Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Blaðsíða 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001
DV
Menning
Heimspeki litanna
Urnsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
Naumhyggjan er langt í frá einsleit eins og
innvígðir vita gjörla. Til er sú naumhyggja sem
snýst alfarið um eigindir sínar og verst öllum
tilraunum áhorfenda til að skynja hana á öðr-
um forsendum en nákvæmlega þeim sem lista-
maðurinn leggur upp með. Slík naumhyggja er
gömul í hettunni og er nú farin að þreytast. Síð-
an er sú naumhyggja sem einfaldar og þéttir
allt myndmál í því augnamiði að gera það
virkara og tjáningarríkara, sem sagt opnara
fyrir því sem áhorfendur hafa til málanna að
leggja. Slík naumhyggja virðist nú ganga í end-
urnýjun lífdaganna ef marka má nýjustu tíð-
indi af evrópskum listaverkamarkaði.
■HBi:
iiiliWm
Myndiist
Lærdómsrík dæmi um hið síðarnefnda er nú
að fmna bæði á jarðhæð og kjallara gallerís i8
við Klapparstig. Á jarðhæð eru akrýlmálverk á
striga eftir bandaríska listakonu, Max Cole að
nafni, en í kjallara er að finna myndröð eftir
einn af mörgum ágætum tengdasonum íslands,
Thomas Ruppel frá Þýskalandi.
. Cole er gömul í hettunni, fædd 1937, en átti
lengi við ramman reip að draga sem var fjand-
samlegt myndlistarumhverfið í heimalandi
hennar á sjöunda og áttunda áratugnum þar
sem virtist einungis pláss fyrir eina konu á
naumhyggjuvæng málaralistarinnar, Agnesi
Martin. í seinni tíð hafa verk Cole hins vegar
verið í miklum metum meðal evrópskra galleri-
eigenda, eins og sést á fefilskrá sem liggur
frammi í gallerínu.
Myndbirting aldanna
Við fyrstu sýn virðist Cole vera einn af mörg-
um óbilgjörnum „strípumálurum" með ein-
kunnarorð Franks Stella að
leiðarljósi: „What you see is
what you see“. Raunin er samt
sú að verk hennar eru langt í
frá öll þar sem þau eru séð.
Grunneiningar þeirra, breiðar
láréttar linur, hafa ekki sjálf-
stætt gildi, heldur eru þær
eins og umgjörð utan um - og
um leið hluti af - myndlistar-
pælingum sem einna helst
verður lýst sem tilvistarlegum.
Þær segja okkur af víðerninu
sem listakonan ólst upp við,
endalausum himni og ósnortn-
um sjóndeildarhring, þar sem
maðurinn og verk hans mynda
eina lóðrétta mótvægið í heild-
armyndinni. Þær eru einnig
eins konar myndbirting ald-
anna, eininganna sem við not-
um til að mæla hinn „stóra“
tíma þar sem þær streyma
fram eins og óstöðvandi fljót.
Innan hverrar láréttrar
(tíma)einingar er síðan að
finna eins konar skráningu
mannlegrar vitundar, hárfínar
lóðréttar línur sem listakonan
hefur dregið með pentskúfl sín-
um, og er hver þeirra álíka
löng og andardrátturinn. í
sumum tilfellum dregur Cole
einnig lárétta, örmjóa línu, hvita eða svarta,
fríhendis ofan á lóðréttar „þéttilínur" sínar og
upp í hugann kemur annar mælikvarði tímans,
hjartalínuritið.
Hvert málverk listakonunnar verður því eins
og „æðasláttur lífsins sjálfs", svo vitnað sé í að-
faraorð Michaels Húbls i sýningarskrá, æða-
sláttur sem bæði dáleiðir og heillar. Ef til vill
hljómar þetta eins og fremur kaldrifjuð að-
riií unji i>,ígMM
. >■„ „*;5 -» j.-u nt-.i.r.-
ít'bWffdiMafagi
DV-MYNDIR BRINK
Cirrus eftir Max Cole
Við fyrstu sýn virðist Cole vera einn af mörgum óbiigjömum „strípumálurum“ meö einkunnarorö
Franks Stella aö leiöarljósi: „ What you see is what you see“. Raunin er samt sú aö verk hennar eru
langt í frá öll þar sem þau eru séö.
litir óháðir umhverfi
sínu, þeir hafa enga sér-
staka „vídd“ þótt hægt sé
að bregða mælistiku á
umfang þeirra á tiltekn-
um fleti og þeir haga sér
ekki eftir neinum reglum
sem hægt er að negla nið-
ur. Og eins og lykt eða
bragð er ekki nokkur leið
að yfirfæra þá eða tákn-
gera. Það eina sem lista-
maðurinn getur gert er að
bregða upp litnum sjálf-
um, eins og hann kemur
af skepnunni.
Það sem Ruppel gerir í
framhaldinu er að skapa
liti og litasamstæður sem
við eigum erfltt með að
nafngreina. Sem er sér-
staklega pirrandi vegna
þess hve aðlaðandi þær
eru. Flötur sem við fyrstu
sýn virðist vera blátónn
tekur á sig annað yílr-
bragð við nánari skoðun,
verður blágrænn? blá-
svartur? blágrár? Eða
sambland af öllu þrennu?
_________________ Þriggja lita samstæður
hans flækja málið enn
frekar því þær gera okkur
býsna erfltt fyrir að beita viðteknum leikregl-
um um samstæða og andstæða liti - sem er í
rauninni spurning um orðfæri. Og tilvist lit-
anna utan við endimörk tungumálsins á yfir-
ráðasvæði augans.
Aðalsteinn Ingólfsson
Verk Thomasar Ruppels
Viöfangsefni hans er liturinn; jú, liturinn sem endurspeglun hins náttúrulega, en fyrst og
fremst liturinn sem staðreynd. Og þá á hann viö aö í sjálfu sér eru litir óháðir umhverfi
sínu, þeir hafa enga sé'rstaka „vídd“ þótt hægt sé aö bregöa mælistiku á umfang þeirra á
tilteknum fleti og þeir haga sér ekki eftir neinum reglum sem hægt er að negla niöur.
ferðafræði, en er það alls ekki, þökk sé ofur-
næmi og fágun listakonunnar.
Lykt, bragð, litur
Thomas Ruppel er öllu meira á aðferðafræði-
legu línunni en Cole en skapar áhorfendum sín-
um engu að síður drjúgt svigrúm til skynjunar
og útleggingar verka sinna. Viðfangsefni hans
er liturinn; jú, liturinn sem endurspeglun hins
náttúrulega en fyrst og fremst liturinn sem
staðreynd. Og þá á hann við að í sjálfu sér eru
Sýningar á verkum Max Cole og Thomasar Ruppels í
Gallerí i8 standa til 15. september. Sýningarrými er
opið frá 13 til 17 alla daga nema sunnudaga og
mánudaga.
mannsgaman
/
Gamli maðurinn og Lenín
Var einhverju sinni beðinn um að að taka
viðtal við skrýtinn mann sem bjó í ofboðlitlu
húsi í Skuggahverfinu í Reykjavík. Þar lifði
hann sínu lífi einn og laus við meiningar ann-
arra. Varla að húsið stæði undir nafni og
reyndar búið að rífa það núna, enda í upphafi
ekki ætlað að standa margar aldir.
Þetta var upp úr 1980 og það var fremur
hryssingslegt þegar ég skundaði yfir Hverfls-
götuna og hentist oní hverflð sem kennt er við
skugga manns. Hinkraði eilitla stund framan
við útihurðina eins og maður gerir þegar viss-
an er ekki full. Hann kom til dyranna jafn ein-
kennilega og hann var klæddur; i eldrauðum
t j mimí'
kínverskum baðslopp yfir gamalli lopapeysu
sem hafði einhverju sinni verið hneppt að
framan en var nú bundin um bumbuna með
trosnuðu belti.
Ég hafði hitt þennan mann í fornbókabúð
niðri í bæ og tók eftir honum þar sem hann sat
hokinn á stólgarmi inn í horni og las þessi líka
verkin hans Leníns á þýsku. Það fannst mér
langsótt - og ekki var það styttra þegar ég sá að
önnur útgáfa á verkum Leníns var í kjöltu hans
- á sænsku.
Til þess að meðfædd forvitni mín dræpi mig
ekki spurði ég kallinn hvað í ósköpunum hann
væri að gera með svona marga Lenína í klofinu
á sér. Hann horfði á mig eins og menn gera sem
eygja fávita. Kvaðst vera að safna Lenín og
hefði gert lengi, ætti líklega mesta safn af verk-
um hans á íslandi og svo glotti hann gisnum
gómi.
Það var gaman að heimsækja kallinn. Hill-
urnar svignuðu af Lenín og hann bauð mér upp
á kafli sem var soðið með korginum i potti. Eitt
stóð upp úr, svar hans við því hvort hann væri
ekki gallharður kommi: „Nei,“ sagöi hann, „ég
er nú bara eins og hver annar framsóknarmað-
ur. Lenín er bara dútl.“
-SER
l.lí l í P>£3. fJbii ifli) ! j.tí.) tuili
Mynd á hvolfi
Því miður var mynd af vegg með gler-
gluggum Gerðar Helgadóttur, sem birtist
með rýni Aðalsteins Ingólfssonar á menn-
ingarsiðu á mánudaginn í síðustu viku, á
hvolfi. Mannleg mistök ollu því, en hér
birtist myndin eins og hún á að vera. Eru
hlutaðeigendur beðnir afsökunar á mistök-
unum.
Sýning á verkum Gerðar Helgadóttur
stendur yfir í Listasafni Kópavogs, en
henni lýkur á sunnudaginn.
Edda kaupir
iár bókabúðir
(d1
d d <
miölun útgáfa
Edda - miðlun
og útgáfa hf. hef-
ur fest kaup á
þremur bóka-
verslunum á höf-
uðborgarsvæðinu
og fjölgar verslun-
um fyrirtækisins
þar með um helm-
ing. Verslanimar sem um ræðir eru í
Mjódd, við Hlemm og í Hamraborg í Kópa-
vogi. Það er Egg ehf. sem átti og rak um-
ræddar verslanir en samningar hafa nú
tekist milli Eddu og eigenda félagsins um
að Edda kaupi öll hlutabréf í félaginu og yf-
irtaki rekstur búðanna frá og með 1. ágúst.
Rekstri þeirra allra verður haldið áfram á
sömu stöðum og þær eru og starfsfólki Eggs
býðst að vinna áfram hjá Eddu.
Edda - miðlun og útgáfa, sem varð til
upp úr sameiningu Vöku-Helgafells og Máls
og menningar í fyrra, rekur fyrir þrjár
bókaverslanir; á Laugavegi, í Síðumúla og í
Bankastræti. Bókaverslun er einn af lykil-
þáttum í starfsemi Eddu, sem félagið
hyggst efla enn frekar með fjölgun búðanna
úr þremur í sex. Búðimar sem Egg ehf. hef-
ur rekið munu starfa áfram á svipuðum
grundvelli og áður og bjóða upp á tímarit,
ritföng og gjafavöru en jafnframt er stefnt
að því að auka hlut bóka i þessum verslun-
um, enda verða þær reknar undir nafni
Bókabúða Máls og menningar.
Bókaverslanimar þrjár sem Edda hefur
nú keypt veltu tæplega 200 milljónum
króna á síðasta ári. Forsvarsmenn þeirra
munu starfa áfram við rekstur verslananna
hjá Eddu. Aðilar hafa komið sér saman um
að kaupverðið sé trúnaðarmál.
Tvö ný hjá
Borgarleikhúsinu
Stjórn Leikfélags
Reykjavíkur - Borgarleik-
húss hefur ráðið Magnús
Árna Skúlason fram-
kvæmdastjóra félagsins.
Magnús Ámi hefur lokið
meistaragráðu í viðskipt-
um (MBA) frá Cambridge
University í Englandi og
meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla ís-
lands. Undanfarið ár hefur Magnús verið
framkvæmdastjóri og einn eigenda Re-
searchGrappen ApS í Kaupmannahöfn. Frá
árinu 1998 til 2000 lagði hann stund á fram-
haldsnám og starfaði sem ráðgjafi í
Englandi. Magnús var framkvæmdastjóri
íslenska dansfiokksins frá árinu 1996-1998.
Hann hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum
og rannsóknarstörfum, starfað sem blaða-
maður og sem stundakennari í hagfræði
bæði við Viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla íslands og við Menntaskólann í
Reykjavík.
Sigrún Valbergsdóttir
hefur verið ráðin kynning-
arstjóri hjá Leikfélagi
Reykjavíkur í Borgarleik-
húsinu. Sigrún er menntað-
ur leikari og stundaði nám
í leikhúsfræðum við Köln-
arháskóla. Sigrún var fram-
kvæmdastjóri erlendra verkefna hjá
Reykjavík Menningarborg. Hún hefur starf-
að sem deildarsérfræðingur í menntamála-
ráðuneytinu, var framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra leikfélaga og leikhús-
stjóri Alþýðuleikhússins. Sigrún hefur
gegnt Qölda trúnaðarstarfa fyrir leiklistar-
samtök innlend og alþjóðleg. Sigrún hefur
leikstýrt yfir 40 leiksýningum, kennt við
leiklistarstofnanir og unnið við þýðingar
og þáttagerð fyrir útvarp og sjónvarp.
ii . litU icitsi ; 3 :.jf ru tmf (I >»•