Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Side 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001
íslendingaþættir___________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Sextugur
Jóhannes Jónsson
skipstjóri og útgerðarmaður í Hafnarfirði
85 ára________________________
Guörún Hafberg,
Réttarholtsvegi 77, Reykjavík.
Hún er aö heiman.
Helga Jónsdóttir,
Smyrilsvegi 31, Reykjavík.
Runólfur G. Kristjánsson,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
75 ára____________________
Aöalheiður Helgadóttir,
Hjaltabakka 8, Reykjavík.
Jóhann Indriöason,
Ljósheimum 5, Reykjavík.
Jóhannes G. Jóhannesson,
Framnesvegi 15, Keflavík.
Júlía Kristjánsdóttir,
Brautarhóli, Akureyri.
70 ára____________________
Ragnar Ágúst Bjarnason,
Fálkagötu 15, Reykjavík.
Sigurborg Sigurgeirsdóttir,
Traöarstíg 8, Bolungarvik.
Þorleifur Matthíasson,
Móhúsum, Garði.
60 ára____________________
Erla Georgsdóttir,
Berjahlíö 1, Hafnarfirði.
Siguröur Arinbjörnsson,
Fannafold 166, Reykjavík.
50 ára____________________________
Einar Jónsson,
Reynigrund 31, Akranesi.
Guðjón Björnsson,
Blikaási 15, Hafnarfiröi.
Guðlaug Pálsdóttir,
Álfheimum 15, Reykjavík.
Guömundur Stefán Einarsson,
Hásteinsvegi 62, Vestmannaeyjar.
Guörún Björnsdóttir,
Herjólfsgötu 2, Vestmannaeyjar.
Hafdís Engilbertsdóttir,
Vesturási 52, Reykjavík.
Hilmar Sigursteinsson,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Jón Bjarni Jónsson,
Leifsgötu 17, Reykjavík.
Jón Eyjólfur Jónsson,
Skipholti 56, Reykjavík.
Jónas Ragnarsson,
Sæviðarsundi 46, Reykjavík.
Þórarinn Baldursson,
Hófgerði 18, Kópavogur.
40 ára___________________________
Bjarni Eiríksson,
Vesturgötu 56, Reykjavík.
Daöi Daðason,
Jörfabakka 20, Reykjavík.
Elín Ingibjörg Jacobsen,
Bakkavör 36, Seltjarnarnes.
Guörún Gígja Karlsdóttir,
Hraunbæ 54, Reykjavík.
Kolbrún Davíösdóttir,
Stekkjarhvammi 24, Hafnarfiröi.
Margrét J. Kristjánsdóttir,
Sigluvogi 5, Reykjavík.
Rósa Rútsdóttir,
Logafold 21, Reykjavík.
Sigríður S. Vernharösdóttir,
Meistaravöllum 13, Reykjavík.
Sigrún Jósefsdóttir,
Leiöhömrum 6, Reykjavík.
Svanhvít Gísladóttir,
Lindarholti, Búöardal.
Jóhannes Jónsson, skipstjóri og
útgerðarmaður, Klapparholti 10,
Hafnarfirði, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Jóhannes fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hann var í Lækjar-
skóla, lauk unglingaprófi frá
Reykjaskóla í Hrútafirði 1955 og
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1971.
Jóhannes byrjaði sextán ára til
sjós á Jóhannesi Einarssyni frá
Hafnarfirði. Hann var á togurunum
Akurey AK, Surprise GK, og siðan
á bátum frá Hafnarfirði og Grinda-
vík.
Jóhannes var skipstjóri á Sigfúsi
Bergmann GK-38 1971, skipstjóri og
meðeigandi á Þorsteini Gíslasyni
GK-2 1973, skipstjóri og útgerðar-
maður á Kóp GK-175 frá 1974, með
Guðmundi Þorsteinssyni og var
aflakóngur á vertíðunum 1977, 1978
og 1985.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 31.12. 1965
Margréti Þorláksdóttur f. 20.12.1940,
d. 18.1. 1990, húsmóður. Foreldrar
hennar voru Þorlákur Gíslason
vörubílstjóri og Valgerður Jóns-
dóttir frá í Vík í Grindavík
Böm Jóhannesar og Margrétar
eru Kristjana, f. 15.5. 1964, bókari í
Hafnarfirði en maður hennar er Sig-
valdi Jónssyni húsasmíðameistari
og eru börn beirra Jóhannes, Skúli
og Elsa; Valgerður, f. 6.7. 1965, hús-
móðir í Reykjavík og eru börn
hennar Kristín Gyða, Matthías, og
Sverrir; Jón Ingi, f. 1.8. 1970, stýri-
Sigurður H. Helgason, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Norræna ráð-
herraráðsins í Kaupmannahöfn,
Gentoftegade 112, Gentofte, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Sigurður er fæddur og uppalinn í
Keflavík og lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Suðumesja 1980.
Hann lauk B.A.-prófi í félagsfræði frá
Háskóla íslands 1986 og meistara-
gráðu i stjómsýslu frá Roskilde Uni-
versitetscenter í Danmörku 1990.
Sigurður starfaði í fjármálaráðu-
neytinu 1990-95, einkum að nýskipan
og hagræðingu í ríkisrekstri, var sér-
fræðingur í stjórnun hins opinbera og
endurbótum í opinberum rekstri hjá
OECD í París 1995-99, var sjálfstæður
stjórnsýsluráðgjafi og veitti ráðgjöf til
ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga og
stjórnvalda í Argentínu og Jamaica
1999-2001 og var jafnframt formaður
stjórnar Sjúkrahúsapóteksins ehf.
1999-2001.
Sigurður var ráðinn yfirmaður fjár-
mála og stjórnsýslu Norræna ráð-
herraráðsins í Kaupmannahöfn í febr-
maður í Reykjavík, kvæntur Krist-
ínu Jóhönnu Valsdóttur liffræðingi
og er sonur þeirra Ólafur Ingi.
Stjúpsonur Jóhannesar, sonur
Margrétar, er Þorlákur Guðmunds-
son, f. 12.9. 1961, matsveinn í
Grindavík, kvæntur Álfhildi Jóns-
dóttur húsmóður en dóttir beirra er
Margrét.
Kona Jóhannesar er Þórunn
Gísladóttir, f. 6.2. 1941 í Reykjavik.
Systkini Jóhannesar eru Pálmi
Birgir Jónsson, f. 26.12. 1936, skip-
stjóri og útgerðarmaður í Garði;
Steinunn Jónsdóttir, f. 27.3. 1951,
hjúkrunarfræðingur í Mosfellsbæ.
Foreldrar Jóhannesar voru Jón
Ingi Jóhannesson, f. 21.5. 1912, d.
28.9. 1995, húsasmiður í Hafnar-
firði, og k.h., Kristjana Elíasdóttir,
f. 26.7. 1914, d. 15.6. 1999, sundlaug-
arvörður og húsfreyja í Hafnarfirði.
Ætt
Jón Ingi var sonur Jóhannesar
W.P. Hansen, sjómanns og hafnar-
varðar í Hafnarfirði Einarssonar
Hansen, hreppstjóra og útvegsb. í
Hafnarfirði Jóhannessonar W. Han-
sen, hreppstjóra og útvegsbónda í
Hafnarfirði, sonar J. Peter Hansen,
verslunarmanns og beykis í Reykja-
vík, sonar Hendrik Hansen kaup-
manns. Móðir Peters var Sigríður
Sigurðardóttir, í Götuhúsum í
Reykjavík Erlendssonar. Móðir Sig-
ríðar var Hallgerður Guðmunds-
dóttir. Móðir Einars var Kristín
Jónsdóttir, bátasmiðs í Hraunprýði
í Hafnarfirði. Móðir Jóhannesar
Hansen var Jensína Árnadóttir
Mathiesen, verslunarmanns í Hafn-
arfirði Jónssonar, pr. í Amarbæli í
úar sl. og i júní sl. var hann skipaður
aðstoðarframkvæmdastjóri (Stedfor-
trædende Generalsekretær). Hann
hefur umsjón með gerð og fram-
kvæmd norrænu fjárlaganna og gegn-
ir jafnframt tímabundið starfi yfir-
manns velferðar-, atvinnu- og Evrópu-
mála.
Sigurður hefur farið í embættiser-
indum til tuga landa og veitt stjóm-
völdum í beim og albjóðastofnunum
ráðgjöf. Hann hefur haldið fjölmarga
fyrirlestra á alþjóðavettvangi um
stjómun og nýskipan ríkisins. Hann
er höfundur 26 skýrslna og rita sem
m.a. hafa verið gefin út af stjómvöld-
um hér á landi og OECD í Paris. Þá
hefur hann setið í fjölda nefnda og
starfshópa á vegum ýmissa ráðu-
neyta. Hann situr í ritnefnd the
Intemational Joumal of Public Sector
Management og er meðlimur í the
Intemational Public Management
Network.
Sigurður var formaður Nemendafé-
lags Fjölbrautaskóla Suðurnesja
1979-80, sat í Stúdentaráði HÍ 1984-86
og var formaður Umhyggju, félags til
stuðnings langveikum bömum, árið
2000.
Fertugur
Sigurður H. Helgason
aðstoðarframkvæmdastjóri Norræna ráðherraráðsins
Ölfusi
Mathiesen,
sonar Matthí-
asar stúdents í
Vigur Þórðar-
sonar, á Eyri í
Seyðisfirði við
Djúp, bróður-
sonar Ingi-
bjargar, ömmu
Jóns
Sigurðssonar
forseta, af
Eyrarætt. Móð-
ir Jensínu var
Agnes Stein-
dórsdóttir
Waage, skip-
herra, stjúp-
sonar Bjarna
riddara og son-
ar Rannveigar,
kaupkonu í
Hafnarfirði Fil-
ippusdóttur, pr. í Kálfholti Gunn-
arssonar. Móðir Agnesar var Anna
Kristjánsdóttir Velding, kaupmanns
í Hafnarfirði, og Kristínar Guð-
mundsdóttur.
Móðir Jóns Inga var Steinunn
Pálmadóttir, kennara í Reykjavík
Pálmasonar, b. á Miðgili í Langadal
Jónssonar, b. á Syðra-Hvoli Jóns-
sonar. Móðir Pálma var María Guð-
mundsdóttir, frá Móbergi í Langa-
dal Sigurðssonar, frá Akri og Elínar
Helgadóttir.
Kristjana var dóttir Elíasar, b. á
Vaðli á Barðaströnd Bjarnasonar, á
Siglunesi Einarssonar, sterka Jóns-
sonar, frá Eyrarhúsum á Tálkna-
firði. Móðir Elíasar var Sigríður
Jónsdóttir, b. á Vaðli Helgasonar,
frá Haukabergi. Móðir Sigríðar var
Ástríður Jónsdóttir, útvegsb. á
Siglunesi Gíslasonar, og Margrétar
Jónsdóttur
Móðir Kristjönu var Elín Kristín
Einarsdóttir, sjómanns í Önundar-
firði Jónssonar, skipstjóra í Önund-
arfirði Einarsson, b. Jónssonar, á
Kollarfjarðarnesi. Móðir Einars var
Þóra Sigurðardóttir, sýslumanns í
Vigur Guðlaugssonar og Elínar
Kristínar, í Otradal Erlendssonar,
pr. í Þæfusteini Vigfússonar.
Jóhannes og Þórunn taka á móti
ættingum og vinum veitingarhús-
inu Tuminum við Strandgötu í
Hafnarfirði, miðvikudaginn 8.8. kl.
19.00-21.00.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 6.6. 1987 Drífu
Leonsdóttur, f. 20.2. 1962, hjúkrunar-
fræðingi. Þau hófu sambúð 1982. Hún
er dóttir Lilju Jakobsdóttur, fyrrv.
umdæmisfulltrúa og Leons Carlsson
stýrimanns sem nú er látinn.
Börn Sigurðar og Drífu era Guð-
björg Lilja, f. 24.4. 1985, menntaskóla-
nemi; Arnaldur, f. 14.10. 1987, nemi;
Nökkvi Steinn, f. 7.2. 1991, nemi; Álf-
rún, f. 31.5.1993, nemi.
Systkini Sigurðar eru Lára Jóna, f.
18.11.1958, verkakona i Njarðvík; Dag-
ný, f. 11.11. 1964, starfsmaður á leik-
skóla í Njarðvík.
Hálfbróðir Sigurðar, samfeðra, er
Hrafn, f. 15.8. 1983, sjómaður í Njarð-
vík.
Foreldrar Sigurðar: Helgi Láras-
son, f. 25.6. 1936, d. 10.9. 1997, sjómað-
ur og verkamaður, og Lilja Soffia Jón-
asdóttir, f. 6.5.1937, verkakona, búsett
í Reykjanesbæ.
Ætt
Foreldrar Helga voru Láras Guð-
mundsson útvegsbóndi og Sigurlaug
Skarphéðinsdóttir, húsfreyja í Kross-
nesi í Eyrarsveit.
Foreldrar Lárusar vora Guðmund-
ur Skúlason, útvegsbóndi i Krossnesi,
og k.h., Guðrún Kristín Jóhannesdótt-
ir. Guðmundur var sonur Skúla Jóns-
sonar, b. á Suðurbár í Eyrarsveit
Jónssonar.
Lilja er dóttir Jónasar, b. á Læk á
Skógarströnd Guðmundssonar, b. í
Hnappadals- og Snæfellsnessýslu Jón-
assonar, óðalsb. á Bíldhóli Guðmunds-
sonar. Móðir Jónasar á Læk var Her-
dís Kristjánsdóttir, hreppstjóra á
Þverá Jörundssonar.
Móðir Lilju var Lára Jóelsdóttir,
húsfreyja á Læk á Skógarströnd.
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Bnareson Biyndis
útfararstjóri Valbjarnardóltir
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Su&urhl(635> Sími 581 3300
allan sólarhringinn. www.lltforin.is
Vilmundur Gylfason, alþingismaður og ráðherra, fæddist í
Reykjavík 7. ágúst 1948. Hann var sonur Gylfa Þ. Gíslason-
ar, alþm., ráðherra, formanns Alþýðuflokksins og hagfræði-
prófessors, og k.h., Guðrúnar Vilmundardóttur húsmóður.
Bræður Vilmundar eru Þorsteinn, prófessor í heimspeki,
og Þorvaldur, prófessor í hagfræði. Bróðir Gylfa var
Vilhjálmur Gislason, skólastjóri VÍ og síðar útvarpsstjóri.
Faðir þeirra var Þorsteinn Gíslason, skáld og ritstjóri i
Reykjavík, en afi Vilmundar í móðurætt var Vilmundur
Jónsson, landlæknir og alþm.
Vilmundur lauk stúdentsprófi frá MR 1968, BA-prófi í
sagnfræði frá Manchester-háskóla á Englandi 1971 og MA-
prófi í Exeter-háskóla 1973.
Vilmundur var sögukennari við MR 1972-78. Hann varð
þjóðkunnur fyrir óvæga gagnrýni sina á íslenska stjóm-
málaspillingu eins og fram kom í pistlum hans í Vísi og Dag
blaðinu 1975-80 og sjónvarpsþáttum hans, var ritstjóri Alþýðu-
blaðins í afleysingum 1976, 1977 og 1978 og hafði mikil áhrif
rannsóknarblaðamennsku ungra blaðamanna á seinni helmingi átt
unda áratugarins.
Vilmundur Gylfason
Vilmundur hóf snemma afskipti af stjómmálum í Alþýðuflokkn-
um, sat í flokkstjóm flokksins 1974-1983, var þingmaður ílokksins
1978-83 og dóms-, kirkju- og menntamálaráðherra í minnihluta
stjóm Benedikts Gröndals 1979-1980. Hann var frjálslyndur og
gagnrýninn jafnaðarmaður, hafði á tíma áhuga á nýrri Við-
reisnarstjórn, var einn af upphafsmönnum vinnustaðafunda
stjómmálamanna hér á landi og átti öðrum fremur heiður-
inn af glæsilegasta kosningasigri Alþýðuflokksins 1978. Þá
var hann ágætt skáld og gaf út tvær ljóðabækur.
í árslok 1982 sagði Vilmundur skilið við Alþýðuflokkinn
og stofnaði Bandalag jafhaðarmanna sem stefndi að rót-
tækum stjómskipunarbreytingum, s.s. skýrari aðskilnaði
löggjafar- og framkvæmdavalds og að beinni kosningu
forsætisráðherra. Bandalagið fékk fjóra menn kjörna í al-
þingiskosningunum 1983. Úrslitin urðu Vilmundi mikil
vonbrigði og skömmu siðar varð hann þjóðinni mikill
harmdauði er hann lést langt fyrir aldur fram 18. júní 1983.
Bókin Við í Vesturbœnum, eftir ónefndan höfund, fiailar um
bemskuár og bemskustöðvar Vilmundar. Þá skrifaði Jón Ormur
Halldórsson bók um Vilmund sem nefnist Löglegt en siölaust.