9,02. í tölti sigraði Eyjólfur ís-
ólfsson á Rás frá Ragnheiðarstöð-
um. Edda H. Hinriksdóttir sigraði
i pollaflokki á Rúmi frá Bjama-
stöðum og Eyrún Ýr Pálsdóttir í
barnaflokki á Þór frá Neðra-Ási
með 9,09. Freyja A. Gísladóttir
sigraði í unglingaflokki á Muggi
frá Stangarholti með 8,92 í ein-
kunn. Aníta Aradóttir sigraði í
ungmennaflokki á Sunnu frá
Reykjum með 8,84 í einkunn.
Baldvin A. Guölaugsson stýrði
Eldjámi frá Efri-Rauðalæk til sig-
urs í 100 metra skeiði meö fljúg-
andi starti og fóru þeir félagar á
7,90 sek. Logi Laxdal heldur áfram
að einoka gullverðlaunasæti í
skeiðinu því hann sigraði í 150
metra skeiði á Neyslu frá Gili á
14,80 sek. og 250 metra skeiði á
Hnoss frá Ytra-Dalsgerði á 24,01
sek.
Hestamolar
Það stóð glöggt að
Sigurbjörn Bárö-
arson fengi Gordon
frá Stóru-Ásgeirsá
til titilvarnar á
heimsmeistaramót-
inu í hestaíþróttum
því þegar landsliðið
var kynnt mánudag-
inn 30. júlí var hann ekki í liðinu og
sama dag kl. 22 rann frestur út að
tilkynna landsliðið. Skömmu áður
en fresturinn rann út sagði Bernd
Schlikermann, eigandi hestsins, að
Diddi mætti reyna sig í þriðju
heimsmeistarakeppninni í röð á
Gordon. Sigurbjörn er að fara á
tólfta heimsmeistaramót sitt, hefur
farið á níu síðustu mótin.
Hugrún Jóhannsdóttir bættist
við landsliðshópinn með Súlu frá
Bjarnastöðum en þær stöllur hafa
farið mikinn á undanförnum mót-
um. Árangur þeirra á íslandsmót-
inu varð þess valdandi að augu Sig-
urðar Sæmundssonar landsliðsein-
valds beindust að þeim en þær voru
í 2. sæti í meistaraflokki í fimm-
gangi, 3. sæti í slaktaumatölti í
meistaraflokki og þriðja sæti í 250
metra skeiöi, svo eitthvað sé tínt til.
Atli Gudmundsson fer ekki með
Breka frá Hjalla á heimsmeistara-
mótið. Eigendur hestsins, María
Höskuldsdóttir og Jón G. Þorkels-
son, vildu ekki taka þá áhættu að
fara með hestinn út óseldan og þeg-
ar það lá ljóst fyrir að ekki var búið
að selja hann skömmu fyrir loka-
frest skráningar ákváðu þau að
draga hann úr landsliðinu.
Óvenju margir nýliðar eru í
landsliðinu í hestaíþróttum. Ein-
ungis þrír knapanna, Hafliði Hall-
dórsson (1 sinni) Sigurbjörn Bárö-
arson (12 sinnum) og Styrmir
Árnason (3 sinnum), hafa keppt áð-
ur á heimsmeistaramóti en Sveinn
Ragnarsson, Þórarinn H. Arnar-
son, Reynir Aöalsteinsson yngri,
Vignir Jónasson og Hugrún Jó-
hannsdóttir eru nýliðar.
Margar hryssur voru sýndar í A-
flokki gæðinga á Vindheimamelum.
Af 65 skráðum hrossum í A-flokks-
keppnina voru hvorki fleiri né færri
en 27 hryssur, þar af margar fyrstu
verðlauna hryssur.
Baldvin Ari Guölaugsson kom
með flota hrossa úr Eyjafirði sem
hann og Birgir Árnason sýndu.
Ræktun fjölskyldu Baldvins að Efri-
Rauðalæk er að skila sér og voru
mörg verðlaunahross þaðan en
einnig kom hann með nokkur ágæt-
is hross frá Kommu í Eyjafirði.
Landslið Hollands hefur verið
valið fyrir heimsleikana í Austur-
ríki. Þar er að ftnna:
Juliet ten Bokum á Gróttu frá
Litlu-Tungu, Sigurö Marinusson á
Sóley frá Aldenghoor, Marjolein
Strikkers á Erró frá Vallanesi,
Mark Timmerman á Ljúf frá
Fremri-Hvestu, Jaap Groven á
Gimsteini frá Skáney, Odette Nijs-
sen á Indíu frá Aldenghoor og Els
v.d. Tas á Vöku frá Stóru-Ásgeirsá,
Liðsstjóri er Inge Frieling.
Athyglisvert er að Hollendingar
senda aðeins eitt klárhross á mótið.
Aörir í liðinu eru váldir fyrir árang-
ur í gæðingaskeiöi, fimmgangi eða
slaktaumatölti.
Smáauglýsingar
DV
550 5000