Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001
DV
Fréttir
Niðurstöður skoðanakannana DV
18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01
@ Kosnlngar 8/5 '99
í
SKOÐANAKÖNNUN
DV
i---------------------------► i
18/03'99 07/08 '01
Viðbrögð
„Þessi niður-
staða sýnir styrk
Sjálfstæðisflokks-
ins og að kjósend-
ur kunna að meta
verk hans og láta
það ekki á sig fá þó
á móti blási,“ segir
Sigríður Anna
Þórðardóttir, for-
maður þingflokks
Sjálfstæðisílokks-
ins, um niðurstööur könnunar DV.
Sigríður segir að það komi ekki á
óvart að mál Árna Johnsens komi
ekki niður á flokknum enda hafi
verið um mál einstaklings að
ræða.
Virkjun hefur áhrif
Kristinn H.
Gunnarsson, for-
maður þingflokks
framsóknarmanna,
segir könnunina
sýna marktækar
breytingar á fylgi
sem séu umhugs-
unarverðar. Hvað
Framsóknarflokk-
inn varðar telur
hann að flokkur-
inn hafi náð sér á strik í vor vegna
frumkvæðis í sjávarútvegsumræð-
unni en það kunni nú að vera að
fjara út. Einnig telur hann að
virkjanamál kunni að hafa ein-
hver áhrif á minnkandi fylgi.
Hann segir einnig að dalandi
gegni Vg sé trúlega upphafið að
varanlegu fylgishruni sem muni
koma betur í ljós í vetur.
Festa sig í sessi
ögmundur Jón-
asson, formaður
þingflokks Vg,
fagnar þvi að í enn
einni könnun skuli
það koma í ljós að
Vinstrihreyfingin
grænt framboð sé
að festa sig í sessi
sem næststærsta
stjórnmálaaflið í
landinu. Ögmund-
ur segir þaö ekki koma á óvart að
Framsóknarflokkurinn sé að
missa fylgi en segir flóknara að
skýra aukið fylgi Sjálfstæðis-
flokksins.
Fagnaöarefni
Bryndís
Hlöðversdóttir,
formaður þing-
flokks Samfylking-
arinnar, segir það
fagnaðarefni að
Samfylkingin sé að
sækja í sig veðrið í
könnunum og að
hún telji að fram-
hald muni verða á
þvi. Hún segir það
merkileg tíðindi að Sjálfstæðis-
flokkurinn skuli vera að sækja sig
með þessum hætti og greinilegt sé
að kjósendur tengi mál ÁRna
Johnsen ekki við flokkinn - ekki
enn þá í það minnsta.
-BG
Bryndís
Hlööversdóttir.
Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna:
Vinstri grænir niður
- Sjálfstæðisflokkur réttir úr kútnum en Framsókn tapar
Vinstrihreyfmgin - grænt framboð
heldur áfram að missa fylgi, er í fríu
falli eftir stöðuga sókn frá kosningun-
um 1999 og fram til janúar á þessu
ári. Sjálfstæðisflokkurinn réttir veru-
lega úr kútnum eftir hrap síðustu 12
mánaða meðan Framsókn tekur
djúpa dýfu eftir timabil hægfara
sóknar.
Samfylkingin er heldur að hressast
eftir dapurt gengi á þessu ári. Frjáls-
lyndir eru á svipuðu róli og frá kosn-
ingum og sem fyrr mælast aðrir
flokkar vart með fylgi.
Þetta eru helstu niðurstöður skoð-
anakönnunar DV sem gerð var á
þriðjudagskvöld. Spurt var: Hvaða
lista mundir þú kjósa ef þingkosning-
ar færu fram núna? Úrtakið var 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar sem og kynja.
Þegar litið er til alls úrtaksins mæld-
ist fylgi Framsóknarflokks 8,8 pró-
sent, Sjálfstæðisflokks 29,2, Frjáls-
lyndra 3,3, Húmanista 0,5, Kristilegra
0,2, Samfylkingar 12,5, Vinstri
grænna 14,5 og Anarkista 0,3 prósent.
Öákveðnir reyndust 25,5 prósent og
5,2 prósent neituðu að svara. 30,7 pró-
sent tóku því ekki afstöðu sem er
minna en í könnun DV í júní síðast-
liðnum þegar 32,7 prósent tóku ekki
afstöðu.
Sjálfstæðisflokkur upp
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust
12,7 prósent kjósa Framsókn sem
missir 4,4 prósentustiga fylgi frá
síðustu könnun og sér á eftir jafnri
stígandi í fylgi síðustu 12 mánuði.
Dæmið snýst hins vegar við hjá
Sjálfstæðisflokknum sem mælist
með 42,1 prósents fylgi og tekur
mikið stökk, 6,5 prósentustig,
eftir stöðugt hrap síðustu 12 mán-
uöi. Frjálslyndi flokkurinn mælist
með 4,8 prósenta fylgi, hefur verið á
hægu ölduróli frá kosningunum
1999. Samfylkingin nær að rétta úr
kútnum eftir dapurt gengi í könn-
unum á þessu ári en á langt i að
vinna upp griðarlegt fylgishrap sem
varð í janúar síðastliðnum. Fylgi
Samfylkingarinnar mælist nú 18
prósent. Vinstri grænir eru í fríu
falli, mælast með 20,9 prósenta fylgi.
Hrapa þeir um 4,1 prósentustig frá
siðustu könnun DV en þá hrapaði
fylgi þeirra um 4,3 prósentustig frá
könnun DV í janúar.
Framsóknarflokkur sækir einn
flokkanna meirihluta síns fylgis út
á landsbyggðina en þar eru tæp 74
prósent fylgismanna hans. Hjá hin-
um flokkunum er meirihluti fylgis-
manna í höfuðborginni þó hlutfallið
sé tiltölulega jafnt. Ekki er mark-
tækur munur á skiptingu eftir
landshlutum hjá þeim sem taka
ekki afstöðu i könnuninni.
Skipting þingsæta
Ef þingsætum er útdeilt miðað
við núverandi kerfi og þá sem tóku
afstöðu í könnun DV reynist Fram-
sókn fá 8 menn kjörna, tapa 3 frá
síðustu könnun og Sjálfstæðisflokk-
ur 28 menn, bæta við sig 5. Saman-
lagt fá stjórnarflokkarnir þvi 36
þingmenn, bæta við sig 2 frá síðustu
könnun.
Frjálslyndir fá 2 þingmenn, tapa
einum. Samfylkingin fær 12 menn á
þing samkvæmt þessari könnun
DV, bætir við sig 2 frá fyrri könnun.
Loks fá Vinstri grænir 13 menn
kjörna, tapa 3. Vinstri grænir hafa
samtals tapað 6 þingmönnum frá
því í könnun DV í janúar 2001. Það
er þó huggun harmi gegn
að Vinstri grænir eru næstir með
mann inn í þessari könnun. Sam-
kvæmt tölum um skiptingu þing-
sæta geta sjálfstæðismenn myndað
stjórn meö Framsókn, Samfylkingu
eða Vinstri grænum, allt eftir því
hvernig pólitískir vindar blása.
„Vinstri stjórn" Framsóknar, Sam-
fylkingar og Vinstri grænna
fengi 2 þingsæta meirihluta með
33 þingmenn. -rt
Skipan þingsæta
m/ <17 /ao
SKODANAKÖNNUN
DV
— samkvæmt atkvæðafjölda -
35
30
25
20
15
10
DV07/OS 01
t 3DV 07/06 '01
'DV 28/01 '01
l. ÍDV12/01 '01
I iDV 23/10 'OO
, ,DV29/09'00
I ÍDV 21-22/03 'OO
l iDV 28-29/12 '99
i pv 20/10 '99
I pV 13/09 '99
i iKosningar
©
Samfylkingin
f&M]1
Bílvelta á Kaldadal
Þrír þjóðverjar sluppu
með skrekkinn
þegar bíll þeirra
valt á veginum um
Kaldadal í gær-
kvöldi.
í fyrstu var talið
að um alvarlegt slys væri
að ræða og var þyrla Landhelgis-
gæslunnar sett í viðbragðsstöðu
vegna málsins. Síðar kom í ljós að
um alvarleg meiðsl var ekki að
ræða og var málinu sinnt af lög-
reglu í Borgarnesi.
Ósammála þingmenn
Alþingismenn Vestflarða hittust
á fundi í gær en Karl V. Matthías-
son, þingmaður Samfylkingarinnar,
tók til máls á fundinum og ræddi
málefni smábátasjómanna og kvóta-
mál. Helsta niðurstaða fundarins
var að þingmennirnir voru sam-
mála um alvarleika málsins en
ósammála um leiðir til lausnar eða
hvort kalla eigi Alþingi saman
vegna málsins.
Siv boðar þjónustugjöld
Siv Friðleifsdótt-
ir umhverfisráð-
herra var á ferð i
þjóðgarðinum í
Jökulsárgljúfrum í
gær þar sem hún
kynnti sér stað-
hætti og ræddi við
landverði. Við þetta
tækifæri lýsti ráðherrann þvi yfir
að ekki væri vafamál að tekin yrðu
upp þjónustugjöld í þjóðgörðum
landsins í framtíðinni. Morgunblað-
ið skýrði frá.
Kári stöðvaður
Úskurðarnefnd skipulags- og
byggingamála í Reykjavík hefur
stöðvað timabundið framkvæmdir
við byggingu Kára Stefánssonar við
Skeljatanga í Skerjafirði. Væntan-
legir nágrannar Kára hafa lagt fram
kærur vegna framkvæmdanna og
liggja þær niðri þar til niðurstöður
þeirra mála liggja fyrir.
Bónus í Kringluna
Ákveðið hefur verið að Bónus
opni verslun í Kringlunni um miðj-
an næsta mánuð. Verslunin verður
um 1000 fermetrar að flatarmáli og
því ein stærsta Bónusverslunin.
Fyrir er í Kringlunni verslun Ný-
kaups.
Engar breytingar
Halldór Ásgríms-
son utanrikisráð-
herra og Colin
Powell, utanrikis-
ráðherra Banda-
ríkjanna, funduðu í
Washington í gær
um ýmis sam-
skiptamál þjóð-
anna. Þeir ræddu m.a. málefni
NATO og voru ráðherrarnir sam-
mála um mikilvægi varnarsam-
starfsins. Fram kom á fundinum að
af hálfu Bandaríkjanna eru engar
áherslubreytingar á samskiptum
þjóðanna fyrirhugaðar.
Áfall á Hellu
Reykjagarður hefur ákveðið að
hætta slátrun kjúklinga í sláturhúsi
sínu á Hellu en kaupa þess í stað
kjúklinga af Ferskum kjúklingum í
Mosfellsbæ sem verða svo fullunnir
í neytendaumbúðir á Hellu. Við
þetta fækkar störfum á Hellu um-
talsvert og er þetta áfall fyrir at-
vinnulífið þar.
Starfshópur um útihátíðir
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra hefur
ákveðið að koma á
fót faglegum starfs-
hópi sem ætlað er
að fara yfir gildandi
lög og reglur er
snerta skemmtana-
hald á útihátíðum. Viðmiðunarregl-
ur sem í gildi eru um þessi mál eru
orðnar 11 ára gamlar og liggur fyrir
að þeim tilmælum sem þar er að
finna hefur ekki verið framfylgt
undanfarin ár. -gk