Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2001, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001
H
Fréttir
I>V
Sjómannafélag íhugar kæru á lögregluna vegna Panamaskips:
Friðlaust skip
- á svörtum lista, segir formaöur Sjómannafélags Reykjavíkur
„Við erum að íhuga kæru á lögregl-
una vegna ofheldis," segir Jónas Garð-
arsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, einn þriggja sem hand-
teknir voru á Ægisgarði þar sem þeir
vildu kynna farþegum skemmtiferða-
skipsins Clipper Adventurer að áhöfn
skipsins væri ekki ráðin samkvæmt
kjarasamningum Alþjóða flutninga-
verkamannasambandsins, ITF. Þetta
mun vera eina skemmtiferðaskipið
sem hingað kemur sem heldur ekki í
heiðri kjarasamninga ITF.
Jónas segir að skipið hafi komið
hingað undanfarin ár og þá hafl Sjó-
mannafélagið reynt með „kurteisleg-
um hætti“ að leiða útgerðinni fyrir
sjónir að hún væri á glapstigum en
það hafi engan árangur borið. í fyrra-
kvöld setti sýslumaðurinn í Reykjavík
lögbann á aðgerðir sjómanna sem
hugðust mótmæla við skipshlið. Eigi
að síður mætti nokkur fjöldi forsvars-
manna sjómanna og annarra verka-
lýðsfélaga á kajann klukkan 6 í gær-
morgun. Ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir-Landsýn, sem reyndar er að
hluta i eigu verkalýðsfélaganna, sá
við sjómönnum og skipið umdeilda
lagðist ekki að bryggju heldur voru
farþegamir ferjaðir á gúmbátum til
lands. Þegar fyrsti báturinn kom að
Ægisgarði voru mótmælendur mættir
þar en lögreglan var einnig til staðar.
Brutust úr pústrar og voru Jónas og
tveir félaga hans handteknir. Annar
þeirra var Ámi Konráðsson sjómaður
Kl. 10.35: Lögregluaögerö
Árni Konráðsson, tæplega áttræöur sjómaður, tekinn fangbrögöum. Hann leitaöi á slysadeild eftir atburöinn
og hyggst kæra.
DV-MYNDIR HILMAR ÞÖR
Kl. 6.15: Skipið komiö
Lögreglumenn og verkalýösleiötogar biöu þess spenntir aö Panamaskipiö
legöist aö bryggju.
Kl. 9.20: Talsmaður mætir
Reynt aö fá mótmælendur til aö
hætta aögeröum en án árangurs. Á
myndinni er talsmaöur skipshafnar-
innar aö ræöa viö sjómennina Birgi
Björgvinsson og Jóhann Pái Símon-
arson.
sem kominn er fast að áttræðu. Hann
leitaði á slysadeild eftir fangbrögð lög-
reglunnar.
„Lögreglan sveifst einskis og þarna
lögðu þeir hendur á aldraðan mann
sem ekkert hafði til saka unnið. Slíkt
verður ekki liðið enda ætluðum við
aðeins að hafa tal af farþegunum og
afhenda þeim dreifirit. Þeir hafa hing-
að til sýnt okkur meiri virðingu en
þarna fóru ungir lögreglumenn
offari,“ segir Jónas.
Hann segir að nokkrir farþeganna
hafi fengið dreifirit og afskiptum sín-
um og félaga sinna af skipinu sé nú
lokið. En í öðrum höfnum megi út-
gerðin búast við aðgerðum.
„Skipið er hér með komið á svartan
lista alls staðar og hvar sem það kem-
ur er aðgerða að vænta. Þeir verða
friðlausir," segir Jónas. -rt
Kl. 7.20: Sklpsins enn beöiö
Verkalýðsforkólfarnir bíöa enn. Frá vinstri: Sævar Gunnarsson, forseti Sjó-
mannasambands ístands, Jónas Garöarsson, formaöur Sjómannafélags
Reykjavíkur, Borgþór Kjærnested, starfsmaöur ITF, og Ögmundur Jónasson
alþingismaöur og formaöur BSRB.
Kl. 10.30. Farþegar í land
Lögreglan í Reykjavík fylgir farþegum upp flotbryggjuna.
Kl. 8.45: Farþegar í land
Útgerö skemmtiferöaskipsins og íslenska feröaskrifstofan gripu til þess ráös
aö senda farþegana í land meö gúmbátum til aö komast hjá átökum viö mót-
mælendur. Bátunum lagt aö flotbryggju.
Kl. 10.45: Formaöur handtekinn
Lögreglumenn reyna aö koma Jónasi Garöarssyni inn í lögreglubíl
en illa gengur.
wmm
Umsjón: Birgir Guftmundsson
Ein með ■ ■■■
í heita pottinum hafa menn ver-
ið að ræða um útihátíðir helgar-
innar og sýnist sitt hverjum. Heiti
hátíðanna hefur breyst nokkuð í
samræð-
um j
manna á 1
milli og
hafa þær
fengið
nöfn sem
talin eru
■>;- ~ ■,
vwfa<(3* '. m L;
meira
lýsandi
fyrir þaö sem þar var að gerast.
Dæmi um þetta er að Eldborgar-
hátíðin gengur nú undir heitinu
Eldvatnshátíðin mikla sem á að
gefa til kynna mikla áfengisneyslu
mótsgesta. Fjölskylduhátíöin Ein
með öllu á Akureyri hefur hins
vegar fengið viðurnefnið Ein með
engu sem á að gefa til kynna hve
fáir mættu á svæðið ...
Bók frá Svavari
í pottinn hefur spurst aö Svavar
Gestsson sendiherra hyggist skrifa
endurminningar sínar fyrr en síð-
ar, þó ekki sé raunar búist við því
fyrir jólin
næstu. Svavar
[i gaf þetta til
kynna í DV-
viðtali í vor
og nú heyrist
að hann telji
talsverða þörf
á aö gera upp
sinn pólitíska
feril. í pottin-
um segja menn
að þessi skoðun Svavars sé ekki
síst til komin vegna þess að hann
sé mjög ósáttur við það hvernig
Steingrímur Hermannsson fjall-
aði um hann og hans pólitísku að-
komu í sinni síðustu bók ...
Álftagerðisbræður á bók
En talandi um ævisögur þá hefur
frést í heita pottinn að von sé á
sérstakri ævisögu eða frásögn af
lífi þeirra Álftagerðisbræðra fyrir
jólin. Þessir
söngelsku
skagfirsku
bræður hafa
fyrir löngu
brætt hjörtu
tónelskra sam-
landa sinna og
eflaust langar
marga til að
kynnast betur
högum. þeirra.
Sá sem færa mun þessa bók í letur
er Björn Jóhann Björnsson,
blaðamaður á Morgunblaðinu, en
Bjöm er einmitt ættaður úr Skaga-
firði og þekkir vel til þeirra
bræðra. Björn hefur áður fjallað
um Álftagerðisbræður og skrifað
við þá viðtöl, m.a. í DV fyrir
nokkrum árum ...
Framboðsmál R-lista
I pottinum hafa menn verið að
ræða um framboðsmál Reykjavík-
urlistans. Eitt af því sem þegar er
farið að heyrast og kemur m.a. líka
fram á press-
unni hjá
Hrafni Jök-
ulssyni í gær
er að flokk-
arnir þrír
muni skipta 8
efstu sætunum
á milli sín
þannig að Sam-
fylking fái 3
sæti, VG fái 3
sæti, en Framsókn fái hins vegar 2
sæti mjög ofarlega á listanum. Til
að auðvelda framsóknarmönnum
að sætta sig við færri sæti er sagt
að þeim hafi verið boöin staða
varaborgarstjóra eða staðgengils
borgarstjóra. Það yrði þá til þess ef
Ingibjörg Sólrún hætti á miöju
kjörtímabili til að leiða Samfylk-
inguna í næstu þingkosningum að
þá kæmi borgarstjórastóllinn í hlut
framsóknarmanna ...