Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 DV Fréttir Niðurstöður skoðanakannana DV 18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01 18/03'99 07/08'01 @ Kosnlngar 8/5 '99 í SKOÐANAKÖNNUN DV i---------------------------► i 18/03'99 07/08 '01 Viðbrögð „Þessi niður- staða sýnir styrk Sjálfstæðisflokks- ins og að kjósend- ur kunna að meta verk hans og láta það ekki á sig fá þó á móti blási,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður þingflokks Sjálfstæðisílokks- ins, um niðurstööur könnunar DV. Sigríður segir að það komi ekki á óvart að mál Árna Johnsens komi ekki niður á flokknum enda hafi verið um mál einstaklings að ræða. Virkjun hefur áhrif Kristinn H. Gunnarsson, for- maður þingflokks framsóknarmanna, segir könnunina sýna marktækar breytingar á fylgi sem séu umhugs- unarverðar. Hvað Framsóknarflokk- inn varðar telur hann að flokkur- inn hafi náð sér á strik í vor vegna frumkvæðis í sjávarútvegsumræð- unni en það kunni nú að vera að fjara út. Einnig telur hann að virkjanamál kunni að hafa ein- hver áhrif á minnkandi fylgi. Hann segir einnig að dalandi gegni Vg sé trúlega upphafið að varanlegu fylgishruni sem muni koma betur í ljós í vetur. Festa sig í sessi ögmundur Jón- asson, formaður þingflokks Vg, fagnar þvi að í enn einni könnun skuli það koma í ljós að Vinstrihreyfingin grænt framboð sé að festa sig í sessi sem næststærsta stjórnmálaaflið í landinu. Ögmund- ur segir þaö ekki koma á óvart að Framsóknarflokkurinn sé að missa fylgi en segir flóknara að skýra aukið fylgi Sjálfstæðis- flokksins. Fagnaöarefni Bryndís Hlöðversdóttir, formaður þing- flokks Samfylking- arinnar, segir það fagnaðarefni að Samfylkingin sé að sækja í sig veðrið í könnunum og að hún telji að fram- hald muni verða á þvi. Hún segir það merkileg tíðindi að Sjálfstæðis- flokkurinn skuli vera að sækja sig með þessum hætti og greinilegt sé að kjósendur tengi mál ÁRna Johnsen ekki við flokkinn - ekki enn þá í það minnsta. -BG Bryndís Hlööversdóttir. Skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna: Vinstri grænir niður - Sjálfstæðisflokkur réttir úr kútnum en Framsókn tapar Vinstrihreyfmgin - grænt framboð heldur áfram að missa fylgi, er í fríu falli eftir stöðuga sókn frá kosningun- um 1999 og fram til janúar á þessu ári. Sjálfstæðisflokkurinn réttir veru- lega úr kútnum eftir hrap síðustu 12 mánaða meðan Framsókn tekur djúpa dýfu eftir timabil hægfara sóknar. Samfylkingin er heldur að hressast eftir dapurt gengi á þessu ári. Frjáls- lyndir eru á svipuðu róli og frá kosn- ingum og sem fyrr mælast aðrir flokkar vart með fylgi. Þetta eru helstu niðurstöður skoð- anakönnunar DV sem gerð var á þriðjudagskvöld. Spurt var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef þingkosning- ar færu fram núna? Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt milli höfuðborgar- svæðis og landsbyggðar sem og kynja. Þegar litið er til alls úrtaksins mæld- ist fylgi Framsóknarflokks 8,8 pró- sent, Sjálfstæðisflokks 29,2, Frjáls- lyndra 3,3, Húmanista 0,5, Kristilegra 0,2, Samfylkingar 12,5, Vinstri grænna 14,5 og Anarkista 0,3 prósent. Öákveðnir reyndust 25,5 prósent og 5,2 prósent neituðu að svara. 30,7 pró- sent tóku því ekki afstöðu sem er minna en í könnun DV í júní síðast- liðnum þegar 32,7 prósent tóku ekki afstöðu. Sjálfstæðisflokkur upp Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 12,7 prósent kjósa Framsókn sem missir 4,4 prósentustiga fylgi frá síðustu könnun og sér á eftir jafnri stígandi í fylgi síðustu 12 mánuði. Dæmið snýst hins vegar við hjá Sjálfstæðisflokknum sem mælist með 42,1 prósents fylgi og tekur mikið stökk, 6,5 prósentustig, eftir stöðugt hrap síðustu 12 mán- uöi. Frjálslyndi flokkurinn mælist með 4,8 prósenta fylgi, hefur verið á hægu ölduróli frá kosningunum 1999. Samfylkingin nær að rétta úr kútnum eftir dapurt gengi í könn- unum á þessu ári en á langt i að vinna upp griðarlegt fylgishrap sem varð í janúar síðastliðnum. Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 18 prósent. Vinstri grænir eru í fríu falli, mælast með 20,9 prósenta fylgi. Hrapa þeir um 4,1 prósentustig frá siðustu könnun DV en þá hrapaði fylgi þeirra um 4,3 prósentustig frá könnun DV í janúar. Framsóknarflokkur sækir einn flokkanna meirihluta síns fylgis út á landsbyggðina en þar eru tæp 74 prósent fylgismanna hans. Hjá hin- um flokkunum er meirihluti fylgis- manna í höfuðborginni þó hlutfallið sé tiltölulega jafnt. Ekki er mark- tækur munur á skiptingu eftir landshlutum hjá þeim sem taka ekki afstöðu i könnuninni. Skipting þingsæta Ef þingsætum er útdeilt miðað við núverandi kerfi og þá sem tóku afstöðu í könnun DV reynist Fram- sókn fá 8 menn kjörna, tapa 3 frá síðustu könnun og Sjálfstæðisflokk- ur 28 menn, bæta við sig 5. Saman- lagt fá stjórnarflokkarnir þvi 36 þingmenn, bæta við sig 2 frá síðustu könnun. Frjálslyndir fá 2 þingmenn, tapa einum. Samfylkingin fær 12 menn á þing samkvæmt þessari könnun DV, bætir við sig 2 frá fyrri könnun. Loks fá Vinstri grænir 13 menn kjörna, tapa 3. Vinstri grænir hafa samtals tapað 6 þingmönnum frá því í könnun DV í janúar 2001. Það er þó huggun harmi gegn að Vinstri grænir eru næstir með mann inn í þessari könnun. Sam- kvæmt tölum um skiptingu þing- sæta geta sjálfstæðismenn myndað stjórn meö Framsókn, Samfylkingu eða Vinstri grænum, allt eftir því hvernig pólitískir vindar blása. „Vinstri stjórn" Framsóknar, Sam- fylkingar og Vinstri grænna fengi 2 þingsæta meirihluta með 33 þingmenn. -rt Skipan þingsæta m/ <17 /ao SKODANAKÖNNUN DV — samkvæmt atkvæðafjölda - 35 30 25 20 15 10 DV07/OS 01 t 3DV 07/06 '01 'DV 28/01 '01 l. ÍDV12/01 '01 I iDV 23/10 'OO , ,DV29/09'00 I ÍDV 21-22/03 'OO l iDV 28-29/12 '99 i pv 20/10 '99 I pV 13/09 '99 i iKosningar © Samfylkingin f&M]1 Bílvelta á Kaldadal Þrír þjóðverjar sluppu með skrekkinn þegar bíll þeirra valt á veginum um Kaldadal í gær- kvöldi. í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og var þyrla Landhelgis- gæslunnar sett í viðbragðsstöðu vegna málsins. Síðar kom í ljós að um alvarleg meiðsl var ekki að ræða og var málinu sinnt af lög- reglu í Borgarnesi. Ósammála þingmenn Alþingismenn Vestflarða hittust á fundi í gær en Karl V. Matthías- son, þingmaður Samfylkingarinnar, tók til máls á fundinum og ræddi málefni smábátasjómanna og kvóta- mál. Helsta niðurstaða fundarins var að þingmennirnir voru sam- mála um alvarleika málsins en ósammála um leiðir til lausnar eða hvort kalla eigi Alþingi saman vegna málsins. Siv boðar þjónustugjöld Siv Friðleifsdótt- ir umhverfisráð- herra var á ferð i þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum í gær þar sem hún kynnti sér stað- hætti og ræddi við landverði. Við þetta tækifæri lýsti ráðherrann þvi yfir að ekki væri vafamál að tekin yrðu upp þjónustugjöld í þjóðgörðum landsins í framtíðinni. Morgunblað- ið skýrði frá. Kári stöðvaður Úskurðarnefnd skipulags- og byggingamála í Reykjavík hefur stöðvað timabundið framkvæmdir við byggingu Kára Stefánssonar við Skeljatanga í Skerjafirði. Væntan- legir nágrannar Kára hafa lagt fram kærur vegna framkvæmdanna og liggja þær niðri þar til niðurstöður þeirra mála liggja fyrir. Bónus í Kringluna Ákveðið hefur verið að Bónus opni verslun í Kringlunni um miðj- an næsta mánuð. Verslunin verður um 1000 fermetrar að flatarmáli og því ein stærsta Bónusverslunin. Fyrir er í Kringlunni verslun Ný- kaups. Engar breytingar Halldór Ásgríms- son utanrikisráð- herra og Colin Powell, utanrikis- ráðherra Banda- ríkjanna, funduðu í Washington í gær um ýmis sam- skiptamál þjóð- anna. Þeir ræddu m.a. málefni NATO og voru ráðherrarnir sam- mála um mikilvægi varnarsam- starfsins. Fram kom á fundinum að af hálfu Bandaríkjanna eru engar áherslubreytingar á samskiptum þjóðanna fyrirhugaðar. Áfall á Hellu Reykjagarður hefur ákveðið að hætta slátrun kjúklinga í sláturhúsi sínu á Hellu en kaupa þess í stað kjúklinga af Ferskum kjúklingum í Mosfellsbæ sem verða svo fullunnir í neytendaumbúðir á Hellu. Við þetta fækkar störfum á Hellu um- talsvert og er þetta áfall fyrir at- vinnulífið þar. Starfshópur um útihátíðir Sólveig Péturs- dóttir dómsmála- ráðherra hefur ákveðið að koma á fót faglegum starfs- hópi sem ætlað er að fara yfir gildandi lög og reglur er snerta skemmtana- hald á útihátíðum. Viðmiðunarregl- ur sem í gildi eru um þessi mál eru orðnar 11 ára gamlar og liggur fyrir að þeim tilmælum sem þar er að finna hefur ekki verið framfylgt undanfarin ár. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.