Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Side 25
29 ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001____________________________________________________________________________ 3>V Tilvera Kántrýhátíðin slær í gegn: Kærleikur á Kántrýhátíð - aldrei fleiri á hátíðinni Skaparinn með Skagstrendingum Þegar Hallbjöm er spurður hvað valdi þessum miklu vinsældum Kán- trýhátíðar segir hann margt koma til. „Það er fjölbreytnin sem gerir það að verkum að fólk kemur hingað. Við stefnum að þessu sem fjölskylduhátíð og leggjum okkur mikið fram mn að vera með mikið fyrir bömin jafnt sem fuilorðna," segir Halibjöm og bætir við að þar fyrir utan sé Skagaströnd geysi- lega fallegur staöur að sumri til. Það sem mestu skiptir er þó að Skagstrend- ingar standi ekki einir að hátiðinni. „Það er skaparinn minn, freisarinn minn, sem er með okkur i þessu og það er alveg hundrað prósent ömggt að hann gefur okkur mikinn styrk og það er hann sem heldur þessu öllu saman. unudans Margir fremstu línudansarar íslands eru frá Skagaströnd og skyldi engan undra. Nokkrir þeirra sýndu listir sínar á hátíðinni. Þessi stemning sem hér myndast, hún myndast öll af þeim kærleika sem fólk- ið flnnur bæði út frá útvarpsstöðinni og alls staðar í bænum. Það er kærleik- ur sem ríkir hér hvar sem þú kemur og það er þessi andi sem gefur þessari skemmtun þann blæ sem hún hefur,“ segir Hallbjörn Hjartarson að lokum. Degi er tekið aö halla þegar ég yfir- gef Skagaströnd og held í vesturátt eins og kúrekamir forðum. Útvarp Kántrý- bær fylgir mér áleiðis með angurværri sveitatónlist um einmana kúreka og ástfangnar stúlkur. -EÖJ Einstök stemning Þetta voru greinilega óþarfa áhyggjur því að þegar ég kem inn í bæ- inn bíður mín stæði rétt við hliðina á Kántrýbæ. Ég legg bílnum og geng út í sólina. Stemningin á Kántrýhátíð á Skaga- strönd er engu lík. Fólk á öllum aldri spókar sig á götunum, annar hver maður með kúrekahatt á höfði og sumir líka í köflóttri skyrtu og með tóbaksklút. Islensk og amerísk kántritónlist hljómar í hverju tjaldi og enginn asi er á nein- um. Jafnvel þó að ein- staka maður sjáist með bjórdós í hendi eru eng- in læti heldur njóta menn þess að vera til. Börnin una sér i leik- tækjum á meðan hinir eldri sleikja sólina. Kraftakeppnin við íþróttahúsið laöar að sér marga áhorfendur og það gera línudansarnir á stóra sviðinu lika. oii í stn Ragnar Kjartansson, forsprakki hljóm- sveitarinnar Kanada, lét sig ekki vanta á Kántrýhátíð nú frekar en fyrri ár. Hér er hann ásamt yngismeyjunum Elísabetu Davíðsdóttur og Ólöfu Júlíusdóttur. sitja við stjórnvölinn i Út- varp Kántrýbæ þarf hann að koma fram á tveimur skemmtunum um kvöldið. „Þetta hefur gengið alveg frábærlega vel enn sem komið er,“ segir Hallbjörn og bætir við að það hafi orðið'alger sprenging í að- sókn frá hátíðinni í fyrra og hafi hún þó slegið öll met. „Það sem er alveg sérstakt við Kántrýhátíð- ina er sá andi sem hér rík- ir og að það er stórkostlegt að það skuli ekki verða nein læti á öllum þessum hóp og ekki neinar rysk- ingar,“ segir Hallbjöm og bætir við að þetta geti hvergi átt sér stað nema á Kántrýhátíð á Skaga- strönd. Hattarnir fljúga út Þeir sem gleymdu hattinum heima þurftu ekki að örvænta því aö Guðrún Guðmundsdóttir og Óli Björn Finnsson voru með kúrekahatta af öllum stærðum og gerðum til sölu. Þrátt fyrir amerískt yfirbragð leynir sér þó ekki að maður er staddur í ís- lensku sjávarþorpi en ekki smábæ i villta vestrinu. Fiskibátar liggja bundnir við bryggju og á markaðnum er hægt að kaupa harðfisk og hákarl. Alger sprenging Fyrir utan Kántrýbæ rekst ég manninn sem á mesta heiðurinn að því að hafa komið Kántrýhátíð á lagg- h-nar og Skagaströnd á kortið. Hall- björn Hjartarson gefur sér tíma í stutt spjall þrátt fyrir annir en auk þess að Upprennandi kúreki Þessi iitli snáði klæddi sig upp að hætti villta vestursins í tilefni hátíðarinnar. DV-MYNDIR EINAR J. Kúreki kátur og hress Hailbjörn Hjartarson, kúreki norðurs- ins, hafði ástæðu til að brosa um helgina enda sló Kántrýhátíðin á Skagaströnd öll met. Leitarinn á útvarpinu er búinn að hringsóla í dágóða stund þegar Útvarp Kántrýbær dettur skyndilega inn miðja vegu milli Hvammstanga og Blönduóss. „Ég er kúreki kátur og hress. Það er kántrí i blóðinu í mér,“ syngur Hall- bjöm Hjartarson, kúreki norðursins, hástöfum. Fyrir framan mig ekur am- erískur pallbíll á hægum hraða og ég sé að bílstjórinn er með kúrekahatt á höfði. „Ég er greinilega á réttri leið,“ hugsa ég með mér um leið og ég hækka ögn í tækinu og dreg úr hraðanum. Sveitatónlistin er svo róandi og lands- lagið fallegt að mér er um megn að aka hratt. Hin alræmda Blönduóslögregla er annars hvergi sýnileg á þjóðvegin- um, sjálfsagt upptekin á Kántrýhátíð- inni eins og aðrir. Hallbjöm Hjartarson aikynnir lagið og heilsar hátíðargest- um sem hann segir vera um tíu þúsund nú þegar og von sé á fleirum. „Tíu þús- und,“ hrópa ég í huganum, „ég vona að ég finni bílastæði." Suzuki Baleno Wagon 4x4,skr. 7/98, ek. 50 þús. þús. Suzuki Wagon R+, 4wd., 5 d.,skr. 8/00, ek. 12 þús. Verð kr. 1090 þús. Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.,skr. 12/99, ek. 27 þús. Verð kr. 830 þús. Suzuki Swift GL, 4 d., ssk.,skr. 8/94, ek. 93 þús. Verð kr. 460 þús. Subaru Impreza Wag. 4x4,skr. 11/99, ek. 31 þús. Verð kr. 1580 þús. Fiat Punto Sport, bsk.,skr. 12/97, ek. 41 þús. Verð kr. 780 þús. Suzuki Jimny, 3 d., bsk., skr. 12/98, ek. 36 þús. Verðkr. 11 $ SUZUKI ■///>■ SUZUKI Skeifunni 17,simi 568-51 Uö Suzuki Baleno Wagon, ssk.,skr. 7/99, ek. 72 þús. Verð kr. 175 þús. Suzuki Baleno GL, 3 d., ssk.,skr. 3/98, ek. 53 þús. Verð kr. 750

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.