Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2001, Qupperneq 23
27
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001______________________
I>,V Tilvera
,EEsmmi
Dustin Hoffman er
65 ára í dag
Stórleikarinn
Dustin Hoffman er 64
ára í dag. Hoffman er
fæddur og uppalinn í
borg englanna og er
hann sex barna faðir.
Hann er einn verð-
launaðasti leikarinn í Hollywood enda
hefur hann slegið í gegn í hverri
myndinni af annarri. Hoffman hefur
sjö sinnum verið tilnefndur til ósk-
arsverðlauna og tvisvar hefur hann
hampað styttunni góðu. Það var fyrir
leik í myndunum Kramer vs. Kramer
og Rain Man þar sem mótleikari hans
var Tom Cruise.
Gildir fyrir fímmtudaginn 9. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
■ Dagurinn einkennist af
' rólegu og þægilegu and-
rúmslofti. Þú gætir orðið
vitni að deilum seinni
hluta dagsins. Það er litið sem þú get-
ur gert til að koma í veg fyrir það.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsi:
Það verða miklar
Iframfarir á einhverj-
um vettvangi í dag.
Peningamálin valda
þér samt einhverjum áhyggjum og
erfiðleikum.
Hrúturinn (21. mars-19. aprTli:
. Þú þarft að bíða eftir
I öðrum í dag og vinna
þin líður fyrir seina-
gang annarra. Ekki
láta undan þrýstingi annarra í
mikilvægum málum.
Nautið (20. apríl-20. maíi:
Þin bíður gott tæki-
færi fyrri hluta dags-
ins. Það gæti tengst
__ peningum á einhvern
háfti Þú hugar að breytingum
heima fyrir.
Tviburarnir (21. maí-21. iúníi:
Dagurinn verður góð-
’ ur og þú gætir orðið
heppinn i fjármálum.
Tíma, sem þú eyðir í
skipulagningu heima fyrir, er vel
varið.
Tviburarmr 12
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Vertu orðvar, þú veist
ekki hvemig fólk tek-
ut- þvi sem þú segir.
S Þú gætir lent í því að
moSga fólk eða misbjóða því.
Happatölur þínar eru 4, 11 og 36.
Liónið 123. iúli- 22. áeústl:
Þótt eitthvert verk gangi
vel í byrjun skaltu ekki
gera þér of miklar von-
ir. Nú er timi breytinga
og þú þráir að taka þér eitthvert
nýtt verkefhi fyrir hendur.
Mevian (23. ágúst-22. sept.):
Þú minnist gamalla
tima í dag og það teng-
^^V^l».ist ef til vill endurfund-
^ r um við gamla vini. Ef
þú hyggur á ferðalag er góður timi
núna til skipulagningar.
Vogin (23. se
ý
Vogin (23. sept-23. okt.):
Vonbrigði eða óvæntar
fréttir gætu haft skað-
leg áhrif á stöðu þína
fyrri hluta dagsins. Þú
skalt þvi fresta mikilvægum
ákvörðunum þar til síðar.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
E^ki treysta á aðra til
að hjálpa þér að halda
\ \ \j^loforð þín eða leysa
■ verkefni fyrir þig.
Treystu heldur á eigin dómgreind
og þá mun allt fara vel.
Bogarnaður (??. nnv.-21. des.l:
.Þú gætir átt í erfiðleik-
fum í samskiptum við
fólk í dag og það gerir
^ þér erfitt að nálgast
þær upplýsingar sem þú þarfnast.
Reyndu að taka þvi rólega í kvöld.
Steingeitin (22. des.-i9. ian.):
Fólk gæti reynt að
nýta sér góðvild þina
og þú verður að beita
kænsku til að koma í
veg fyrir það án þess að valda
deilum.
DV-MYND DVÓ
Vígalegar á mótorhjólum
Marlies Weggemans og Marían Splinter gefa strákunum ekkert eftir í aö þeysa um iandiö á stórum mótorhjóium.
Tvær hollenskar ævintýrakonur:
Frekar Griffith
en Banderas
Leikkonan Angelina Jolie hefur orð
á sér fyrir að vera æsileg kynbomba.
Hún er ekki einungis æsileg heldur er
hún einnig hugmyndarík og öðruvísi.
Aðspurð á dögunum hvort hún vildi
rekkja með Antonio Banderas, mót-
leikara sínum í kvikmyndinni Orig-
inal Sin, svaraði kvendið: „Hann er
kvæntur þokkafullri konu. Ég myndi
miklu frekar vilja rekkja með henni
en vera í sambandi við hann,“ svaraði
hún. Banderas er sem kunnugt kvænt-
ur leikkonunni Melanie Griffith.
Kannski Billy Bob ætti að fara að
passa sig.
Kaþólikkar
mótmæla
Kaþólsku samtökin Catholic
Charismatic Renewal hafa lagt fram
skriflega beiðni hjá borgaryflrvöldum
í Glasgow þess efnis að rapparinn
Eminem og sjokkrokkarinn Marilyn
Manson fái ekki að stiga á stokk í
borginni.
Tónlistarmennirnir tveir eru á
meðal aðalnúmera á tónlistarhátíð-
inni Gig on the Green sem haldin
verður í Glasgow 25. ágúst. Kaþólikk-
arnir segja texta um dýrkun á dópi,
kynlífi og djöfladýrkun ekki eiga
heima í Glasgow.
Talið er nokkuð víst að andstæðing-
ar tónlistarmannanna tali fyrir
daufum eyrum i borgarráðinu. Að-
standendur tónleikana hafa líka bent
á að ungum krökkum sé ekki hleypt
inn.
Þeysast á mótor-
hjólum um landið
DV, BORGARFIRDI:____________________
Það er sjaldgæf sjón að sjá ungar
stúlkur á mótorhjólum á vegum
landsins, alla vega islenskar, en það
virðist vera vinsælt hjá erlendum
stúlkum, að minnsta kosti þeim frá
Hollandi. DV rakst á tvær hollensk-
ar yngismeyjar, Marlies Wegge-
mans og Marian Splinter, sem voru
að koma til landsins í annað sinn og
fara um landið á stórum mótorhjól-
um eins og strákarnir.
Þær sögðust hafa tekið ástfóstri
við mótorhjólið fyrir um ellefu
árum og það væri mjög vinsælt hjá
stúlkum í Hollandi að þeysa um á
mótorhjólum. Þær sögðu þetta vera
í annað skiptið sem að þær þeysast
um landið á mótorhjóli. Þær fóru
fyrir þremur árum um þjóðveg 1 og
á Vestfirðina og eftir það hugsuðu
þær með sér að ef þær ætttu kost á
því að koma aftur myndu þær gera
það og tækifærið kom þegar þær
fengu 4 vikna sumarfrí.
„Við komum fyrir um þremur
vikum til Seyðisfjarðar og höfum
keyrt 1000-1500 km en ferðin öll á að
vera um 3000 kílómetrar. Við höfum
farið til margra landa á mótorhjóli,
meðal annars til Frakklands, Aust-
urríkis, italíu, Noregs, Svíþjóðar og
fleiri landa og það er alltaf gaman
að koma til íslands því það er svo
fallegt hérna. Verðlagið mætti vera
aðeins lægra, þá kæmum við oftar,“
sögðu hollensku mótorhjólakonurn-
ar við DV og þær hvöttu íslenskar
stúlkur til að fá sér mótorhjól, það
væri alveg yndislegt að þeysa um
þjóðvegina á þeim.
-DVÓ
Harrison Ford og Nicole Kidman
Stórstjörnurnar Harríson Ford og Nicole Kidman ræddu saman baksviös á
Hollywood Fiim Festival Awards síöastliöinn sunnudag. Nicole fékk verölaun
fyrir besta leik konu í kvikmyndinni Moulin Rouge. Hún er nýskilin viö Tom
Cruise og virtist falla vel atlot Indiana Jones-leikarans geöþekka.
Cusack til forseta
Nú er farin af stað her-
ferð í Bandaríkjunum til
að fá leikarann góð-
kunna, John Cusack, til
að bjóða sig fram til for-
seta árið 2004. Cusack
hefur náð 35 ára aldri
sem gerir hann löglegan í
framboð.
Herferðinni var hrund-
ið af stað af þeim Dan
Carol og Stuart Trevelyan
sem bæði unnu hjá stjórn
Bills Clintons. Miðstöð
herferðarinnar er á vef-
síðunni www.junction-
city.com. Þar getur
fólk skráð sig á und-
irskriftalista. Rökin
fyrir framboði
Cusacks er að hann
tók erfiðar ákvarð-
anir i Grosse Point
Blank, var óspilltur
í Eight Men Out, er
svalari en John
Malkovich og hefur
skynsamlegar póli-
tískar skoðanir.
Dan Carol segir
að ætlunin sé að
safna nægum stuðn-
Fer hann fram
Cusack hefur ekki gefiö út
neinar yfirlýsingar vegna
herferöarinnar.
ingi þangað til Cusack fer að taka
eftir honum. 200 manns hafa boðið
sig fram til aðstoða við framboðið.
Varavalkostur stuðningsmanna
hans er systir hans, Joan.